Morgunblaðið - 21.03.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
7
Fasteignakaup ungs
fólks hafa dregist
saman um fimmtung
Fasteignakaup ungs fólks á höfuð-
borgarsvæðinu drógust saman um
20% á árunum 1980 til 1984 og stærð
húsnæðis, sem ungt fólk hyggir, hefur
minnkað um 10% í fermetrum á sama
tímabili, aö mati fasteignamats ríkis-
ins, byggðu á könnun sem félagsmál-
aráðuneytið lét gera nýlega. Með
ungu fólki er átt við fólk á aldrinum
22 til 26 ára, en 50% af öllum fast-
eignakaupendum eru á aldrinum 22
til 32 ára.
Þetta kom m.a. fram í máli Stef-
áns Ingólfssonar verkfræðings sem
starfar hjá fasteignamati ríkisins,
er hann og Pétur Blöndal, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings hf., voru
frummælendur á fjörugum
fræðslufundi, sem Kaupþing stóð
fyrir og bar yfirskriftina „Geta
verðtryggð lán étið upp eign þína?“
Fundurinn var haldinn á Hótel
Loftleiðum sl. þriðjudagskvöld og
tók talsverður hópur fundarmanna
til máls, auk frummælendanna.
Nær allir ræðumenn voru þeirrar
skoðunar að ófremdarástand ríkti
nú á fasteignamarkaðnum en
greindi á um ástæðurnar.
Stefán Ingólfsson taldi misgengi
lánskjaravísitölu og launa á sfðustu
árum eiga einna stærstan hlut að
máli, þó að ekki væri það eini vand-
inn. Hann sagði einnig að áherslur i
húsnæðismálum væru rangar og
gagnrýndi það sem hann kallaði
nýbyggingastefnu, sem fælist m.a. í
því að of stórt væri byggt. „Árið
1983 nam stækkun húsnæðis á ís-
landi andvirði tíu skuttogara,"
sagði Stefán. „Og meðan þetta
gengur yfir, eru byggðar of fáar
íbúðir.”
Stefán svaraði þeirri spurningu,
hvort verðtryggðu lánin væru að
éta upp eignir manna, játandi.
Hann sagði að um 15% fasteigna
væru nú greidd eingöngu með verð-
tryggðum lánum og að fólk gætti
þess ekki nægilega hvort það væri
að taka verðtryggð eða óverðtryggð
lán.
„Lán til húsnæðiskaupa og bygg-
inga verða að byggja á grundvallar-
atriðinu, sem er sambandið milli
greiðslugetu og greiðslubyrðar og
allar breytingar á lánum breyta
þeim forsendum, sem þar er farið
eftir. Einn aðalvandinn er, að helm-
ingur byggingarvísitölu eru laun.
Þegar þau eru skert lækkar bygg-
ingarvísitalan," sagði Stefán og
bætti því við, að vandinn, sem hlyt-
ist af verðtryggðu lánunum, yrði
ekki leystur með hefðbundnum leið-
um, eins og að lengja lánstfmann.
„Sú lenging þyrfti að skipta öldum,“
sagði hann.
„Sú röskun sem hefur orðið á
fasteignamarkaðnum hefur m.a.
orðið til þess að ungt fólk þarf
ótrúlega mikið fjármagn til þess að
kaupa eða byggja fasteign," sagði
Stefán. „Verðið á tveggja herbergja
íbúð er nú 20% hærra á hvern fer-
metra en á fjögurra herbergja íbúð
og 50% hærra ef um einstaklings-
íbúð er að ræða. 1 fyrra var hægt að
fá þrjú góð einbýlishús í
Kaupmannahöfn fyrir sama verð og
55 fermetra tveggja herbergja íbúð
í Reykjavík."
Pétur Blöndal lýsti hins vegar
þeirri skoðun, að það væri verðfall-
ið á fasteignamarkaðnum, sem
fyrst og fremst orsakaði vandann.
