Morgunblaðið - 08.08.1985, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
Ingrid Krisliansen kemur í mark á nýju heimsmeti ( 10 km hlaupi.
Ingrid keppir á Laugardalsvelli um helgina í Evrópubikarkeppninni,
þegar oröin margmilljóneri af
hlaupunum.
Hlaupatekjurnar liggja þó ekki á
lausu, eru geymdar á reikningi í
vörzlu norska frjálsíþróttasam-
bandsins, eins og reglur kveöa á
um. Þar skulu þær liggja og borg-
ast ekki út fyrr en hún hættir
keppni.
Athyglisvert er aö norsku
hlaupakonurnar tvær, Ingrid Kristi-
ansen og Grete Waitz, frægustu
iþróttamenn Noregs í dag, mætast
líklega ekki á hlaupabrautinni á
þessu ári, enda þótt Ingrid segist
ólm í aö sigra Grete í einhverju
stóru maraþonhlaupanna. Sam-
kvæmt keppnisáætlun þeirra mæt-
ast þær ekki í keppni nema Ingrid
hlaupi New York-maraþonhlaupiö í
haust. Hefur hún hins vegar valiö
aö hlaupa viku fyrr í Chicago og
ætlar aö undirbúa sig fyrir hlaupiö
meö mánaöardvöl í Colorado meö
manni og syni á kostnaö móts-
haldara í Chicago. — ágás
Úrslit 5. flokks
hefjast í dag
ÚRSLITAKEPPNI 5. aldursflokks í
knattspyrnu fer fram á KR-velli
og hefst riölakeppnin í dag,
fimmtudag. Úrslitin fara síðan
fram á sunnudag.
Átta liö leika i úrslitakeppninni,
það eru KR, Þróttur, Höttur og FH
sem leika í A-riöli. i B-riöli leika
Valur, Þór Ak., Grindavík og Fram.
Leikiö veröur á tveimur völlum
samtímis. í dag hefst keppnin kl.
18.00. Þá leika í A-riöli KR og
Þróttur og FH og Höttur. Kl. 19.10
leika í B-riðli Fram og Valur og
Grindavík og Þór Ak.
Föstudagur:
Kl. 18.00. A-riöill KR—Höttur og
Fram—Grindavik í B-riöili.
Kl. 19.10. B-riöill Valur—Þór Ak.
og í A-riöli leika FH og Kr.
Laugardagur:
Kl. 10.00. KR—Höttur í A-riöli og
Þróttur—FH í sama riðli.
Kl. 11.10. Grindavík—Valur (
B-riöli og einnig Þór Ak. og Fram.
Sunnudagur:
Kl. 10.00. Leikiö um 7. sætiö, einn-
ig um 5. sætiö.
Kl. 11.15. Leikiö um 3. sætiö og kl.
12.30 leikiö um fslandsmeistaratit-
ilinn.
Þorgrímur
hjá Brann
VALSMADURINN Þorgrímur Þrá-
insson, landsliösbakvöröur í
knattspyrnu, hefur dvaliö í Noregi
síöustu daga og athugaö aðstæö-
ur hjá 1. deildarliöinu Brann sem
Bjarni Sigurösson, félagi hans úr
landsliöinu, leikur meö.
Þorgrímur hefur veriö á æfing-
um hjá Brann aö undanförnu og
hefur veriö nokkuö ánægöur með
dvölina. Hann ætlaöi aö fylgjast
meö liöinu er þaö lék gegn Valer-
engen í gærkvöldi, í fyrsta leik
norsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu eftir sumarfrí þar ytra.
Þorgrimur mun ekki koma til
meö aö fara til félagsins á þessu
keppnistímabili, en þaö gæti allt
gerst á því næsta.
Úrslitaleikurinn í eldri flokki
(Old boys) í knattspyrnu fer
fram á Kópavogsvelli kl. 19.00 í
kvöld. Þar eigast vió Valur og
Akranes.
Þaö veröur án efa hart barist í
úrslitaleik Islandsmótsins í eldri
aldursflokki i kvöld. Þarna veröa
margir kunnir knattspyrnumenn
sem hafa ekki lagt skóna alfariö
á hilluna. I liöi Vals eru kappar
eins og Hermann Gunnarsson,
Vilhjálmur Kjartansson, lan Ross,
Siguröur Haraldsson, markvörö-
ur, Birgir Einarsson og Alexander
Jóhannsson. Liöið hefur ekki
tapaö leik i mótinu, aöeins gert
eitt jafntefli viö Þrótt, 2—2. Þeir
hafa unniö Fram 4—1, Víking
2—0, Selfoss 8—0 og Reyni,
Sandgeröi, 2—0. Hermann er
markahæstur Valsmanna meö 9
mörk af 18. Alexander hefur
skoraö fjögur.
í liöi Akraness eru margir
kunnir kappar eins og Matthías
Hallgrímsson, Jón Gunnlaugs-
son, Björn Lárusson, Þröstur
Stefánsson og Davíö Kristjáns-
son, markvöröur. Jón Gunn-
laugsson hefur skoraö flest mörk
Skagamanna eöa 10. Matthías
hefur gert 8, en ætlar aö vinna
þaö upp í leiknum gegn Val og
komast upp fyrir Jón.
Liöiö hefur ekki tapaö leik eins
og Valsmenn í mótinu og hafa
þeir aöeins gert eitt jafntefli, þaö
var viö Breiöablik, 1 — 1.
Þeir unnu m.a. Hauka 5—0,
Keflavík 5—2 og FH 4—1.
Þaö veröur því spennandi aö
sjá hvort liöið fer meö sigur af
hólmi i kvöld og stendur uppi
sem islandsmeistarar 1985. í
eldri aldursflokki leika eingöngu
leikmenn sem eru 30 ára og
eldri.
— Ingrid Kristiansen keppir hér um helgina
• Þeir veröa í sviósljósinu í kvöld, fyrrum markekóngar 1. deildar,
þeir Hermann Gunnarsson og Matthías Hallgrímsson. Valur og ÍA
leika til úrslita í eldri aldursflokki (Old boys) í kvöld.
Valur — ÍA í kvöld
Úrslitaleikurinn í eldri flokki
MESTA hlaupakona heims um
þessar mundir, Ingrid Kristian-
sen frá Noregi, kemur til islands í
dag, en á laugardag og sunnudag
keppír hún á Laugardalsvelli, í
Evrópubikarkeppninni i frjáls-
íþróttum. Ingrid setti í lok júlf
glæsilegt heímsmet i 10 kiló-
metra hlaupi og í apríl stórbætti
hún heimsmetió í maraþon-
hlaupi. Aöeins tveir karlmenn ís-
lenzkir eiga betri tíma i 10 km
hlaupi en Ingrid. í fyrra varö hún
fyrst kvenna til aö hlaupa 5 kíló-
metra á tæplega 15 mínútum. Á
hún því heimsmet í 5 km, 10 km
og maraþonhlaupi. Um tíma var
hún eini frjálsíþróttamaóurinn
sem samtímis átti þrjú heimsmet,
eöa þar til brezki stórhlauparinn
Steve Cram, sem vió sögóum frá
í gær, setti sitt þriöja met.
Lengi var Ingrid Kristiansen,
húsmóöirin á Holmenkollen-
ásnum, i skugga löndu sinnar,
Grete Waitz, en nú hefur þaö snú-
izt viö. Á meðan lítiö heyrizt til
Grete, á Ingrid hvert stórhlaupiö af
ööru. Þar sem Ingrid fær góöa
hlaupara frá írlandi og Belgíu aö
kljást viö á Laugardalsvelli má allt
eins búast viö aö vallarmetiö i
3.000 metra hlaupi falli, en þaö er í
eigu Grete Waitz. Hefur Ingrid
reytt skrautfjaörirnar af Grete,
áreynslumikill og orkufrekur, axl-
irnar stífar og sveiflist um of.
Kveöst hún jafnan reyna aö slaka
á í öxlunum, en þaö gangi bara
ekki betur, þvi hún sé oröin svo
axlastíf af miklum prjónaskap.
