Morgunblaðið - 08.08.1985, Síða 56
V------------'J
TIL DAOUGRA NOTA
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Flugleiðir:
Selja hlut
sinn í
Sheraton
SHERATON-hótelid í Lúxemborg,
sem var í eigu Flugleiöa aö rúmum
1/5. hiuta, hefur veriö selt sænskum
aöilum fyrir um 45 milljónir Lúx-
emborgarfranka, sem er um þrefalt
nafnverö hlutabréfa.
Sigurður Helgason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, sagði það vera
gamla ákvörðun félagsins að selja
eignarhluta sinn í hótelinu. Hefði
sú ákvörðun verið tekin á erfið-
leikaárum félagins fyrir nokkrum
árum, er ákveðið hefði verið að
selja nokkuð af eignum til að bæta
hag félagsins. Kaupandi hefði þá
ekki fengist, en sú afstaða að selja
hótelið hefði ekkert breyst síðan.
Eitruð vín:
Leitum upp-
lýsinga um leið
og ástæða er til
— segir innkaupa-
stjóri ÁTVR
„ENNÞÁ hefur enginn oröinn veikur
af víni sem flutt er hingað til lands,
en um leiö og ástæða þykir til að leita
upplýsinga um hvort einhver þeirra
tegunda sem hér er á boðstólum hef-
ur að geyma efnið diethylene glycol
verður það gert,“ sagði Svava Bern-
höft, innkaupastjóri Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Svava sagðist aðeins hafa heyrt
getið um að ein tegund frá Vestur-
Þýskalandi hafi verið eitruð, en það
er Oppenheimer Krötenbrunnen,
sem sagt var frá í frétt í Morgun-
blaðinu í gær, en samkvæmt skeyti
frá AP, sem vitnað er í í sömu
frétt, hafði efnið diethylene glycol
fundist i ellefu víntegundum frá
Vestur-Þýskalandi sl. föstudag.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins hefur 25 tegundir af vestur-
þýskum vinum til sölu.
Kjartan Þórólfsson í Borgarspítalanum í gær. Morgunbiaðí»/Sig. Jón8.
„Fann alveg rosalegan kipp
— svo lá ég bara á jörðinni“
Selfossi, 7. ágúsL
„ÉG fann alveg rosalegan kipp og
að ég snerist í hring og svo lá ég
bara á jörðinni," sagði Kjartan
Imrólfsson, 12 ára piltur úr Kópa-
vogi, sem nú liggur á Borgarspítal-
anum eftir að hafa lent í slysi á
Grænhól í Ölfusi. Kjartan axlar- og
lærbrotnaði í slysinu.
Kjartan sagði að hann og ann-
ar strákur, sem einnig er í sveit
á Grænhól, hefðu verið að hjálpa
syni bóndans við að dæla skit
með haugsugu.
„Hann ætlaði inn í fjós,“ sagði
Kjartan, „og ég gerði mér ekki
grein fyrir hvað ég var kominn
nálægt drifskaftinu þegar ég
hleypti honum framhjá mér. Það
vantaði hlífina á drifskaftið, en
þetta hefði ekki gerst, ef hlífin
hefði verið á. Þegar ég stóð upp
var ég ekki í neinu nema stígvél-
unum og hönskunum og með bút
af annarri peysuerminni."
Kjartan sagðist vilja benda
öllum krökkum sem væru í sveit
á að koma ekki nálægt illa út-
búnum vélum. „Ég var heppinn
að ekki fór verr. Það er ekkert
voðalega gaman að hugsa um að
þetta hafi gerst en það sem ég
hugsa um núna er að mér batni
fljótt.
Sig. Jóns
Sjá á bls. 31: „Öll fötin urðu
eftir á drifskaftinu."
Sala hlutabréfa ríkisins í Flugleiðum:
Fjórar fyrirspurnir — ein
raunhæf að mati Alberts
— engir erlendir aöilar standa á bak við tilboð mitt í hlutabréf ríkisins
í Flugleiðum, segir Birkir Baldvinsson í samtali við Morgunblaðið
„ÉG HEF fengið fjórar fyrirspurnir, en ekki bein tilboð. Þrjár
þeirra eru óraunhæfar, en það kæmi mér ekki á óvart að
eitthvað meira gerðist í sambandi við fyrirspurn, sem ég fékk
í dag,“ sagði Albert Guðmundsson fjármálaráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gær um sölu hlutabréfa ríkisins í Flug-
leiðum.
Albert vildi ekki skýra frá því,
hverjir hefðu sýnt hlutabréfun-
um áhuga, en Sigurður Helga-
son, stjórnarformaður Flug-
leiða, þvertók fyrir það í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
á vegum stjórnar Flugleiða, eða
hans eigin, væri tilboð í undir-
búningi og kvaðst ekki vita til
slíks hjá öðrum aðilum.
Birkir Baldvinsson í Lúxem-
borg, sem gert hefur tilboð í
hlutabréf ríkisins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að hann einn stæði að
tilboðinu. í samtaiinu rakti
Birkir viðskiptaferil sinn og
sagði að honum hefði einkum
græðst fé á sölu varahluta í
Rolls Royce-vélar og með kaup-
um á DC-8 62-flugvélum af Jap-
an Airlines, sem nú hefðu
fimmfaldast í verði frá þeim
kaupum.
Albert Guðmundsson sagði að
í þeim fyrirspurnum, sem hann
mæti óraunhæfar, væru meðal
annars hugmyndir um að greiða
bréfin með lánum til langs tíma
og slíkt kæmi ekki til greina að
hans mati. Um tilboð Birkis
sagði fjármálaráðherra, að
greiðsluskilmálar hans væru
ekki óaðgengilegir, þótt þeir
mættu vera betri. Albert sagði
að tilboð Birkis stæði til föstu-
dagskvölds.
„Þetta er búið að vera vel
auglýst til sölu og ef einhverjir
eru að hugsa sig um og verða of
seinir geta þeir sjálfum sér um
kennt," sagði fjármálaráðherra,
þegar hann var spurður, hvort
tíminn til föstudagskvölds dygði
að hans mati nýjum aðila til að
gera tilboð í hlutabréf ríkisins.
Sjá bls. 2: Enginn stendur á
bak við mig í þessu tilboði
nema konan mín — samtal við
Birki Baldvinsson.
Pétur til
Akraness
PÉTUR Pétursson, miðherji ís-
lenzka landsliðsins í knattspyrnu,
hefur ákveðið að snúa heim úr at-
vinnuknattspyrnu í bili a.m.k. og
leika með sínu gamla félagi, íþrótta-
bandalagi Akraness.
Belgíska félagið Antwerpen, þar
sem Pétur er á samningi, hefur
fallist á félagaskiptin. Verður Pét-
ur löglegur með ÍA 25. ágúst nk. ef
áætlanir standast og getur hann
leikið 4 síðustu leiki liðsins í ís-
landsmótinu og tvo Evrópuleiki.
Sjá „Pétur gengur frá félaga-
skiptum í ÍA“ á íþróttasíðu, bls.
55.