Morgunblaðið - 08.08.1985, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
13
Kátir krakkar
í leik og starfi
Sagt frá heimsókn í sumarbúdirnar á Úlfljótsvatni
SéA yfir sumarbúðirnar við Úlfljótsvatn. í skálunum nær eru m.a. eldhús
og borðsalur, auk svefnskála fyrir yngri börnin (8 til 10 ára). Fjær eru
svefnskáli 10 til 12 ára barna og s.k. Gilwell-skáli þar sem skátaskólinn
er til húsa.
Þrautabrautirnar njóta mikilla vinsælda. Hér er betra að hafa jafnvæg-
isskynið í góðu lagi.
Þessir piltar sýndu knáleg tilþrif í knattspyrnunni.
ÞAÐ RÍKTI mikið líf og fjör á
Úlfljótsvatni þegar blaðamaður
og ljósmyndari Morgunblaðsins
heimsóttu sumarbúðirnar þar
fyrir skömmu. Með í förinni var
Jónas B. Jónsson, fyrrverandi
skátahöfðingi og fræðslustjóri i
Reykjavík, en hann er formaður
Úlfljótsvatnsráðs, sem sér um
rekstur sumarbúðanna. Fræddi
hann blaðamenn um starfið að
Úlfljótsvatni og sögu þess.
Hópur glaðlegra og fjörugra
barna flykktist að komumönnum
og höfðu þau frá mörgu að segja.
öll voru á einu máli um að æðis-
lega gaman væri i sumarbúðun-
um. Fram kom að mörg þeirra
hafa komið oftar en einu sinni og
sum koma langt að, því nokkur
þeirra eru búsett erlendis, en
koma hingað til lands á sumrin
og fara þá að Úlfljótsvatni.
Mörg barnanna taka slíku
ástfóstri við staðinn, að þau
halda áfram að koma eftir að
þau eru orðin of gömul til að
vera í sumarbúðunum. Nefnast
þau þá matvinnungar og vinna
fyrir fæði og húsnæði með því að
létta undir með starfsfólkinu við
hin ýmsu störf. Að sögn Guðjóns
Sigmundssonar sumarbúða-
stjóra er dvöl í búðunum ekki
bundin við börn sem eru skátar
og komast jafnan mun færri að
en vilja.
Upphafíð
Starfsemi Bandalags íslenskra
skáta á Úlfljótsvatni hófst árið
1941. Að frumkvæði dr. Helga
Tómassonar, þáverandi skáta-
höfðingja, samþykkti bæjar-
stjórn Reykjavíkur að lána
skátahreyfingunni afnot af jörð-
inni endurgjaldslaust undir
starfsemi sína, en Rafmágns-
veita Reykjavíkur er eigandi
jarðarinnar. Sumarið eftir var
fyrsti skálinn reistur. Auk
sumarbúðanna starfar foringja-
skóli á Úlfljótsvatni, þar sem
námskeið eru haldin fyrir verð-
andi skátaforingja. Þar hafa
einnig verið haldin fjölmörg
skátamót, ráðstefnur og nám-
skeið.
Fjölbreytni í leik
og starfí
1 sumarbúðunum dvelja
hverju sinni 42 börn á aídrinum
8 til 12 ára. Er þeim skipt i hópa
undir stjórn flokksforingja. Eru
Þessi ungi veiðimaður heitir Óli.
Hann sagðist vera búinn að veiða
20 silunga ó fimm dögum. Sann-
kölluð afiakló!
að jafnaði sex til sjö börn i
hverjum hópi. Bera flokkarnir
nöfn eins og Tófur, Úlfar, Fjólur
og Bláklukkur. Einn starfsmað-
ur er foringi fyrir hverjum hópi,
en starfsmenn eru alls 11 tals-
ins. Hver hópur dvelur eina eða
tvær vikur i búðunum.
Dagurinn hefst klukkan 8 með
fánahyllingu, en að loknum
morgunverði hefjast fjölbreytt
störf og leikir, svo nóg er við að
vera frá morgni til kvölds.
