Morgunblaðið - 04.06.1985, Qupperneq 19
19
aðsókn í Safnahúsi Vestmanna-
eyja góð. Úrslit í einstökum um-
ferðum urðu þessi:
3. umferð:
Ásgeir — Jón L 1—0
Karl — Ingvar 1—0
Björn — Jóhann 0—1
Short — Tisdall 'k — 'á
Plaskett — Lombardy 0—1
Bragi — Helgi 0—1
Guðmundur — Lein Vi — Xk
Óvæntustu úrslitin urði í skák
þeirra bræðra, Ásgeirs og Jóns,
enda muna elstu menn ekki eftir
því að Ásgeiri hafi tekist að leggja
íitla bróður í kappskák. Jón hafði
peð yfir og upplagða stöðu eftir
byrjtinina, en hið hræðilega áfall
daginn áður gegn Karli sat greini-
lega í honum.
4. umferð:
Jóhann — Short 'k — 'k
Tisdall — Plaskett 1—0
Lombardy — Bragi 1—0
Helgi — Guðmundur xk — 'k
Ingvar — Lein 0—1
Jón L. — Björn 'k— 'k
Karl — Ásgeir 1—0
Jóhann stóð allan tímann betur
gegn Short, en leyfði Englend-
ingnum að þráskáka rétt áður en
skákin átti að fara aftur í bið.
Plaskett tapaði nú sinni fjórðu
skák í röð. Tisdall fórnaði á hann
drottningunni og hugðist ná
þráskák. En öllum á óvart afþakk-
aði Plaskett hæversklega boðið,
lét drottninguna eiga sig og tapaði
örugglega.
5. umferð:
Short — Jón 0—1
Björn — Karl 0—1
Ásgeir — Ingvar 0—1
Bragi —Tisdall 'k — 'k
Guðmundur — Lombardy 'k — 'k
Lein — Helgi 'k — 'k
Plaskett — Jóhann biðskák
Eftir þrjá slæma daga í röð tók
Jón loksins á sig rögg og vann
enska undrabarnið af miklu
öryggi. Short reyndi æ ofan í æ að
skapa sér sóknarfæri, en rak sig
jafnan á vegg á meðan peðin féllu
eitt af öðru. Líkur munu á að
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. JÚNl 1985
Plaskett komist loksins á blað, þó
hann standi heldur lakar í bið-
stöðunni gegn Jóhanni. Ásgeir Þór
lék hrikalegum afleik í gjörunn-
inni stöðu.
Staðan eftir fimm umferðir:
1.—3. Karl, Lombardy og Lein 4 v.
4. Jóhann Z'k v. og biðskák.
5. -6. Tisdall og Helgi 3xk v.
7. Guðmundur 3 v.
8. Jón L. 2xk v.
9. Short 2 v.
10. —11. Ásgeir og Ingvar 1 'h v.
12. —13. Björn og Bragi 'k v.
14. Plaskett 0 v. og biðskák.
Það er ljóst að það verða banda-
rísku og íslensku titilhafarnir á
mótinu sem koma til með að berj-
ast um efsta sætið, en Englend-
ingarnir tveir hafa enn ekki unnið
skák og hafa samanlagt hlotið tvo
vinninga af níu mögulegum. Fyrir
nokkru kom út í Englandi mont-
bók er bar nafnið „Enska skák-
byltingin". Við skulum vona að
gagnbyltingin sé ekki skollin á.
Það er þó of snemmt að afskrifa
Short, hann hefur mætt mjög erf-
iðum andstæðingum og ef honum
tekst að tefla sig í form er hann til
alls líklegur.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Jón L. Árnason
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —
czd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6.
a4 — e6, 7. Be2 — Rc6, 8. 04) —
Be7, 9. Be3 — 04»
Nú er komin upp þekkt staða úr
Scheveningen-afbrigðinu.
10. f4 — Dc7, 11. Khl — He8, 12.
Bf3 — Ra5
t fimmtu einvígisskák Karpovs
og Kasparovs í vetur lék hinn síð-
arnefndi hér 12. — Hb8 og jafnaði
taflið eftir 13. Hel - Bd7, 14. Dd3
— Rxd4,15. Bxd4 — e5.
13. Bgl — Bf8, 14. Rde2
Slíkt undanhald veldur svörtum
að sjálfsögðu engum erfiðleikum.
14. — Hb8, 15. Del — Rc6, 16. Rd4
— Rxd4, 17. Bxd4 — e5, 18. fxe5 —
dxe5, 19. Dg3 — Kh8, 20. Be2 —
Dd6, 21. Be3 — Befi
Svartur getur litið björtum augum
til framtíðarinnar, menn hans eru
vel staðsettir á meðan hvíti biskup-
inn á f3 er Short meira til trafala en
gagns. Short stofnar nú til upp-
skipta, en öruggast var líklega að
leika 22. Hadl — Db4, 23. Bcl.
22. Bg5 - Be7, 23. Hadl — Dc5, 24.
Bxf6 - Bxf6, Bg4 - Hbd8, 26. Bxe6
- fxe6!
Valdar d5-reitinn og þar með er
Rc3 orðinn áhrifalaus.
28. Hd3 — Hd4, 28. Hdf3?!
Hvítur hyggst ná sókn, en hefði
fremur átt að leggjast í vörn og
leika 28. Df3 - Hed8, 29. Hfdl.
28. — Hd2!, 29. H3f2 — Hed8
30. Hxd2?
Vegna yfirráða sinna yfir d-lín-
unni stóð svartur betur, en nú tap-
ar hvítur peði án þess að fá nokk-
ur sóknarfæri fyrir. Skárst var því
30. h3.
30. — Hxd2, 31. Dg4 — Dc4!, 32.
Hdl - Hxc2!
Það þarf sterkan mann til að
gleypa svona peð, en Jón reynist
vandanum vaxinn.
33. Dh5 — h6, 34. h4 — Kh7, 35.
I)g4 - Hxb2, 36. h5 — Bg5, 37. Df3
— Dc7, 38. Dg4?
Síðasta örvæntingarfulla þrá-
skákartilraunin.
38. — Dxc3, 39. Dxe6 — Dc6, 40.
Df5+ — Kg8 og svartur gafst upp.
Vel tefld stöðuskák hjá Jóni.
Mazda
eigendur
Bestu kaupin eru hjá okkur!
Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir
MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil
kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi
eins og framleiöandinn mœlir meö
— þau passa í bílinn.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23. S. 81265
á 6 mána
>s
Ein gerðin, verðtryggð spariskírteini með vaxtamiðum,
er langþráð lausn fyrir þá sem vilja varðveita sparifé sitt
örugglega og með hárri ávöxtun, sem greidd er út á hálfs árs
fresti og er þannig traustar og öruggar tekjur. Samt stendur
höfuðstóllinn fullkomlega verðtryggður og óskertur eftir.
Sá sem keypti spariskírteini m/vaxtamiðum
fyrir 2 milljónir 10. jan. sl.,
fær í nafnvexti 10. júlí nk.__________kr. 66.000.-
+ áætlaðar verðbætur á vexti__________kr. 10.200.-
Tekjur til ráðstöfunar eftir 6 mánuði kr.
Eftir stendur höfuðstóll
76.200.-
sem 10. júlí er þá orðinn
kr. 2.310.000.-
Sölustadir eru:
Sedlabanki íslands, vidskiptabankamir, sparisjóðir, nokkrir verdbréfasalar og pósthús um land allt.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS