Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 7

Morgunblaðið - 28.06.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985 7 Indriði Pálsson forstjóri Skeljungs: Olíuviðskipti — olíuverð — Athugasemd í tilefni af viðtali Morgunblaðsins við Kristján Ragnarsson formann LÍÚ MORGUNBLAÐINU barst í gær svohljóóandi athugasemd frá Ind- riða Pálssyni forstjóra Skeljungs vegna viðtals við Kristján Ragnars- son formann LÍÚ í blaðinu í gær: „Ég vil fyrst og fremst láta koma skýrt fram að ég er almennt fylgj- andi frjálsu markaðskerfi á sviði olíuviðskipta eins og annarra við- skipta. Á það bæði við um innkaup og verðmyndun á olíunni, sölu hennar og dreifingu. Svo fremi að mikilvægari við- skiptahagsmunir þjóðarinnar séu ekki settir í hættu, er það mín skoð- un að gefa eigi innflutning og inn- lenda verðmyndun á olíu frjálsa og þá auðvitað að afnema verðjöfnun á olíunni, sem nú er bundið í lögum, þ.e. að hvert olíufélag er nú skyldað lögum samkvæmt að selja bensín og olíu á sama verði hvar sem er á landinu. Þetta frelsi tel ég að eigi að veita á öðrum sviðum viðskipta einnig, Dregið 6. júlí í happdrætti Sjálfstæðis- flokksins SAMKVÆMT frétt frá Sjálf- stæðisflokknum er vorhapp- drætti Sjálfstæðisflokksins nú í fullum gangi, en dregið verð- ur 6. júlí næstkomandi. Vinn- ingar eru 22, ferðir til sólar- landa og víðar um heim. Bent er á að þeir sem enn eigi ógerð skil séu hvattir til að gera það sem fyrst. Þá geta þeir sem þess óska látið sækja andvirði miðanna heim. Skristofa happ- drættisins í Valhöll, Háa- leitisbraut 1, er opin í dag kl. 9 ti 22 og á morgun kl. 13 til 17. Síminn er 82900. svo sem við kaup á fiski upp úr sjó, en ekki ákveða fiskverð svo sem nú er gert, en í reynd er oft ekki annað en ákvörðun um gengislækkun ís- lensku krónunnar. Með því sem ég hefi nú sagt er ég ekki aö fullyrða að hagkvæmari samningar um innflutningsverð hefðu náðst en samkeppni innan- lands yrði örugglega raunhæfari. Öll miðstýring er að minni skoðun af hinu illa og getur ekki orðið neytendum til góðs þegar til lengri tíma er litið. Gallar miðstýringar- innar í olíusölunni koma kannski hvað skýrast í ljós þessa dagana. Á sl. vetri hækkaði innkaupsverð á olíum, svartolíu og gasolíu, mjög verulega. Ekki síst fyrir áhrif frá Landssambandi ísl. útvegsmanna og forystumanna þess neituöu stjórnvöld að samþykkja verðhækk- un á vörunni í samræmi við inn- kaupsverð og gengi. Vörurnar voru seldar langt undir eðlilegu verði. Afleiðingin varð sú að skuld mynd- aðist á innkaupajöfnunarreikningi svo hundruðum milljóna skipti. Þetta fé var dregið út úr viðskipta- bönkum olíufélaganna og skuldinni velt á undan f von um að innkaups- verð myndi lækka þegar kæmi fram á vorið. Olíuvörurnar voru m.