Morgunblaðið - 20.06.1985, Page 30
30
Noregur:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1985
Minni útflutning-
ur á laxi en
áætlað hafði verið
ÍJTFLUTNINGUR á eldislaxi frá
Noregi var 1000 lestum minni í aprfl-
mánuði en áætlað hafði verið af
Sölusamlagi norskra fiskeldisstöð-
va. Að sögn Björgvinjarblaðsins
Fiskaren voru fluttar út 1500 til 1600
lestir af norskum eldislaxi í aprfl í
stað 2500 lesta samkvæmt áætlun-
um. Er talið líklegt að á tímanum frá
byrjun janúar til loka maí á þessu
ári nemi útflutningurinn alls 11.000
lestum og því takist ekki að ná
18.000 lesta markinu í lok júlí eins
og að var stefnt.
Fiskaren hefur það eftir Odd
Berg hjá Sölusamlagi fiskeldis-
stöðva, að samdrátturinn á söl-
unni í apríl kunni að leiða til
offramboðs á söluhæfum fiski í
júní og júlí. Þrátt fyrir þennan
samdrátt hafa Norðmenn flutt út
meira af eldisfiski í ár en á sama
tíma í fyrra.
Gjaldþrot í Bandaríkjunum
í Fiskaren segir einnig frá því,
að eitt stærsta bandaríska fyrir-
tækið sem stundar innflutning á
laxi, Seamark í Boston, sé að verða
gjaldþrota og kunni norskir út-
flytjendur og Kreditkassen-Fisk-
ernes Bank að tapa allt að sex
milljónum norskra króna (28,5
milljónum ísl. kr.).
Seamark í Boston hefur verið
brautryðjandi í innflutningi á laxi
til Bandaríkjanna og hefur ráðið
um 20 til 25% af markaðnum. Á
síðasta ári keypti stórfyrirtæki á
vesturströnd Bandaríkjanna Sea-
mark. Fyrir tæpum mánuði lýstu
eigendurnir því yfir, að þeir ætl-
uðu að hætta öllum fjárstuðningi
við Seamark, sem ekki hefur verið
lýst formlega gjaldþrota.
Það var fyrirtækið Hallvard
Leröy A/S sem hóf viðskiptin við
Seamark 1978 og seldi þá fersk
fiskflök til Bandaríkjanna, laxinn
kom síðar til sögunnar. Forstjóri
Hallvard Leröy telur að það muni
ekki hafa alvarleg eftirköst fyrir
sölu á norskum laxi til Bandaríkj-
anna, þótt Seamark hætti störf-
um, hins vegar bitni hið fjárhags-
lega tap illa á viðskiptavinum
þess.
Tvöfóld tennisstjarna
TENNISSTJARNAN Martina Navratilova sést hér ásamt vaxmynd af sjálfri sér á tennisvelli Wimbledon
tennisklúbbsins í London sl. fostudag. Vaxmyndina gerði Judith Craig, en hún er einn af listamönnum Madame
Tussaud-vaxmyndasafnsins.
Fékk ót-sýki
í móðurkviði
Linz, Austurríki, 18. júní. AP.
TÆPLEGA ársgamall austur-
rískur drengur er haldinn
ót—sýki (ónæmistæringu eða
AIDS), sem hann fékk í móð-
urkviði, að því er embættismaður
á vegum austurrísku heilbrigð-
isgæslunnar sagði f gær, mánu-
dag.
Drengurinn hlýtur læknis-
meðferð í sjúkrahúsi, en hefur
ekki verið lagður inn. Hefur sú
skipan haldist nokkra hríð.
Batahorfur drengsins eru
taldar litlar.