„Óverðtryggð eign sem kostaði tvær
milljónir í fyrra kostar það sama í
dag,“ sagði hann og taldi að lausnin
Geir Hallgrímsson hjá SVS og Varðbergi:
Frumkvæði íslend-
inga í öryggis- og
varnarmálum
GEIR Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, flytur ræðu á fundi
Samtaka um vestræna sam-
vinnu og Varðbergs, sem hald-
inn verður í Víkingasa) Hótels
Loftleiða í hádeginu laugar-
daginn 23. mars næstkomandi.
Káðherrann ætlar að ræða um
frumkvæði íslendinga í örygg-
is- og varnarmálum.
Það vakti verulega athygli
fyrir tæpu ári, þegar Geir
Hallgrímsson flutti Alþingi
fyrstu skýrslu sína sem utan-
ríkisráðherra, hve ítarlega
hann ræddi þar um virkan
þátt íslendinga í varnarsam-
starfinu innan Atlantshafs-
bandalagsins. Ráðherrann
greindi meðal annars frá því,
að íslendingar myndu taka
þátt í störfum hermálanefndar
bandalagsins. Þá ræddi ráð-
herrann einnig um hlutverk
Landhelgisgæslunnar í eftir-
litsstarfi umhverfis ísland og
eflingu varnarmáladeildar
utanríkisráðuneytisins.
Ræðan á fundinum á laug-
fælist í því að hækka verð fast-
eigna, þannig að menn, sem seldu
íbúðir upp í stærra húsnæði, töpuðu
ekki öllu eigin fé og stæðu ekki í
nákvæmlega sömu sporum, ef ekki
verr fjárhagslega, árið eftir.
„Lánakerfið eys út niðurgreidd-
um lánum, en það ætti að skilyrða
lán húsnæðismálastjórnar, þannig
að sömu mennirnir geti ekki fengið
lánað aftur og aftur.“ Pétur sagði
að ástæðan fyrir því að í Sig-
túnshópnum svokallaöa væri lítið
af ungu fólki, væri sú, að unga fólk-
ið væri í svo ömurlegri stöðu á fast-
eignamarkaðnum í dag, að það
hefði hreinlega ekki haft tök á því
að koma sér í hann.
„En það er verðfallið á fasteigna-
markaðnum en ekki verðtryggðu
lánin, sem er að éta upp eignir
rnanna," sagði Pétur Blöndal að lok-
um.
ardaginn snertir þessa þætti
eins og heiti hennar gefur til
kynna. Víkingasalurinn verður
opnaður klukkan 12 á hádegi
en fundurinn er opinn fyrir fé-
lagsmenn í SVS og Varðbergi
og gesti þeirra.
FIAT127
STA.TION
FRAMH JÓL ADRIF
Nú búinn aflmikilli 1050 cm vél framhjóladrifinn meö fimm
gíra. Verulega vandaðar innréttingar.
Sérstaklega styrktur fyrir erfiðar aöstæöur.
Aksturseiginleikar FIAT 127 fólksbílsins eru auðvitað al-
þekktir í gegnum árin og STATION 127 hefur þá alla og
kannski ögn betur.
Vegna ótrúlega lágs innkaupsverðs og hagstæöra samninga getum viö boðið
FIAT 127 STATION á þessu frábæra veröi eða á aðeins
kr. 239.000.-
m/ryðvörn og skráningu á götuna.
FIAT 127 STATION
sameinar þægindi fólksbílsins og flutningsgetu sendibílsins á sérstaklega smekklegai
hátt. Heil ósköp af plássi til flutninga, afturhuröin opnast alveg niöur aö gólfi og me<
því að leggja aftursætið fram er hægt að flytja mikið magn af plássfrekum varningi.
EGILL
vilhjAlmsson HF.
Smidiuvegi 4, Kópavogi Simar 77200 - 77202
VERÐ SEM SLÆR ALLT ÚT
•Jísm iáÉfckjfe