ö.o. seldar langt undir eðlilegur mark- aðsverði. Síðan lækkaði markaðs- verðið. Skuldin stóð á innkaupa- jöfnunarreikningi af þeim ástæðum sem fyrr eru greindar. Þennan mis- mun verður að sjálfsögðu að greiða og fyrr er ekki hægt að lækka verð- ið í samræmi við lækkað innkaups- verð. Reunar hefur verið sett í lög nú nýverið að innkaupajöfnunar- reikningur skuli standa sem næst sléttur um næstu áramót. Það er því ljóst, að hefði eðlilegt mark- aðssjónarmið fengið að ráða hefði útsöluverð á svartolíu og gasolíu getað lækkað nú. Það eru hins vegar rangar upp- lýsingar hjá Kristjáni Ragnarssyni, sem fram komu í útvarpsviðtali við hann i gærkvöldi, að svartolíuverð á erlendum markaði sé nú um 2.200 krónum lægra heldur en á birgðum olíufélaganna. Hin rétta tala er 1.550 krónur á tonn. Til niður- greiðslu á innkaupajöfnunarreikn- ing eru hinsvegar áætlaðar kr. 1.800 pr. tonn í verðinu. Þessar afleið- ingar áhrifa forystu LÍÚ og ákvarð- ana misviturra stjórnvalda frá sl. vetri. Dreifingarkostnaður eða álagn- ing olíufélaganna er magnálagning, ákveðin krónutala pr. tonn. Þessi álagning hefur um nokkurra ára skeið hreyfst eftir ákveðnum regl- um, vísitölu, sem mælir breytingar á verðlagi í landinu frá einum tíma til annars. Ýmsir þættir koma þar til álita sem ástæðulaust er að nefna hér. 23. nóvember sl. ákvað Verðlags- ráð að lækka þessa magnálagningu um tæp 30% að meðaltali. Sagt var að grundvöllur þessarar lækkunar væri sá, að hér eftir ættu olíufélög- in að setja upp slíkt kerfi, að þau gætu reiknað viðskiptamönnum sínum vexti frá söludegi til greiðsludags hverjum og einum. Út úr vísitölu olíufélaganna var því tekinn allur gjaldfrestur á viðskipt- um frá söludegi. Miðað við umfang þessara viðskipta og fjölda við- skiptamanna var því hér um að ræða grundvallarbreytingu á við- skiptaháttum, sem öllum ætti að vera ljóst, að útilokað var að koma til framkvæmda fyrirvaralaust án mikils og flókins kerfis. íslenska bankakerfinu tókst ekki að fram- kvæma svipaða hugmynd um með- ferð dráttarvaxta sem ætlunin var að koma í framkvæmd á sl. vetri. Því var fallið frá henni. Þessu til skýringar þarf að koma fram, að útgerðarmenn, sem skulda olíufélögunum nokkur hundruð milljónir króna, líklega nær einum milljarði, hafa um langan tíma haft vaxtalausan gjaldfrest, sem nemur að meðaltali 45 dögum frá úttekt. Olíufélögin mótmæltu þessari skerðingu kröftuglega, fluttu sín rök fyrir réttum aðila og nú hefur að nokkru verið tekið tillit til þeirra. Magnálagning olíufélag- anna er samt sem áður um 15% lægri nú á gasolíu og svartolíu held- ur en hún hefði verið með óbreytt- um þeim reglum, er giltu fyrir 23. nóvember sl. þannig að langur veg- ur er frá því að full leiðrétting hafi fengist í þessu efni, svo sem gefið var í skyn í viðtali við formann LlÚ. Skerðing álagningar af þess- um ástæðum er enn meira en 100 milljónir á ári. Ekki eru það neinar fréttir fyrir íslendinga að verðbólga er í landi hér. Kostnaður hækkar, laun hækka. Magnálagning olíufélag- anna hefur hins vegar verið miðuð við kostnað og kaupgjald eins og það var í septembermánuði 1984 þar til nú að Verðlagsráð sam- þykkti breytingu þar á fyrir tveim- ur dögum. Mér segir svo hugur að formanni LÍÚ þætti ekki vel að málum staðið ef fiskverð til útgerð- armanna á íslandi væri það sama nú og var sumarið 1984. í þessu sambandi vil ég nefna að fiskverð, þorskur 1. flokks, hefur hækkað frá júní 1984 til júní 1985 um 24,8%. Magnálagning