Morgunblaðið - 08.08.1985, Page 24

Morgunblaðið - 08.08.1985, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 Frakkar í hrakning- um á Grænlandi Hér sjást nokkrir leiðtogar kristinna manna og múhameðstrúarmanna á fundi f Líbanon í fyrradag en þar kröfðust þeir þess að Amin Gemayel, forseta Líbanons, yrði vikið frá völdum. Meðal þeirra sem sátu fundinn voru Walid Jumblatt leiðtogi drúsa, Nahib Berri aðaltalsmaður amal-shíta og fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Mounir Abul Fadhel sem er kristinn. Nuuk, Grænlandi, 7. ágúst AP. I'RÍR Frakkar reikuðu um ísbreiður Grænlands, rammvilltir og matar- lausir, í þrjá daga áður en þyrla frá danska flughernum kom þeim til bjargar. Mennirnir þrír, undir forystu Alain Misner, 31 árs gömlum ævintýramanni, hófu ferð sína þann 9. júlí frá Angmagssalik á austurströnd Grænlands og ætl- uðu þeir að ferðast á skíðum þvert yfir ísbreiðuna til Söndre í Straumfirði. Eftir að hafa ferðast um 650 km villtust þeir af vegi og fundust loks um 110 km norður af Nuuk. Mennirnir sendu upp neyðar- blys og 5. ágúst urðu menn frá danska flughernum varir við blys- in og sendu þyrlu til bjargar mönnunum. Þeir voru allir við hestaheilsu og töldu ferð sína í heild vel heppnaða, þrátt fyrir hrakningarnar. Líbanon: Bandalagi múhameðstrúar- manna misjafnlega tekið Beirát, Líbanon, 7. igásL AP. MW J LEIÐTOGAR kristinna manna og múhameðstrúarmanna í Líbanon brugðust misjafnlega við fréttum um stofnun pólitísks bandalags ýmissa fylkinga múhameðstrúarmanna. Markmið bandalagsins er fyrst og fremst að krefjast þess að múhameðstrúarmenn fái jafnmikil áhrif á stjórn landsins og kristnir menn. Einn leiðtogi kristinna manna sagði i dag að stofnun bandalags- ins væri spor í rétta átt. Hann bætti því við að kristnir menn hefðu einnig í hyggju að mynda með sér samtök og leggja fram hugmyndir og skilyrði um tilhög- un viðræðna þeirra og múham- eðstrúarmanna um framtiðarskip- an í Líbanon. Tamman Salem, einn talsmaður súnníta, sagði hins vegar að hon- um litist illa á bandalag múhameðstrúarmanna, enda ættu engir leiðtogar súnnita aðild að því. Talið er að kristnir menn, sem eru um 45% þjóðarinnar og hafa gegnt öllum lykilstöðum í stjórn Líbanons frá því Frakkar afsöluðu sér völdum þar 1943, séu reiðubún- i ir til að fallast á ýmsar tilslakan- ír. Á hinn bóginn séu þeir frá- hverfir þeirri kröfu bandalags múhameðstrúarmanna að ný stjórnarskrá verði lögfest. Tveir leiðtogar kristinna manna bættust í hóp þeirra sem krafist hafa þess að Amin Gemayel, for- seta Líbanons, verði vikið frá völdum. Áður höfðu Walid Jumbl- att, leiðtogi drúsa, og Nahib Berri, helsti talsmaður amal-shíta, farið fram á það. Var þessi krafa síðan ítrekuð á fundi ýmissa leiðtoga múhameðstrúarmanna og krist- inna í gær. Torre úr leik Bienne, Sviss, 7. ágúst. AP. ENGLENDINGURINN Nigel Short sigraði stórmeistarann Eugenio Torre í oddaskák á svæðismótinu í Bienne í Sviss á þriðjudagskvöld. Torre á þar með engan möguleika á að komast í hóp þeirra er tefla um hver verði næsti áskorandi heims- meistarans í skák. Torre