Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 5

Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 28. JÚNt 1985 5 Ný vinnsluaðferö í Straumsvík: Erum í fararbroddi Alusuisse-verksmiðja — segir Giorgio Brighenti hjá ÍSAL ÁLVERKSMIÐJAN í Straumsvík gerði í g«r prófanir á nýrri aðferð við álsteypuvinnu, sem hefur í för með sér sjálfvirkni og aukin gæði. Tækin sem sett hafa verið upp til þess að stjórna steypuvinnunni og aðferðin sem notuð er hafa verið þróuð af Alusuisse en ÍSAL er fyrsta verksmiðjan í heiminum sem setur upp kerfi af þessari gerð. Álverksmiðjan í Straumsvík rafgreinir ál, og steypir úr því ým- iskonar stangir og sívalninga sem seldir eru út um allan heim. Álið er flutt bráðið í steypuskálann, þar sem steypuvinnan fer fram í sérstökum mótum. Með gömlu að- ferðinni var steypuvinnunni hand- stýrt. Steypustjórinn fylgdist með flæði bráðins áls í mótin, rennsli kælivatns og smurolíu, og hraða steypuvinnunnar. Með nýju að- ferðinni er það tölva sem stjórnar steypuvinnunni að öllu leyti eftir forskrift steypustjórans, og sér jafnframt um það þolinmæðisverk að fylgjast með því að allt gangi skv. áætlun. „Þetta flýtir ekki steypuvinnunni, eða breytir í grundvallaratriðum. Kosturinn við þessa tækni er hinsvegar sá að við fáum alltaf það sem óskað er eftir og getum ábyrgst að gæðin séu jöfn og í hámarki,“ sagði Bragi Erlendsson forstjóri stjórnunar- deildar ÍSAL. Um leið og tölvustýringin var tekin upp var mótunum breytt þannig að notuð verður s.k. „hot- top“-aðferð. Þessi gerð móta hefur verið þróuð af Alusuisse, en hún Starfsmenn ÍSAL vió álsteypumótin. Þannig lítur hin nýja „hot-top“ aðferð út í augura leikmannsins, en í gegnum götin á mótunum má sjá beint ofan í bráðið álið. Með þessari aðferð má steypa 30 álsívalninga í einu, í stað 10 áður. Bragi Erlendsson, Erlingur Leifsson og Giorgio Brighenti við nýja álsteypu- kerfið. í baksýn er verið að draga 5 álsívalninga, 6,5 m langa, uppúr mótunum. byggir á japanskri uppfinningu sem samsteypan keypti. Með þess- ari aðferð er hægt að steypa mun fleiri stangir eða sívalninga í einu, og einnig fæst betra ál. „Það er enginn vafi á því að ÍSAL er nú orðið í fararbroddi Alusuisse- verksmiðja, hvað varðar álsteyp- una. Ég vil hinsvegar leyfa mér að fullyrða að með þessu séum við orðnir fremstir í heiminum," sagði Giorgio Brighenti, tæknilegur framkvæmdastjóri ÍSAL. Við- staddir þessa prófun á nýja steypukerfinu voru, auk ISAL- manna, tæknilegir ráðgjafar frá Alusuisse, hönnuðir kerfisins, og tæknimenn frá álveri í Noregi sem íhugar að setja upp slíkt kerfi. „Það má heldur ekki gleyma því að starfsmenn í álsteypunni hafa sýnt þessu mikin áhuga, og lýst velþóknun sinni á nýja kerfinu. Það er gleðilegt, því að sjálfsögðu hafa allar breytingar í för með sér aukið áiag á starfsmenn á meðan á þeim stendur," sagði Bragi Er- lendsson að lokum. Garóptöntu utsala Nú um helgina bjóðum við allar garðplöntur á stórlækkuðu verði. 20-50% afsláttur. Áður Nú Sumarblóm 18 kr. 14 kr. Sumarblóm i pottum 90 kr. 72 kr. (Petunia) Fjölærar plöntur 90 kr. 45 kr. Gott tækifaeri fyrir þá sem eiga eftir að planta í garðinn sinn eða vilja bæta við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.