Morgunblaðið - 27.06.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1985
31
Millisvæðamótið í Sviss:
Jón L. og Bragi
aðstoða Margeir
ÍSLENSKIR skákmenn munu á næstunni taka þátt í skákmótum, sem
haldin eru í Sviss, Kína, Danmörku og Noregi. Ennfremur eru væntanlegir
hingaó til lands 18 bandarískir unglingar og munu þeir tefla við íslenska
jafnaldra sína.
Morgunblaðið/Valdimar
Miklar breytingar til hins betra hafa átt sér stað á Víðivöllum síðustu daga og vikur og telja ýmsir að mótssvæðið sé
orðið eitt hið besta á landinu.
Fjórðungsmót sunnlenzkra hestamannæ
Keppt verður á þrem-
ur völlum samtímis
FJÓRÐUNGSMÓT sunnienskra hestamanna hefst í Reykjavík í dag með
dómum á kynbótahrossum og keppni í B-flokki gæðinga hefst klukkan tíu.
Unglingar 13—15 ára munu hefja keppni kl. 10.30. Öll þessi dagskráratriði
munu standa fram eftir degi en klukkan 17.30 byrjar forkeppni í tölti. Eins
og gefur að skilja fara dómarnir fram á þremur stöðum, gæðingarnir verða
dæmdir á nýja Hvammsvelli, unglingakeppnin verður á Asavelli sem er
staðsettur við dómpallinn við kappreiðabrautina og kynbótahrossin verða
dæmd á stóra hringveliinum sunnanverðum. Töltkeppnin fer fram á
Hvammsvelli að loknum dómum B-flokkshesta.
Mótið mun standa yfir í fjóra daga og er dagskráin á þessa leið:
Fimmtudagur 27. júní
Kl. 9:00 Dómar kynbótahrossa
hefjast. Stóðhestar, (einstakl-
ingar), stóðhestar með af-
kvæmum, hryssur með af-
kvæmum.
Skeiðvöllur Fáks (suðvestur-
hluti).
Kl. 10:00 Keppni klárhesta með
tölti. B-flokkur. Keppnisnúm-
er 1-23.
Hvammsvöllur.
Kl. 10:30 Unglingar 13—15 ára.
Keppnisnúmer 1—23.
Asavöllur.
Kl. 13:00 Dómar kynbótahrossa,
áframhald.
Skeiðvöllur Fáks, (suðvestur-
hluti).
Kl. 14:00 Klárhestar með tölti.
B-flokkur. Keppnisnúmer
24-26.
Hvammsvöllur.
Kl. 14:00 Unglingar 13—15 ára.
Keppnisnúmer 24—44.
Asavöllur
Kl. 17:30 Töltkeppni, forkeppni.
Hvammsvöllur.
Föstudagur 28. júní
Kl. 9:00 Dómar kynbótahrossa.
Hryssur.
Skeiðvöllur Fáks (suðvestur-
hluti).
Kl. 10:00 Alhliða gæðingar. A-
flokkur. Keppnisnúmer 1—23.
Hvammsvöllur.
Kl. 10.30 Unglingar, 12 ára og
yngri. Keppnisnúmer 1—23.
Asavöllur.
Kl. 13:00 Dómar kynbótahrossa,
hryssur (áframhald).
Skeiðvöllur Fáks (suðvestur
hluti).
Kl. 14:00 Alhliða gæðingar. A
flokkur. Keppnisnúmer
24-45.
Hvammsvöllur.
Kl. 14:00 Unglingar, 12 ára og
yngri. Keppnisnúmer 24—46.
Asavöllur.
Kl. 16:30 Kappreiðar undanrás-
ir, 150 m skeið, 250 m skeið,
250 m stökk, 350 m stökk, 800
m stökk, 300 m brokk.
Skeiðvöllur Fáks.
Kl. 22:00 Dansleikur.
Félagssvæði Fáks/Tamninga-
gerði.
Laugardagur 29. júní
KI. 9.00 Kynbótahross sýnd.
Stóðhestar og hryssur.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 12:00 Gæðingar kynntir A-
og B-flokkur.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 13.00 Kynning á yngri og
eldri flokkum unglinga.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 13:45 Kynning ræktunarbúa.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 14.30 Kappreiðar. Síðari
sprettur, úrslit.
Skeiðvöllur Fáks.
Kl. 16:00 Kynbótadómum lýst.
Stóðhestar, hryssur, (ein-
staklingar), stóðhestar og
hryssur með afkvæmum.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 19:30 Tölt-úrslit og verð-
launaafhending.
Hvammsvöllur/Brekku-
braut.
Kl. 20:30 Kvöldvaka.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 23:00 Dansleikur.
Félagssvæði Fáks/Tamn-
ingagerði.
Sunnudagur 30. júní
Kl. 12:30 Hópreið hefst.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 13:00 Ávörp, hátíðardagskrá.
Brekkubraut.
BYRK. Síðumúla 37, Reykjavlk
Slippfélagið. Mýrargðtu 2. Reykjavík.
DrOfn. StTandgölu 75, Hofnarfirði.
Hiti sf., Draupnisgötu 2. Akureyri.
