Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
189. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kína:
55 létu
lífið í
jarð-
skjálfta
PekínK, 24. ígúst AP.
í GÆR, föstudag, létu 55
manns lífið og yfír 100 slös-
uöust í jarðskjálfta í Xinji-
ang-héraði í Vestur-Kína,
nálægt landamærum Kína og
Sovétríkjanna, að því er
jarðskjálftastofnunin í Xinji-
ang sagði í dag. Um 85%
húsa í Wuqia-sýslu hrundu til
grunna.
Aðalkippurinn, sem reið yfir
síðdegis, mældist 7,4 stig á Rich-
ter-kvarða, að sögn embætt-
ismanna, en smærri skjálftar
voru bæði á undan og eftir.
Upptök jarðskjálftanna voru
í Wuqia-sýslu, sem er strjálbýlt
landbúnaðar- og kvikfjárrækt-
arsvæði. Þar létu 19 manns lífið
og 85% húsa hrundu til grunna.
í Wupar-sýslu, sem er næsta
sýsla við Wuqia, fórust 36
manns, að sögn Zhu Lingren,
forstöðumanns jarðskjálfta-
stofnunarinnar.
Hermenn voru kvaddir á
vettvang til að aðstoða við
björgunarstörf ásamt læknum
og hjúkrunarliði.
Margt fólk hefur flust út úr
húsum sínum og hefst við úti
undir beru lofti.
Engar spár höfðu sagt fyrir
um jarðskjálftahrinu þessa.
Xinjiang er mikið jarðskjálfta-
svæði og þar hafa orðið a.m.k.
64 meiriháttar jarðskjálftar frá
árinu 1600.
Kyrrlát fegurð í Hlaupunum í Austurá í Miðfirði, skammt þar fyrir ofan, sem áin rennur í Núpsá. — Sjá grein á forsíðu B-blaðs.
Suöur-Afríka:
Handtóku 18 helstu and-
stæðinga stjórnarinnar
Jóhannesarborg, 24. ágúst. Al*.
LÖGREGLAN í Suður-Afríku skýrði
frá því í dag, að handteknir hefðu
verið 18 helstu andstæðingar stjórn-
arinnar og yfirráða hvítra manna í
landinu. I þeirra hópi er þó ekki
presturinn Allan Boesak, sem verið
hefur framarlega í baráttunni gegn
stjórnvöldum og virðist hann nú fara
huidu höfði.
Meðal hinna handteknu eru Syd
Lockett, prestur við anglíkönsku
kirkjuna, og dr. Farouk Meer, sem
er læknir og formaður samtaka
manna af öllum kynþáttum, sem
berjast gegn aðskilnaðarstefn-
unni. Handtökurnar hófust í
gærkvöld, skömmu eftir að Boesak
skýrði frá því, að efnt yrði til
göngu nk. miðvikudag að
Pollsmoor-fangelsinu og þess
krafist, að Nelson Mandela yrði
Ráðherrar í V-Þýska-
landi á skyndifundum
leystur úr haldi. Mandela, sem lit-
ið er á sem leiðtoga þeirra 24
milljóna svartra manna, sem
byggja Suður-Afríku, hefur verið í
fangelsi frá árinu 1964. Boesak
lagði áherslu á, að gangan yrði
friðsamleg en flestar almennar
samkomur og útifundir hafa verið
bönnuð frá árinu 1976.
Til óeirða kom í 17 byggðum
svartra manna í nótt en ekki er
vitað til, að menn hafi látið lífið í
þeim. í gær féllu hins vegar sex
fyrir kúlum lögreglunnar.
Beirút:
Enn barist
Njósnamálin talin þau alvarlegustu í sögu íýðveldisins
Bonn, Ve8iur-I>ý8kalandi, 24. á((Ú8t. AP.
KÁÐHERRAR vestur-þýsku stjórnarinnar og hátLsettir embættismenn hafa
verið á fundum í dag til að reyna að bjarga því, sem bjargað verður vegna
njósnamálanna, sem upp hafa komið síðustu daga. Hafa menn cinkum
áhyggjur af öryggi vestur-þýskra njósnara í Austur-Pýskalandi og Austur-
Evrópu.
í vestur-þýska sjónvarpinu í
gærkvöld var sagt, að flótti Hans
Joachims Tiedge, háttsetts manns
í gagnnjósnaþjónustu Vestur-
Þýskalands, til Austur-Þýskalands
væri „alvarlegasta njósnamálið,
sem upp hefur komið í sögu lýð-
veldisins". Friedrich Zimmer-
mann, innanríkisráðherra, sem
var í fríi erlendis, sneri í gær heim
vegna þessa máls, sem talsmenn
jafnaðarmanna og stjórnarand-
stöðunnar segja, að sé miklu alvar-
legra en njósnamálið árið 1974,
sem varð til þess, að Willy Brandt
neyddist til að segia af sér. Auk
Tiedges hafa þrír aðrir menn horf-
ið í þessum mánuði og þykir víst,
að þeir hafi verið njósnarar
Austur-Þjóðverja.
Austur-þýska fréttastofan
skýrði frá því í gær, að Tiedge
hefði beðið um pólitískt hæli í
Austur-Þýskalandi en hann var í
19 ár háttsettur maður í vestur-
þýsku gagnnjósnaþjónustunni og
hafði einkum með að gera starf-
semi hennar í Austur-Þýskalandi.
Hans Neusel, háttsettur maður i
vestur-þýska innanríkisráðuneyt-
inu, boðaði í gær til blaðamanna-
fundar og sagði þar m.a., að
njósnamálið væri „alvarleg ógnun
við öryggi þjóðarinnar". Gerhard
Jahn, einn helsti leiðtogi vestur-
þýskra jafnaðarmanna, sagði, að
ef Tiedge hefði vitneskju um
njósnara Vestur-Þjóðverja í
Austur-Evrópu, myndu uppljóstr-
anir hans hafa „skelfilegar afleið-
ingar fyrir þá og öryggi landsins".
Ríkisstjórn Helmuts Kohl hefur
að undanförnu heldur haft á bratt-
ann að sækja í innanlandsmálum
og bæta þessi mál ekki úr skák
fyrir henni.
Reirút, Ltbanon, 24. agust. AP.
í ODDA skarst með kristnum og
múhameóskum herfiokkum í hæóun-
um fyrir ofan Beirút í morgun eftir að
leiðtogar kristinna manna höfðu lagst
gegn því að sýrlenskum eftirliLs-
mönnum yrði leyft að hafa aðsetur í
hinum kristna hluta borgarinnar til að
fylgjast með framkvæmd vopnahlés-
ins.
Herdeildir kristinna úr líbanska
hernum og stjórnarherinn börðust
við hersveitir múhameðstrúar-
manna fyrir dögun í morgun.
Beitt var skriðdrekum og stór-
skotaliði og stóð bardaginn í þrjár
klukkustundir.