Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 33

Morgunblaðið - 14.08.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁQÚST 1985 33 Verpið og Stekkjarkvörnin í Álfti. Það er nóg vatn í ánni er myndin er tekin. Ef ætti að gera sér í hugarlund ástandið nú, mætti draga frá helming af vatninu eða svo ... Reytist úr Álftá „Þetta hefur gengið svona rétt þokkalega, e.t.v. vel miðað við að vatnið í ánni erákaflega lítið og hefur verið svo í allt sumar, en farið versnandi. Það eru líklega komnir milli 120 og 130 laxar á land og á bestu dögunum fást svona 10—12 laxar á þrjár stang- ir. Þeir eru farnir að troða sér upp ána og hafa veiðst lúsugir síðustu daga,“ sagði Páll Þorsteinsson bóndi í Alftártungu, aðspurður um gang mála í Álftá á Mýrum. Páll spáði því að veðurbreyt- ingar yrðu varla fyrr en með Höf- uðdeginum, þá væru sólstöðu- straumar og reynslan sýndi að veðurbreytingar væru eigi ótíðar í tengslum við það. „Eftir svona langa staðviðrakafla þarf oft tölu- verðan undirbúning áður en breyting verður," sagði Páll. Lax- inn er smærri en oft áður í Álftá, meðalþunginn 5—6 pund og lítið um þá stóru sem annars setja svip sinn á aflann flest sumur. „Sá stærsti er 16 pund,“ sagði Páll og bætti við að lokum, að lax væri víða að finna í ánni, en bestu veiðistaðirnir hefðu verið Kerfoss og Lambafoss. Veitt er með 3 stöngum í Álftá til 20. ágúst, en þá fækkar þeim í tvær. Vatnsdalsá á uppleið „Þetta hefur gengið bara fjári vel og má heita að það hafi verið nóg af laxi siðan 18. júlí eða svo. Erfitt veður gerði veiðimönnum hins vegar grikk sem þá voru og gerir enn, því þrálát norðanveður hafa verið ríkjandi í nær allt sumar. Veiðin jókst hins vegar verulega þegar útlendingarnir hættu um mánaðamótin, því þeir notuðu einungis flugu og veðrið gerði þeim erfitt fyrir. Nú eru ís- lendingar að og veiða þeir jöfnum höndum á flugu, spón og maðk,“ sagði Gylfi Gunnarsson veiðivörð- ur við Vatnsdalsá í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Gylfi sagði að veiðin hefði verið jöfn og góð eftir að þeir erlendu hættu, engir toppar í fyrsta „holl- inu“ eins og svo algengt er. „Þeir fengu 13 laxa á 6 stangir í eftir- miðdaginn í gær og helmingurinn af laxinum var grálúsugur. Það var mjög lík veiði og verið hefur og komnir eru hart nær 500 laxar úr ánni allri. Talsvert af laxi hef- ur veiðst á silungasvæðinu, 12 einn daginn, og um 40 fiskar hafa veiðst milli Stekkjarfoss og Dals- foss, en seld er ein stöng milli fossa,“ sagði Gylfi. Hann sagði jafnframt, að megnið af laxinum væri 5—7 punda, en einn og einn 11 — 12 punda lax slæddist með í aflanum, þetta lofaði mjög góðu fyrir næstu sumur og afar góðu fyrir lokasprettinn ef veðurlag breytist til hins betra. „Það er mikill lax í ánni og dreifður, þetta er þegar orðið betra en allt síð- asta sumar og gæti orðið miklu betra ef veðrið breytist," bætti Gylfi við. Stærsti laxinn í sumar vó 17 pund og er ár og dagur síðan slík- ur fiskur var kóngur í Vatnsdal. Veiðimenn hafa hins vegar séð nokkuð af stórlaxi sem áin er svo fræg fyrir og í júlí glímdu tveir Bandaríkjamenn lengi við mikla bolta sem sluppu á endanum. Annar laxinn tók í Hnausastreng, hinn í Krubbu. A.m.k. einn sem álitinn er um 30 pund er að leika sér í Hnausastrengnum þessa dagana. Sá veiðistaður hefur verið bestur í sumar eins og fyrri dag- inn, næst má nefna Bjarnastein og Gilárkrók. Bestu flugurnar í sumar hafa verið Hairy Mary, Black and Blue, Sweep og Night Hawk. Black Sheep er að gefa eft- ir. Kynningarfundur um hval- rannsóknir og fyrirhugað- ar veiðar í vísindaskyni Hafrannsóknastofnunin efnir til kynningarfundar um hvalrannsóknir hér á landi og fyrirhugaðar veiðar í vísindaskyni á næstu fjórum árum nk. fóstudag, 16 ágúst. Flutt verða sjö stutt erindi um markmið og framkvæmd rann- sóknaáætlunar Hafrannsókna- stofnunarinnar, um gerð reiknilík- ana af hvalastofnum, rannsóknir á próteinmörkum í blóði hvala og athugunum á hormónum og frjó- semi hvala. Þá verða kynntar aðr- ar rannsóknir sem fyrirhugaðar eru á næstu árum, m.a. á hrörnun- arbreytingum í æðum miðtauga- kerfis hvala, á ónæmiskerfi þeirra og rannsóknir erlendra vísinda- manna á helstu dánarorsökum hjá hvölum. Fundurinn er opinn almenningi og hefst klukkan 13.30 að Borgar- túni 6. Helgafell Smásaga eftir Halldór Laxnes gefin út á ensku BÓKAÚTGÁKAN Helgafell hefur gef ið út smásögu llalldórs Laxness, llngfrúin góða og húsið, í enskri þýð- ingu Kenneth G. ('hapman THE HONOUR OF THE HOUSE. Er þetta önnur útgáfa þýðingarinnar sem kom fyrst út 1959. THE HONOUR OF THE HOUSE fjallar um fjölskyldu í sjávarplássi á 3. áratugnum. Fjölskyldan er fína fólkið í plássinu og alltaf nefnd Kólkið í daglegu tali íbúanna og heimili þeirra Húsið. Þetta er saga tveggja systra, Þuríðar, sem er gift syni faktorsins, og Rannveigar, sem er vel að sér til munns og handa og Gestafyrirlest- ur í boði Líffræði- stofnunar HI DR. KRANK Bryant frá The Uni versity of Gcorgia mun halda fyrir- lestur á vegum Líffræðistofnunar Háskólans nk. fimmtudag. Efni fyrirlestrarins mun verða „hitakærar loftfælnar bakteríur, efna- og eðlisþættir þeirra og nýt- ing í iðnaðarferlum". Fyrirlesturinn verður haldinn í húsi Líffræðistofnunar Háskólans að Grensásvegi 12, stofu G-6 og hefst hann klukkan 17.00. Öllum er heimill aðgangur. Halldór Laxness kvenkostur hinn besti en ógift enn- þá. Sagan er ádeila á lífsmáta heldra fólksins og sýndarmennsku. Bókin er 131 bls., kilja. Kápu gerði Ragnheiður Krist- jánsdóttir og prentun og bókband annaðist Prentsmiðjan Hólar hf. Höfðar til -fólksí öllum starfsgreinum! Lnmu HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI Dominova húsgögn Með ótal mögu- leikum má bygg upp að eigin vild Smíðuð úr massívri furu með hvítlökkuðum hlið- um og baki. Þessi hús- gögn eru jafnvönduð og þau eru glæsileg. Verðið ótrúlega hagstætt. Hér á vel við að segja: „Lengi býr að fyrstu gerð“. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.