Morgunblaðið - 20.06.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1985
t
Eiginmaöur mínn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN R. ÞÓRÐARSON,
bifreiöastjóri,
Tunguvegi 92, Reykjavík,
lést í Landspítalanum laugardaginn 15. júni sl.
Jaröarförin fer fram fimmtudaginn 20. júní, kl. 13:30, frá Bústaöa-
kirkju.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Krabbameins-
félag fslands.
Arnfinnur Jónsson,
Herdís Jónsdóttir,
Jón Ragnar Jónsson,
Ingólfur Þ. Jónsson,
Friörik Jónsson,
Kathinka Klausen,
Jón Hallgrímsson,
Birna Þorvaldsdóttir,
Dagný Guömundsdóttir,
Gróta Guömundsdóttir,
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móöir, amma og langamma,
JENNÝ BJARNADÓTTIR,
Kleppsvegi 36,
lést 6. júní.
Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir sendast öldrunardeildinni Hátúni 10, 3ju hæö.
Þökkum auösýnda samúö.
Leo Ólafsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaöur minn og faðir okkar,
MARINÓ KRISTINN JÓNSSON,
Dragavegi 6,
lést í Borgarspítalanum 17. júní.
Jaröarförin veröur auglýst síöar.
F.h. annarra vandamanna,
Katrín Kristín Hallgrímsdóttir,
Sigurlaug Marinósdóttir, Hallgrímur Marinósson.
t
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR ANGANTÝSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
andaöist 17. júni i sjúkradeild Hrafnistu.
Fyrir hönd vina og vandamanna.
Jóhann Angantýsson,
Guöjón Angantýsson.
Minning:
Sveinbjörn Egils-
son bankamaður
„Er hel í fangi minn hollvin ber,
sakna ég einhvers af sjálfum mér“.
Sveinbjörn mágur minn er all-
ur. Hann andaðist að kvöldi 10.
júní, aðeins 63 ára. Hann fæddist
á ísafirði 14. apríl 1922, sonur
hjónanna Guðnýjar Guðfinns-
dóttur og Egils Jóhannessonar
skipstjóra og ólst upp hjá þeim í
Reykjavík og Akureyri.
Kynni mín við Sveinbjörn hóf-
ust á Siglufirði er hann og Anna
systir mín fóru að vera saman og
giftust siðan. Okkar kynni voru
strax góð. Þegar ég svo giftist
seinna bróður hans Þorsteini urð-
um við sem ein fjölskylda og hefur
hann reynst mér besti vinur og
félagi alla tíð. Sveinbjörn var um
margt sérstakur og stórbrotinn
persónuleiki. Hann var dulur í
skapi og ekki orðmargur um hlut-
ina, en hafði lúmskt gaman af
glettni og var oft hnyttinn í til-
svörum. Ráðhollur var hann og
órofatryggur vinur.
Heimili Önnu og Sveinbjarnar
var lifandi hús sem einkenndist
alla tíð af dæmafárri gestrisni,
glaðværð og góðvilja og þar ólust
upp dæturnar þrjár, Guðný, Sig-
urlaug og Anna Dís, sem allar
bera vitni góðu uppeldi. Mikill
fjöldi fólks tók hús á þeim hjónum
um lengri eða skemmri tíma og
var þá hvorki sparað fé né fyrir-
höfn í þeirra þágu. Minni fjöl-
skyldu var þetta sem okkar annað
heimili. Árið 1979 deyr Anna, að-
eins 52 ára, öllum harmdauði er til
þekktu og nú, aðeins sex árum
seinna, er Sveinbjörn allur.
í veikindum sínum sýndi hann
mikinn kjark og æðruleysi, dyggi-
lega studdur af dætrum sínum.
Ég, sem skrifa þessi fáu og fá-
tæklegu orð, veit enga lausn á
gátu lífs og dauða, en í hjarta mér
er ég viss um að hann á góða
heimvon.
Með þökk fyrir allar ánægju-
stundirnar.
Alda
Sveinbjörn Egilsson bankamað-
ur, Otrateigi 10, er látinn.
Fáorð frétt, lesin í dagblaði á
leið heim frá útlöndum, en þó svo
áhrifarík. Þannig barst mér vitn-
eskjan um andlát vinar míns og
svila, Sveinbjarnar Tryggva Eg-
ilssonar. Þessi fregn kom mér þó
ekki á óvart. Ég hafði frá upphafi
fylgst með veikindum hans síð-
ustu mánuði og grunað að hverju
stefndi. Þó að karlmannleg við-
brögð Sveinbjarnar við veikindun-
um vektu stundum vonir um að
hann myndi sigra í þeirri baráttu,
blundaði samt undir niðri óttinn
við hin óumflýjanlegu endalok.
