Morgunblaðið - 20.06.1985, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1985
Erlendar
lántökur
7,1 millj-
arður kr.
IAn.sfjárlög voru samþykkt í efri
deild síðastliðinn þriðjudag sem
lög frá Alþingi. Kins og sést á með-
fylgjandi töflu verða heildarlán-
tökur rúmlega 9,4 milljarðar
króna, þarf af eru erlendar lántök-
ur 7,1 milljarður.
Ný jafn-
réttislög
Ný jafnréttislög voru samþykkt
í efri deild í gær. Með lögunum
er hvers kyns mismunun eftir
kynferði óheimil, en sérstakar
tímabundnar aðgerðir sem ætlað-
ar eru til aö bæta stöðu kvenna
eru ekki taldar brjóta gegn þeim.
Lögin voru samþykkt samhljóða.
I lögunum er ákvæði um að
konum og körlum skuli greidd
sömu laun fyrir sambærileg og
jafnverðmæt störf. Ef karl-
manni hefur verið veitt starf
sem hefur verið auglýst, en um
það hefur sótt kona, þá getur
Jafnréttisráð farið fram á að
hlutaðeigandi atvinnurekandi
veiti skriflegar upplýsingar um
hvaða menntun, starfsreynslu
og aðra hæfileika sá hefur til
að bera sem starfið hreppti.
Þetta gildir einnig ef kona hef-
ur verið ráðin.
1 lögunum er ákvæði um að
atvinnurekendur skuli vinna
markvisst að því að jafna stöðu
kynjanna innan fyrirtækis síns
og stuðla að því að störf flokk-
ist ekki undir sérstök kvenna-
og karlastörf. Auglýsandi og sá
er hannar auglýsingu eða birtir
verður að gæta þess að auglýs-
ingin sé ekki öðru kyninu til
minnkunar eða lítilsvirðingar.
Leitast skal við að hafa tölu
kynjanna sem jafnasta í stjórn-
um og ráðum á vegum ríkis,
sveitarfélaga og félagasam-
taka, þar sem því verður við
komið. Þá á að veita fræðslu í
mennta- og uppeldisstofnunum
um jafnréttismál.
Jafnréttisráð sér um fram-
kvæmd laganna, og er hlutverk
þess skilgreint nánar í lögun-
um. Félagsmálaráðherra á að
leggja fyrir ríkisstjórnina
framkvæmdaáætlun til fjög-
urra ára í senn, þar sem kveðið
er á um aðgerðir er stuðla að
jafnrétti.
Viðskiptabankar:
Samþykkt í neðri
deild 20:10
FRUMVARP viðskiptaráðherra um viðskiptabanka var samþykkt með 22
atkvæöum gegn 10 í neðri deild rétt upp úr miðnætti aðfaranótt miðvikudags.
Allir þingmenn stjórnarflokkanna utan Ólafur Þ. Þórðarson, sem sat hjá,
studdu frumvarpið og það gerði Kjartan Jóhannsson, Alþýðuflokki, einnig.
Aðrir stjórnarandstöðuþingmenn greiddu atkvæði á móti.
Ráðherra mælti fyrir frumvarp- Einarssonar, Bandalagi jafnað-
inu í seinni deiid í gær og var því armanna, um að ekki megi kjósa
vísað til annarrar umræðu.
Allar breytingartillögur meiri-
hluta fjárhags- og viðskiptanefnd-
ar neðri deildar voru samþykktar,
ásamt breytingartillögu ráðherra.
tyá var tillaga Þorsteins Pálssonar
og Svavars Gestssonar er varðaði
hlutafé banka samþykkt. Aðrar
breytingartillögur voru felldar,
þar á meðal tillaga Guðmundar
þingmenn í bankaráð ríkisbank-
anna.
Veigamesta breytingin sem
frumvarpið tók í meðförum fyrri
deildar var um tryggingarsjóð
viðskiptabanka og er það nýr
kafli. Sjóðurinn á að vera í eigu
ríkisins með sérstakan fjárhag.
