Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 Grímsá: Landinn fékk 180 stykki „Þeim gekk ágætlega, voru í þrjá daga og veiddu milli 170 og 180 laxa á tíu stangir. Þar með eru komnir eitthvað á tíunda hundraðið á land,“ sagði Sturla Guðbjarnarson í Fossatúni í samtali við Morgunblaðið í gærdag, en þá höfðu nýlokið veiðum fyrstu íslendingarnir sem bleyta færi í ánni síðan út- lendingarnir voru að. Maðkur var þar reyndur í fyrsta skipti í nokkrar vikur og laxinn lét ekki bjóða sér þann munað tvisvar, heldur gleypti strax. Að sögn Sturlu var meðal- þunginn heldur lítill og á það við um heildaraflann ekki síður en síðustu 180 laxa. Tveir 19 punda laxar eru stærstir til þessa. Innan við tíu merktir laxar komu á land síðustu dag- ana, en þess ber að geta, að lðx- unum, sem öllum var sleppt á útlendingatímanum, var eigi öllum skilað með merkjum og því kunna fleiri áðurveiddir að hafa verið í afla íslendinganna. Veitt er til 18. september í Grímsá, þannig að það stefnir í eitt af betri veiðisumrum þar. Reytist upp í Þverá/Kjarrá Eygló Lúðvíksdóttir í veiði- húsinu við Þverá sagði í gærdag að á hádegi á mánudaginn hefðu verið komnir 1299 laxar á land í Þverá og Kjarrá, 536 úr Þverá, en 763 úr Kjarrá. Hópur sem þá lauk veiðum hafði fengið 48 laxa í Þveránni, en síðan hefðu veiðst svona 9—12 laxar á dag. Þetta er heldur róleg veiði, en af laxi er nóg að því er virð- ist, hann tekur bara illa í vatnsleysinu og sólinni. Einhver slatti hefur einnig veiðst af sjó- birtingi upp á síðkastið, en um hann eru engar tölur til. Út- lendingar eru á veiðum í Þverá enn sem komið er og egna að- eins með flugu. Búast má við kipp þegar landinn skundar á svæðið með „brown sjarminn". Betri tala Sagt var í veiðiþætti Morgun- blaðsins fyrir nokkrum dögum, að komnir væru um 40 laxar úr Reykjadalsá í Borgarfirði. Á daginn hefur komið að talan er rétt ef silungar eru meðtaldir. Laxarnir eru enn innan við 30, voru 24 fyrir þremur dögum. Mest veiðist í Klettsfljóti og Sturlu-Reykjarbug, en kunnug- ir telja lax vera víðar, hann geti hins vegar falið sig lystilega í öllu slýinu og undir öllum þúf- unum sem skreyta þessa á, ekki síst í vatnsleysi þessa sumars. Dauft á Arnar- vatnsheiði Morgunblaðið hefur frétt af allmörgum hópum sem farið hafa á Arnarvatnsheiði nýlega og haft lítið annað en fjallaloft upp úr krafsinu. Það hefur verið kalt þar efra og strekkingsvind- ur oft gruggað hin grunnu veiði- vötn heiðarinnar. Menn sem Morgunblaðið hefur haft tal af, segja umgengni ferðamanna á þessum slóðum til meiriháttar skammar, umferð hefur aukist mikið fram í Fiskivötnin og um- gengnin hríðversnað I réttu hlutfalli. Segja þeir tómar flöskur, niðusuðudósir af öllum stærðum og gerðum og hvers kyns rusl af flestu tagi liggja eins og hráviði um allt og við- skilnaður við sum tjaldstæði engu öðru líkur en að „ömurleg svallveisla" hafi þar verið háð. Fer ljóminn óðum að hverfa af þessari veiðiparadís ef ekki verður við spornað. t Móðir mfn ÁSTA KRISTVEIG GfSLADÓTTIR, Droplaugarstöðum, óður Norðurbrún 1, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda. Oddgeir Guðmundsaon. t Útför BALDVINS SVEINSSONAR, frá Álfatröðum verður gerö frá Snóksdalskirkju í Dölum föstudaginn 9. ágúst kl. 14.00. e.h. Bílferö verður frá Bifreiöastöö Guömundar Jónassonar hf., Borgar- túni 34, sama dag kl. 9 árdegis. Systkíni hins látna. t Maöurinn minn, faöir og afi, BJÖRN INGIMAR VALDIMARSSON frá Björnskoti á Skeiðum, Kírkjuvegi 15, Salfossi, veröur jarösunginn frá Selfosskirkju klukkan 1.30 laugardaginn 10. ágúst. Sigríöur Guðmundsdóttir, Steinunn Björnsdðttir, Guðmundur fvarsson, Þorgeröur Björnsdóttir og barnabörn. Starfsfólk Hans Petersen hf. að störfum við nýju vélina. MorgunbiaSið/Árni Sæberg Hans Petersen hf.: Framkallar filmur á einni klukkustund HANS Petersen hf. hefur sett upp hraðframköllunarvél í verslun sinni við Bankastræti. Viðskiptavinir