Morgunblaðið - 21.03.1985, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.03.1985, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985 Við höfum góða reynslu af fólki sem er í jafn nánu sambandi við náttúruna og íslendingar — segir Ferdinand Richard, söngvari frönsku rokksveitarinnar Etron Fou Leloublan, sem spilar á tónleikum hér í kvöld Franska rokkhljómsveitin Etron Fou Leloublan kemur hingað til lands 21. mars nk. Þann sama dag mun hún koma fram á tónleikum, ásamt íslensku hljómsveitunum Dá og Oxsmá og dúdettinum Björk & Sigtryggi, í veitingahúsinu Safarí. Af því tilefni leituðum við forsprakka Etron Fou Le- loublan, söngvarann og bassaleikarann Ferdinand Richard, uppi. Hann reyndist vera staddur í Mezoargues í Frakklandi og þótt ekki nema sjálfsagt að svara nokkrum spurningum. Árshátíð í Hólminum Stykkishólmi, 1S. man. í GÆRKVÖLDI var árshátíð gagn- fræða- og framhaldsskólanema í Stykkishólmi. Var hún haldin í Fé- lagsheimilinu við góða aðsókn. Nem- endur sáu um alla dagskrá sem var bæði skemmtileg og QöibreytL Þar var söngur nemenda, bæði gaman- vísur og annar kveðskapur. Tísku- sýning o.fl. o.fl. Voru áheyrendur á einu máli um að þessi árshátíð hefði tekist vel og verið nemendum til sóma. Ágóði af árshátíð rennur í nem- endasjóð og fyrir hann er svo ferð- ast um landið að vori. Kennsla í skólunum hér í Stykk- ishólmi hefir gengið eðlilega síðan í verkfallinu í haust og ekki heyrir maður annað en að allt gangi vel í skólanum og engir dagar hafi fall- ið úr þótt hér hafi á tímabili geng- ið flensufaraldur. Árni Góöar stundir með MS sam- lokum -hvar og hvenær sem er. Mjólkursamsalan Við báðum Ferdinand Richard fyrst að segja okkur frá hljómsveitinni sjálfri. — Etron Fou Leloublan var stofnuð 1973. Fyrsta platan okkar kom á markað þremur árum síðar. Sjötta platan okkar kemur svo á markað núna í sumar. Að auki höf- um við Guigou Chenever, trommu- leikari og blásari, sent frá okkur tvær sólóplötur hvor. Við höfum einnig séð um undirleik fyrir aðra, t.d. spiiuðum við á plötu breska git- arleikarans Freds Frith (úr Henry Cow, Art Bears og Residents), „Speachless". Hvað með tónleikaferðir? Annar hver íslendingur virðist hafa séð Etr- on Fou Leloublan á tónleikum í Hol- landi, Svíþjóð, Þýskalandi og víðar. — Við erum dugleg við tónleika- ferðir. Meðal þeirra landa sem við höfum spilað í eru Belgía, England, Ítalía, Spánn, Svíþjóð, Bandaríkin, Júgóslavía, Þýskaland, Sviss, Aust- urríki og, ja, ég gleymi áreiðanlega einhverju ... í andstöðu við sölupoppið Hefur aðsóknin hvarvetna verið jafn góð? — Já, við höfum ekki þurft að kvarta undan aðsókninni. Við eig- um fastan kjarna áhangenda sem mætir á hvern konsert hjá okkur. Við erum þessu fólki mjög þakklát því það tekur okkur eins og við er- um, það kann vel við þá hluti sem við stöndum fyrir, en er ekki að elt- ast við okkur vegna einhverrar tískubylgju. Þetta fólk á það sanr> eiginlegt með okkur að vera í and- stöðu við sölupoppið sem er dælt i fjöldann með útspekúleruöum aug- lýsingabrögðum undir slagorðinu „Tískan í dag!“ Hver er staða Etron Fou Leloublan í heimalandinu, Frakklandi? — Við erum að sjálfsögðu vel þekkt nafn í Frakklandi, þó ekki væri nema vegna þess að hljóm- sveitin er 12 ára gömul. Það er hár aldur á rokkhljómsveit. Hins vegar fer 80% af okkar starfi fram utan Frakklands. Frakkar eru lítið fyrir nýskapandi músík í dag. Öfugt við það sem var fyrir fimm árum. Þó reynir franska menningarmála- ráðuneytið að styðja við skapandi listir sem mest það má. Það má sín bara svo lítils gegn alþjóðadótinu sem er allsráðandi í Frakklandi um þessar mundir. Ég sé ekki fram á breytt ástand í þeim málum næstu 10 árin. Ég vona samt allt hið besta og styð viðleitni menningármála- ráðuneytisins heils hugar. Diskótekdagskrá alla daga Fyrír nokkrum árum afnámu Frakkar einkarétt ríkisútvarpsins. Hvernig hafa