Morgunblaðið - 21.03.1985, Side 17

Morgunblaðið - 21.03.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ1985 17 „Hvað ertu að skrifa um þessar mundir?“ „Ég er að skrifa nýtt leikrit. Það fjallar um manninn í tæknivæddu þjóðfélagi og um ofurvald aka- demískra stétta. Það er ætlun mín að akademiskur hugsunarháttur sé bundinn á klafa. Imyndunarafl- ið kemur þar ekki nema að mjög litlum notum. Það er algengast að menn sjái það sem þeir eiga að sjá, — það sem þeir vita fyrir, og lítið annað. Lika hefur það vakið spurningar hjá mér hvort nútíma- þjóðfélagið sé að fara þannig með manninn að honum gangi sífellt verr að njóta nokkurs hlutar. Ef grunur minn reynist réttur þá er það stóralvarlegur hlutur. Þar með er forsendan fyrir því að fólk geti lifað góðu lífi brostin, þrátt fyrir það að likamlegum þörfum þess sé fullnægt. Þó held ég að unnt sé að hafa á það töluverð áhrif með uppeldi barns og ungl- ings hvort hann getur er fram liða stundir notið einhvers. Annað umfjöllunarefni mitt tengist þvi sem ég fæst við i minu daglega starfi, þ.e. frumurann- sóknum. Það er komið i ljós að frumstæðustu lifverur, s.s. ger- frumur, hafa furðulik gen og er að finna i mönnum, þ.e. þau sem sjá um grundvallarvirkni i frumun- um. Framhald sögunnar er það að ef litið er á þróunarsögu dýra i seinni tið, t.d. hryggdýra, virðast þau endurtaka þessa gömlu sögu. Það sést t.d. skýrt með þvi að lita á mannsfóstur. Framan af þroska- skeiði sínu er það með hala og tálkn. Ályktunin er e.t.v. sú að fóstrið sé að endurtaka þessa gömlu sögu. Það sem gerir tegund mannsins frábrugðna öðrum teg- undum er það að hún kemst auð- vitað langtum lengra en aðrar teg- undir á ferli sínum. Hin elzta frumustarfsemi virðist varðveit- ast upp allan þróunarstigann, — t.d. má nefna að frumuskipting er furðulík í genum manna og gers. Því er unnt að skoða t.d. krabba- meinsger með þvf að nota ger, en það er bæði ódýr og fljótleg leið. Endurtekning fóstursins á þróun- arstiginu finnst mér vera mesta drama allra tíma og þess virði að segja frá því i Mogga eða í bók- menntum. Það kemur m.a. við sögu i leikritinu Dags hríðar spor og öðru sem ég er að fást við,“ segir Valgarður Egilsson. - Á.R. Akureyrí: Sérfræðing- ar rannsaka heyrn og tal EINAR Sindrason, háls-, nef- og eyrnalæknir og heyrnarfræðingur, ásamt öðrum sérfræðingum Heymar- og talmeinastððvar ís- lands, verður í Heilsugæslustöð- inni, Hafnarstræti 104, Akureyri, dagana 22. og 23. mars nk. Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð heyrnartæki. Tekið á móti pöntunum á Heilsugæslustöðinni á Akureyri alla virka daga. (FrétUtilkynning) VJterkurog kl hagkvæmur auglýsingamiöill! Vélskóli íslands 70 áræ Hátíðarfundur á skrúfudegi MIKIÐ fjölmenni aótti árlegan kynningardag Vélskóla íslands, skrúfudaginn, sem haldinn var í 23ja sinn sl. laugardag. Á þessu ári eru liðin sjötíu ár frá stofnun skólans og var sér- staklega vandað til dagsins. Hald- inn var hátiðarfundur og flutti Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráðherra ávarp og Andrés Guðjónsson skólastjóri Vélskólans rakti sögu skólans frá upphafi. Á þessum tímamótum bárust skól- anum gjafir og árnaðaróskir frá velunnurum hans. SIGURVEGARINKR Nú annað árið í röð kusu lesendur hins virta þýska bílatímarits ,,AUTO MOTOR UND SPORT“ MAZDA 626 bíl ársins 1985 í flokki 1800 cc innfluttra bíla. MAZDA 626 sigraði með miklum yfirburðum í sínum flokki, því að allir vita að Þjóð- verjar gera afar strangar kröfur til innfluttra bíla um gæði, öryggi og góða aksturs- eiginleika. Það er bví engin furða að MAZDA er langmest seldi iapanski bíllinn í Þýskalandi. Þessi verðlaun eru aðeins ein í röð fjölmargra viðurkenninga, sem MAZDA 626 hefur hlotið, því að hann hefur meðal annars verið kjörinn ,,BÍLL ÁRSINS“ í Bandaríkjunum, Japan, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Suður-Afríku. Þú getur nú eignast þennan margfalda verðlaunabíl á sérstöku verði, eða frá kr. 426.300 — til öryrkja ca. kr. 326.300 Opið laugardaga frá kl. 10—4 MEST FVRIR PENINGANA BILABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.