Morgunblaðið - 14.08.1985, Side 25
Yfirheyrsla meints
samsærismanns í tilræði við páfa:
MÖRGÚNBLAÐIÐ, MIÖVIKLtoÁGUR1 llV. Á:ÖtJSiItl985
25
Markverðar upplýs-
ingar komnar í ljós
— segir talsmaður yfirheyrslumanna
Hochum, 13. átfúst. AP.
SENDINEFND ital.skra dómara yfírheyrði í dag í Vestur-Þýskalandi Tyrkja
sem yfírvöld gruna að hafí verið samstarfsmaður tilræðismanns páfa, Meh-
met Ali Agca, og sagði formælandi sendinefndarinnar að yfírheyrslan hefði
varpað nýju Ijósi á málið. Yfírheyrslurnar hófust á mánudag.
Talsmaðurinn, Arnjo Kersing-
tombroke, sagði að yfirheyrslan
hefði borið ávöxt og markverðar
upplýsingar fengist, en þær tækju
viku enn ef svör ættu að fást við
þeim spurningum sem enn er
ósvarað. Talsmaðurinn vildi ekki
fara nánar út í árangur yfir-
heyrslunnar.
Hann sagði að hinum grunaða,
Yalcin Ozbey, hefði aðeins gefist
tími til að svara fjórum spurning-
um af 130 á mánudag.
ítalska sendinefndin, sem telur
19 manns, yfirheyrði Ozbey sex
tíma á mánudag, en hann situr í
fangelsi í Bochum kærður fyrir
fölsun og fjársvik.
Sendinefndin leitar að sönnun-
argögnum fyrir réttarhöld í Róm
yfir fjórum Tyrkjum og þremur
Búlgörum fyrir að vera samsekir í
skotárásinni á Jóhannes Pál páfa
II 13. maí 1981.
Ozbey sagði i skriflegri yfirlýs-
ingu til rannsóknarmanna að
hann vissi allt um samsærið um
að ráða páfa af dögum og að fjórir
Tyrkir hefðu verið á Péturstorgi í
Róm þegar tilræðið átti sér stað.
GENGI
GJALDMIÐLA
London, 13. ájpíst. AP.
DOLLARINN féll í dag í kjölfar
yfírlýsingar Bandaríkjastjórnar
um að smásala befði minnkað
um 1,4 prósent í júní og leiðrétti
þar með fyrri yfírlýsingu um að-
eins 0,8 prósent samdrátt í smá-
sölu.
Það hafði því lítil áhrif að
aukning smásölu hefði verið
0,4 prósent í júlí.
í Tókýó kostaði Bandaríkja-
dollari 236,80 jen (237,30), en
237,20 í London.
1 London fengust síðdegis í
dag 1,3925 dollarar fyrir sterl-
ingspundið (1,3775).
Gengi dollarans gagnvart
öðrum helstu gjaldmiðlum var
annars þannig að fyrir dollar-
ann fengust:
2,7865 vestur-þýsk mörk (2,7985)
2,2970 svissneskir frankar (2,3058)
8,5075 franskir frankar (8,5550)
3,1320 hollensk gyllini (3,1470)
1.886,00 ítalskar lírur (1.887,50)
1,3581 kanadískir dollarar (1,3595).
Vínhneykslið:
Ráðherra og embættis-
menn reknir frá starfi
Mainz, Vestur-I*ý8kalandi, 13. ágúst. AP.
EINN ráðherra og tveir embættis-
menn í vínræktarríkinu Rheinland-
Pfalz ■ Vestur-I>ýskalandi voru rekn-
ir í dag og sagði Bernhard Vogel,
forsætisráðherra Rheinland-Pfalz,
að það væri vegna vinnubragða
þeirra í eiturvínhneykslinu.
Sagði Vogel að hann hefði
heimtað afsögn Ferdinands
Starks, landbúnaðar- og vínráð-
herra þar sem hann hefði brugðist
vitlaust við þegar honum varð
kunnugt að austurrísk vín væru
blönduð diethylenglykol og að-
gerðir hans hefðu borið lélegri
dómgreind vitni.
Sagði Vogel ennfremur að emb-
ættismennirnir tveir hefðu verið
settir til annarra starfa.
Alain og Sophie Turenge. Þau hafa verið ákærð í Auckland fyrir morð og að
sprengja Rainbow Warrior.
Rainbow Warrior:
Hin grunuðu fyrir rétt
AuckUnd, 13. ágúflC AP.
FRÖNSKUM/ELANDI karl og kona koma fyrir rétt á Nýja-Sjálandi á
morgun, miðvikudag, kærð fyrir morð og íkveikju í Greenpeace-skipinu
Rainbow Warrior.