mál þróast á þeim vett- vangi gagnvart poppmúsikinni? — Góð spurning! Við bundum miklar vonir við frjálsu útvarps- stöðvarnar á sínum tíma. Og þær fóru glæsilega af stað. Þessar stöðv- ar skiptu hundruðum og flestar út- vörpuðu þær áhugaverðri dagskrá. En þegar nýjabrumið var farið af þeim og alvaran tekin við breyttust stöðvarnar. Þær breyttust úr lif- andi og sjálfstæðum litlum svæðis- stöðvum í einhæfa flatneskju. í dag eru þessar stöðvar ekkert annað en segulband og manneskja sem skipt- ir um spólu á fjögurra tíma fresti. Spólurnar eru unnar af sérhæfðum og stórum stofnunum úti í bæ sem blanda inn í músíkina sérhæfðum auglýsingum og sérunnum plötu- fréttum. Allt svo gelt og litlaust. Tvær stærstu útvarpsstöðvarnar hér um slóðir eru i eigu tveggja stærstu diskótekanna í borginni. Þessar stöðvar spila alla vikuna sömu dagskrá og þær spila á diskó- tekunum á laugardagskvöldum. Þið getið ímyndað ykkur fjölbreytnina! Gamla ríkisútvarpið reyndi þó að gera öllum til hæfis. Það útvarpaði öllu frá framsæknu nýbylgjurokki til skallapopps. Þreyttur á ad tala um RIO Árið 1978 settu framsæknar rokk- hljómsveitir frá hinum ýmsu löndum á laggirnar samtökin „Rock in Oppo- sition". Það var mikið skrifað og skrafað um þessi samtök til að byrja með en nú er eins og fæstir félagar samtakanna vilji nokkuð af þeim vita. Etron Fou Leloublan var áberandi í RIO. — RIO er ekki lengur til og voru heldur aldrei nein skipuleg samtök. RIO var aldrei annað en losaralegur félagsskapur músíkanta með svip- aðar skoðanir. Þeir skiptust á heim- ilisföngum og tónleikaaðstöðu. Þrátt fyrir svipaðar skoðanir á mönnum og málefnum þá áttu sumar þessara hljómsveita fátt annað sameiginlegt. Ég nefni Stormy Six frá ftalíu og Univers Zero frá Belgíu sem dæmi. Þessar hljómsveitir eru svo ólíkar að þær hefðu áreiðanlega aldrei hist án þessa RlO-ævintýris. Mig langar líka að taka fram að við í Etron Fou Leloublan vorum alltaf mótfallin því hvað mikið var gert úr RIO og öllu þessu „óháða“ dóti. Ég er orð- inn dauðþreyttur á þvf að tala um RIO í hverju einasta viðtali. Lindsay Cooper er í sérstöku uppáhaldi Því verður samt varla á móti mælt að Etron Fou Leloublan er einna best þekkt á alþjóðamarkaði vegna tengsl- anna við RlO-poppara á borð við Fred Frith og hljómsveitina Henry Cow. — Við erum mjög hreykin af tengslum okkar og kynnum við Fred Frith. Hann er einn helsti músíkant okkar tíma. Fred hefur séð um upptökur á plötum okkar og spilað með í nokkrum lögum. Hann sá um tónleikaferð okkar til Banda- ríkjanna. Hann er mjög náinn vin- ur okkar. Hann heldur til heima hjá mér í Frakklandi þegar hann er f sumarfríi, eins og f fyrra, og þegar hann er á tónleikaferð um Frakk- land. Lindsay Cooper úr Henry Cow er einnig í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Við höfum alla tíð reynt aö fylgjast náið með þvi sem hún er að gera. Músík Etron Fou Leloublan minnir einmitt stundum á fallegustu músík- kafla Lindsay Cooper. Annars gengur fólki illa að skilgreina músík ykkar. Kannski Andrea Jónsdóttir hafi kom- ist næst réttri skilgreiningu þegar hún kallaði músík ykkar djasspönk í rás 2 um daginn. — Etron Fou Leloublan flytur fyrst og fremst lagríka músík. Við leggjum áherslu á hefðbundna hljóðfæraskipan. Ég er á bassa, Guigou Chenever á trommur, Jo Thirion á hljómborð og Bruno Millier á saxófóna. Við þrjú fyrst- HEIMSINS MESIA ÚRvAL AF ZOOM UÓSRÍIUNAÍA/ÉLUM Minolta býöur stœrsta úrval ZOOM Ijósritunarvéla sem völ er ó, enda ZOOM tœknin þeirra eigin uppfinning. Með ZOOM bjóðast nœr ótakmarkaðir minnkunar og stœkkunarmöguleikar. Minolta Ijósritunarvélarnar taka fró 15 til 50 eintök ó mín., hafa allt að 1500 eintaka pappírsforða og eru allar með kyrrstœðu myndborði. ZOOM LJÓSRITUNARVÉLAR - HREIN TÖFRATÆKI KJARAN HF ÁRMÚLA 22 REYKJAVÍK SÍMI83022 MINOLTA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.