Morgunblaðið - 14.08.1985, Qupperneq 9
■MORGUNBLAi3IÐ,MIOVIXTOA^liRA,4:TAQtj8T,^85
9
Terelynebuxur kr. 895.-, 995.- og 1.095.-
Gallabuxur kr. 865.- og kr. 350.-. Litlar stæröir.
Kvenstæröir kr. 610.-
Sumarbuxur karlm. kr. 785.-
Kvensumarbuxur kr. 350.- til kr. 882.-
Regngallar kr. 1.190.- og kr. 1.350.-
Skyrtur, bolir o.m.fl. ódýrt.
ANDRÉS
Skólavörðustíg 22 A, sími 18250.
allur nýuppbyggöur. Vél katipillar 500 ha. Vél og
tæki allt nýtt. Hugsanlegt að taka 15—25 tonna
bát uppí kaupverð.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Borgartúni 29 sími 25554.
UAZ 452
Verö frá kr. 356.000
ORÐSENDING
TIL KORTHAFA
Aö gefnu tilefni skal það ítrekað, vegna
misskilnings sem sprottið hefur af upp-
lýsingum í fréttabréfi dags. 22. júlí sl., um
ínnáborganír, að eindagi VISA-greiöslna
er 2. hvers mánaðar.
Hafi úttekt síðasta færslutímabils ekki
verið aö fullu greidd á þeim degi er litiö á
þaö sem vanskil, sem varðað geta kort-
sviptingu.
Litlu verður
vöggur feginn
Ástandið innan Alþýðu-
handalagsiiLs er með þeim
hstti, að þar hittast ,,sam-
herjar" aldrei til þess að
skiptast á viðurkenningar-
orðum heldur til þess eins
að skammast. Á þetta jafnt
við um það, þegar alþýðu-
bandalagsmenn ræða sam-
an einslega eða skiptast á
orðsendingum í l'jóðviljan-
um. Málgagnið sjálft er
einnig skotspónn margra
og stjórnendur þess eiga í
fá skjól að leita.
Á laugardaginn var því
sérstaklega fagnað í Al-
þýðublaðinu, að l'jóðviljinn
sá ástæðu til að skrifa leið-
ara um „ritskoðun — vopn
valdhafanna" eins og hann
hét í tilefni af 24 stunda
verkfalli hjá BBC vegna
deilna um útsendingu á
sjónvarpsþætti um norður-
írska hryðjuverkamenn.
Jafnframt átaldi Alþýðu-
blaðið, sem enn hefur ekki
sagt álit sitt á BB( '-málinu,
Morgunblaðið fyrir að hafa
ekki skrifað leiðara um
það, sem gerðist á BBC.
Leiðari um þetta má| — og
hann langur — birtist hins
vegar í Morgunblaðinu á
sunnudaginn. í gær rennur
svo á Þjóðviljamenn gleði
og reiði vegna þessa máls,
annars vegar eru þeir upp-
numdir yfir því, að þeim
skuli hafa verið hrósað í
Alþýðublaðinu — loksins
lét einhver eitthvað já-
kvætt frá sér heyra um
Þjóðviljann — og hins veg-
ar eru þeir meira en lítið
argir í garð Morgunblaös-
ins fyrir að hafa skrifað
leiðara um BBC-málið og
það sem í honum stóð.
Sárastir eru Þjóðvilja-
mennimir yfir þvt, sem á
er bent í Morgunblaðinu,
og þeir geta ekki mótmælt,
að í leiðara Þjóðviljans var
sett samasemmerki milli
ritskoðunar í kommúnista-
ríkjunum og þess sem
gerðist í Bretlandi.
Vondur mál-
staður
Hve málstaður er vond-
ur má oft ráða af þeim að-
ferðum sem beitt er til að
verja hann. í leiðara l>jóð-
viljans í gær er leitast við
Ritskoðun -
vonn valdhafanna
n«i'
LEIÐARI
Morgunblaðið í hlutyerki Prövdu
I vörn vegna samanburðarfræðanna
Enn einu sinni er ástæöa til aö rifja þaö upp, hvaö felst í saman-
buröarfræöunum svonefndu: Þau miöa aö því að bera saman
ástand í lýöræöisríkjunum annars vegar og alræöisríkjum komm-
únista hins vegar og komast aö þeirri niðurstöðu, aö ástandiö sé
aö minnsta kosti ívið verra i lýðræðisríkjunum. Á notkun þessara
fræöa var bent i forystugrein Morgunblaðsins á sunnudag og
vitnaö til Þjóöviljans og afstööu hans til ritskoöunar í austri og
vestri af því tilefni. Þjóðviljinn svaraöi i gær. Um þaö svar er rætt
í Staksteinum í dag.
að færa rök að þeirri skoð-
un að það sé „raunveruleg
skoðun Morgunblaðsins,
að ritskoðun í NATO-ríkj-
um sé betri en ritskoðun í
Varsjárbandalagsríkju m“.
