Morgunblaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1985
ÞÓRÐUR VIGFÚSSON
TÓMSTUNDASKÓLANUM
„Fólk á að fá fræðslu án
þess að skuldbinda sig
í próf eða heimavinnu“
Það er orðin staðreynd að fólk getur sótt sér fjölbreytilegustu tilsögn utan hins venjulega
kerfis. Málaskólar og námsflokkar hafa lengi átt vinsældum að fagna, en í auknum mæli
skjóta nú upp kollinum staðir þar sem námskeið eru í boði á ýmsum sviöum. Það gildir einu
hvort þú vilt læra garðrækt, útsaum, sitja hest eða fara í fjölmiðlun. Tilsögn er í boði einhvers
staðar í borginni. Nýjasta fræðslumiðstöðin sem opnaði nú fyrir nokkrum dögum heitir
Tómstundaskólinn og eitt kvöldið þegar kennslan var aö hefjast leit Mbl. þar inn og hitti
einn eigendanna, Þórð Vigfússon.
Nemendur að byrja í „stofn og rekstur fyrirtækis“.
Anniqa hneykslar
landa sfna...
Hvernig datt ykkur í hug að fara út í að stofna
skóla af þessu tagi?
„Hugmyndina hafði ég gengið með í magan-
um í nokkur ár. Mér fannst vera brýn þörf fyrir
slíkan skóla og í huganum var ég búinn að sjá
fyrir mér langan lista af hugsanlegum nám-
skeiðum. Um síðustu áramót var ég búinn að fá
tvo menn í lið með mér til að ráðast í þetta
verkefni, svo það var bara slegið til. Ég hugsa
að það sem lá að baki hugmyndinni hafi verið
að maður þekkir mikið af fólki sem langar til
að fá sér einhverja fræðslu á lifandi og
skemmtilegan hátt án þess að þurfa að skuld-
binda sig í próf eða heimavinnu. Við viljum
hérna í skólanum að fólk sé virkt og taki mik-
inn þátt í kennslustundunum og hafi þar með
áhrif á hvernig kennslan fer fram, þ.e.a.s. móti
hana líka. Markmiðið er að sem flestum þyki
skemmtilegt og þarna geti fólk með svipuð
áhugamál mæst, rabbað og skipst á skoðunum.
Hvernig hafa undirtektir verið sem af er?
„Miðað við hve stutt er síðan við fórum af
stað og ef við tökum tillit til þess að við höfum
ekki auglýst mjög mikið er óhætt að segja að
þetta hafi tekist mjög vel. Við förum nú af stað
með 11 námskeið af 30 sem í boði voru og sum
þeirra eru tvöföld, þ.e.a.s. við þurftum að bæta
við öðrum bekk í sumum „kúrsunum". Þetta
virðist vera alls konar fólk úr hinum ýmsu
stéttum þjóðfélagsins á öllum aldri. Yngsti
meðlimurinn núna er 16 eða 17 ára og sá elsti
um sjötugt.
Geturðu nefnt nokkur dæmi um einhverjar nýj-
ungar í námskeiðum sem þið hafið upp á að
bjóða?
Já, við erum með ættfræðinámskeið sem er
tiltöíulega nýtt fyrirbæri. Þá erum við með til-
sögn í skapandi ritsmíðum. Þetta er tilvalið
fyrir þá sem hafa hug á að skrifa og finna hjá
sér þörf fyrir það, en hafa ekki lagt út á þá
braut. Það er ýmislegt fleira, s.s. garðrækt,
leiklist o.s.frv. Annars er ég mjög undrandi á
að sjá hvaða námskeið féllu niður svo sem í
heimilisrekstri, þjóðháttafræði o.fl. Við Ieigj-
um til skólahaldsins Þrúðvang við Laufásveg
sem við fáum að nota eftir að MR-ingar eru
búnir í skólanum á daginn. Þetta er húsnæði
sem við þurftum ekkert að gera fyrir, þvi skól-
astofur eru fyrir. Meiningin er svo að reka
skólann árið um kring og jafnvel skipuleggja
námskeiðahald fyrir félagasamtök.
Ertu bjartsýnn á að þetta gangi?
„Já, ég held það. Að vísu er ég bjartsýnis-
maður að eðlisfari en ég bind vonir mínar við
að þetta höfði til fólks."
Danska söng- og dans-
mærin Anniqa, sem
einnig hefur getið sér orð
fyrir slöngutamningar, hefur
hneykslað landa sína. Ann-
iqa, sem er eigi óþekkt hér á
landi þar sem hún hefur
sungið og skemmt á íslensk-
um skemmtistöðum, lagði
land undir fót, hélt vestur
um haf með vini sínum Sven
Ole Thorsen. Thorsen er
vöðvatröll og mun leika
aukahlutverk í ævintýra-
mynd í Hollywood. Anniqa
er komin á kaf í vaxtarrækt-
ina eins og vinurinn eins og
önnur myndin ber með sér,
en ferðalag Anniqu er í
sjálfu sér ekki það sem
hneykslað hefur Dani, held-
ur sú ákvörðun hennar að
skilja son sinn, Robert, niu
ára gamlan, eftir heima. „Ég
mun sakna hans, en þetta
verður ekki nema í nokkra
mánuði," segir Anniqa og
hneykslar landa sína enn
meir...
Með syninum Robert.