Morgunblaðið - 21.03.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
ÚT VARP / S JÓN VARP
Enn
er von
Ykkur hefir máski komiö á
óvart, lesendur góðir, hvernig
ég nálgaðist f gærdagsgrein minni
þetta eilífa umræðuefni dagskrá út-
varps og sjónvarps. En ég kaus þar
að spinna smá sögu í kringum
mánudagsmyndina i stað þess að
grípa á efni hennar. Þessi litla saga
mín sagði frá „eilífðarhippa" er
kemst allt í einu aö því, að hann er
orðinn dálítið gildur borgari, er set-
ur sig í menningarlegar stellingar í
hæsta lagi einu sinni í viku, það er
þegar mánudagsmyndirnar birtast
inní sjónvarpsstofunni. Þessi eilífð-
arhippi er samt ekki alveg orðinn
hreinræktaður ístrusafnari, því
hann rifjar ætíð upp ljúfsárar
minningar frá hinum gullnu mánu-
dagsmyndakveldum í Háskólabíói,
þá hann er sestur í sjónvarpsstólinn
með dagskrá mánudagssjónvarpsins
í höndunum. Og að lokinni mynd-
inni hringir hann í vin sinn, sem var
efni í skáld á menntaskólaárunum,
en fær svarið: Æ, ég sofnaði nú yfir
þessu. Enda er vinurinn löngu búinn
að fá sér „víðsjá" og raunar kominn
vel áleiðis inní Dallas-öidina.
Hugarflugið blífur
Menn geta auðvitað dregið þá
lærdóma er þeir kjósa af þessari
litlu dæmisögu minni. Sumir kunna
aö túlka hana sem svo, að það sé
bara lífsins gangur að menn missi
áhuga á því að eltast við listviðburði
út um borg og bí, þegar umönnun
ungviðisins hefst, aðrir þakka ríkis-
sjónvarpinu fyrir þá menningarvið-
leitni er kemur gjarnan fram í val-
inu á mánudagsmyndunum, þriðji
hópurinn telur menningaráhuga
„eilífðarhippans" barnaskap og
hleypur sem fætur toga út í sjoppu
eftir einum pakka af Dallas/Falcon
Crest/Dynasty-ættarsögunni. Ég
mátti annars til með að rifja upp
þessa litlu dæmisögu í tilefni af
Kastljósi þriðjudagskveldsins. Þar
fannst mér nefndilega gæta þess
uggs í umræðum um nýkvatt Norð-
urlandaráðsþing, að við værum ef til
vill að síga hægt og bítandi inní
Dallas-öldina. Þannig hélt Árni
Johnsen, alþingismaður, einn viö-
mælenda Ögmundar Jónassonar í
þættinum, því fram að við Islend-
ingar þyrftum að halda fram tungu
vorri á þingum þjóðanna því í
reyndinni væri ... íslenskan heims-
mál, enda á þeirri tungu ritaðar
heimsbókmenntir. Og annar þátt-
takandi í Kastljósumræðunum, Páll
Pétursson, fráfarandi forseti Norð-
urlandaráðsþings, sagði: „... við Is-
lendingar eigum miklu meiri sam-
stöðu með bræðraþjóðunum á Norð-
urlöndunum, en hinum engilsaxn-
eska menningarheimi. Og „eilifð-
arhippinn" í hópnum, Jón Baldvin
Hannibalsson, lét ekki sitt eftir
liggja er hann lagði fram þá kröfu
að .. að sjálfsögðu á að túlka mál
vort yfir á skandinavísku, eins og nú
er gert fyrir Finna. Fjórði þátttak-
andinn í þessu spjalli, Guðrún
Helgadóttir, alþingismaður, vildi
láta ... góða þýðendur snara bók-
menntaverkum þeim, sem lögð
verða fram af okkar hálfu til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs,
yfir á móðurtungur Norðurland-
anna.
Að sama brunni
öll ber ummæli þessa góða fólks
að sama brunni. Það vill efla okkar
eigin menningu og styrkja samnor-
rænar menningarhefðir. Á meðan
við eigum slíkt fólk í forsvari og
jafn öflugan menningarvettvang og
Norðurlandaráð að bakhjarli, er
kannski von til þess að „eilífðar-
hippar" lands vors fái áfram sínar
mánudagsmyndir, er þrátt fyrir allt
opna auganu víðari sýn yfir veröld-
ina en engilsaxneskar ættarsögur.