Talsmaður lögreglunnar í
Auckland sagði að ekki hefðu ver-
ið borin kennsl á skötuhjúin og
eru þau ákærð undir nöfnum þeim
sem standa í fölsuðum svissnesk-
um vegabréfum þeirra: Alain og
Sophie Turenge.
Ríkisrekna útvarpsstöðin
France Inter hélt fram á laugar-
dag að þau væru yfirmenn úr
franska hernum, en það hefur ekki
verið staðfest.
Leit að þriggja manna áhöfn
franskrar snekkju sem var í höfn-
inni í Auckland þegar Rainbow
Warrior sökk hefur engan árang-
ur borið.
j*JLI i
Simamynd AP
Að-
skilnaðar-
stefnunni
mótmælt
Skemmtikrafturinn Harry
Belafonte hlýðir á rædu á
mótmælafundi gegn aðskiln-
aðarstefnunni í Suður-Afríku
sem haldinn var á mánudag
fyrir framan Hvíta húsið í -
Washington. Við hlið hans
situr Coretta Scott King,
ekkja Martins Luthers King
heitins.
Noregur:
Onæmistæring greindist
hjá tveimur blóðgjöfum
Ósló, 13. íkúsL Krá rrélUrilara Morgunbl*ftflin«.
í RÍKISSPÍTALANUM í Akershus-fylki hefur ónæmistæringarveiran
HTLV-3 fundist hjá tveimur blóðgjöfum. Hefði blóð þeirra verið gefið
öðrum athugunarlausl, hefðu 24 sjúklingar getað smitast.
í Noregi eru nú uppi háværar
kröfur um, að blóðgjöfum verði
gert skylt að gangast undir próf-
un fyrir blóðgjöf.
Fram að þessu hefur norska
landlæknisembættið ekki fyrir-
skipað blóðbönkum landsins að
ganga úr skugga um, hvort blóð
frá blóðgjöfum inniheldur
ónæmistæringarveiru, áður en
það er gefið sjúklingum. Reglu-
gerð þar að lútandi tekur fyrst
gildi í haust.
„Við verðum að bíða, þangað
til heilbrigðiskerfið verður fært
um að annast blóðgjafa, sem
ónæmistæring greinist hjá; þeir
þarfnast bæði andlegrar og lík-
amlegrar aðstoðar," segir land-
læknir, Torbjörn Mork. „Við ráð-
um ekki við þetta verkefni enn
sem komið er.“
Margir telja landlækni tvístíg-
andi í afstöðu sinni og gagnrýna
hann harkalega. Þeir benda á, að
sjúkdómurinn geti breiðst út til
margra saklausra sjúklinga,
verði blóðgjöfum ekki þegar gert
að undirgangast prófun. Að
þeirra áliti eiga sjúklingar kröfu
á að ganga að því sem vísu, að
blóð, sem þeim er gefið, sé laust
við smit.
Forstöðumenn allmargra blóð-
banka eru heldur ekki sömu
skoðunar og landlæknir. Hafa
þeir að eigin frumkvæði ráðist í
kaup á búnaði til að kleift sé að
annast þessi blóðpróf.
Ríkisspítalinn í Akershus-
fylki hefur eigin blóðbanka og
þar uppgötvaðist ónæmistær-
ingarveira hjá tveimur blóðgjöf-
um.
„Það er furðulegt, að land-
læknir skuli vilja bíða með að
fyrirskipa skyldupróf á blóðgjöf-
um,“ segir Gerd Selset, yfirlækn-
ir blóðbankans. „I millitíðinni
getur blóðgjafi með ónæmistær-
ingarveiru gefið eins mikið blóð
og hann kærir sig um, án þess að
uppvíst verði. Ef við ætlum
okkar að koma í veg fyrir stór-
fellda útbreiðslu þessa sjúk-
dóms, verður fyrst að sjá fyrir
því, að engir blóðgjafar séu með
HTLV-veiruna,“ segir hún.
Við kappkostum að hafa ávallt til afgrelðslu flestar dekkja-
stærðir fyrir lyftara, stærri tæki og vélar. Bjóðum dekk frá
Þýskalandi, Taiwan, Frakklandi og Ameríku. Sérpöntum með
stuttum fyrirvara „massív“ dekk. Sölusíminn er 91-28411 frá
8.30-18.00.
18x7-8 14 PR 700x15 12 PR
500-8 8PR 750x15 12 PR
600-9 10 PR 825x15 12 PR
650-10 10 PR 600-15 8PR
23x9-10 16 PR 10.5x18 8PR
750-10 12 PR 12.0-18 12 PR
700-12 12 PR 10.5x20 10 PR
27x1012 12 PR 12.5x20 10 PR
16/70x20 10 PR 14.5x20 10 PR
HRINGIDI
I
191-28411;
og talið við Snorra,
Jhannveit allt umdekkin
I
/u /lusturbakki hf.
1 BORGARTUNI20