Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 2

Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 a| Morgunblaðið/JúIiu8 Geir Hallgrímsson og Edward Dewinsky þegar þeir hittust í ráðherrabú- staðnum fyrir fundinn í gærmorgun. Fundur Geirs Hallgrímssonar og Derwinskys um vöruflutninga fyrir varnarliðið: Höfum að mestu leyti komist að niðurstöðu — sagði Derwinsky síðdegis f gær „Þetta hafa verið mjög vinsamleg- ar samræður og við höfum að mestu leyti komist að niðurstöðu. Það eru nokkur tæknileg atriði sem þarf að skoða betur, en frá þeim verður von- andi gengið í kvöld og í fyrramálið,“ sagði Edward Derwinsky, sérlegur ráðgjafi Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna og einn af fjórum embættismönnum sem standa hon- um næst, en hann og föruneyti hans ræddi í gær við Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og aðstoðarmenn hans um tilbögun vöruflutninga til varnarliðsins frá Bandaríkjunum, í því skyni að leita lausnar á þeim deilum sem upp hafa risið vegna ein- okunar bandaríska skipafélagsins Rainbow Navigation á þessum flutn- ingum. Þeir Geir og Derwinsky vildu annars ekkert um viðræðurnar segja, og sagði Geir að niðurstöð- ur yrðu kunngerðar á fundi með fréttamönnum í dag. Derw- insky fer af landi brott síðdegis í dag. Arnarflug vill hefja flug til Hamborgar ARNARFLUG hefur sótt um leyfi til íslenskra stjórnvalda að fá að hefja áætlunarflug til Hamborgar í Vestur- Þýskalandi. í staðinn er gert ráð fyrir að flugi til Diisseldorf verði hætt, ef leyfið fæst, en beðið er eftir svari stjórnvalda. Arnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði að ef leyfið fengist hæfist flugið trú- lega í byrjun apríl á næsta ári. Hugmyndin væri að flogið yrði bæði sumar og vetur, 1—2 í viku yfir veturinn og þrisvar sinnum yfir sumarið. Stefnt yrði að því að flogið yrði til Hamborgar árið um kring, eins og til Amsterdam. Arnar sagði að þeir hjá Arnar- flugi teldu Hamborg hagkvæmari viðkomustað en Dvisseldorf. Frá Dusseldorf væri skemmra til Frankfurt, Luxemborgar og Amst- erdam, þangað sem íslensku flugfé- lögin fljúga nú. Hamborg lægi fjær þessum stöðum og næði betur til alls Norður-Þýskalands, en það væri í samræmi við þá svæðaskipt- ingu sem gerð hefði verið milli ís- lensku flugfélaganna 1982. Þar vildu þeir byggja upp framtíðarvið- komustað, en eins og nú væri mál- um háttað væri ekki flogið til V-Þýskalands að vetrinum. Auk þessa væru aldagömul tengsl milli Hamborgar og íslands og þeir næðu vel til markaðssvæðis síns I Norð- ur-Þýskalandi. Þetta væri því rök- rétt skref í þróun millilandaflugs Arnarflugs. Birkir Baldvinsson f samtali við Morgunblaðið: Enginn stendur á bak við mig í þessu til- boði nema konan mín — hef hagnast á kaupum og sölu flugvéla og varahluta í þær Luxemborg, 7. á|n»L Frá Önnu Bjarnu- dóttur og Birni Vigni Sigurpálssyni. BIRKIR Baldvinsson í Luxemborg hefur geflð fjármálaráðherra frest til klukkan 19.00 á föstudagskvöld til að taka eða hafna tilboði sínu í hlutafé ríkisins í Flugleiðum hf. sem nemur 20%. „Fái ég ekki svar fyrir þann tíma, mun ég draga til- boð mitt til baka,“ sagði Birkir í samtali við Morgunblaðið í Lux- emborg í kvöld. Sá orðrómur hefur verið á kreiki að stórir erlendir aðilar í flugvélaviðskiptum standi að baki tilboði Birkis. f þvi sam- bandi hefur verið nefnt fyrir- tækið United Aviation Services í París, sem rekið er af sýrlenskri fjölskyldu að nafni Kuzbari, og National-leiguflugfélagið í New York sem er í eigu bandarísks lögfræðings, Bob Vaagenfeld. Bæði UAS og National hafa átt talsverð viðskipti við íslensku flugfélögin og íslenska aðila I flugvélaviðskiptum. Meðal ann- ars hefur Arnarflug gert sam- vinnusamning við UAS og byggðist leiguflug félagsins I Saudi-Arabíu á þeim samningi og National-flugfélagið lagði þar til nokkrar flugvélar. Birkir Baldvinsson sagði hins vegar í kvöld er þetta atriði var borið undir hann: „Engir menn standa á bak við mig í þessu til- boði — nema konan mín. Þessi orðrómur er sprottinn af öfund einni saman." Þeir sem nákunn- ugastir eru Birki og starfsemi hans hér í Luxemborg eru einnig sannfærðir um að Birkir standi einn að þessu tilboði og nýtur hann góðs álits i íslendinganý- lendunni hér í Luxemborg. Birkir sagði er hann var spurður hvernig hann gæti fjár- magnað kaupin á Flugleiða- hlutabréfunum: „í sjálfu sér má segja að almenningi komi það ekki við — en það er ekkert leyndarmál að ég byrjaði 1976 með Loch Nesh-veitingahúsa- keðjuna og átti sjálfur fjóra matstaði í Evrópu en hinir stað- irnir voru reknir sjálfstætt með leyfi frá mér, þar á meðal var Nessie í Reykjavík. Valgeir Sig- urðsson, sem nú rekur Cock Pit Inn hér I Luxemborg, sá um þennan rekstur fyrir mig meðan ég var I starfi hjá Cargolux. í framhaldi af þessu fékk ég um- Birkir Baldvinsson boðin fyrir Henny Penny, sem framleiðir allan tækjabúnað fyrir Kentucky Fried Chicken, og var fyrsti umboðsmaður þess í Evrópu og er það enn.