Skátastarfið setur svip sinn á
starfsemina og er meðal annars
kennt að hnýta hnúta, nota átta-
vita og önnur gagnleg fræði sem
skátum eru töm. Þá er farið í
bátsferðir á vatninu og gjarnan
dvalið eina nótt í tjaldi í Borg-
arvik, handan vatnsins. Annað,
sem mikilla vinsælda nýtur, eru
svokallaðar þrautabrautir, sem
felast í því að klifra eftir köðlum
og sveifla sér í rólum og krefst
það mikillar fimi.
Farið er í gönguferðir um
nágrennið, ratleiki og keppt er í
íþróttum. Veiði er nokkur í vatn-
inu og stunda margir hana af
miklum áhuga. Einnig er boðið
upp á föndur og leiki af ýmsu
tagi. Þá er vikulega farið í sund
að Ljósafossi og virkjunin þar
skoðuð. Á sunnudögum er helgi-
stund.
Auk þessara föstu liða er allt-
af bryddað upp á einhverju nýju
í hverri viku og ræðst það meðal
annars af veðri hvað gert er á
hverjum degi. Mjög gott veður
hefur verið á Úlfljótsvatni í allt
sumar og hafa börnin því getað
notið útiveru í ríkum mæli.
Fatladir og aldraðir
Undanfarin þrjú ár hafa nokk-
ur þroskaheft börn dvalið í
sumarbúðunum og nú fyrr i
sumar dvöldu þar einnig fimm
blind börn. Að sögn Laufeyjar
Gissurardóttur þroskaþjálfa og
Guðjóns Sigmundssonar for-
stöðumanns hefur þetta gefið
mjög góða raun og hafa hinir
þroskaheftu og blindu fallið
ótrúlega vel inn i hópinn. Þau
Laufey og Guðjón sögðu að þetta
væri tvimælalaust mjög hollt,
bæði fyrir hina fötluðu og hina
heilbrigðu. Fötluðu börnin fá
þarna tækifæri til að koma úr
því verndaða umhverfi, sem þau
dvelja i að jafnaði, og reyna sig i
leik og starfi með jafnöldrum og
auka þannig styrk og þol. Börn-
in, sem heilbrigð eru, fá á hinn
bóginn tækifæri til að umgang-
ast hina fötluðu og öðlast við það
aukinn skilning á högum þeirra.
Hafa þau undantekningarlaust
tekið fötluðu börnunum ein-
staklega vel og sýnt þeim mikla
hjálpsemi og skilning. Mun þetta
væntanlega verða fastur liður í
starfsemi búðanna í framtíðinni.
Annað sem áhugi er á að taka
upp er sumardvöl fyrir aldraða.
Er hugmyndin sú að börnin og
gamla fólkið dvelji samtímis í
búðunum og hafi gagn og gaman
hvort af öðru. Er einkum að því
stefnt að börnin geti umgengist
gamalt fólk og fræðst af því, en
þessi liður í uppeldi barna hefur
sem kunnugt er mjög verið ‘á
undanhaldi í nútíma samfélagi.
Nýtt hús í byggingu
Byggingaframkvæmdir standa
nú yfir við Úlfljótsvatn. Verið er
að byggja tvílyft hús, sem bæta
mun mjög alla aðstöðu á staðn-
um. Í þessu nýja húsi verða
svefnherbergi, eldhús og matsal-
ur. Neðri haeð hússins er nú upp-
steypt og standa vonir til að það
verði fokhelt i haust og að unnt
verði að taka það í notkun næsta
sumar. Eldri skátar hafa lagt
sitt af mörkum við bygginguna
með sjálfboðavinnu, en þeir
vinna gjarnan á staðnum I svo-
kölluðum vinnuútilegum. Er þá
venjulega dvalið eina helgi og
unnið að viðhaldi og endurbót-
um. A.S.