lék svörtu mönnunum gegn hinum tvítuga Englendingi og gaf eftir 59 leiki. f sjöttu og síðustu skák sinni teflir Torre við Hollendinginn John van der Wiel. Van der Wiel hefur tvisvar sigrað Short í oddaskákunum, en hann þarf að bera sigurorð af Torre til þess að komast í áskorendahóp- inn. Lykti skák þeirra með jafntefli er van der Wiel með þrjá og hálf- an vinning, jafn Short, og sam- kvæmt reglum FIDE um odda- skákir yrði Short þá hlutskarpari þar sem hann náði betri meðalár- angri á svæðismótinu sjálfu. Grænland: Megn óánægja vegna veiðileyfis til Japana K.upm.nn.hofn, frá Nib Jörgen-Bninn, GrabiMfofrátUriUra Morifunblaifoíiia. Veður víða um heim Lasgst Hsest Akureyri 9 afokýjað Amsterdam 15 19 heiðakirt Apena 22 35 heiöakírt Barcelona 24 Mttakýjað Berlín 11 20 akýjeð Briissel 11 18 heiðakírt Chtcago 19 28 skýjað Dublm 10 17 BkýÍMÓ Feneyjar 22 alskýjaö Frankfurt 9 18 skýjað Genf 12 15 rígning Helsinki 13 17 rigning Hong Kong 28 33 heióskírt Jerúsalem 18 28 akýjað Kaupmannah. 12 18 •kýjað Las Palmas vantar Ltssabon 15 24 hotóskirt London 12 18 akýjað Los Angeies 16 29 heiðskírt Lúxemborg 15 •kýjeð Malaga 26 heiðekírt Mallorca 26 hélfskýjeð Miami 25 30 rignmq Montreal 18 30 skýjað Moskva 16 *, heiðskirt New York 20 27 skýjað Osló 14 16 akýjað París 12 19 akýjað Peking 22 33 haiðskírt Reykjavík 12 skýjað Rfó de Janeiro 14 32 heiðakirt Rómaborg 20 29 ngning Stokkhótmur 14 21 heiðskirt Sydney 11 14 heiðskírt Tókýó 24 30 skýjað Vínarborg 19 24 skýjað Þórshöfn 9 alskýjað GRÆNLENSKA landsstjórnin hef- ur sætt harðri gagnrýni fyrir að veita Japönum leyfi til að veiða kvóta sinn af karfa og grálúðu á Grænlandsmiðum. Gagnrýnin kemur meðal ann- ars frá samtökum grænlenskra sjómanna, en formaður þeirra, Nikolaj Heinreich, sagði í viðtali við grænlenska útvarpið að stofna þyrfti nýjan stjórnmála- flokk til þess að gæta hagsmuna sjómanna. Stjórnarflokkurinn geri það ekki. Heinreich lýsti gremju sinni yfir því að allt of mörg erlend skip væru í grænlenskri landhelgi og þeim hefði farið fjölgandi síð- an Grænlendingar gengu úr Evr- ópubandalaginu. Jónatan Motzfeld hefur lýst því yfir í útvarpi að nauðsynlegt hafi verið að leyfa Japönum að veiða upp í kvótann þar sem græn- lenskir togarar væru þess ekki megnugir. Hann lagði á það áherslu að höfuðatriði samkomu- lags Japana og Grænlendinga væri að Grænlendingum yrði greidd gata á japanskan fisk- markað. Fleiri síkhar gripnir Njju Delhí, 6. ifúM. AP. LÖGREGLAN í Haryana-ríki á Ind- landi befur handtekið fimm öfga- sinnaða síkha og grunar þá um að hafa haft á prjónunum samsæri um að hafa ætlað að myrða æðsta ráða- mann í ríkinu. Þeir hugðust einnig fyrirkoma fjölskyldu R.S. Dayal, sem stjórn- aði herförinni að Gullna muster- inu í Amritsar á síðasta ári. Lögreglan telur að þessir fimm menn, sem nú hafa verið hand- teknir, hafi verið í samfloti með öðrum fimm síkhum, sem voru gripnir í Bandaríkjunum um það leyti sem Rajiv Gandhi forsætis- ráðherra var þar á ferð, og voru grunaðir um að brugga honum banaráð. Heimsmeistara- einvígið í skák: Fyrsta skákin tefld 3. sept. MosIitu, 