fyrirtækisins geta því fengið filmur sínar framkallaðar og myndir stækk- aðar á einni klukkustund. í fréttatilkynningu frá Hans Petersen segir að fyrirtækið eigi nú að b^ki 60 ára reynslu í myndaframleiðslu. Meginhlut- verk fyrirtækisins verði eftir sem áður að veita landsmönn- um alhliða framköllunarþjón- ustu. Einnig verði lögð áhersla á að myndir framkallaðar með nýju vélinni verði ekki síðri að gæðum en aðrar myndir sem framkallaðar hafa verið hjá fyrirtækinu. Fræöflunarleiðangur Óla Vals til Alaska: Megináhersla lögð á kvæmasöfnun lauftrjáa ÓLI Valur Hansson, garðyrkjuráðu- nautur hjá Búnaðarfélagi Islands, hyggst fara við þriðja mann í fræöfl- unarleiðangur til Alaska um næstu mánaðarmót, eins og fram hefur komið hér í blaðinu. Ferðin verður farin i vegum Búnaðarfélags ís- iands, Rannsóknastofnunar land- búnaðarins, Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins, en leitað er eft- ir fjárstuðningi ýmissa aðila til að fjármagna ferðina. „Ætlunin er meðal annars að leita fanga á áður ókönnuðum, en mjög eftirsóknarverðum svæðum á Alaskaskaga og eins á tilteknum jaðarsvæðum skóglendis i vestur- hluta fylkisins, allt norður að 66. breiddarbaugi,“ sagði óli Valur þegar rætt var við hann um ferð- ina. Hann sagði að lögð yrði meg- ináhersla á kvæmasöfnun lauf- trjáa, einkum birki, elri, víöi og ösp til landgræðslu og skjól- beltaræktunar. Einnig yrði leitað hvers konar runna og berjagróð- urs að ógleymdri söfnun barr- trjáa. Sagði Óli Valur að fræsöfnunar- ferðir til Alaska væru síður en svo ný hugmynd. Gróðurlind Alaska væri sú auðlind sem miðlað hefði íslandi tegundum sem valdið hefðu straumhvörfum varðandi eflingu ræktunar, bæði til nytja og fegrunar, t.d. sitkagreni, sitka- bastarð, stafafuru, Alaskaösp, Al- askavíði og að ógleymdri Alaska- lúpínu, sem reynst hefði ómetan- leg jurt til uppgræðslu á örfoka landi. Vigfús Jakobsson safnaði fyrst- ur manna fræum í Alaska, það var haustin 1943 og 1944, en hann var við skógræktarnám í Bandaríkj- unum. Héðan fór svo Hákon Bjarnason fyrstur manna í slíkan leiðangur haustið 1945 og kom þá m.a. heim með Alaskalúpínuna. Síðar var farið í nokkrar ferðir en nú eru liðin 22 ár síðan siðast var farið í fræsöfnunarferð til Alaska. Óli Valur sagði að fyrirhugaður leiðangur yrði fjárfrekur vegna kostnaðarsamra og víðtækra ferðalaga, svo og flutnings á söfn- unarefni til íslands. Bjóst hann við að ferðin tæki 4—6 vikur fyrir þrjá menn og að kostnaður yrði um 700 þúsund kr. Til að fjár- magna ferðina hefur hann leitað eftir fjárstuðningi hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum og hef- ur þegar fengið loforð um liðveislu sem nemur um 400 þúsund kr. Mest munar um framlög frá Reykjavíkurborg og Stofnlána- deild landbúnaðarins, sem leggja fram 100 þúsund kr. hvor aðili, en aðrir leggja yfirleitt fram 2 til 25 þúsund kr. Þetta sagði Óli Valur að dygði engah veginn til og sagði vafasamt að af leiðangrinum gæti orðið ef ekki kæmu til verulegir fjármunir til viðbótar. Selfoss: Mjög lágur vatns- þrýstingur veldur fólki óþægindum Selfowi, 31. júlí. ÞRÝSTINGUR á köldu vatni á Selfossi er mjög lítill þessa dag- ana og hefur reyndar verið um nokkurt skeið. Þessi lági þrýstingur veldur fólki óþægindum, einkum þegar nota þarf heitt og kalt vatn saman, s.s. við sturtubað. Fastagestir Sundhallar Sel- foss standa fyrir undirskrifta- söfnun og hyggjast skora á bæjaryfirvöld að bæta úr því ástandi og óþægindum sem þrýstingsleysi kalda vatnsins veldur baðgestum Sundhallar- innar. 1 Sundhöllinni er nýbúið að setja upp ný steypiböð með sjáifvirkum búnaði sem virkar illa eða ekki vegna hins lága vatnsþrýstings. Ekki eru horfur á að þetta ástand lagist fyrr en byggður hefur verið vatnstankur sem fyrirhugað er að reisa á lóð nærri Biskupstungnabrautinni ofan við kaupstaðinn. SigJóns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.