Morgunblaðið - 15.02.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
Keppni haldin í
hjólastólaakstri
SJÁLFSBJÖKG, landssamband fatlaðra, efnir til firmakeppni í hjólastóla-
akstri í Laugardaishöll 3. mars nk. kl. 14:00. Tilefnið er 25 ára afmæli
samtakanna á síðastliðnu sumri.
Tilgangurinn er sá að vekja at-
hygli á þeim erfiðleikum, sem illa
skipulagt umhverfi veldur fólki,
sem þarf að nota hjólastóla, svo og
að minna á önnur baráttumál fatl-
aðra og starfsemi samtakanna yf-
irleitt.
Þessi hjólastólakeppni er sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi
og er reyndar ekki kunnugt um
hliðstæður í nágrannalöndunum.
Þátttakendur skiptast í þrjá hópa,
í einum verða stjórnmálamenn, í
Málfundur
blaðamanna
um íslensku
Blaðamannafélag íslands gengst
fyrir opnum málfundi um „Málfar í
fjölmiðlum — hlutverk og ábyrgð
blaðamanna" í veitingasalnum
Litlu-Brekku í Bankastræti 2 á laug-
ardaginn kl. 16:30. Málfundurinn
verður haldinn í lok íslensku-
námskeiðs, sem Blaðamannafélagið
heldur fyrir félaga sína um helgina í
samvinnu við Háskóla íslands.
Málshefjendur á fundinum
verða Þórarinn Eldjárn rithöfund-
ur, Árni Böðvarsson málfarsráðu-
nautur, Jóhanna Kristjónsdóttir
blaðamaöur, Sigurður G. Tómas-
son íslenskufræðingur og blaða-
maður og Guðmundur Krist-
mundsson, námstjóri í íslensku.
Þeir varpa fram ýmsum spurning-
um um málfar og máinotkun í
fjölmiðlum, meðal annars hvort
það sé hlutverk blaðamanna að
ganga á undan með góðu fordæmi,
hvort þeir eigi að ryðja nýyrðum
braut eða hvort tungunni stafar
mest hætta af erlendum tökuorð-
um. Rætt verður hve mikla
áherslu blaðamenn geti lagt á
málfar í daglegum störfum með
hliðsjón af tímaskorti og afkasta-
kröfum. Hafa blaðamenn yfirleitt
ráðrúm til að láta ætíð frá sér
fara góðan texta? Einnig verður
rætt hvernig sé háttað yfirlestri
texta og umræðum um málfar á
einstökum ritstjórnum, hverskon-
ar leiðsögn byrjendur fái og hvaða
stefnu ætti að taka í mennta-
málum blaðamanna í þessum og
skyldum efnum.
Fundurinn er öllum opinn.
Tommi í við-
ræðum við
McDonald’s
TÓMAS Á. Tómasson, matreiðslu-
maður, sem á sínum tíma stofnaði
fyrirtækið „Tomma-hamborgara",
hefur að undanlornu átt í viðræðum
bandarísku McDonald's-hamborg-
arasamsteypuna um hugsanlegan
nafnleigusamning, en eins og greint
hefur verið frá í frétt Morgunblaðs-
ins hyggst fyrirtækið setja upp
McDonald's-hamborgarastað í fyrir-
hugaðri verslunarmiðstöð Hagkaups
í nýja miðbænum í Kringlumýri.
Gengið hefur verið frá teikning-
um af fyrirhuguðu húsnæði
McDonald’s í nýju verslunarmið-
stöðinni en að öðru leyti er málið á
viðræðu- og undirbúningsstigi.
Tómas Á. Tómasson mun vænt-
anlega fara utan nú á næstunni til
frekari viðræðna við forráðamenn
McDonald’s-hamborgara og eftir
þær viðræður verður úr því skorið
hvort af þessu samstarfi verður.
Fyrirhugað er að hin nýja versl-
unarmiðstöð Hagkaups verði
opnuð um mitt ár 1987.