Markmið hans er að tryggja full
skil á innlánsfé viðskiptavina
bankanna, ef til búskipta þeirra
kemur. Stefnt skal að því að heild-
areign tryggingarsjóðsins nái 1%
af innlánum bankanna. Hverjum
viðskiptabanka er gert skylt að
leggja til sjóðsins 0.15% af innlán-
um. Ráðherra á að setja reglugerð
um tryggingarsjóðinn og er heim-
ilt að hann verði í vörslu Seðla-
banka íslands.
Frumvarp um sparisjóði
samþykkt samhljóða
— þingi slitið á fóstudag
FRUMVARP til laga um sparisjóði var samþykkt samhljóða í neðri deild
síðastliðið þriðjudagskvöld og var tekið fyrir í efri deild í gær, þegar viðskipta-
ráðherra Matthías Á. Mathiesen, mælti fyrir því. Krumvarpið er eins og
frumvarp um viðskiptabanka á lista stjórnarinnar um forgangsmál.
Fjárhags- og viðskiptanefnd
deildarinnar klofnaði í tvennt í af-
stöðu sinni til frumvarpsins og
skipaði Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, minnihlut-
ann.
Þingmenn neðri deildar brettu
upp ermarnar síðastliðinn þriðju-
dag og afgreiddu þrjú önnur frum-
vörp til efri deildar, sem var verk-
lítil sama dag. Frumvarp um Hús-
næðisstofnun ríkisins var sam-
þykkt samhljóða, en frumvarp um
Framkvæmdasjóð Islands hlaut
brautargengi með stuðningi 21
þingmanns, en 6 voru á móti. Um
frumvarp til laga um viðskipta-
banka er fjaliað á öðrum stað hér á
síðunni.
Fundir neðri deildar stóðu fram
undir klukkan tvö aðfaranótt gær-
dagsins. Forseti hafði áformað að
taka yfir stjórnarfrumvarp um
getraunir Öryrkjabandalags ís-
lands, en vegna eindreginna óska
Ellerts B. Schram, Sjálfstæðis-
flokki, var það ekki gert. Nokkrar
umræður spunnust vegna þessa um
þingsköp. Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna sagði við þetta tækifæri
að samkomulag hefði tekist þá fyrr
um kvöldið milli þingflokka um að
þingi yrði slitið fyrir hádegi á
föstudag. Steingrímur J. Sigfússon,
Alþýðubandalagi, taldi ekkert því
til fyrirstöðu að málið yrði tekið
fyrir, enda um það samstaða milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Ell-
ert B. Schram benti hinsvegar á að
hann væri ekki bundinn af neinu
samnomulagi varðandi störf þings-
ins og gaf í skyn að hann myndi
hefja málþóf ef frumvarpið um
getraunirnar væri tekið á dagskrá,
þá um nóttina.
Eins og áður segir hefur verið
ákveðið að reyna að ljúka þingi
fyrir hádegi á föstudag, en meðal
þeirra mála sem ekki munu ná
fram að ganga vegna tímaskorts
eru frumvörp um sjóði atvinnuveg-
ina.
Fiskveiðasjóður
láni fiskeldisstöðvum
Breytingartillaga sjávarútvegs-
nefndar neðri deildar við frumvarp
um Fiskveiðasjóð íslands, þar sem
sjóðnum er heimilað að veita lán til
eða ábyrgjast vegna stofnfram-
kvæmda við fiskeldisstöðvar með veði
í fasteignum eða gegn ábyrgðum var
samþykkt í neðri deild í gær.
Einn þingmaður lagðist gegn til-
lögunni, Stefán Valgeirsson, Fram-
sóknarflokki, en 26 greiddu henni
atkvæði. Frumvarpið var sent til
efri deildar, sem áður hafði fjallað
um það og samþykkt, en þar eð
neðri deild gerði á því breytingar
verður að taka málið aftur fyrir í
einni umræðu.
Bílbelti:
Sektarákvæðum hafnað
NEÐRI deild felldi á jöfnum atkvæðum, að viðhöfðu nafnakalli, frumvarp
nokkurra þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum þar sem lagt er til að beitt
verði sektum gegn þcim sem ekki nota bílbelti. Frumvarpið hafði áður verið
samþykkt samhljóða í efri deild.
