Morgunblaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBROAR 1985
31
Sedró 5 syngja jazz í Blómasal
„SEDRÓ 5“ heitir jazzsöngflokkur,
sera kemur fram í fyrsta sinn í
Blómasal Hótels Loftleiða í hideg-
inu á sunnudaginn. Flokkurinn er
skipaður fimm ungum söngvurum og
tónlistarmönnum og er nafngiftin
samsetning úr fyrstu stöfum nafna
þeirra: Sigurbjörg, Elfa, Dagbjörg,
Ragnar og Ómar.
Þau munu syngja nokkur lög
með Kvintett Friðriks Theódórs-
sonar, þannig að alls munu tíu
músíkantar kitla tóneyru hádeg-
isjazzgeggjara á sunnudaginn.
Það sem vitað er að flutt verður
97 kíló af
mynt fyrir
notaöan bíl
ÞAÐ mun líklegast ekki almennt í
viðskiptum manna á milli, að greitt
sé með 23.000 myntum, 97 kfló að
þyngd fyrir notaðan bfl. Ffettablaðið
Feykir segir þó fyrir skömmu frá
slíkum viðskiptum milli Hauks á
Röðli í Torfalækjarhreppi og Guð-
mundar Garðars, bankastarfsmanns
á Blönduósi.
Haukur Pálsson, bóndi á Röðli,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að rétt væri að viðskipti þessi
hefðu átt sér stað. Hann hefði ver-
ið að selja Guðmundi Garðari
Renault-bíl árgerð 1974 á 57.000
krónur og viljað fá greiðsluna í
peningum. Þegar að henni kom
hefði Guðmundur Garðar greitt
honum með mynt eingöngu, 23.000
stykkjum um 97 kíló að þyngd,
meðal annars 2.000 50-eyringum
svo og öllum öðrum tegundum.
Haukur sagðist hafa tekið við
þessari miklu byrði þegjandi og
hljóðalaust, en komið tveimur
dögum seinna í bankann með
myntina í tveimur stórum fötum
til að leggja hana inn eftir að hafa
hrært henni vel saman. Við það
hefði komið nokkuð skrýtinn svip-
ur á gjaldkerann, sem ekki hefði
vitað af þessum viðskiptum áður,
en við ósköpunum hefði þó verið
tekið.
„Mér varð bara á ein skyssa í
þessum viöskiptum, ég gleymdi að
detta, þegar ég kom með seinni
fötuna inn í bankann," sagði
Haukur Pálsson.
Vinsældalisti
rásar 2
Hér birtist listi yfir 10 vinsælustu
lögin á rás 2 í þessari viku. Að-
eins tvö ný lög komust inn á list-
ann að þessu sinni, en hann er
sem hér segir:
1. (5) The Moment of Truth.
... Survivor
2. (1) I Want to Know What
Love is ... Foreigner
3. (11) Save a Prayer ... Dúr-
an Duran
4. (2) Everything She Wants
... Wham!
5. (10) Forever Young ...
Alphaville
6. (3) Búkalú ... Stuðmenn og
Ragnhildur Gísladóttir
7. (8) We Belong ... Pat Ben-
atar
8. (6) Easy Lover ... Phil Coll-
ins og Philip Baily
9. (19) Shout ... Tears for
Fears
10. (4) Sex Crime (1984) ...
Eurythmics
eru lög og útsetningar ættaðar frá
Sergio Mendez, Pointer Sisters og
Manhattan Transfer.
Meðfylgjandi mynd var tekin af
Sedró 5 á æfingu á dögunum.
Sýningu Sveins Björnssonar lýkur á sunnudag
Málverkasýningu Sveins
Björnssonar, listmálara, á Kjar-
vaLsstöðum lýkur á sunnudag.
Sveinn sýnir 58 málverk, máluð á
tveimur síðustu árum. Mikil að-
sókn hefur verið að sýningunni,
sem er haldin í tilefni 60 ára af-
mælis listamannsins.
Sýningin var opnuð 2. febrúar
síðastliðinn. Hún er opin alla
daga frá klukkan 14 til 22. f
stuttu spjalli við Mbl. sagðist
Sveinn Björnsson vera ákaflega
ánægður með þær viðtökur, sem
sýningin hefði hlotið. Aðsókn
hefði verið mjög góð og nokkuð
mörg verka hans hefðu selst.
BÍLL ÁRS/NS
OPELKADETT
í MIKLAGARÐI
OPEL KADETT, þessi víðfrægi verðlaunagripur,
fer víða þessa dagana og vekur alls staðar verðskuldaða hrifningu.
Næstu dagana bjóðum við öllum viðskiptavinum Miklagarðs að kynnast
þessum frábæra fjölskyldubíl og komast að raun um fjölmargar ástæður
þess að OPEL KADETT er handhafi titilsins „BÍLL ÁRSINS" og annarra
alþjóðlegra viðurkenninga á borð við „GULLSTÝRIÐ" o.fl.
OPEL KADETT
FJÖLSKYLDUBÍLL í FYRSTA SÆTI!
Nýr Opel er nýjasti bfllinn
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
IIIÍIII
Jyx