“ Birkir segist síðan hafa sagt upp störfum hjá Cargolux 1979 þar sem hann hafi ekki verið sammála útþenslustefnu félags- ins á þeim tima. „Ég varð hins vegar ríkur þegar menn töldu á sínum tíma að rekstri Rolls Royce-vélanna yrði hætt að fullu og öllu. Ég taldi þetta rangt mat og náði í alla varahluti sem ég gat á markaðnum — og ári seinna er vélarnar fóru aftur i loftið var ég eini maðurinn sem átti alla hluti í þessar vélar." Með þessum fjármunum gat Birkir gert samning við Japan Airlines um kaup á fyrstu DC-8-þotunni sem hann setti í leigu til Afríku. „Nú er svo kom- ið að allir halda að þessar DC-8 62-vélar fljúgi ekki meira vegna þess að á þær vantar hljóðdeyfi- búnað og ég gerði þvi samninga um að kaupa af Japan Airlines allar vélarnar sem það félag átti af þotum af þessari flugvélagerð og fékk hagkvæm kjör þar sem Japanirnir voru búnir að af- skrifa þessar vélar. Þetta var fyrir tveimur og hálfu ári en síð- an hafa vélarnar fimmfaldast í verði. Nú er ég hins vegar kom- inn með samning við fyrirtæki í Detroit, sem heitir Samtop, sem ætlar að smiða hljóðkúta á þess- ar vélar og kaupa þær af mér. Þarna liggja peningarnir." Birkir telur að flugvélarnar sem Flugleiðir nota nú séu orðn- ar úreltar en styrkur fyrirtækis- ins er fólginn í starfsliðinu og þeirri þekkingu sem býr innan fyrirtækisins. „Ég hef áhuga á að komast í stjórn Flugleiða þótt ég muni áfram búa erlendis og ætla að vinna að því að þetta fyrirtæki, Flugleiðir, skili arði til eigenda sinna i framtíðinni. Ég hef áður sagt að stjórn fyrir- tækis sé eins og fótboltalið, þar verður að raða mönnum eftir reynslu og getu, það þýðir ekki að vera með einhverja hobby- karla, en ég vil vinna með öllum sem hafa áhuga og þekkingu." Nú er allt sem orðið nýtt. IKEA hefur opnað stórverslun í Húsi verslunarinnar 16 síðna auglýsingablad frá IKEA fylgir Morgun- blaðinu í dag. Ísfískmarkaöurinn í Grimsby og Hull hefur staðist framboðið: Getur tekið við 2000 tonnum í viku hverri — Útlitið framundan mjög gott Gríoubj, 7. áfúrt. Frá Hirti GíaUnjni, bUAinunni MorpinbliiUinfi. „Það hefur enginn farið i hausinn á þessu, markaðurinn hefur farið neðar i þessum árstíma en hann hefur gert nú. Fyrst hann þolir þetta mikla framboð, lítur út fyrir hækkandi verð þegar í næstu viku, enda framboðið minna þá. Markaðurinn verður að öllum líkindum mjög góður í haust,“ sagði Pétur Björnsson, svarfsmaður umboðsfyrirtækisins J. Marr and Son í samtali við Morgunblaðið hér í Grimsby í dag. 1 dag var seldur í Grimsby og Hull afli úr þremur skipum, 340 lestir samtals, og svipað magn af fiski úr gámum. Þrátt fyrir þetta mikla magn, auk fisks frá heima- bátum, fékkst sæmilegt verð fyrir fiskinn, sérstaklega væru gæði { lagi. Hæst meðalverð upp úr skipi fékk Gullver NS, 40,27 krónur, og hæsta meðalverðið fyrir gámafisk var tæpar 50 krónur fyrir ýsu frá Eyjum. Lægsta verðið fyrir gáma- fisk var 25,33 krónur, en nokkrar lestir af gámafiski voru dæmdar frá vegna slæmra gæða. Vísir SF seldi 31 lest í Hull. Afli var nokkuð blandaður og meðal- verð 35 krónur á kíló, en heildar- verð 1.117 þúsund krónur. Meðal- verð fyrir þorsk f aflanum var 38,50. Börkur NK seldi 146,4 lestir í Hull. Heildarverðið var 4.877.167 krónur og meðalverð 34 krónur. Gullver seldi í Grimsby 162 lestir, heildarverð var 6.559 þúsund og meðalverðið 40,27 krónur. Á morgun verða seldar 370 lest- ir af íslandsfiski í Grimsby, þar af 182 lestir úr gámum. 284 lestir verða seldar 1 Hull, þar af 136 lest- ir í gámum. A föstudaginn verða seldar alls um 60 lestir af gáma- fiski í báðum borgunum. Þorleifur Olafsson, fram- kvæmdastjóri Stafness í Grimsby, sagði í samtali við Morgunblaðið, að miðað við álagið á markaðnum að undanförnu ætti hann að þola 2 þúsund tonn af fiski að heiman vikulega framvegis. Hann hefði verið hræddur um verðlækkun þessa vikuna vegna of mikils framboðs, en svo virtist sem markaðurinn stæðist þetta fram- boð. Því væri útlitið framundan gott.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.