Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 6
6
MOKGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
Eldur af
himni
Það er ekki beint hægt að segja
að breska fréttamyndin Eru
kjarnavopn í ísrael? hafi hresst sál-
artötrið skömmu áður en það
hrasaði inná lendur draumanna
nú á þriðjudagskveldið. Þessi
mynd hefir vafalaust verið sýnd í
tengslum við helsprengjuregnið
yfir japönsku borgunum Hirosh-
ima og Nagasaki, en nú eru réttir
og sléttir fjórir áratugir liðnir frá
því að helvítislogarnir teygö. «ig
um stræti og torg þessara borga
og eirðu engu, ekki einu sinni fólk-
inu, er kastaði sér logandi í sýki og
fljót. Sú sýn hlýtur að hafa minnt
á opinberun Jóhannesar: Og ég sá
annað dýr stíga upp af jörðinni og
það hafði tvö horn lík lambshorn-
um, en það talaði eins og dreki...
Og það gjörir tákn mikil, svo að
það lætur jafnvel eld falla af
himni ofan á jörðina fyrir augum
mannanna ... Og því var leyft að
gefa líkneski dýrsins anda, til þess
að líkneski dýrsins gæti einnig
talað og komið því til leiðar, að
allir yrðu þeir deyddir, sem ekki
vildu tilbiðja líkneski dýrsins.
Seint lœrir maðurinn
Seint lærir maðurinn. Þrátt
fyrir hörmulegar afleiðingar elds-
ins, er féll af himni fyrir fjórum
áratugum í Nagasaki og Hirosh-
ima, eru enn til menn er trúa á
helvítislogana. Minnist ég í því
sambandi sjónvarpsviðtals við
breskan varnarmálaráðherra er
sýnt var fyrir nokkrum árum hér í
sjónvarpinu. Þessi áhrifamaður
taldi að „takmarkaö kjarnorku-
stríð“ er grandað gæti allt að 40
milljónum manna væri réttlæt-
anlegt ef að veði lægi frelsi okkar
Vesturlandabúa. Tja, hversu
frjálsir yrðum við hér eftir slíkan
hildarleik? Og eigi ómerkari mað-
ur en dr. Henry Kissinger, einhver
gáfaðasti utanríkisráðherra vest-
ræns ríkis fyrr og síðar, komst
einmitt á landabréfið í Washing-
ton er hann kynnti hugmyndina
um „takmarkað kjarnorkustríð” i
bókinni Nuclear Weapons and For-
eign Policy“, sem út kom ’57. En
það er einmitt sú hugmyndafræði
er liggur að baki hugsanlegrar
kjarnorkuvopnasmíði ísraels.
Eru þar kjarnavopn?
En eru kjarnavopn í Israel? í
bresku fréttamyndinni var rætt
við ýmsa áhrifamenn á sviði al-
þjóðastjórnmála og töldu þeir allir
fullvíst að vopn, er leitt gætu til
„takmarkaðs kjarnorkustríðs",
fyrirfyndust þegar í ísrael, þrátt
fyrir að ísraelsk stjórnvöld stað-
hæfðu hið gagnstæða. Virtust mér
hinir vísu menn líta málið alvar-
legum augum. Þannig staðhæfði
Paul Warnke fyrrum aðstoðar-
varnarmálaráðherra í stjórn L.B.
Johnsons, að nú þegar væri hafin
uppbygging kjarnorkuherafla í
arabaríkjunum kringum Israel og
að í ljósi þess trúarofstækis er rík-
ir í mörgum þessara ríkja væri
meiri ástæða til að óttast kjarn-
orkustríð — fyrir botni Miðjarðar-
hafs en á átakasvæðum risaveld-
anna. Máski var það engin tilvilj-
un að dómsdagsspádómar Biblí-
unnar voru einmitt festir á blað af
mönnum er reikuðu um þær slóðir
er ísraelskir skriðdrekar aka nú
um. Þannig segir Amos: Hann
lætur eyðingu leiftra yfir hina
sterku, og eyðing kemur yfir vígi.
ólafur M.
Jóhannesson
UT VARP / S JON VARP
Guðrún Á. Símonar
í léttu spjalli
■■■■ Á dagskrá rás-
Ol 00 ar tvö hl. 21.00
^ 1 — er þátturinn
Gestagangur í umsjón
Ragnheiðar Davíðsdóttur.