7. ágúst. AP. FYRSTA skák heimsmeistaraeinvíg- isins milli Anatolys Karpov heims- meistara og áskorandans, Garris Kasparov, verður tefld hinn 3. sept- ember nk., að því er sovéska frétta- stofan Tass greindi frá í dag, mið- vikudag. Mótið verður sett við at- höfn daginn áður. Keppnin milli Sovétmannanna, sem taldir eru sterkastir allra skákmanna heimsins, hófst upp- haflega fyrir tæpu ári, en var slit- ið í febrúarmánuði, þegar 48 skák- ir höfðu verið tefldar, án þess að úrslit hefðu fengist. í keppninni, sem hefst í sept- ember, verða tefldar 24 skákir og fer mótið fram í Tchaikovsky- höllinni í Moskvu, þar sem sæti eru fyrir hátt á annað þúsund áhorfendur. Teflt verður á þriðju- dögum, fimmtudögum og laugar- dögum og biðskákir tefldar næsta dag, að sögn Tass. Sá keppendanna, sem fyrstur hlýtur sex vinninga, sigrar, en Karpov mun halda heimsmeist- aratigninni, verði jafnt með þeim. Fjörutíu ár frá fyrstu kjamorkusprengjunni: Minningarathöfn um fórnar- lömbin haldin í Hiroshima Hinfohinu, 7. igútú AP. DAGURINN hófst eins og honum lauk: með minningarathöfn um þá 140 þúsund manns sem áætlað er að hafi farist þegar kjarn- orkusprengju var varpað á Hiroshima 6. ágúst 1945. Eins og sagt var frá í gær Boston, Seiji Osawa, komu fram hófst athöfnin á slaginu 8:15 að morgni þriðjudags, 23:15 að ís- lenskum tíma, með einnar mín- útu þögn. Þúsundir manna hvaðanæva að komu saman á þriðjudag til þess að minnast þess með bæn- um, mótmælum og söng, að fjörutíu ár eru liðin frá því að sprengjan féll á Hiroshima. Bandaríska tónskáldið og hljómsveitarstjórinn, Leonard Bernstein, og stjórnandi sinfóníuhljómsveitarinnar í ásamt japönskum kór á hæð sem geymir ösku þúsunda óþekktra fórnarlamba kjarnorkusprengj- unnar. Um kvöldið stjórnaði Bern- stein 400 manna æskulýðshljóm- sveit Evrópubandalagsins er hún flutti Þriðju sinfóníu hans, „Kaddish", sem byggð er á gyðingabæn til hinna framliðnu. Um 2000 manns hlýddu á flutn- inginn sem Bernstein sagði helg- aðan öllum fórnarlömbum seinni heimsstyrjaldarinnar. Eftir sólsetur fóru vinir og vandamenn þeirra sem létust af geislun eftir sprenginguna með ljósker niður að ánni Motoyasu, sem fyrir 40 árum var full af líkum þeirra sem reyndu að flýja eldhafið, og létu ljóskerin, með áietrunum til hinna látnu, fljóta niður ána. Yasuhiro Nakasone, forsætis- ráðherra Japans, var meðal þeirra sem lögðu sveig að minn- ismerki með áletruðum nöfnum 139.690 manna, sem saknað var eftir sprenginguna. Nakasone tók einnig þátt í umræðum við sjö „Hibakusha", en svo eru þeir nefndir á jap- önsku sem lifðu kjarnorku- sprenginguna af. Þeir skoruðu á forsætisráðherrann að staðfesta lög sem tryggðu þeim bætur og vinna að því að draga úr spennu í heiminum. Nakasone gaf enginn loforð, en sagðist skipa sérstakan sess meðal forsætisráðherra: „Ég ber ábyrgð gagnvart gervöllu mannkyni.“ Fyrir dögun færðu pílagrímar reykelsi og blóm til minnisvarða í friðargarði borgarinnar og prestar kristinnar trúar, Búdda- trúar og sjintotrúar héldu guðs- þjónustur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.