öðrum kunnir íþróttamenn og í
þriðja hópnum fatlað fólk og má
segja að sá hópur keppi á heima-
velli.
Eins og fyrr segir er þetta
firmakeppni og greiða fyrirtækin
ákveðið gjald, sem rennur til fjár-
mögnunar keppninnar. Auk sjálfr-
ar keppninnar verða skemmtiat-
riði.
„Nikkelfjallið"
— frumsýnt í Bíóhöllinni í dag
í DAG hefjast sýningar á íslenzk-bandaríku kvikmynd-
inni „Nikkelfjallið" en myndin er gerð eftir samnefndri
skáldsögu John Gardner.
Kvikmyndin er afrakstur samstarfs íslendinga og
Bandaríkjamanna en það var David Shanks sem fór
þess á leit við Jakob Magnússon að hann sæi unv
framkvæmd og framleiðslu á umræddu verki eftir
Drew Denbaum leikstjóra. Jakob fékk m.a. til liðs
við sig allmarga íslendinga auk Bretans Davids
Bridges og fór kvikmyndatakan fram í Mið-Kalif-
orníu. Fjallar myndin um átök fólks í litlu samfélagi
á Nikkelfjalli. Meðal leikara eru Michael Cole, Grace
Zabriskie og Patrick Cassidy.
RENAULT
SUÐURLANDSBRAUT 20 LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL.10 - 5
RENAULT 25
Konungur Renault bílanna
RENAULT 11
Ást við fyrstu kynni
Þú fellur í stafi þegar þú sérð hann. Renault 25 er
glæsivagn sem á fá sína líka. Bíll framtíðarinnar sem
engan lætur ósnortinn.
Renault 11 hefur fengið margar viðurkenningar fyrir
frábæra hönnun og fjöðrunin er engu lík. Rými og
þægindi koma öllum í gott skap.
RENAULT9
Nútímabíll með framtíðarsvip
**» » i P
TRAFIC 4X4
Fjölhæfur til allra verka
Renault 9 er sparneytinn, snarpur og þýður. Auk þess
er hann framhjóladrifinn.sem ogaðrir Renault bílar.
Fallegt og stílhreint útlit vandaður frágangur, öryggi
og ending hafa tryggt Renault 9 vinsældir
víða um lönd.
Renault Trafic 4x4 í fyrsta sinn á Islandi. Bíll sem
beðið hefur verið eftir hérlendis. Burðargeta: 1100 kg.
Hentugur fyrir t.d. sveitarfélög, verktaka o.fl. Bæði
fáanlegur með bensín- og dísilvél. Komið og kynnið
ykkur þennan bíl, hann býður upp á marga möguleika.
Það hafa orðið geysilegar framfarir á Renault bifreiðum siðustu árin. Renault er einn af stærstu framleiðendum bila
í Evrópu. Ástæðan er augljós. Renault hefur tekist að framleiða bíla sem hafa flesta kosti draumabílsins. Við sýnum
fleiri bíla en getið er hér að ofan, m.a.: TRAFIC, LENGRIGERÐ, vinsælan og lipran sendibíl, MASTER, rúmgóðan og stóran
sendibíl með miklum möguleikum,tilvalinn fyrir sendibílstjóra og fyrirtæki. RENAULT 4 VAN, sem flestir kannast við og er
sérstaklega hagstæður í rekstri. RENAULT 11 VAN, sem er tilvalinn fyrirtækisbíll í borgarumferðina.
Fæst orð bera minnsta ábyrgð.
Komdu heldur og sjáðu hvað við erum að reyna að segja þér. 6 ARA
O
V.oö>'
ð* ?V
Fáðu að taka í Renault, þá veistu hvað við meinum.
voe
Vv'"
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633
RYÐVARNARABYRGÐ
Á RENAULT BÍLUM
ÞÚ GETUR REITT
ÞIG Á RENAULT