Morgunblaðið - 28.06.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1985
45
• Maraþonhlaup og akemmtiakokk er geyailega vinsœlt í Evrópu.
Þeasi mynd er tekin í maraþonhlaupi í London. Ens og sjá má er
fjöldinn mikill sem tekur þátt í því. Gert er ráð fyrir 600 þátttakendum
í Reykjavíkurmaraþonhlaupinu.
Héraðsmót USAH í frjálsíþróttum:
Blönduósingar
atkvæðamestir
TALSVERÐ gróska er í frjáls-
íþróttalífi í Austur-Húnavatns-
sýslu um þessar mundir. f sumar
starfa fjórir þjálfarar í héraöinu,
Karen Erla Erlingsdóttir á Skaga-
strönd, Þórhalla Guöbjartsdóttir í
sveitum sýslunnar, Indriói Jósa-
fatsson á Blönduósi og Helgi Þór
Helgason, framkvæmdastjóri
USAH og landsliösmaöur, þjálfar
kúluvarpara og kringlukastara
sýslunnar. Mikill uppgangur er í
frjálsíþróttum hjá USAH.
Héraðsmót USAH fór fram um
helgina á Skagaströnd og tókst
meö ágætum. Hrönn Siguröar-
dóttir, Hvöt, setti sýslumet í 100
metra grindahlaupi. Félagar henn-
ar úr Hvöt, Steinunn Snorradóttir
og Agnar B. Guömundsson, uröu
stigahæstir í stigakeppni einstakl-
inga.
Beztu afrek mótsins unnu Helgi
Þór Helgason, Geisla, og Guöbjörg
Gylfadóttir, Fram. Kringlukast
Helga, 48,88 metrar, reyndist
bezta karlaafrekiö og 12,34 metra
kúluvarp Guöbjargar var bezta
kvennaafrekiö. Guöbjörg er í mik-
illí framför i kúluvarpi og kastaöi
12,51 metra á 17. júní-mótinu, sem
er næstbezti árangur íslendings í
ár.
í stigakeppni héraösmótsins
hlaut ungmennafélagiö Hvöt á
Blönduósi flest stig, eöa 305. Fram
á Skagaströnd hlaut 157,5 stig,
ungmennafélagiö Vorboöinn í
Langadal 33,5, ungmennafélag
Bólstaöarhlíöar 26 og Geislar 18
stig. Veitt voru vegieg verölaun á
mótinu, sem Kaupfélag Húnvetn-
inga, Viola, Vik sf. og Björg sf.
gáfu.
Sigurvegarar í einstökum grein-
um héraösmótsins uröu annars
sem hér segir:
Konur:
100 m Steinunn Snorrad., Hvöt 14,3 aak
200 m Hrönn Siguröard., Hvöt 30.6 aak
400 m Steinunn Snorrad., Hvöt 71Í
800 m Steinunn Snorrad., Hvöt 2.51,7 min
1500 m Steinunn Snorrad.. Hvöt 6.23,3 mfn
100 gr. Hrönn Siguröard., Hvöt 18,6 aak
4x100 A-tv.it Hvatar 82,7 aak
1000 boö. A-sveit Hvatar 2.51,4 mín
Langst. Anna Sveinad., Hvöt 4,24 m
Hást. Anna Sveinad., Hvöt 1,40 m
Kúla Guóbjörg Gyltad., Fram 12,34 m
Kringla \ u. ! b. i $ 30,90 m
Spjól Marin Jónaad., Hvöt 32,36 m
Karlar:
100 m Indríöi Jóaafataa., Hvöt 11,7 aefc
200 m Indriói Jóaatataa., Hvöt 25,0 aak
400 m Agnar Guómundaa., Hvöt 56,6 aak
1500 m Daníel Guftm . Umf.B. 4.26,4 mín
3000 m Sigfúa Jónaaon, Fram 10.03,6 min
110 gr. Agnar Guðmundaa., Hvöt 18,8 aak
4x100 A-aveit Hvatar 50,0 a*k
1000 boð.A-avait Hvatar 2.23,3 min
Langat. Jóhann Siguröaa., Hvöt 5,97 m
Hást. Sigurbj. Kríatj., Fram 1,75 m
Þríat. Guöm. Ragnaraa., Hvöt 12,41 m
Stöng Ómar Jakobaaon, Fram 2,90 m
Kúla Helgi Þ. Helgaa., Geialar 15,77 m
Kringla Helgi Þ. Helgas., Geialar 48,88 m
Spjót Helgi Þ. Hetgaa., Geialar 51,06 m
Reykjavíkurmaraþon fer fram 25. ágúst:
Reiknað er með 600
þátttakendum í ár
REYKJAVÍKUR-maraþon fer fram í annað sinn sunnudaginn 25. ágúsi
nk. Maraþoniö 1984 fékk mjög góöar undirtektir innanlands og utan og
hefur hlaupiö fengið jákvæða umfjöllun í ýmsum erlendum tímaritum.
Um þrjú hundruö hlauparar mættu til leiks í þetta fyrsta aiþjóðlega
maraþonhlaup á íslandi, þar af rúmlega 100 útlendingar.
Reykjavíkur-maraþon er nú aöili að AIMS, alþjóðasamtökum mara-
þonhlaupa. Meö því fær hlaupiö mikla kynningu um allan heim. Kynn-
ingarrit þeirra er gefið út í 300.000 eintökum og auk þess er Reykja-
víkur-maraþon kynnt sérstaklega í samvinnu við Flugleiöir í sambandi
viö þau maraþonhlaup sem aöild eiga aö AIMS.
