Morgunblaðið - 28.06.1985, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985
Viðtöl ríkisfjölmiðla við
Arne Treholt gagnrýnd
Treholt leitar til Nordhus um vörn fyrir hæstarétti
Osló, 27. júni. Frá Jan Erik Laure fréttaritara Morgunbladsina.
ARNE Treholt, sem dæmdur var á
dögunum í 20 ára Tangelsi fyrir stór-
felldar njósnir, mun að líkindum fá
sér nýjan lögfræóing til að vera aðal-
verjandi sinn er hæstiréttur tekur
mál hans fyrir.
Treholt hefur fengið fjölskyldu
G ENGI
(iJALDMIÐLA:
Dollarinn
hækkar
London, 27. júní AP.
GENGI Bandaríkjadollars hækkaði
í dag í Evrópu gagnvart öllum
helztu gjaldmiðlum heims nema
kanadíska dollarnum. Verð á gulli
lækkaði.
sína og vini til að leggja að hinum
þekkta lögfræðingi Alf Nordhus að
taka mál hans að sér. Aðalverjandi
Treholts fyrir undirrétti, Ulf Und-
erland, hefur ekki flutt mál fyrir
hæstarétti.
Nordhus er sagður viljugur til að
taka að sér vörn Treholts í sam-
vinnu við verjendur hans fyrir und-
irrétti. Treholt kveðst á engan hátt
óánægður með frammistöðu Und-
erland, þvert á móti, hann hafi
unnið stórvirki og verið sér stoð og
stytta.
Bæði sjónvarpið og útvarpið í
Noregi áttu viðtal við Treholt í
fangelsi í gær, og hefur risið mikil
mótmælaalda vegna þeirrar ráð-
stöfunar. Þykir það mjög óeðlilegt
að ríkisfjölmiðlar landsins skuli
ríða á vaðið og eiga viðtal við
dæmdan sakamann, sem sekur er
um alvarlegasta glæp, sem hugsast
getur, gegn landi sínu og þjóð.
Jimmy Dell Palmer. Mynd þessi var tekin við komu hans til London á miðvikudagskvöld. Hann var látinn laus úr
gíslingu í Beirút, þar sem hann er veill fyrir hjarta og er með of háan blóðþrýsting.
Börðu farþegana með byssum
og hirtu af þeim eigur þeirra
Jimmy Dell Palmer lýsir atferli flugræningjanna sem rændu TWA-þotunni
London, 27. júni. AP.
JIMMY Dell Palmer, bandaríski gíslinn, sem látinn var laus í Beirút, sagði í
dag, að hann myndi aldrei „fyrirgefa né gleyma“ flugræningjunum tveimur,
sem rændu TWA-þotunni, þar sem hann var farþegi. Þeir hefðu myrt Banda-
ríkjamann, barið farþegana, hirt af þeim allar eigur þeirra og vakið ótta
þeirra við, að dauðinn biði þeirra á hverju augnablíki. Sjálfur hefði hann
í London hækkaði dollarinn að-
eins gagnvart sterlingspundinu
og kostaði pundið þar 1,2925 doll-
ara (1,2945). Gengi dollarans var
að öðru leyti þannig, að fyrir
hvern dollara fengust 3,0560
vestur-þýzk mörk (3,0460), 2,5660
svissneskir frankar (2,5497),
9,3350 franskir frankar (9,3075),
3,4540 hollenzk gyllini (3,4380),
1.953,00 ítalskar lírur (1.949,25),
1,3636 kanadískir dollarar
(1,3643) og 248,95 jen (249,15).
SAS-lönd
slíta loft-
ferðasamn-
ingi við
S-Afríku
Kattpmannahörn. 27. júní. AP.
STJÓRNIR Svíþjóðar, Noregs
og Danmerkur hafa tilkynnt,
að þær hafi slitiö loftferða-
samningi landanna við Suður-
Afríku, og munu áætlunarferð-
ir SAS-flugfélagsins þangað
falla niður innan sex mánaða,
að því er danska utanríkis-
ráðuneytið tilkynnti í dag,
fimmtudag.
Danski utanríkisráðherrann,
Uffe Ellemann-Jensen, sagði, að
ríkisstjórnirnar hefðu talið, að
það væri ekki lengur „æskilegt",
að haldið yrði uppi farþegaflugi
á þessari Ieið.
„Ákvörðunin um slit á loft-
ferðasamningnum er þáttur í
þeirri viðleitni að einangra
Suður-Afríku og auka alþjóðleg-
an þrýsting á stjórnvöld þar,“
sagði EUemann-Jensen og lét í
ljós ánægju með, að „andúð á
aðskilnaðarstefnunni fer vax-
andi í mörgum löndum".
Sænska utanríkisráðuneytið
gaf út svipaða tilkynningu og
utanríkisviðskiptaráðherrann
sagði, að ákvörðunin gæti orðið
„öðrum til eftirbreytni".
Norska fréttastofan NTB
sagði, að SAS-flugfélagið hefði
þegar ákveðið fyrr í vikunni að
leggja niður S-Afríku-flugið af
hagkvæmnisástæðum.
Fréttastofan sagði ennfrem-
ur, að slit loftferðasamningsins
kæmu í veg fyrir, að suður-
afríska flugfélagið gæti hafið
áætlunarflug til Skandinavíu,
þó að það óskaði þess.
verið sleginn í hnakkann með byssu.