Að þessu sinni kemur
Guðrún Á. Símonar í
stúdíó. „Ég ákvað að hafa
Guðrúnu eina í heimsókn
því hún hefur frá svo
mörgu að segja. Hún hef-
ur ferðast víða og á að
baki mjög litríkan feril,
bæði í söng og leik. Hún
er mikill áhugamaður um
dýravernd og eins og al-
þjóð veit á hún ósköpin öll
af köttum ásamt einum
hundi. Við ætlum að sitja
og spjalla saman í klukku-
stund og Guðrún ætlar að
sjá um tónlistina í þættin-
um. Sjálfsagt fá hlustend-
Guðrún Á. Símonar verður
gestur Ragnheiðar Davíðs-
dóttur í rás 2 í kvöld.
ur að heyra í henni sjálfri
ef ég þekki hana rétt. Við
höfum leitast við það
hérna á rás tvö að leika
tónlist af léttari endan-
um. Þar hefur ekki ve'rið
mikið um óperu- og sin-
fóníutónlist, en þar sem
Guðrún hefur sungið all-
mörg létt lög verður eng-
inn hörugll á þeirri teg-
und tónlistar. Hún hélt til
að mynda tónleika í Há-
skólabíói um árið fyrir
troðfullu húsi. Við eigum
til hljóðritun frá þessu
kvöldi, þannig að ekki
þarf að leita í óperutón-
listina til að finna létt og
skemmtileg lög með
henni,“ sagði Ragnheiður
Davíðsdóttir, stjórnandi
Gestagangs.
Kristján Arnason, stjórn-
andi þáttarins.
Charles Baudelaire
(1821—1867).
Erlend ljóð frá liðnum tímum
■i^^H I kvöld verða
Ol 00 ljóðaþýðingar
^ A — Helga Hálfdan-
arsonar kynntar. Þáttur-
inn í kvöld er sá fjórði í
röð sem nefnist Erlend
Ijóð frá liðnum tímum. Að
þessu sinni verða lesin
ljóð eftir Sófókles, Schill-
er, Hölderlin, Keats og
Baudelaire. Þátturinn er í
umsjá Kristjáns Árnason-
ar, en lesari er Ingibjörg
Stephensen.
Miðdegistónleikar
^^^■i Á dagskrá út-
H30 varpsins í dag
verða miðdegis-
tónleikar samkvæmt
venju. Að þessu sinni
verður fyrst leikin sónata
nr. 5 í E-dúr eftir Johann
Christian Bach. Ingrid
Hábler leikur á píanó.
Næst á dagskrá er verk
Josep Haydn, Sónata nr. 8
í G-dúr. Zdenek Bruder-
hans og Pavel Stepan
leika á flautu og píanó.
Síðast á efnisskrá er
kvartett nr. 1 eftir Franz
Schubert, Melos-kvartett-
inn í Stuttgart leikur.
Samtímaskáldkonur
■■■■ Á dagskrá út-
9n 00 varps kl. 20.00 í
—— kvöld er þáttur-
inn Samtímaskáldkonur i
umsjá Silju Aðalsteins-
dóttur. Kynnt verður
skáldkonan Margaret
Drabble, en Silja hefur
þýtt bók hennar, The
Carric Year. Þátturinn er
klukkustundar langur.
Matthías Bjarnason
á beinni línu
10
I Morgunút-
varpinu í dag
• — verður Matthí-
as Bjarnason samgöngu-
ráðherra í beinu síma-
sambandi við hlustendur.
Þar mun hann svara
fyrirspurnum um sam-
göngumál. Síminn er
22260. „Ég vil taka það
skýrt fram til að forðast
allan misskilning að
Matthías mun eingöngu
svara spurningum um
samgöngumál, ekki heil-
brigðismál," sagði önund-
ur Björnsson, annar
tveggja umsjónarmanna
Morgunútvarps.
Matthías Bjarnason sam-
gönguráðherra.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
8. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. Morgunútvarpiö. 7.20
Leikfimi. Tilkynningar.
7.55 Málræktarþáttur. Endur-
tekinn þáttur Ólafs Oddsson-
ar frá kvðldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir. Morgunorö —
Þórhallur Heimisson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Matthlas" eftir Barbro
Lindgren. Sigrlður Sigurð-
ardðttir les þýöjngu slna (4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugreinar dag-
blaöanna (úfdr ). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraöra
Þáttur I umsjá Þóris S. Guö-
bergssonar.