Sjálfur gekk Sveinbjörn á vit
þeirra örlaga, sem eru oss öllum
sköpuð frá fæðingu, óttalaus og af
því æðruleysi sem einkenndi allt
hans líf og þeirri karlmennsku,
sem byggir á vitneskjunni um að
eigi má sköpum renna.
Sveinbjörn var fæddur á ísa-
firði 14. apríl 1922, sonur hjón-
anna Egils Jóhannssonar skip-
stjóra frá Akureyri og konu hans,
Guðnýjar Guðfinnsdóttur. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri og hóf síðan nám í
lögfræði við Háskólann, en hvarf
frá námi án þess að ljúka embætt-
isprófi. Á námsárum sínum í Há-
skólanum giftist Sveinbjörn ungri
stúlku frá Siglufirði, Önnu, dóttur
Jóns Þorkelssonar frá Landamót-
um og Sigurlaugar Davíðsdóttur,
konu hans. Þau Anna og Svein-
björn eignuðust þrjár dætur, sem
allar eru uppkomnar. Elst er Guð-
ný, flugfreyja gift Mekkino
Björnssyni flugmanni og eiga þau
einn son. Sigurlaug er starfandi
læknir við Landspítalann, gift Dr.
Þórði Jónssyni, sem starfar við
Raunvísindadeild Háskólans og
eiga þau einn son, sem heitinn er
eftir Sveinbirni afa sínum. Yngst
er svo Anna Dís, sem einnig er
flugfreyja, en hún bjó ásamt sam-
býlismanni sínum Grétari ívars-
syni jarðfræðingi, heima hjá
Sveinbirni að Otrateigi 10.
Ég kynntist Sveinbirni fyrst
fyrir tæpum 35 árum, er ég tengd-
ist fjölskylduböndum við önnu
konu hans. En þó vík væri milli
vina, lærðum við fljótt að meta
mannkosti Sveinbjarnar og
drenglund alla. Á heimili hans og
Önnu mágkonu minnar átti fjöl-
skylda mín annan samastað i til-
verunni. Þar fannst okkur við allt-
af vera jafnvelkomin, hvort heldur
t
Móöir mín,
GUDRÚN B. DANÍELSDÓTTIR
Irá Hvammstanga,
Dalbraut 27,
lést í Landspítalanum mánudaginn 17. |úní sl.
Jaröarförin auglýst síöar.
Fyrir hönd vandamanna.
Hlíf Svava Hjólmtýsdóttir.
t
Ástkær sonur okkar,
EINAR ARON,
lést af slysförum 16. júní.
Inga Einarsdóttir, Páll Aronsson.
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
ÓLAFUR MAGNÚS VILHJÁLMSSON,
Sunnubraut 4,
Akranesi,
lést i sjúkrahúsi Akraness 16. júní. Útför hans fer fram frá Akranes-
kirkju, föstudaginn 21. júní kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á sjúkrahús Akraness.
Þóra Þóróardóttir,
Emilía Ólafsdóttir, Kristbjörg Ólafsdóttir,
Jón Sigurðsson,
Þóra Jónsdóttir,
Krisf jana Jónsdóttir,
Finnur Gísli Garðarsson,
Maren Finnsdóttir,
Ólafur Magnús Finnsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir,
HALLGRÍMUR BOGASON,
Dalbraut 25,
Raykjavík,
veröur jarösunginn frá Áskirkju föstudaginn 21. júní kl. 13.30.
Kristrún Jónasdóttir,
Guðný Hallgrímsdóttir, Bjarni Pátursson,
Bogi G. Hallgrímsson, Helga Helgadóttir,
Dagbjört Hallgrímsdóttir, Garðar Arnkelsson,
Jónas Hallgrímsson, Hulda Erlingsdóttir,
Sigurjón Hallgrímsson, Þórkatla Albertsdóttir.
t
Móöir mín, systir og mágkona,
ANNA GRÖNFELDT,
Borgarnesi,
veröur jarösungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 22. júní kl.
13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afbeöin en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Borgarneskirkju eöa líknarstofnanir.