J.Á. Byggingavörur.
Baldursgötu 14, Keflavík.
Kl. 13:30 Kynning ræktunarbúa.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 14:00 Unglingar, eldri og
yngri flokkar. Verðlaunaaf-
hending.
Brekkubraut.
Kl. 14.20 B-flokkur klárhestar,
úrslit. Verðlaunaafhending.
Asavöllur/Brekkubraut.
Kl. 15:00 Stóðhestar og hryssur,
úrval kynnt. Verðlaunaaf-
hending.
Brekkubraut/Skeiðvöllur
Fáks.
Kl. 16:45 A-flokkur gæðinga, úr-
slit. Verðlaunaafhending.
Asavöllur/Brekkubraut.
Kl. 17:00 Kappreiðar. Sýn-
ingarsprettir. Verðlaunaaf-
hending.
Skeiðvöllur Fáks/Brekku-
braut.
Margeir Pétursson verður með-
al þátttakenda á millisvæðamóti í
Biel í Sviss, sem hefst 1. júlí nk. og
stendur í mánuð. Honum til að-
stoðar verða Jón L. Árnason og
Bragi Kristjánsson. Mótið er í 12.
styrkleikaflokki FIDE, Alþjóða
skáksambandsins.
Á vegum menntamálaráðuneyt-
isins hefur verið ákveðið að héðan
fari í þriggja vikna ferð til Kína
þeir Karl Þorsteins, Sævar
Bjarnason og Leifur Jósteinsson
og munu þeir tefla við heima-
menn. Auk þess verða með í ferð-
inni Þorsteinn Þorsteinsson, for-
seti Skáksambands íslands, Jón
Rögnvaldsson og Guðbjartur Guð-
mundsson úr stjórn Skáksam-
bandsins. Ferðin er þáttur í aukn-
um menningarsamskiptum ís-
lands og Kina.
Þá taka þeir Helgi ÓLafsson og
Jóhann Hjartarson þátt í alþjóð-
legu skámóti, „Vesturhafsmóti",
sem haldið er í Esbjerg í Dan-
mörku. Það mót er í 10. styrkleika-
flokki FIDE, Alþjóða skáksam-
bandsins, og stendur í hálfan
mánuð.
Að mótinu loknu fara þeir Helgi
og Jóhann til Gjevik í Noregi og
taka þar þátt í Norðurlandamóti í
skák. Þeir tefla í úrvalsflokki.
Aðrir íslenskir þátttakendur á
þessu móti verða Jóhannes Ág-
ústsson, Tómas Björnsson og
Þröstur Árnason, sem tefla i
meistaraflokki. f opnum flokki
tefla þeir Jón Þór Bergþórsson og
Einar T. Óskarsson. Ennþá eru
möguleikar á að tilkynna um þátt-
töku í þessu móti.
Landskeppni i skák milli fslend-
inga og Bandarikjamanna hefst i
næstu viku og tefla þar íslenskir
og bandarískir unglingar á aldrin-
um 10 til 17 ára. Bandarísku ungl-
ingarnir eru valdir af John Collins
og er þetta í 4. sinn sem keppnin
fer fram hér á landi, en hún er
haldin til skiptis í löndunum.
Að þessu sinni verður teflt á
átján borðum í fjórum viðureign-
um. Fyrsta viðureignin fer fram í
Reykjavík miðvikudaginn 26. júní
í Skákheimilinu við Grensásveg,
önnur í Félagsheimili Kópavogs á
fimmtudagskvöld, 27. júní, þriðja
á laugardag, 29. júní, í Reykholti í
Borgarfirði og fjórða í Borgarnesi,
sunnnudaginn 1. júlí.
fslensku unglingarnir hafa sigr-
að í sex af þeim átta keppnum sem
fram hafa farið milli landanna frá
árinu 1977.
Happdrætti hjá
ungtemplurum
ÍSLENSKIR ungtemplarar efna í ár
til happdrættis sem kallast „Bygg-
ingarhappdrætti ÍUT 1985“. Er happ-
drætti þetta fyrsta skrefið til að
koma upp varanlegum samastað
fyrir starfsemi samtakanna.
Aðalvinningur er bifreið af
gerðinni Toyota Corolla 1600 DX.
Aðrir vinningar eru tvær IBM PC
256k-tölvur, tvær Apple IIc
128k-tölvur, tvö myndbandstæki
frá Nesco og þrettán Sóleyjarstól-
ar frá Epal hf. Heildarverðmæti
vinninga er tæplega 900 þúsund og
dregið verður 20. ágúst. Miðar eru
eingöngu seldir í lausasölu. Frek-
ari upplýsingar er að fá á skrif-
stofu samtakanna að Eiríksgötu 5,
Reykjavík.
(í'r frétUtilkvnnininu
FJÁRFESTINGAR-
SJÖÐSTILLÖG
Frádráttur frá skattskyldumtekjumaf atvinnurekstri.
Fresturtilaðleggja fjárfestingarsjóðstillöginn á
bundna reikninga vegna tekna ársins 1984 hefur verið
framlengdur til l.júlín.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum og
hagdeild Landsbankans.
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir