Morgunblaðið - 21.03.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985
45
Minning:
Ólafía Pálsdóttir
Fædd 25. desember 1903
Dáin 12. mars 1985
ólafía Ingibjörg Ragnheiður,
eins og hún hét fullu nafni, fædd-
ist á Efri-Steinsmýri á hátíð jóla-
barnsins. Móðir hennar var Mar-
grét Ólafsdóttir frá Seglbúðum í
Landbroti en faðir hennar Páll
Eyjólfsson bóndi á Efri-Steins-
mýri.
Á þessum slóðum, á þessum
timum, unnu menn hörðum hönd-
um að því að sjá sér farborða.
Börn voru almennt látin vinna
eins og þrek þeirra leyfði og
stundum talsvert fram yfir það.
óla frænka var þar engin undan-
tekning. Faðir hennar, sem var
föðurbróðir okkar, dó þegar hún
var á sjöunda ári og eftir það var
hún í skjóli móður sinnar og móð-
urbróður á Efri-Steinsmýri. Um
það leyti sem Margrét og Ingi-
bergur, bróðir ólu, fluttust til
Reykjavíkur árið 1926, var óla
vinnukona á æskuheimili móður
sinnar í Seglbúðum uns hún flutt-
ist til Reykjavíkur á eftir þeim ár-
ið 1930.
Margrét og Ingibergur settust
að uppi á lofti hjá pabba og
mömmu á Sólvallagötu 5 og
bjuggu þar við þröng húsakynni.
Annað höfðu foreldrar okkar ekki
upp á að bjóða, sjálf höfðu þau eitt
herbergi og eldhús til afnota fyrir
sig. Þegar óla frænka bættist í
hópinn þrengdist enn í litlu vist-
arverunum en aldrei varð árekst-
ur með þessu fólki. Enda var
Margrét móðir þeirra systkina
einstaklega blíð og barngóð.
Marga ferðina fórum við systur
upp á loft til „Möggu" og þáðum
hjá henni vatnsgraut með kanil út
á eftir að hafa sofið dagdúrinn
okkar undir sængurhorninu henn-
ar. Líklega höfum við aldrei síðan
bragðað mat sem smakkast á við
vatnsgrautinn hennar Möggu. Þá
gerðum við okkur enga grein fyrir
því að efnin leyfðu ekki mjólkur-
kaup.
Eftir nokkur ár fluttust þau
mæðgin í litla leiguíbúð á Hverf-
isgötunni, þar sem svolítið rýmra
var um þau en á loftinu á Sólvalla-
götu 5. óla á hinn bóginn leigði sér
herbergi þar til hún af miklum
dugnaði og forsjálni réðst í íbúð-
arkaup.
óla frænka vann aðallega í fisk-
vinnu fyrstu árin sín í Reykjavík,
en 1941 hóf hún að starfa í sund-
laugunum, þeim sem nú ganga
undir nafninu Laugardalslaugin.
Þar vann hún húsbændum sínum
af dyggð fram til ársloka 1973, er
hún varð sjötug, en lagði þá ekki
árar í bát heldur tók að sér ræst-
ingavinnu í Sjóklæðagerðinni.
Ólafía var alla tíð létt á sér og
heilsuhraust. Allt víl var henni
ógeðfellt, en ríkustu þættirnir í
skapgerð hennar voru dyggðir
þeirrar kynslóðar sem hún til-
heyrði, vinnusemi, skyldurækni og
trúmennska. Þannig munu líka
starfssystur og húsbændur muna
hana. Svo er og um okkur frænkur
hennar, auk þess sem við kynnt-
umst ræktarsemi hennar og vel-
vilja í okkar garð.
Móðir okkar, Þuríður Pálsdótt-
ir, þakkar Ólafíu góð og löng
kynni. Ennfremur komum við hér
með á framfæri kveðju frá bróður
hennar, Ingibergi, sem nú dvelst í
Hafnarbúðum.
Við systur minnumst ólu
frænku með hlýhug.
Halldóra og Ingibjörg Elíasdætur.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu vegna fráfalls dóttur
minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
KRISTÍNAR MARÍU SIQÞÓRSDÓTTUR,
Klappsvegi 38.
8igrföur Jónsdóttir,
Höröur Sigurjónsson, Sigþór Sigurjónsson,
Rannveig Ingvarsdóttir, Kristfn Sóphusdóttir,
Hjörvar Haraldsson, Sóphus Auöun Sigþórsson,
Thelma Haröardóttir, Kristfn Marfa Sigþórodóttir.
GLERBORG HF.
Verksmiöjan veröur lokuö eftir hádegi í dag vegna útfarar
ÞÓRHILDAR BRYNJÚLFSDÓTTUR.
GLERBORG HF.
Dalshrauni 5, Hafnarfiröi.
Lokað
Vegna útfarar EÐVALDS B. MALMQUIST, yfirmats-
manns garöávaxta, veröur skrifstofa, vörugeymsla og
grænmetismarkaöurinn lokaöur eftir hádegi ! dag, 21.
mars.
Grænmetisverslun
landbúnaöarins.
Lokaöí dag,
fimmtudaginn 21. mars, vegna jaröarfarar ÞÓRHILDAR
BRYNJÓLFSDÓTTUR.
G. Pálsson og co.
Skeifan 3A.
í Grænmetismarkaðinum, homi Síðumúla
og Fellsmúla, föstudaginn 22. mars.
íslenska kartaflan er sannkallaður veislumatur ef hún er rétt matreidd.
Nú veitum við upplýsingar um matreiðslu hátíðarrétta úr kartöflum og
gómsætu meðlæti, kynnum uppskriftir og gefum að smakka. Einnig
kynning á sérlega Ijúffengu hvítkálssalati.
Grœnmetisverslun
I landbúnaðarins r
Sfðumúla 34 - Sími 81600
AUGLVSINGAÞJÖNUSTAN