Reiknaö er meö aö þátttöku-
fjöldi í ár veröi um 600, með nokk-
uö jafnri skiptingu milli islendinga
og útlendinga. Fyrirspurnir um
hlaupiö aukast stööugt og þátt-
tökutilkynningar eru farnar aö ber-
ast. Vitaö er um þátttöku ýmissa
góöra hlaupara og ber þar hæst
Þýskalandsmeistarann og sigur-
vegara í Frankfurt-maraþon í ár,
Herbert Steffny. Hann á best 2
klst. og 12 mínútur í maraþon-
hlaupi. Hlaupadrottningin Lesley
Watson, sem sigraði í kvennaflokki
í Reykjavíkur-maraþon í fyrra á
ágætum tíma, mætir aftir til leiks,
en hún var mjög ánægö með dvöl-
ina hér og hlaupiö. Þess má geta
aö Islandsmet Siguröar P. Sig-
mundssonar er 2:21,20, og var
þaö sett í London-marathon 1984.
Þaö eru Flugleiöir hf„ Feröa-
skrifstofan Úrval hf„ Reykjavíkur-
borg og Frjálsíþróttasamband ís-
lands sem standa aö undirbúningi
og framkvæmd Reykjavíkur-
maraþon. Kynningarbæklingi hefur
veriö dreift í Evrópu og i Banda-
ríkjunum og einnig hefur hlaupiö
veriö auglýst í útbreiddum tímarit-
um.
Innanlandskynning er aö fara af
staö og er kominn út skráningar-
bæklingur sem dreift verður um
allt land. I júlí kemur út kynningar-
rit meö ýmsum upplýsingum um
hlaupiö.
Liöur í því aö auka þátttöku
landans í hlaupum sem þessum er
„Hlaup æskunnar", en þaö fer
fram laugardaginn 29. júní á sama
tíma á þremur stööum á landinu,
Reykjavík, Sauöárkróki og Egils-
stööum. Sigurvegurum í hverjum
aldursflokki veröur boöiö til þátt-
töku í Reykjavíkur-maraþoni,
stystu vegalengd. Vinningshafar
utan af landi feröast til Reykjavíkur
í boöi Flugleiöa og sér Reykjavík-
urborg þeim fyrir gistingu. Aö
hlaupi Æskunnar standa rás 2 og
Reykjavíkur-maraþon.
Fjölmargir aöilar starfa aö fram-
kvæmd Reykjavíkur-maraþon. Má
þar sérstaklega geta lögreglu,
gatnamáladeildar Reykjavíkur-
borgar, íþróttafólks í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfiröi og hjálp-
arsveitar skáta.
Styrktaraöilar ýmsir leggja
hlaupinu liö. Morgunblaöiö gefur
sérhannaöa verölaunapeninga,
sem allir þátttakendur fá, og verö-
launabikara fyrir sigurvegara í
hverri vegalengd. Rás 2 og Morg-
unblaöiö hafa ákveöiö aö vinna
sérstaklega aö kynningu hlaupsins
innanlands. Þýsk-íslenska hf.
(Seiko) mun aðstoöa viö tímatöku.
Fleiri aöilar munu bætast í þennan
hóp.
Eins og síðasta ár veröur boöiö
upp á keppni í þremur vegalengd-
um. Maraþonhlaup, 42 km, hálf-
maraþon, 21 km og 7 km
skemmtiskokk. Keppt veröur í níu
aldursflokkum karla og kvenna.
Skráningarfrestur er til 20. ágúst
og er tekið viö þátttökutilkynning-
um hjá Feröaskrifstofunni Úrval og
hjá Frjálsíþróttasambandi islands.
Vakin er sérstök athygli á því aö
Reykjavíkur-maraþon er ekki aö-
eins fyrir góöu hlauparana, heldur
fyrir alla, því hægt er aö velja um
þrjár vegalengdir, eftir getu hvers
og eins. Þá eru fatlaöir, jafnt í
hjólastólum sem aörir, boönir sér-
staklega velkomnir til þátttöku.
Staður og stund
Reykjavíkur-maraþon fer fram
sunnudaginn 25. ágúst og hefst í
Lækjargötu kl. 10.00.
Keppnisvegalengdir
Hægt er aö velja um þrjár mis-
munandi vegalengdir, maraþon-
hlaupiö sem er 42,195 km, hálf-
maraþon sem er hálf sú vegalengd
og skemmtiskokk u.þ.b. 7 km og
er einkum ætlaö byrjendum og
þeim sem kjósa styttri vegalengd-
ir. Er þaö sérstaklega hentugt fyrir
fjölskyldur og félagasamtök í
sveitakeppni.
Skráning
Þátttökutilkynningar ásamt
þátttökugjaldi berist til Feröa-
skrifstofunnar Úrvals, Pósthús-
stræti 13, 101 Reykjavík, upplýs-
ingar gefnar í síma 28522 eða á
skrifstofu FRÍ, Box 1099, 121
Reykjavík, í síöasta lagi 19. ágúst.
• Þessir tveir tóku þátt í
hlaupinu i fyrra og eins og sjé
má er aldursmunurinn mikill. En
keppendur eru á öllum aldri.
Vegna mjög hagstæðra innkaupa getum við boðiö
nokkur LEDUR-SÓFASETT á einstaklega lágu veröi.
„M0DEL M0NZA“ kostar aðeins
kr. 63.200.-
:apanasiÐ HF.
Suöurlandsbraut 30 — sími 68 70 80.