Steinþór Grönfeldt,
Þórleifur Grönfeldt, Erla Danielsdóttir.
t
Jaröarför fööur okkar,
RAGNARS STEFÁNSSONAR
frá Brimnesi,
Boöagranda 7,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. júní kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
Börnin.
var í litlu íbúðinni á Bárugötu 5,
eða í hinum rúmbetri húsakynn-
um að Otrateigi 10. Hjartahlýja
Önnu og gæflyndi Sveinbjarnar,
sköpuðu í sameiningu þann heim-
ilisbrag, sem laðaði að sér vini og
vandamenn til lengri eða skemmri
dvalar, því þar var að finna þær
viðtökur og þau lífsviðhorf, sem
nú gerast æ fátíðari í lífsgæða-
kapphlaupi nútímans. Seint fáum
við hjónin fullþakkað þann vel-
gjörning allan er við nutum á
heimili þeirra og þá umhyggju er
þau sýndu sonum okkar er þeir
stunduðu nám í Reykjavík.
Árið 1953 var Sveinbjörn ráðinn
starfsmaður hjá Landsbanka ís-
lands og vann síðan hjá þeirri
stofnun til æviloka. Hann hóf
störf við endurskoðunardeild
bankans, en síðar var honum falin
umsjón með uppsetningu á tölvu-
deild Landsbankans, en hann varð
fyrstur íslenskra banka til að
tölvuvæða reikningshald sitt. Má
fullyrða að Sveinbjörn og félagar
hans í tölvudeild unnu þar mikið
brautryðjendastarf og komu þá að
góðum notum rökföst hugsun og
skipulagshæfileikar, en þeim eig-
inleikum var Sveinbjörn gæddur í
ríkum mæli. Hann var ákaflega
vel látinn, sem yfirmaður, af
starfsfólki í tölvudeildinni og þar
hygg ég að hann hafi fundið til
mestrar ánægju í starfi sínu hjá
bankanum. En þegar Landsbank-
inn gerðist aðili að Reiknistofnun
bankanna hætti Sveinbjörn störf-
um í tölvudeild og vann eftir það
sem aðstoðarmaður bankastjóra,
aðallega að verkefnum tengdum
útgerð og fiskvinnslu, en á þeim
málum hafði hann grundvallar-
þekkingu og yfirsýn. Sveinbjörn
hafði jafnframt með höndum eft-
irlit með ýmsum útibúum bankans
á landsbyggðinni og stjórnaði
meðal annars yfirtöku og skipu-
lagningu bankans á útibúunum á
Seyðisfirði og Skagaströnd. Hann
gegndi einnig um tíma störfum
útibússtjóra Landsbankans á
Eskifirði, Seyðisfirði og Skaga-
strönd. Ekki sóttist Sveinbjörn
eftir völdum eða titlatogi, en vann
sig til metorða innan bankans með
hæfileikum og samviskusemi.
Sveinbjörn var að eðlisfari hlé-
drægur maður og óframhleypinn
og fyrir ókunnuga gat verið erfitt
að sjá hvort honum líkaði betur
eða verr. En vinir hans og sam-
starfsmenn lærðu fljótt að meta
húmaníska lífsskoðun hans, trygg-
lyndi og góðar gáfur. Hann var
umhyggjusamur heimilisfaðir og
hafði dálæti á börnum og nutu
litlu dóttursynir hans þessa eig-
inleika hin síðustu ár. Fráfall
Önnu konu hans fyrir aldur fram,
var honum mikil þolraun þó eigi
bæri hann tilfinningar sinar á
torg í þeim efnum fremur en öðr-
um. En engum sem til þekkti duld-
ist söknuður hans. Dætur Svein-
bjarnar, sem erft hafa ýmsa af
bestu kostum foreldra sinna, önn-
uðust föður sinn af mikilli um-
hyggju í veikindum hans og gerðu
honum mögulegt að dvelja heima
eins lengi og nokkur kostur var,
enda var það í samræmi við óskir
hans. Sveinbjörn andaðist eftir
stutta legu á Landspítalanum
þann 10. júní sl.
Að systrunum og fjölskyldum
þeirra sækir nú sár tregi eftir föð-
urmissinn, við úr fjölskyldunni á
Siglufirði sendum þeim einlægar
samúðarkveðjur. Einnig sendum
við Þorsteini, einkabróður Svein-
bjarnar og fjölskyldu hans, inni-
legar kveðjur og vonum og vitum
að minningin um góðan dreng
hjálpar til að sefa sárasta treg-
ann- Hannes Baldvinsson