Ólafur M.
Jóhannesson
Lestur
hafinn á
„Eld-
rauninni“
— eftir
Jón Björnsson
■I Helgi Þor-
0« láksson byrjar í
dag lestur sinn
á skáldsögu Jóns Björns-
sonar Eldrauninni sem
hann skrifaði 1952. Gerist
sagan á 17. öld og spinnst
utan um galdramál.
Jón Björnsson fæddist
1907 á Holti á Síðu í
Vestur-Skaftafellssýslu.
Jón var búsettur í Kaup-
mannahöfn 1933—1945,
en hefur búið í Reykjavík
síðan. Hann starfaði sem
bókavörður við Borgar-
bókasafn Reykjavíkur,
var um skeið ritsjóri tfm-
Jón Björnsson rithöfundur
aritsins „Heima er best“
og var ritdómari við
Morgunblaðið.
Jón hefur ritað fjölda
skáldsagna og meðal
þeirra má nefna Jón Ger-
reksson, Smyglararnir í
skerjagarðinum, Máttur
jarðar, Sonur öræfanna,
Bergljót, Steini í Ásdal og
Jómfrú Þórdís. Þá samdi
Jón leikritið Valtýr á
grænni treyju 1953 eftir
samnefndri skáldsögu
sinni sem út kom 1951.
Minnisstætt fólk
— fjallað um Hendrik Ottósson
■i í kvöld kl. 21.40
40 verður Emil
Björnsson með
annan þátt sinn af fimm í
þáttaröðinni Minnisstætt
fólk. Segir Emil í þessum
þætti frá kynnum sínum
af Hendrik Ottóssyni og
nefnist þátturinn
„Kommúnisti og manna-
vinur“.
Hendrik Jón Siemsen
Ottósson, eins og hann hét
fullu nafni, fæddist í
Reykjavík 1897. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1918 og cand.
phil. prófi frá Háskóla Is-
lands 1920. Á árunum
1920 til 1938 stundaði
hann laganám og guð-
fræði við Háskóla Islands
og málvísindi við Lund-
únaháskóla.
Hendrik stofnaði mála-
skóla og rak undir eigin
nafni í 16 ár. Hann starf-
aði sem fréttamaður
Ríkisútvarpsins frá 1946
Hendrik Óttósson
og veitti í mörg ár for-
stöðu deild þeirri í Hljóð-
færahúsi Reykjavíkur
sem sá um tónlistarhald.
Hendrik hóf fyrstur
manna söltun á grá-
sleppuhrognum til út-
flutnings 1928. Hann var
stofnandi Jafnaðar-
mannafélags Reykjavíkur
1917 og var stofnandi og
fyrsti formaður Félags
ungra kommúnista 1922—
24. Þá var hann stofnandi
og fyrsti formaður Sam-
bands ungra kommúnista
1925—27. Hendrik var fé-
lagi í Kommúnistafélagi
íslands og Sósíalista-
flokknum frá stofnun.
Hann var um langt skeið í
IOGT, sat oft Stórstúku-
þing og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum.
Hendrik ritaði fjölda
bóka: Svikamiðillinn Ein-
ar Nielsen 1924, frá Hlíð-
arhúsum til Bjarmalands
1948, Vegamót og vopna-
gnýr 1951, Gvendur Jóns
og ég I-IV 1949, 1950,
1960. Hvíta stríðið, 1962.
Auk þess skrifaði hann
smásögur sem birtust í
tímaritum og lesnar voru
í útvarpi. Hendrik lést
1966.
Tónlistar-
krossgátan
Hér birtist Tónlistar-
krossgáta rásar 2 númer
22. Þáttur Jóns Gröndal
er á dagskrá rásar 2
sunnudaginn 24. marz.
Gefst þá hlustendum
kostur á að svara einföld-
um spurningum um tón-
list og tónlistarmenn og
ráða krossgátu um leið.
Lausnir sendist til
Ríkisútvarpsins rásar 2
Hvassaleiti 60
108 Reykjavík
Merkt krossgátan
Flosi Ólafsson
þriðji maðurinn
■■■■ Þátturinn
ty-t oo Þriðji maður-
ílt X — inn er á
dagskrá rásar 2 í kvöld kl.