olíufélaganna i gas- olíu hefur hækkaö á sama tíma um 24,9%. Lánskjaravísitala hefur hins vegar á sama tíma hækkað um rúm 29%. Miðað við september 1984 hef- ur magnálagning olíufélaganna hækkað um 16,5% til þessa dags. Þrátt fyrir stóru orðin sýnist mér því að ekki sé mikill munur á því, sem fiskverð hefur hækkað til fé- lagsmanna LÍÚ og á hækkun magn- álagningar olíufélaganna. Sá mikli munur er þó þar á, að olíufélögin hafa þurft að vera að vinna á magn- álagningu miðað við verðlag í sept- ember 1984 allt fram undir þennan tíma. Hvoru tveggja er miðstýrt, fiskveröi og álagningu olíufélag- anna. Hvorugu fá markaðsaðstæð- ur að ráða. Ég vil ítreka það sem ég sagði í upphafi, að ég er almennt fylgjandi frjálsu markaðskerfi á sviði versl- unar og viðskipta, fiskverðs og olíu- verðs, tel að það komi, þegar til lengdar lætur, best hagsmunum neytenda og þjóðarinnar allrar. Sleggjudómar og rangfærslur, svo sem fram komu í viðtali formanns LÍÚ í útvarpi í gærkvöldi og Morg- unblaði í dag, þjóna hins vegar eng- um málefnalegum tilgangi." „Einstæðasta útvarps- stöð í heiminum" — segir Indriði G. Þorsteinsson EKKI VERÐUR úr ad þeir Indriði G. Þorsteinsson og Magnús Bjarnfreðsson taki þátt í ritstjórn dagblaðsins NT, eins og nánast hafði verið fastmælum bundið fyrir nokkrum vikum. Magnús Bjarnfreðsson segir að það hafí „ein- faldlega ekki gengið saman“ með þeim Indriða og stjórn Nútímans hf., að því er DV hefur haft eftir honum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er ástæða þess að upp úr slitnaði sú, að Indriði taldi fjöl- miðlasamþykkt Sambandsþingsins fyrir skemmstu ganga í berhögg við hagsmuni ísfilm hf., sem hann er stjórnarformaður í. Indriði sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins: „Á meðan það liggur óbreytt fyrir, að Sambandið ætlar sér að reka „faglega útvarpsstöð" fyrir verka- lýðshreyfinguna, bændur og sam- vinnumenn — sem hlyti að verða einhver einstæðasta útvarpsstöð í . öllum heiminum — þá get ég sem stjórnarformaður ísfilm ekki tekið þátt í því máli." Indriði bætti við að hann vissi ekki til þess, að stjórnendur Nú- tímans hf. hefðu í hyggju að gera NT að höfuðstöðvum fyrir „faglega fjölmiðlun" í landinu. óvíst er nú hvort fleiri ritstjórar en Helgi Pétursson munu starfa við blaðið á næstunni. OG AÐRAR REKSIRARVOR FYRIR FLESTAR TÖLVUR Við í Tölvudeild Heimilistœkja eigum fyrirliggjandi mikið úrval af diskettum og öðrum rekstrarvörum í flestar tölvur, s.s. Wang, sem við höfum umboð fyrir, IBM og Digital. DISKETTUBOX fyrir 5]/4 tommu diskettur. Diskettur eru viðkvœmar og þurfa rétta meðhöndlun eigi þœr að endast. Diskettuþox er góður geymslustaður. Við bjóðum box undir 10, 50 og 100 diskettur, með lœsingu og ön. DISKEIUIR Tölvudeildin býður einnig úrval disketta: 5Va tommu DSDD, 8 tommu DSDD og 8 tommu SSSD. Þö eigum við prentborða f alla Wang og C.ltoh prentara. Athugið að diskettur og aðrar tölvuvörur eru nú afgreiddar í versluninni Sœtúni 8. Hafið samband við sölumenn í síma 27500. ö Heimilistæki hf TÖLVUDEILD-SÆTÚNI8-SÍMI27500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.