Frumvarp um sama efni hefur
áður komið til kasta Alþingis, en á
síðasta þingi, 1983—1984, var það
samþykkt samhljóða í efri deild, en
náði ekki fram í neðri deild. Miklar
umræður áttu sér stað þegar frum-
varpið var tekið á dagskrá á fuhdi
neðri deildar í gær og deildu þing-
menn hart. Eftirtaldir 17 þing-
menn studdu frumvarpið: Alexand-
er Stefánsson, Garðar Sigurðsson,
Geir Gunnarsson, Níels Árni Lund
(varamaður Guðmundar Bjarna-
sonar), Guðrún Agnarsdóttir,
Heildaryfírlit um innlendar og erlendar lántökur 1985
(millj. kr.)
Sala spari- skírteina Verðbréfa- kaup bankanna Lífeyris- sjóðir Önnur innlend fjáröflun Erlend lán Heildar- lántökur
I Opinberir aðilar 400 380 3 781 4 561
Ríkissjóður, A-hluti 4(K) — — 200 926 1 526
Ríkissjóður, B-hluti — — — 180 1 114 1 294
Fyrirtæki með eignaraðild ríkissjóðs — — — — 1 415 1 415
Sveitarfélög — — — — 326 326
II Húsbyggingarsjóðir — — 1 045 188 553 1 786
Byggingarsjóður ríkisins — — 700 188 553 1 441
Byggingarsjóður verkamanna — — 345 ~ ~ 345
III Lánastofnanir 200 :8o — 1 262 1 642
Framkvæmdasjóður — 200 150 — 1 092 1 442
Iðnþróunarsjóður — — 50 50
Stofnlánadeild landbúnaðarins — — 30 — — 30
Útflutningslánasjóður — — — — 120 120
IV Atvinnufyrirtæki — — — — 1 600 1 600
Ósundurliðað — — — — 1 600 1 600
Heildarfjárþörf (I—IV) 400 200 1 225 568 7 196 9 589
Heimild: Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
Gunnar G. Schram, Halldór Ás-
grímsson, Hjörleifur Guttormsson,
Jóhanna Sigurðardóttir, Kristín
Halldórsdóttir, Kristín S. Kvaran,
Páll Dagbjartsson (varamaður
Pálma Jónssonar), Stefán Guð-
mundsson, Stefán Valgeirsson,
Steingrímur J. Sigfússon, Svavar
Gestsson, og Gunnþórunn Gunn-
laugsdóttir (varamaður Sverris
Hermannssonar).
Eftirtaldir greiddu atkvæði á
móti: Ingvar Gíslason, Birgir ísl.
Gunnarsson, Eggert Haukdal, Ell-
ert B. Schram, Friðjón Þórðarson,
Guðmundur Einarsson, Guðmund-
ur J. Guðmundsson, Kjartan Ólafs-
son (varamaður Guðrúnar Helga-
dóttur), Halldór Blöndal, Jón Bald-
vin Hannibalsson, Matthías Bjarn-
ason, Ólafur G. Einarsson, Ólafur
Þ. Þórðarson, Páll Pétursson,
Ragnhildur Helgadóttir, Stein-
grímur Hermannsson og Þorsteinn
Pálsson. Aðrir þingmenn voru fjar-
staddir.
Störfum hraðað
ÞAÐ var hraði í störfum Alþingis í
gær og hvert frumvarpið afgreitt á
fætur öðru, ýmist milli umræðna,
deilda cða sem lög. Neðri deild var
búin að samþykkja þrenn lög og efri
deild tvenn fyrir kvöldmatarhlé.
Kvöldfundir voru í báðum deildum.
í fyrrnefndri deild voru sam-
þykkt jarðræktarlög, lög um ríkis-
bókhald og almannatryggingar, en
sú síðarnefnda samþykkti lög um
jafnrétti kvenna og karla, sem sagt
er frá hér á öðrum stað á síðunni,
og lög um ferðamál.