Morgunblaðið - 21.03.1985, Síða 47

Morgunblaðið - 21.03.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1985 47 töldu syngjum að auki. Það sem gerir músík okkar nýstárlega eða öðruvísi er það hvernig við notum þessi gömlu góðu hljóðfæri. Við út- hlutum þeim ný hlutverk. Stundum er laglínan spiluð á trommur. Þá sjá önnur hljóðfæri um taktinn. Stundum er bassagít- arinn látinn skila gítarhljómum og trommurnar látnar spila bassa- línuna. En við leggjum alla jafna áherslu á sterka og raunverulega laglínu. Einnig leggjum við mikið upp úr textunum. Þar situr húmor- inn í fyrirrúmi. Engin rómantík, takk fyrir! Við syngjum eingöngu á frönsku. Þið þurfið samt ekki að óttast neitt þótt þið skiljið lítið i frönsku. Við munum útskýra alla okkar söngva á ensku áður en við flytjum þá í Safarí. Höfum góöa reynslu af fólki eins og íslendingum Að lokum: Hvað er það sem rekur Etron Fou Leloublan til litlu eyjunnar í Norður-Atlantshafi? — Við höfum alla tíð verið áhugasöm um landafræði og sögu. Við vitum að íslensk tunga stendur á mjög gömlum merg. Okkur er hlýtt til þjóðfélaga sem eiga sér jafn djúpar rætur og hafa jafn djúpstæðar mannlegar tilfinningar og íslenska þjóðin. Við höfum góða reynslu af fólki sem lifir í jafn nánu sambandi við náttúruna og mann- eskjuna og þið. Og svona til að standa við ímynd um ósamræmi sem blaðamenn elska að draga upp af okkur þá vil ég að sfðustu segja að við erum þess fullviss að Island er einhver sá heitasti staður sem við munum nokkurn tímann spila á! Texti: Jens Kr. Guömundsson Skotíst undan svörum — eftir Magdalenu Schram Líklega þykir fólki fátt neyðar- legra en fyrirspyrjandi í sjón- varpi, sem fer með misskildar töl- ur í spurningu. Nema ef vera skyldi stjórnmálamaður, sem vík- ur sér undan spurningunni með misfærðum tölum. Það vill til happs í því tilviki sem hér um ræðir, að bæði hafa tök á að klóra í bakkann í víðlesnu dagblaði, sbr. Morgunblaðið þ. 14. febrúar sl. og leiðréttingu þess á tölum undirrit- aðrar og siðan á tölum borgar- stjóra Davíðs Oddssonar hér og nú: í sjónvarpsþættinum „Setið fyrir svörum“ þriðjudaginn 12. febrúar sl. var spurt hvernig stæði á hækkun á aksturskostnaði borg- arinnar og vísað til þess, að í áætl- un þessa árs væri gert ráð fyrir 75 milljónum króna í þennan lið. Tal- an 75 milljónir er rétt en var not- uð til samanburðar við rangar töl- ur eins og fram kom í orðum borg- arhagfræðings í Mbl. þ. 14. þ.m. Einnig var í spurningunni vísað til þess, að núverandi borgarstjóri hafði á orði háan aksturskostnað borgarinnar í tíð vinstri meiri- hlutans; vist hefði hann alltaf vit- að, að sá meirihluti var borginni dýr, en að hann væri „svona úti að aka“ — það væri með ólíkindum. Ekki síst með tilliti til þessa var forvitnilegt hver skýringin er á sí-hækkandi aksturskostnaði í tíð núverandi meirihluta. Svar borg- arstjórans við spurningunni var, að 75 milljónir væri röng tala og að í rauninni væri aðeins um að ræða hækkun úr 10,2 milljónum í 11,2 milljónir milli áranna 1984 og 1985. Hér fer borgarstjórinn með rangar tölur. Þær, sem hann nefn- ir, eiga aðeins við um leigubíla- kostnað borgarinnar en ekki um aksturskostnað eins og hann þó fullyrti. Fyrir klaufaskap undir- ritaðrar og misfærslu borgarstjór- ans fékkst því aldrei svar við spurningunni né heldur komu fram hinar réttu tölur um akst- urskostnað borgarinnar, þ.e. kostnað vegna leigubíla og bíla- styrkja, en þær eru þessar: 1982: 9.935,041, 1983: 13.450.172 (Fjár- hagsáætlun þess árs var jafn- framt fyrsta fjárhagsáætlun nú- verandi