Morgunblaðið - 15.02.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
25
Sex létust
eftir
árekstur
30 bíla
Nýlega lentu 30 bflar saman í
árekstursbendu á hraðbrautinni
millí Miinchenar og Niirnberg. Var
ástæðan sú, að flutningabfl hvolfdi
skyndilega á flughálli brautinni.
Sex manns létu lífið í slysi þessu.
Á myndinni sést lík eins bflstjór-
anna ofan á braki úr flutningabfl,
en björgunarmenn eru að störfum.
Engin kjarnorkuvopn án sam-
þykkis ríkisstjórnar landsins
Utanríkisráðherra Kanada:
Andúð á afskiptum af kjarnorkuvopn-
um veldur áhyggjum í Bandaríkjunum
JOE Clark, utanríkisráðherra
Kanada, áréttaði í þingræðu á mið-
vikudag, að bandarísk kjarnorku-
vopn verða ekki flutt til landsins
án samþykkis ríkisstjórnarinnar.
Þingmenn stjórnarandstöð-
unnar héldu því fram, að því
hefði verið haldið leyndu fyrir
ráðherranum að samkvæmt sér-
stakri áætlun Bandaríkjastjórn-
ar um notkun kjarnorkuvopna
ætti að flytja kjarnorkudjúp-
sprengjur til Kanada og fleiri
ríkja ef neyðarástand skapaðist.
Dagblaðið The New York Tim-
es greindi frá því í gær, að slík
áætlun hefði verið til í a.m.k.
áratug og ríkisstjórnum viðkom-
andi landa, sem auk Kanada
væru ísland, Bermúda og Puerto
Rico, hefði ekki verið skýrt frá
henni. Heimild blaðsins var
leyndarskjal, sem William Ark-
in, sérfræðingur um vígbúnað-
Joe Clark, utanríkisráðherra
Kanada.
armál hjá Institute for Policy
Studies í Washington, lét því í
té. Jafnframt hafði blaðiö eftir
ónafngreindum bandarískum
embættismönnum, að sam-
kvæmt áætlun þessari yrði að
leita leyfis ríkisstjórna viðkom-
andi landa áður en til flutnings
kjarnorkuvopnanna kæmi.
Clark sagði enn fremur í þing-
ræðu sinni, að eftir að Arkin
hefði komið skjali sínu á fram-
færi við ríkisstjórn Kanada í síð-
asta mánuði, hefði hann leitað
skýringa hjá Bandaríkjastjórn
og fengið fullvissu um, að engum
áætlunum um flutning kjarn-
orkuvopna til Kanada yrði hrint
í framkvæmd án samþykkis rík-
isstjórnar landsins.
Stofnun sú í Washington, sem
Arkin starfar við, og þykir
vinstri sinnuð og gagnrýnin á
ríkjandi stjórnarstefnu, sendi
frá sér yfirlýsingu í gær, þar
sem segir að löndin, sem heim-
ildin um flutning kjarnorku-
djúpsprengna nær til, séu sjö, en
ekki fjögur. Löndin þrjú, sem
nefnd eru að auki, eru Azoreyj-
ar, Spánn og Filippseyjar. Segir
stofnunin, að áætlanir um að
senda kjarnorkuvopn til íslands,
Kanada og Spánar stangist á við
yfirlýsta stefnu ríkisstjórna
landanna um að þar skuli ekki
geymd kjarnorkuvopn.
The New York Times fjallar
um mál þetta á ný í forsíðufrétt
í gær, og segir að embættismenn
í utanríkis- og varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna séu um
þessar mundir að reyna að átta
sig á því hvernig bregðast eigi
við vaxandi andúð meðal banda-
manna þeirra á Vesturlöndum á
hvers kyns afskiptum af kjarn-
orkuvopnum. Hefur blaðið eftir
háttsettum embættismanni, sem
ekki er nafngreindur, að Banda-
ríkjastjórn muni ítreka það við
ráðamenn bandalagsþjóða sinna,
að þeim verði gerð grein fyrir
öllum ákvörðunum um kjarn-
orkuvopn, sem snerta lönd
þeirra, og verði hafðir með í ráð-
um um þær.
GENGI
GJALDMIÐLA
Lát á hækkun
dalsins
Lundúnutn, 14. febrúar. AP.
GENGI bandaríkjadals gagn-
vart franska frankanum og ít-
ölsku lírunni hækkaði í dag ní-
unda daginn í röð, en gengi dals-
ins gagnvart öðrum helstu gjald-
miðlum var svipað og í gær eða
lægra.
Orðrómur er á kreiki um að
vestur-þýski seðlabankinn
kunni að grípa til einhverra
ráðstafana í næstu viku til að
reyna að bæta stöðu marksins
gagnvart dalnum, nú þegar lát
er á hækkun hans.
Fyrir hvert sterlingspund
fengust í lok viðskipta í dag
1,0930 bandaríkjadalir, en í
gær fengust 1,0838 dalir.
í lok viðskipta í Tókýó í dag
fengust 262,55 yen fyrir hvern
dal (í gær 262,55), en í lok
viðskipta í Lundúnum fengust
260,77 yen fyrir hvern dal.
Gengi bandaríkjadals gagn-
vart öðrum helstu gjaldmið-
lum var sem hér segir í lok
viðskipta í gær: 3,2905 vestur-
þýsk mörk (í gær 3,3010);
2,80075 svissneskir frankar
(2,8047); 3,7295 hollensk gyll-
ini (3,7360); 1,33995 kanada-
dalir (1,3400).
Fyrsta hjarta-
igræðslan í
Finnlandi
Helsinki, 14. febrúar. AP.
FYRSTA hjartaígræðslan í Finn-
landi var framkvæmd á háskólahús-
inu í Helsinki á miðvikudagskvöld-
ið, að því er blaðið Helsingin San-
omat skýrir frá í dag.
Sjúkrahúsið vill hvorki skýra
frá nafni hjartaþegans né hjarta-
gjafans, en sagði að aðgerðin, sem
Iauk á miðnætti, hefði tekist vel. í
aðgerðinni tóku þátt 20 læknar og
hjúkrunarkonur undir forystu dr.
Severi Mattila læknis.
Talið er að þörf sé fyrir 5—10
hjartaígræðslur árlega í Finn-
landi.
HVERFAFUNDIR BORGARST JÓRA1985
Hvað hefur
áunnist?
Hvert stefnum
við?
DAVÍÐ ODDSSON BORGARSTJÓRI FLYTUR RÆÐU
OG SVARAR FYRIRSPURNUM FUNDARGESTA.
1.FUNDUR
Langholtshverfi —
Laugarneshverfi
Laugardaginn 16. febrúar kl. 14.30 í
Veitingahúsinu Glæsibæ.
Fundarstjóri: Gunnlaugur G. Snædal
háskólanemi.
Fundarritari: Erla Wigelund kaupmaöur.
Á fundinum verða sýnd líkön,
litskyggnur og skipulagsupp-
drættir.
REYKVÍKINGAR!
FJÖLMENNIÐ Á HVERFAFIJNDI BORGARSTJÓRA.
KOMIÐ SJÓNARMIÐUM YKKAR Á FRAMFÆRI OG KYNNIST
UMHVERFI YKKAR BETUR.
J