Fimmtíu til sextíu þúsund
kjarnorkuvopn í veröldinni
— Segir í nýrri bók eftir William Arkin
í NÝRRI bók eftir tvo vígbúnaðar-
sérfræðinga er því haldið fram, að
milli 50.000 og 60.000 kjarnorku-
vopn séu til í veröldinni. Þar af eigi
Sovétmenn 33.000 kjarnaodda og
Bandaríkjamenn 24.898 í 28 fylkjum
Bandaríkjanna, á Guam-eyju og í
átta löndum: Belgíu. Bretlandi,
Grikklandi, Hollandi, Italíu, Suður-
Kóreu, Tyrklandi og Vestur-Þýska-
landi.
Höfundar bókarinnar eru Willi-
am Arkin og Richard Fieldhouse.
Arkin er kunnur hér á landi. 1980
hélt hann því fram að hér væru
kjarnorkuvopn en dró það síðan til
baka og í desember 1984 hélt hann
því fram, að forseti Bandaríkj-
Arsbók SIPRI 1985:
Alþjóðamál hafa
yerið hervædd
— forstjóri SIPRI fagnar „kjarnorku-ofnæmi“ á íslandi
Stokkhólmi. AP.
ÚTGJÖLD til hermála, einkum til rannsókna og þróunar á nýjum vopna-
kerfum, aukast óðfluga og nýjar tegundir kjarnorkuvopna gera tak-
mörkun vígbúnaðar erfiðari en nokkru sinni fyrr að því er segir í árbók
Friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi (SIPRI) fyrir 1985, sem út
kom á þriðjudag.
Frank Blackaby, forstjóri
SIPRI, dró upp dökka mynd af
stöðu alþjóðamála, þegar hann
kynnti 16. útgáfu árbókarinnar,
sem er 666 blaðsíður að stærð.
Forstjórinn taldi að alþjóðleg
samskipti hefðu verið „her-
vædd“, eins og hann orðaði það.
„Hernaðarmál ráða úrslitum í
samskiptum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna," sagði forstjór-
inn og vísaði til fyrrum banda-
rísks hershöfðingja, sem hafði
spurt: Hvað gera þeir svo sem
annað en tala um hermál?
Frank Blackaby taldi það
hinsvegar til marks um jákvæða
þróun, að í ýmsum smárikum
yrði vart við „kjarnorku-
ofnæmi" eins og hann orðaði það
og nefndi þá ísland og Nýja Sjá-
land til sögunnar. Þá fagnaði
hann því, að í ýmsum öðrum
löndum væru stjórnarandstöðu-
flokkar þeirrar skoðunar að
kjamorkuvopn ættu ekki heima
í löndum þeirra.
Árbók SIPRI er viðurkennt
heimildarrit um vígbúnað í ver-
öldinni, viðskipti með vopn og
afvopnunarmál. í nýjustu útgáf-
unni eru sérstakir kaflar um
stríðið í Afganistan, þriðju
kynslóð kjarnorkuvopna, her-
væðingu Afríku og vöxt
hergagnaframleiðslu í ríkjum
þriðja heimsins. Stofnunin er
fjármögnuð af sænska ríkinu en
starfslið hennar er alþjóðlegt.
Þegar Frank Blackaby kynnti
árbókina sagði hann að ýmis at-
riði gæfu visbendingu um það,
hvort stöðugleiki ykist eða rask-
aðist í alþjóðamálum. Meðal
þeirra atriða sem hann nefndi
voru þessi:
Heildarútgjöld til hermála
jukust á síðustu fjórum árum
um 3,5% á ári, en útgjaldaaukn-
ingin til rannsókna og þróunar
var tvisvar sinnum meiri. Taldi
hann þetta boða tilkomu nýrra
vopna þegar fram liðu stundir.
Kjarnorkuvopnakerfum í
framvarnarstöðu hefur fjölgað,
stýriflaugar búnar kjarnaoddum
sem skotið er frá skipum hafa
komið til sögunnar, hreyfanleg-
um skotpöllum fyrir langdrægar
kjarnorkueldflaugar hefur fjölg-
að og meiri marksækni nýrra
eldflauga eykur líkur á að þeim
verði beitt í átökum.