11.00 „Ég man þá tlð"
Lög frá liðnum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 Létt tónlist
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14Æ0 „Lamb" eftir Bernard
MacLaverty. Erlingur E. Hall-
dórsson les þýðingu slna (2).
14.30 Miðdegistónleikar
a. Sónata nr. 5 I E-dúr eftir
Johann Christian Bach.
Ingrid Haebler leikur á planó.
b. Sónata nr. 8 I G-dúr eftir
Joseph Haydn. Zdenek
Bruderhans og Pavel Stepan
leika á flautu og planó.
c. Kvartett nr. 1 eftir Franz
Schubert. Melos-kvartettinn I
Stuttgart leikur.
15.15 Tiöindi af Suöurlandi
Umsjón: Þorlákur Helgason.
15j40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 A frlvaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
174» Fréttir á ensku
17.05 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Ragnheiöur
Gyöa Jónsdóttir.
\TJSO Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Samtlmaskáldkonur.
Margaret Drabble.
Silja Aöalsteinsdóttir kynnir
skáldkonuna I tengslum viö
þáttaröð norrænu sjón-
varpsstöðvanna.
20.40 Einsöngur I útvarpssal
Sigrún Valgerður Gestsdóttir
syngur lög eftir Björgvin Þ.
Valdemarsson. Höfundurinn
leikur meö á planó.
214» Erlend Ijóð frá liðnum
tlmum
Kristján Arnason kynnir
Ijóöaþýðingar Helga Hálf-
danarsonar. Fjóröi þáttur:
Birtan frá Hellas. Lesari:
Ingibjörg Stephensen.
21.25 Frá tónleikum Kamm-
ersveitar Reykjavlkur I Bú-
staðakirkju 1982. Jón H.
Sigurbjörnsson, Stephen
King og Monika Abendroth
leika Sónötu fyrir flautu, vlölu
og hörpu eftir Claude De-
bussy.
21.45 Frá hjartanu
Umsjón: Kristján R. Krist-
jánsson. RÚVAK.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræöan.
Fiskeldi: fjármögnun. flutn-
ingur, markaöir. Umsjón:
Gissur Sigurösson.
23.35 Trló I B-dúr op. 11 eftir
Ludwig van Beethoven.
Rudolf Buchbinder, Sabine
Meyer og Heinrich Schiff
leika á planó, klarinettu og
selló.
24.00 Frétfir. Dagskrárlok.
/á
SJÓNVARP
i
19.25 Ævintýri Berta
(Huberts sagor)
4. þáttur
Sænskur teiknimyndaflokk-
ur.
Þýöandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Rokkhátfö I Montreux
Fyrri hluti
Meöal þeirra sem koma fram
eru Elton John, Millie Jack-
son, Paul Young, Men at
F0STUDAGUR
9. ágúst
Work, Frankie Goes to
Hollywood, Depeche Mode.
Huey Lewis, Tears for Fears
og Duran Duran. Seinni hluti
tónleikanna veröur á
dagskrá sföar.
21.40 Heldri manna llf
(Aristocrats)
Annar þáttur
Breskur heimildarmynda-
flokkur I sex þáttum um aö-
alsmenn I Evrópu. Aö þessu
sinni er hertoginn af West-
minster sóttur heim.
Þýðandi Þorsteinn Helga-
son.
21.35 Heim til Marseille
(Retour á Marseille)
Frönsk blómynd frá árinu
1980.
Leikstjóri: René Allio.
Aöalhlutverk: Raf Vallone og
Andrea Ferreol.
Michel snýr aftur til heim-
kynna sinna I Marseille ettir
langa fjarveru. Bifreiö hans
er stoliö og berast böndin að
ungum frænda hans sem er I
slagtogi viö vafasaman flokk
atvinnulausra unglinga.
Þýöandi Ragna Ragnars.
23.30 Fréttir I dagskrárlok
álT
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Asgeir Tómas-
son.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Gunnlaugur
Helgason.
15.00—16.00 I gegnum tlöina
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
16.00—174» Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áöur
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabiliö.
Stjórnandi: Betram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hlé
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—224» Gestagangur
Gestir koma l stúdló og velja
lög ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav-
lösdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Kvöldsýn
Stjórnandi: Tryggvi Jakobs-