Morgunblaðið - 24.02.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.02.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1985 B 7 Gunnar hefur nú staðið í eldlínu íslenskrar dægurtónlistar í yfir tuttugu ár og virðist engan bilbug á honum að finna enda segir mál- tækið: „Allt er fertugum fært“. Ég spyr hann hvort hann hafi átt von á að endast svo lengi í þessum bransa? „Mér datt aldrei í hug að þetta myndi endast svona lengi. Það var líka alltaf talað þannig við mann, að maður yrði að hafa eitthvað annað til að grípa til þegar þetta væri búið. Annars hafði ég aldrei neinar áhyggjur af því hvað við tæki. Kannski þorði ég ekki að hugsa þá hugsun til enda. Þetta var það eina sem ég kunni sæmi- lega og ég var staðráðinn í að þrauka eins lengi og mögulegt væri. Ég hef heldur aldrei séð eftir að hafa valið mér þetta starf, enda þýðir það ekkert, ég kann ekkert ánnað. Ég er hins vegar bjartsýnni nú en oft áður að ég geti enst talsvert lengur í þessu. Stóru veitingahús- in eru nú aftur farin að bjóða upp á starfsmöguleika fyrir reyndari hljómlistarmenn og þetta er orðið „stabílla" líf en áður var. Ég held að það séu minni möguleikar fyrir yngri mennina nú í dag, að ryðja okkur eldri út úr veitingahúsun- um, eins og við gerðum á sínum tíma þegar bítlaæðið gekk yfir. Hins vegar er það alls ekki tak- markið að standa um aldur og ævi uppi á sviði og spila fyrir dansi. Eins og ég sagði áðan hef ég meiri áhuga fyrir upptökum og útsetn- ingum, svo ég tali ekki um, ef mér tekst að herða mig upp í að fara aftur að semja. Eigum við ekki bara að segja að það verði næsta skrefið..." - Sv.G. Hvað er virðisaukaskattur? Magnús L. Sveinsson Asmundur Stefánsson Fyrir Alþingi liggur frumvarp um virðisaukaskatt. Ef frumvarpið verður að lögum: Hækka nauðsynjavörur? Hefur það áhrifá kjör launafólks? Verður afkoma heimilanna verri? Leiðir það til betri skattskila? Þessum spurningum og fleiri svara framsögu- mennirnir Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Árni Kolbeinsson skrifstofustjóri í Qár- málaráðuneytinu á almennum fundi Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur á Hótel Sögu, Súlnasal, mánudaginn 25. febr. kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn. Fundarstjóri: Magnús L. Sveinsson. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Metsölubku) á hverjum degi! Utsalan er á gamla staðnum bak við Sportval (gengið inn í sundið við hliðina ó Sportval.) Sportval Sendum í póstkröfu. Laugavegi 116 (viö Hlemm). Sími 14390 og 26690. HJA SPORTVAL don cano UNGLINGAULPUR áöur 4.114 kr. nú 2.500 Alls konar íþróttafatnaöur t.d. peysur, buxur, skór, húfur, lúffur og margt, margt fleira. Þeim sem komu á útsöluna hjá okkur sl. haust, líöur sjálfsagt seint úr minni önnur eins verötilboö eins og viö gerðum þá, og ekki er þaö minni verðlækkun í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.