Komín 4 mánuði á leiö
Ingrid hefur tekiö þátt í heims-
meistaramótinu í víöavangshlaup-
um með góöum árangri. Hins veg-
ar fannst henni óeölilegt hve illa
gekk á þvi móti í marz 1983. Hafn-
aöi hún i 35. sæti og hélt heim
vonsvikin. Fannst henni eitthvað
há sér á hlaupunum og fór því í
læknisskoöun er heim var komiö.
Þá kom í Ijós aö hún var ófrísk,
komin fjóra mánuöi á leið.
Þrátt fyrir þungunina hljóp
Ingrid eöa hjólaöi fram í áttunda
mánuö. Henni fæddist sonur í ág-
úst en 10 dögum seinna var hún
byrjuð aö hiaupa á ný. Aöeins sex
mánuöum eftir fæöinguna sigraöi
hún í maraþonhlaupi í Houston og
náöi einum bezta tíma á vega-
lengdinni. Skömmu seinna sigraöi
hún Grete Waitz tvisvar á einni
viku og var þaö fyrsta tap Grete
fyrir landa sínum í 14 ár. Um
sumarið þótti Ingrid sigurstrangleg
í maraþonhlaupi á Ólympíuleikun-
um í Los Angeles, en veikindi og
stífar keppnir höföu dregiö af
henni og varö hún í fjóröa sæti,
missti af verölaunasæti á síöustu
metrunum.
í Lundúnamaraþonhlaupinu í
apríl bætti Ingrid Kristiansen
heimsmetiö í maraþonhlaupi
kvenna um hálfa aöra mínútu,
hljóp á 2:21,06 stundum. Árangur-
inn er athyglisveröur þar sem vetr-
arhörkur í Noregi uröu þess vald-
andi aö hún undirbjó sig aö miklu
leyti undir hlaupiö meö þvi aö
hlaupa á sérstöku færibandi heima
í kjallaranum hjá sér.
5 milljónir fyrir methlaupiö
Miklir peningar bjóöast nú á
frjálsíþróttamótum, einkum þó
hlauþum, og fékk Ingrid um 5 millj-
ónir króna íslenzkra í aöra hönd
fyrir Lundúnahlaupið, fyrir sigurinn
og metiö og bónus frá skófram-
leiöandanum, sem hún er á samn-
ing hjá. Aukinn frami, sem jókst
enn frekar meö heimsmetinu í 10
km, færir henni og gífurlegar aug-
lýsingatekjur, þannig aö hún er
Ingrid meö syninum Gaute. Hún
var komin fjóra mánuói á leió án
þess aö vita um þungunina er
hún keppti í heimsmeistaramót-
inu í víðavangshlaupi 1983.
eina af annarri frá í fyrrasumar, og
veröur þar líklega engin breyting á
um helgina.
Ingrid þykir ekki hafa mjög fagr-
an hlaupastíl, limaburöurinn
Byrjaði ung
Ingrid Kristiansen fæddist í
Þrándheimi og er eini íþróttamaö-
urinn í ættinni. Ung byrjaöi hún aö
hlaupa og keppti á Evrópumeist-
aramótinu í Helsinki 1971, aöeins
15 ára gömul, í lengstu keppnis-
grein kvenna á þeim tíma, 1500
metra hlaupi. Kveöst hún þá hafa
veriö lítil og reynslulaus stelpa,
enda lauk hún ekki hlaupi.
Sneri hún sér í auknum mæli aö
skíöagöngu en keppti í hlaupum á
sumrin. Komst hún í fremstu röö
norskra skíöagöngukvenna, sem
eru í fremstu röö í heiminum, og
keppti m.a. á vetrarólympíuleikun-
um í Innsbruck 1976. Áriö 1978
keppti hún bæöi á heimsmeistara-
mótinu á skíöum og Evrópu-
meistaramótinu í frjálsíþróttum.
Eftir mótiö í Prag, þar sem hún
varö í 9. sæti í 3000 metra hlaupi,
ákvaö hún aö snúa sér meir aö
hlaupum þar sem skíöagangan
væri of tímafrek. Er hún nú meö
þriöja bezta árangur í heimi í 3000
metrum, en í þeirri grein keppir
hún í Laugardal.
Axlirnar stífar
af prjónaskap