borgarstjóra), 1984: 25.067.081 og 1985: 31.193.753. Sú upphæð, sem borgarstjóranum blöskraði svo mjög í eina tíð, hefur sem sagt þrefaldast, eða, svo talið sé í prósentum að hætti stjórn- málamannsins: hækkað um 131,9% síðan 1983, um 213,9% síð- an 1982. En spurningunni um það, hvernig stendur á þessum hækk- unum, er enn ósvarað. Launahækkun umfram aöra Vegna þess að Davíð Oddsson borgarstjóri sá ástæðu til að beita samskonar aðferðum í „svörum" sínum við fleiri spurningum án þess að fyrirspyrjendum gæfist — vegna fyrirkomulags þáttarins — kostur á að bera hönd fyrir höfuð sér, er ástæða til að leiðrétta enn nokkrar athugasemdir borgar- stjórans við spurningar fulltrúa Kvennaframboðsins: Vegna fyrir- spurnar varðandi 37% launa- hækkun borgarstjórans fullyrti hann, að Kvennaframboðið hefði enga tillögu lagt fram um lækkun á launum borgrstjóra. Þetta er eki rétt. Svohljóðandi tillaga til breytingar á fjárhagsáætlun árs- ins 1985 var lögð fram af Kvenna- framboðinu: „Borgarstjórn sam- þykkir, að við gerð fjárhagsáætl- unar fyrir árið 1985 verði gjöld vegna gjaldaliðanna 01—001 til 01—023 lækkuð um 10% eða úr 13.743 í 12.031.869.“ Greinargerð tillögunnar hljóðaði þannig: „Til- lagan felur í sér að hækkun launa borgarfulltrúa, borgarráðsmanna og annarra fulltrúa í nefndum borgarinnar verði í samræmi við almennar launahækkanir ný- gerðra kjarasamninga launþega. Jafnframt er gert ráð fyrir, að niður falli greiðslur bifreiða- styrkja til borgarfulltrúa og borg- arráðsmanna." Um staðfestingu þess, að launakjör borgarstjóra séu innifalin í þessari tillögu vís- ast til greinargerðar fjárhags- áætlunar. Neyðarathvarf unglinga Vegna fyrirspurnar um neyðar- athvarf fyrir unglinga fullyrti borgarstjórinn, að vissulega bær- ust margar tillögur frá minnihlut- anum, sem virði væru athugunar („óskatillögur"!), en þær kæmu fram of seint, þ.e. þegar fjár- hagsáætlun er frágengin og myndi hún því raskast við tilfæringar. Um þetta er tvennt að segja: — Tillaga Kvennaframboðsins um neyðarathvarf fyrir unglinga var lögð fram í júní árið 1984 og gafst því nægur tími til að rúma hana í fjárhagsáætlun, a.m.k. ef einhver vilji er til þess hjá borgar- stjóranum. — Það er undarlegur hroki gagn- vart fulltrúum um helmings Reykvíkinga, sem minnihluti borgarstjórnar er núna, að taka tillögur þeirra ekki til greina vegna þess, að það gæti raskað hugmyndum fulltrúa hins helm- ings Reykvíkinga, sem eru sjálf- stæðismenn í borgarstjórn. Næst liggur að trúa, að borgarstjóra þyki fundir borgarstjórnar og nefnda og ráða borgarinnar til trafala, því að þar sé aðeins verið Magdalena Schram „— um 5.200 börn í Reykjavík eiga ekki inni hjá Reykjavíkurborg. Á meðan þetta ástand rík- ir verður það ekki nefnt öðru nafni en neyðar- ástand, a.m.k. frá sjónarhóli þeirra for- eldra, sem annaðhvort njóta ekki lögbundins jafnréttis á vinnumark- aðnum eða, vinni þeir úti, hafa ekki örugga gæslu fyrir börn sín á meðan. Og þá er ótalinn sjónarhóll barnanna sjálfra.“ að ónáða meirihlutann við sína stefnumörkun! (Orð borgarstjór- ans um fækkun fulltrúa í þeim til- gangi að gera stjórn borgarinnar „skilvirkari" má skilja á alveg sama hátt og mest furðan, að borgarstjórinn skuli ekki leggja til burtrekstur allra nema sjálfs sín í nafni skilvirkninnar.) SÁÁ Vegna fyrirspurnar varðandi nýlegan samning borgarstjórans við SÁÁ fullyrti borgarstjórinn að samningurinn „gengi út á“ fyrir- byggjandi aðgerðir, en téður samningur hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir þá sök, að í honum falli engin