21.00.
Umsjónarmenn eru þeir
Ingólfur Margeirsson og
Árni Þórarinsson. Gestur
þáttarins að þessu sinni
er Flosi Ólafsson leikari.
Flosi Ólafsson leikari er
gestur þáttarins að þessu
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
21. mars
7.00 Veðurfregnfr. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Málræktarþáttur.
Endurt. páttur Baldurs
Jönssonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir.
Morgunorð: — Sigurveig
Guðmundsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Agnarögn" eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur: Páll H.
Jónsson, Heimir Pálsson og
Hildur Heimisdóttir. Sögulok
(12).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraðra. Þáttur i
umsjá Þóris S. Guðbergs-
sonar.
11.00 .Ég man þá tlö". Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11J0 Fyrrverandi þingmenn
Vesturlands segja frá. Eð-
varð Ingólfsson ræðir við
Ingiberg J. Hannesson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynnlngar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar, Tón-
leikar
13.20 Barnagaman. Umsjón:
Sólveig Pálsdóttir.
13.30 Tónleikar.
14.00 „Eldraunin" eftir Jón
Björnsson. Helgi Þorláksson
flytur inngangsorð og byrjar
lesturinn.
14.30 A frlvaktinni. Sigrún Sig-
urðardóttír kynnir óskalög
sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar.
a. Flautukvartett l G-dúr K.
285 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. William Bennett og
Grumiaux-trlóið leika.
b. Fiðlusónata I G-dúr eftir
Guillaume Lekeu. Georges
17.10 Slðdegisútvarp.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Knapaskólinn.
Nýr flokkur — fyrsti þáttur.
Breskur myndaflokkur I sex
þáttum fyrir bðrn og ungl-
inga.
Aðalhlutverk Dana Humphri-
es.
Sðguhetjan er unglingsstúlka
sem leggur hart aö sér til að
geta látiö rætast þann
draum sinn að verða knapi.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Johann Sebastian Bach
— 300 ára minning.
a. Frá tónleikum Sinfónlu-
hljómsveitar Islands I Há-
skólabfói. (Fyrri hluti). Pólý-
fónkórinn syngur. Stjórn-
andi: Ingólfur Guðbrands-
son. Einsöngvarar: Jaquelyn
Fugelle, sópran, Bernadette
Manca de Nissa, alt, Renzo
Casellato, tenór, og Carlo de
Bortoli, bassi. Messa I h-moll
eftir Johann Sebastian
Bach. Kynnir: Jón Múli Arna-
son,
b. Jón Þórarinsson tónskáld
flytur ávarpsorð.
22. mars
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Olafur Sig-
urðsson.
21.15 Boy George og Culture
Club.
Frá tónleikum I Bandarlkjun-
um.
22.20 Skóli f hers höndum.
(The Blackboard Jungle.)
Bandarlsk blómynd frá
1955, s/h.
21.40 Minnisstætt fólk —
Kommúnisti og mannvinur.
Emil Björnsson segir frá
kynnum slnum af Hendrik
Ottóssyni.
22.00 Lestur Passlusálma (40).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Milli stafs og huröar. Um-
sjón: Hilda Torfadóttir og
Ölafur Torfason.
23.45 Johann Sebastian Bach
— 300 ára minning. Frá tón-
leikum Sinfónluhljómsveitar
Islands fyrr um kvðldiö. (Slö-
ari hluti.)
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Leikstjóri Richard Brooks.
Aðalhlutverk: ' Glenn Ford,
Anne Francis, Richard Kiley,
Louis Calhern, Margaret
Bayes og Sidney Poitler.
Myndin er um viöleitnl nýs
kennara til að ná tökum á
bðldnum unglingum I stór-
borgarskóla. Forsprakkar
óknyttastrákanna svlfast ein-
skis til að klekkja á kennar-
anum.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 I gegnum tiðina
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
lösdóttir.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áöur
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller
HM
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vlnsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorstelns-
son.
21.00—22.00 Þriðji maðurinn
Stjórnendur: Ingólfur Mar-
geirsson og Arni Þórarins-
son.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Öákveðið.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR