Morgunblaðið - 08.08.1985, Page 14

Morgunblaðið - 08.08.1985, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 Betur fór en á horfðist ÞAÐ fór betur en á horfðist þegar kviknaði í geymsluskúr á athafnasvæði Málningar hf. við Marbakka í Kópavogi um sexleytið í fyrrakvöld. í skúrnum, sem stendur skammt neðan við sjálft verksmiðjuhúsið, eru geymd eld- fim efni. Lítill eldur var í skúrnum og gekk fljótt og vel að slökkva hann. Eldsupptök eru ókunn. saga c/ass Fullt fargjald til flestra áfangastaða FLUGLEIÐA í Evrópu. Börn innan 12 ára greiða helmingi minna en fullorðnir. Engar kvaðir né lágmarksdvöl. Hámarks- dvöl er eitt ár. Hringduísíma 25100 eða komduvið ð næstu sðluskrifstofu okkar^^ FLUGLEIDIR Vistfólk á Sólheimum skoðar Steingrímsstöð SelfoHÍ. I. igúkL LANDSVIRKJUN bauð í dag vist- fólki á Sólheimum í Grímsnesi til skoðunarferðar í Sogsvirkjanirn- ar. Reyndar var hér um skemmti- ferð að ræða þar sem ekið var um nágrenni eftir að virkjanirnar voru skoðaðar. Hópurinn lagði upp frá Sól- heimum skömmu eftir hádegi og ók sem leið lá að Steingrímsstöð. Það var Óskar Ögmundsson sem var fararstjóri og kynnti hann ferðafólkinu það sem fyrir augu II/ bar. í Steingrímsstöð tók Jón Sandholt á móti hópnum og kynnti vélakost virkjunarinnar ásamt Óskari fararstjóra. Eftir að hafa skolað niður smá- kökum Landsvirkjunar, sem boðið var uppá í setustofu virkjunarinn- ar, var ekið umhverfis Þingvalla- vatn. Sjálfsögð viðkoma var á Þingvöllum þar sem spáð var í út- sýnið frá útsýnisskífunni á barmi Almannagjár. Ferðafólkinu þótti mikið til þess koma að sjá gufustrókana stíga upp frá borholunum á Nesjavöll- um og einnig skógræktarreitina sem þar eru f skjóli hóla og fjalla. Við lok ferðarinnar var gestum boðið uppá kaffi og kökur í kaffi- stofu Ljósafossvirkjunar. Þar af- henti Jón Sandholt Reyni Pétri fána Landsvirkjunar sem geymd- ur verður á Sólheimum til minn- ingar um ferðina. Jón sagðist vona að gestirnir hefðu haft gagn og gaman af ferðinni og undir þau orð hans tóku allir sem einn. Sig. Jóns STEINGRÍMSsmn Hópurinn frá Sólheimum utan við Steingrímsstöð. Mel Brooks á batavegi Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson NÝJA BÍÓ: Að vera eða ékki að vera (To Be or Not To Be) irtiVi Leikstjóri Alan Johnson. Handrit Thomas Meehon og Ronny Gra- ham. Tónlist John Morris. Fram- leiðandi Mel Brooks. Aðalhlutverk Mel Brooks, Anne Bancroft, Tim Matheson, Charles Durning, Jose Ferrer, Christopher Loyd, James Haake. Bandarísk, gerð af 20th Century Fox 1983. Myndin er endurgerð samnefndrar myndar sem Lubitch leikstýrði i stríðsár- unum síðari. 108 mín. Að vera eða ekki að vera er ærslaful! gamanmynd þar sem uppákomur og efnisþráður er það flókinn í sparsemi sinni að óvitlegt er að hætta sér útí að reyna að lýsa honum nokkuð til hlítar. Að þessu sinni er það Brooks sem verður aðalleiksopp- ur margflókinnar atburðarásar og þarf að bregða sér í hin marg- víslegustu gervi til að bjarga pólsku neðanjarðarhreyfing- unni, minna mátti það ekki vera. Og til að það megi takast þarf hann að leika á sjálfan höfuð- paurinn, Adolf Hitler! Gamansemi og taktar Brooks eru gamalkunnir. Hann kemst iðulega á hörkuflug en maga- lendir svo á næsta augnabliki. Annars eru rennilegar loftferðir hans i miklum meiri hluta að þessu sinni og myndin sú ásjá- legasta sem komið hefur frá þessum mistæka háðfugli um langa hríð. Að venju eru bestu skissurnar byggðar í kringum hann sjálfan. Brooks fær kærkomið tækifæri til að skopast að erkióvini sínum, Hitler (hver man ekki besta at- riði nokkurrar Brooks-myndar, Springtime for Hitler í The Pro- ducers), og er það besti þáttur myndarinnar, og ekki má gleyma Highlights from Ham- let(f). Eftir hörmungina History of the World, Part I (sem vonandi verða ekki fleiri), sem er lang ósmekklegasta mynd Brooks, virðist karl hafa tekið sig á og færist nú nær þeim gálgahúmor og fáránleika sem gerði hann frægan. Svo virðist sem hann ætti að fá aðra til að útfæra hugmyndir sínar. Prýðis leikarar í aukahlut- verkum hressa uppá myndina, bæði hin síunga eiginkona Brooks, Anne Bancroft (sem þarfnast reyndar orðið ansi sterkra þokufiltera), Tim Mathe- son, Jose Ferrer, Christopher Loyd, og ekki síst James Haake í hlutverki hommans. En það er Charles Durning sem fer manna best á kostum í hlutverki körnel Erhardt. óborganlegur að venju. f það heila tekið má sjá mikil batamerki hjá Brooks í þessari nýjustu mynd hans. Ekki ónýtar fréttir fyrir fjölmarga aðdáend- ur... Sterkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! Innilega þakka ég þeim sem glöddu mig meÖ heimsóknum, hlýhug, velvilja, skeytum, blóm- um og gjöfum á 80 ára afmœli mínu 27. júlí s.l GuÖ blessi ykkur öll Helgi H. Zóéga, Tjarnargötu 10 C.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.