Á árinu 1984 var 800 milljörð-
um bandaríkjadala varið til her-
mála í heiminum. Þá voru gerðar
53 tilraunir með kjarnorku-
sprengjur, þar af 27 í Sovétríkj-
unum og 15 í Bandaríkjunum.
anna hefði heimilað að flytja
kjarnorkusprengjur hingað á
striðstímum. Sú fullyrðing reynd-
ist röng.
Bókin sem hér um ræðir heitir
Nucelar Battlefields á ensku eða
Kjarnorkuvígvellir. Þegar frétt-
amaður dagblaðsins Los Angeles
Times sneri sér til Michaels I.
Burch, talsmanns bandaríska
varnarmálaráðuneytisins, og leit-
aði álits hans á efni bókarinnar og
þeim nákvæmu upplýsingum sem
þar eru birtar sagðist Burch ekki
hafa lesið bókina en bætti við: „Af
þeim takmörkuðu upplýsingum
sem ég hef um staðsetningu kjarn-
orkuvopna held ég að tölurnar
sem þeir birta séu ekki nákvæmar.
Þó á ég erfitt með að leiðrétta
þær, þar sem við játum hvorki né
neitum tilvist kjarnorkuvopna."
1 yfirlýsingu frá rannsókna-
stofnuninni Institute for Policy
Studies, þar sem William Arkin
starfar, segir að höfundar bókar-
innar hafi fengið upplýsingar úr
bandarískum stjórnarskjölum,
sem þeir hafi kynnt sér á grund-
velli laga um uplýsingafrelsi, úr
yfirheyrslum í bandarískum þing-
nefndum og skýrslum sem opin-
berir aðilar hafi afhent þeim.
Efnahagsráðstafanir í Argentínu:
Verðstöðvun og
nýr gjaldmiðill
Rucnos Aires, Argentínu, 18. júní. AP.
EFNAHAGSRÁÐSTÖFUNUM argentínsku stjórnarinnar, sem m.a. felast í
launa- og verðstöövun og nýrri mynteiningu, hefur verið tekið mjög misjafn-
lega í landinu. Talsmenn atvinnuveganna vilja binda nokkrar vonir við þær
en forsvarsmenn verkalýðsfélaga og stjórnarandstöðu hafa brugðist ókvæða
við.
Flestum sérfræðingum ber sam-
an um, að árangurinn af efna-
hagsráðstöfununum muni velta á
tvennu. í fyrsta lagi á því hve
ákveðin stjórnin sjálf verður og
hins vegar á því hvort almenning-
ur í landinu muni fá trú á, að þær
séu til bóta fyrir framtíðina.
„Hornsteinar þessara ráðstafana
eru tveir," sagði formaður í félagi
stórbænda í Argentínu, „annars
vegar niðurskurður ríkisútgjalda
og hins vegar sú von, sem nýja
mynteiningin vekur hjá almenn-
ingi.“
Nýja myntin heitir „Austral",
sem þýðir „suður“ á spænsku, og á
hún smám saman að leysa verð-
bólginn pesóinn af hólmi en verð-
bólga í Árgentínu er nú eitthvað á
annað þúsund prósent á ári. Al-
fonsin forseti tilkynnti einnig, að
vísitölubinding hefði verið afnum-
in, sjálfvirk vixlhækkun launa og
verðlags, en á móti kemur, að laun
og verðlag verða fryst í því fari,
sem þau voru í á miðvikudag fyrir
viku.
Leiðtogar verkalýðsfélaganna
hafa gagnrnt ráðstafanirnar harð-
lega og segja að atvinnuleysið
muni stóraukast samfara minni
ríkisútgjöldum. í síðustu viku náði
Argentínustjórn samkomulagi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem fel-
ur það m.a. í sér, að hún fær nýtt
lán upp á 1,4 miíljarða dollara til
að geta staðið í skilum með af-
borganir af erlendum skuldum,
sem eru 48,4 milljarðar dollara.
Stjórnin skuldbatt sig aftur á
móti til að skera niður ríkisút-
gjöldin og hækka verð á opinberri
þjónustu um allt að 50%.