Palmer gerði hins vegar skýran
greinarmun á flugræningjunum
tveimur og shítunum, sem síðar
tóku gíslana á sitt vald í Beirút.
„Ég mun aldrei gleyma þeim, en
þeir gerðu engum manni líkamlegt
mein eins og hinir gerðu. Þeir áttu
sér málstað, sem þeir reyndu að
koma á framfæri án þess að meiða
nokkurn. Að mínu áliti er mikill
munur á framkomu upphaflegu
flugræningjanna og þeirra manna,
sem höfðu okkur síðan í haldi."
Palmer var látinn laus af
heilsufarsástæðum. Hann skýrði
rækilega frá atburðum á fundi
með fréttamönnum í London í dag,
þar sem hann hvíldi sig eftir prís-
undina í Beirút. Palmer virtist
þreyttur en var þó í bezta skapi og
reiðubúinn til þess að svara
spurningum fréttamanna, sem
spurðu hann án afláts í næstum
heila klukkustund.
Er hann var beðinn um að lýsa
vistinni, á meðan hann var fangi,
svaraði hann þannig; „Það er nán-
ast alls ekkert hægt að gera. Mað-
ur sefur mikið, borðar, drekkur
kaffi, biðst fyrir og talar við hina
gíslana.
í fyrstu fannst fólkinu, sem
réttast væri að undirbúa sig undir
langa dvöl. jafnvel enn lengri dvöl
en þá 444 daga, sem gislarnir
dvöldust í bandaríska sendiráðinu
í íran. En Palmer kvaðst nú hafa
„hugboð" um, að þetta mál kynni
að leysast innan skamms. „Ég tel,
að þeir séu búnir að vekja athygli
á því málefni, sem þeir voru að
berjast fyrir. Ég fæ ekki séð, að
þeir hafi neitt að vinna með því að
halda gíslunum miklu lengur.“
Palmer hrósaði fjölmiðlum fyrir
að blása kjarki í brjóst gíslunum,
en lét í ljós vanþóknun á nokkrum
atriðum, sem fram höfðu komið og
honum fannst að ekki hefði verið
sagt rétt frá.
Samkomulag íþróttaráðherra Evrópuráðsins í Strasborg:
„Til að ofbeldið verði ekki
fylgifiskur íþróttakappleikja“
— segir Ragnhildur Helgadóttir menntamála-
ráðherra sem sat fundinn fyrir íslands hönd
„Á fundinum varð samkomulag um þau drög sem fyrir lágu og eiga
vonandi eftir að koma í veg fyrir að ofbeldið verði fylgifiskur íþróttakapp-
leikja, einkum þó knattspyrnuleikja,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra í samtali við Morgunblaðið, en hún sat í gær í
Strassborg í Prakklandi fund íþróttaráðherra þeirra ríkja, sem aðild eiga
að Evrópuráðinu. Var frá þessum drögum skýrt f Morgunblaðinu í gær.
Með Ragnhildi í for voru þeir Reynir Karlsson íþróttafulltrúi og Ellert
Schram, formaður Knattspyrnusambands íslands og stjórnarmaður í
UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu.
Ragnhildur sagði, að sam- brot, t.d. að leikmönnum verði
komulagið snerist fyrst og
fremst um að koma í veg fyrir
ofbeldi meðal áhorfenda og
áhangenda íþróttafélaganna,
einkum knattspyrnufélaganna,
en það þyrfti þó að staðfesta í
hverju landi fyrir sig. Á því gæti
hins vegar orðið nokkur bið og
því hefði framkvæmdastjóri
Evrópuráðsins strax tekið upp
viðræður við UEFA um keppn-
ishald á þess vegum, t.d. um ör-
yggiseftirlit, löggæslu og ekki
síst um að viðurlögum við brot-
um verði beitt skilyrðislaust og
án tafar.
„Það kom fram f máli manna
að með þessari samþykkt ætti að
vera girt fyrir að sak'tausir menn
verði látnir gjalda fyrir annarra
bannað að stunda íþróttina að
einhverju leyti vegna ofbeldis á
áhorfendabekkjum eins og gerð-
ist með bresku knattspyrnufé-
lögin,“ sagði Ragnhildur Helga-
dóttir. Hún sagði ennfremur að
menn hefðu verið sammála um
að mestu skipti þó að hafa áhrif
á almenningsáiitið þannig að
menn sæju sóma sinn, þjóðar
sinnar og liðsins í því að koma
prúðmannlega fram.
„Raunar finnst mér undarleg-
ast sem íslendingi,“ sagði
Ragnhildur að lokum, „að ekki
skyldi samþykkt að banna sölu
áfengis á íþróttaleikvöngum. Ég
studdi þá tillögu sem fulltrúi
Möltu bar fram, en með henni
voru aðeins fimm en tólf á móti.
Harmleikurinn í Bríissel þar sem 38 manns létust og á fimmta hundrað
slösuóust, er undirrótin að samkomulagi íþróttaráðherra Evrópuráðsins
og að öðrum ráðstöfunum, sem síðan hefur verið gripið til.
Nú er það vitað að það kann ekki
góðri lukku að stýra þegar sam-
an fer áfengi og fjöldastemmn-
ing og því betra að bíða með
áfengisneysluna þar til leik er
lokið. Það varð hins vegar úr að
lokum að ákveðið var að draga
úr og helst banna áfengissölu á
íþróttavöllum og sjá til þess að
umbúðirnar séu hættulausar."