I>essa skoðun sína reynir
Þjóðviljinn meðal annars
aö rökstyðja með þessum
orðum: „Morgunblaðið
segir að ekki sé hægt að
bera saman ritskoðun í
Austur-Evrópu og ritskoð-
un á Vesturlöndum
„ncma“, segir Morgun-
blaðið orðrétt, „menn vilji
gera hlut kommúnistanna
sem bestan, en það er ein-
mitt helsta markmið sam-
anburðarfræðinganna á
l>jóðviljanum.““
Var það þetta, sem
Morgunblaðið sagði? Les-
endum Staksteina skal gef-
inn kostur á að dæma um
það sjálfir með því að
endurbirta þennan tilvitn-
aða kafla úr forystugrein
Morgunblaðsins á sunnu-
daginn eins og hann er
„Auðvitað er ekki unnt að
bera saman stöðu BBC og
þeirra útvarpsstöðva sem
kommúnistastjórnirnar
reka, nema menn vilji gera
hlut kommúnistanna sem
bestan, en það er einmitt
markmið samanburðar-
fræðinganna á l'jóðviljan-
um.“
Eins og af þessum orð-
um sést var Morgunblaðið
ekki að bera saman neina
ritskoðun í austri og vestri
heldur leggja út af því,
hvernig staðið væri að
ríkisreknum útvarpsrckstri
í lýðræðisríkjum annars
vegar og kommúnistaríkj-
um hins vegar.
Seinheppni
Þjóðviljans
l>essi útúrsnúningur er
ekki hinn eini sem lesa má
í Þjóðviljanum í gær. í siö-
ustu viku birti Morgun-
blaðið þrjár fróðlegar
greinar um ferð ungra
sjálfstæðismanna til Kína.
Var þetta ferðasaga í hefð-
bundnum stfl og því lýst
sem fyrir augu bar, meðal
annars þeim merkjum sem
sjáanleg voru um frjáls-
hyggju-stökk Kínverja í
efnahagsmálum. Af þessu
tilefni segir Þjóðviljinn að
Morgunblaðið megi „vart
mæla af hrifningu yflr
ágæti hins kínverska kerf-
is“ — blaðið ncfur þó ekk-
ert sagt um þetta kerfl. Og
svo er Þjóðviljinn hinn
versti yflr því, að Morgun-
blaðið hefur sagt sannleik-
ann um áróðursmót æsk-
unnar á vegum Kremlverja
í Moskvu. I öllum æsipgn-
um hcfur það greinilega
faríð fram hjá ritstjóra
Þjóðviljans, aö Eiríkur Ing-
ólfsson, höfundur grein-
anna um Kínaferðina, rit-
aði bréf til Morgunblaðs-
ins og mælti því bót í nafni
/Eskulýðssambands fs-
lands, að íslensk ungmenni
færu á áróðursmótið í
Moskvu.
Sammála um
misskilníng
Alþýðublaðið og Þjóðvilj-
inn eru sammála um það í
skrifum sínum um Morg-
unblaðiö í forystugreinum
á laugardag og þriðjudag,
að blaðið sé eins og
Pravda, málgagn Kreml-
verja, það þegi um það sem
því sýnist eða helst það,
sem öðrum sýnisL Sé þetta
helsta einkenni Prövdu þá
vita talsmenn jafnaðar-
stefnu og sósíalLsma meira
um það, hvað stendur og
stendur ekki í Prövdu en
flestir aðrir, en sjá greini-
lega ekki það sem stendur
í Morgunblaðinu, nema
þegar þeim hentar. Hvað
menn vilja kalla ritskoðun
af þcssu tagi er sérstakt
umhugsunarefni.
Hitt hefur löngum verið
alþekkt að útúrsnúningar
eins og þeir sem Alþýðu-
blaðið og Þjóðviljinn hafa
beitt til að ná samstöðu um
þann misskilning, sem hér
hefur verið gerður að um-
ræðuefni, duga sjaldan
lengi til að sameina is-
lenska vinstrisinna — en
kannski hafa þessi flokks-
blöð loksins fundið verðug-
an samnefnara? Prövdu.
eru öðruvísi!
awM
Vörumarkaðurinn ht.
J Ármúla 1A, símí 91-él!fffiL