Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 3

Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1985 3 Miklu fleiri falla nú á bílprófinu BIFREIÐAEIGN landsmanna hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin og eru nú rúmlega 420 fólksbílar á hverja þúsund íbúa hérlendis. I»etta kemur fram í ársskýrslu Bifreiðaeft- irlits ríkisins fyrir árið 1984 sem kom út nýlega. Alls áttu íslendingar 101.602 fólksbíla í árslók 1984 auk 11.560 vörubíla. Bifreiðaeftirlitið spáir því að eftir tuttugu ár verði vöru- bílaeign svipuð en fólksbílar um 140.000 talsins. í skýrslunni kemur einnig fram að nýskráningum bifreiða hefur fjölgað verulega en afskráningum fækkað. Umskráningar eru viðlíka margar. Það virðist því færast í vöxt að menn kaupi nýja bíla hér- lendis. Starfsemi Bifreiðaeftirlitsins hefur verið með sama sniði og og undanfarin ár. Helsta breytingin sem orðið hefur á starfseminni er mikil endurbót á ökukennslu og ökuprófum. Nýtt námsefni hefur verið útbúið fyrir nemendur auk leiðbeininga fyrir ökukennara. Er því bílprófið orðið öllu erfiðara en áður, enda hefur fall stóraukist, var 9,8 prósent árið 1983 en 17,0 prósent í fyrra. í skýrslunni er lát- in í Ijós sú von að þetta skili sér í bættum ökuvenjum landsmanna. Það virðist aukast að fólk taki bílpróf um leið og það hefur aldur til, en langflestir þeirra sem fengu almenn ökuréttindi á síðasta ári voru 17 ára gamlir. Bifreiðaeftirlitið vinnur að því að bæta aðstöðu sína þótt ekki hafi mikið bæst við af húsnæði síðastliðið ár. Ennfremur er unnið að þvi að tengja alla tölvuskjái, sem eru í notkun á skrifstofum Bifreiðaeftirlitsins um allt land, Skýrsluvélum ríkisins. Unnið að endurbótum á botni djúpu laugarinnar. Morgunblaöið/Árni Sæberg Sundhöllin í SUNDHÖLL Reykjavíkur hefur verið lokuð í rúmlega mánuð, eins þeir vita líklega glöggt sem þangað venja komur sínar. Ástæðan fyrir þessari lokun er sú að verið er að endurnýja hreinsibúnað laugarinn- ar og gera lagfæringar á baðklefa kvenna. Að sögn Ómars Einarssonar formanns Æskulýðsráðs eru þetta ansi viðamiklar fram- kvæmdir og kostnaðarsamar. Alls er gert ráð fyrir að verkið kosti um tvær milljónir króna. Skipt verður um alla hreinsikúta undir lauginni og nýir stútar settir á vatnsdælurnar. Eins verða allar lagnir til og frá laug- inni endurnýjaðar. Upphaflega stóð til að láta endurnýjun hreinsibúnaðarins nægja en þegar farið var að at- huga betur alla innviðu hallar- innar kom í ljós að öll rör í baðklefa kvenna voru orðin gjör- ónýt. Ekkert hefur verið endur- nýjað svo heitið geti í Sundhöll- inni frá því hún var fyrst tekin í notkun. Sundhöllin verður opnuð aftur 1. september næstkomandi. Þá verður viðgerð á lauginni sjálfri lokið en hins vegar er ekki víst að baðklefi kvenna verði kominn í lag þá. Baðklefarnir verða algerlega endurnýjaðir. UíRZUJNflRBflNKINN -vieuuci ateð þér ! Ennþá meiri sveigjanleiki Vaxtauppbót, þrátt fyrir úttekt. Nú geturðu tekið út af KASKÓ-reikningi þínum einu sinni á vaxtatímabili án þess að missa vaxtauppbótina fyrir það tímabil, nema af úttekinni fjárhæð. DÆMI: 1. júlí ’85 er höfuðstóll reiknings kr. 100.000,-, 1. ágúst ’85 eru teknar út kr. 10.000,-. Fjárhæðin sem tekin var út kr. 10.000,- fær sparisjóðsvexti frá 1. júlí til 1. ágúst, en kr. 90.000,- fá fulla vaxtauppbót í lok vaxtatímabilsins 30. sept. ’85. Önnur lykilatriði KASKÓ-reikningsins: 1. Stöðugur samanburður á kjörum verð- og óverðtryggðra reikninga tryggir raunvexti og verðtryggingu á KASKÓ- reikningum. 2. KASKÓ-reikningurinn er óbundinn og því alltaf hægt að losa fé án fyrirvara. Vaxtauppbót leggst við KASKÓ-reikninginn eftir hvert þriggja mánaða tímabil og reiknast því vaxtavextir fjórum smnum a ari. Velkomin í KASKÓ-hópinn, - þar fá allir öruggá ávöxtun! AUK hl 43 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.