orð um varnað- araðgerðir á sviði áfengismála. Samningurinn er samtals átta greinar. Aðeins í einni þeirra kemur fram starfslýsing og þá á þennan hátt: „Starfsemin er fólgin í leiðbeiningu og ráðgjöf fyrir að- standendur áfengissjúklinga og fellur undir starfsemi heilsu- verndarstöðva samkvæmt ákvæð- um laga um heilsuvernd." Þetta hefur fulltrúum minnihlutans ekki sýnst þýða annað en lesa má úr orðunum. Neyöarástand Vegna fyrirspurnar um dagvist- unarmál í Reykjavík fullyrti borg- arstjórinn að ekki ríkti neyðar- ástand í þeim efnum i Reykjavík. Hér er auðvitað mat borgarstjór- ans á þessum staðreyndum: — um fimm hundruð börn for- gangshópa (þ.e. einstæðra for- eldra og námsmanna) eru nú á biðlista eftir dagvistun, — um 5.200 börn í Reykjavík eiga ekki inni hjá Reykjavíkurborg. Á meðan þetta ástand ríkir verður það ekki nefnt öðru nafni en neyð- arástand, a.m.k. frá sjónarhóli þeirra foreldra, sem annaðhvort njóta ekki lögbundins jafnréttis á vinnumarkaðnum eða, vinni þeir úti, hafa ekki örugga gæslu fyrir böm sín á meðan. Og þá er ótalinn sjónarhóll barnanna sjálfra. Gildismat Vegna fyrirspurnar um það, hvers vegna borgin teldi sig hafa efni á að kosta 45 milljónum í byggingu einnar brúar en ekki meiru en 39 milljónum í að leysa dagvistunarvandann, fullyrti borgarstjórinn að Kvennafram- boðið gerði sér ekki grein fyrir þvi, að það er í mörg horn að líta við stjórn borgarinnar. Þett er fölsun á starfi og tillöguflutningi Kvennaframboðsins, sem erfitt er að láta kyrra liggja. I tillögum Kvennaframboðsins, svo aðeins sé tekið eitt dæmi, um breytingar á fjárhagsáætlunum hefur marg- þætt ábyrgð borgaryfirvalda ein- mitt verið ígrunduð. Hér er því ekki um að ræða ágreining um það, hvort það beri að líta í mörg horn, heldur um hitt, gagnvart hvaða hornum borgaryfirvöld hafi mestum skyldum að gegna. Svo tekið sé mjög nærtækt dæmi: gagnvart börnum eða bifreiðum. Lengri verður þessi listi ekki — að sinni. Hinu er svo við að bæta að sjónvarpið gerði betur við lýð- ræðið með því að efna til um- ræðna um öll þau sjónarmið, sem eiga fulltrúa í borgarstjórn í stað þess að gefa einu þeirra tækifæri til að „svara“ fyrirspurnum með óréttmætum fullyrðingum um störf og eðli allra hinna. Magdaleaa Schram er varafulltrúi Kvennaframboös í borgarstjórn Rejkjavíkur. Neytendafélag Reykjavíkur: Hvetur til þess að höfuð- borgarsvæðið verði gert að einu gjaldskrársvæði STJÓRN Neytendafélags Reykja- víkur og nágrennis lýsir yfir ánægju sinni með þá nýbreytni og fjöl- breytni í þjónustu, sem Bifreiðastöð Steindórs hefur bryddað upp á. Skal þá nefnt aukið úrval bif- reiðategunda, afnám aukataxta vegna bæjarmarka innan félags- svæðis Neytendafélags Reykjavík- ur og nágrennis, greiðslukorta- þjónustu o.fl. Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis hvetur til þess að höf- uðborgarsvæðið verði almennt gert að einu gjaldskrársvæði. Fé- lagið hvetur ennfremur til þess að startgjaldið svonefnda verði endurskoðað, enda hlutfallslega hærra hér á landi en víðast annars staðar. Það er álit félagsins að startgjaldið sé leyfar gamla tím- ans, áður en talstöðvaþjónusta varð almenn. Neytendafélagið vekur athygli neytenda á þeirri breytingu sem varð við síðustu gjaldskrárhækkun leigubifreiða, sem felst í því að nú hækkar taxt- inn við 5. farþega i stað 6. áður. (Fréttatilkynning) Vertu hlýlega klædd í vetur í faUegum og hlýjum hnésokkum eða sokkabuxum frá I^ Fjölmargir klæðilegir litir Þér líður vel í Hlýr og litríkur vetur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.