Morgunblaðið - 25.08.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
27
Tónlistarhúsið á eftir að skipta
sköpum í íslensku tónlistarlífi.
Meðal annars verður sérstaklega
gætt að öllum þáttum er varða
upptöku efnis. Nú var það svo við
frumhönnun Útvarpshússins að
þar átti að vera sérstakur salur til
upptöku tóniistar. Þegar svo var
ákveðið að sjónvarpið flyttist
þangað líka, þá var þessu breytt.
Þannig er hvorki í byggingu né
fyrirhugaður neinn salur til upp-
töku tónlistar nema í tónlistarhús-
inu væntanlega. Auk fullkominnar
stúdíóaðstöðu verður einnig í
fyrsta skipti hægt að hýsa alvöru
nótnasafn og plötusafn á aðgengi-
legan hátt. Þarna verður hægt að
hlusta á upptökur og ganga að
skrifaðri tónlist, sem hér er til í
kössum í geymslum safna, en eng-
in leið er að komast að og fæstir
vita um.
Æskilegast væri að byggja
mörg tónlistarhús; fullkomið
óperuhús, fullkomið konserthús og
kannski þriðja húsið fyrir söng-
leiki. En við Islendingar erum svo
fáir að við verðum að fara milliveg
í þessu efni, a.m.k. í fyrstu lotu,
líkt og margfalt stærri borgir en
Reykjavík hafa gert við byggingu
tónlistarhúsa. Hver veit síðan
hvað framtíðin ber í skauti sér?
Það er einnig augljóst að tón-
listarhúsið rís ekki, nema það
reynist rétt að tónlistin skipi eitt
öndvegið í huga íslendinga. Fram
að þessu hafa um það bil þúsund
manns greitt félagsgjöld til bygg-
ingar hússins. Við höfum fengið
nokkra styrki og fjáröflunartón-
ieikar hafa verið haldnir.
LANDSHAPPDRÆTTI
HLEYPT AF STOKK-
UNUM
í því sambandi vil ég geta stór-
kostlegra tónleika Martins Berk-
ofsky, píanóleikara, sem að eigin
frumkvæði hélt tónleika í Þjóð-
leikhúsinu síðastliðinn vetur, og
skilaði okkur öllum ágóðanum.
Sinfóníuhljómsveitin hefur haldið
tónleika okkur til styrktar eins og
ég gat um í upphafi máls míns, og
einnig hafa starfsmenn hljóm-
sveitarinnar veitt okkur rausnar-
lega úr sjóði sínum.
Eins og alþjóð veit þá hélt ein
besta hljómsveit heimsins, hljóm-
sveitin Philharmonia í Lundúnum,
undir stjórn Vladimirs Ashkenaz-
ys ógleymanlega tónleika okkur til
stuðnings.
Það var okkur mikil uppörvun
og góð landkynning að um hundr-
að frábærir tónlistarmenn sem
fyrst kynntust Islandi vegna
heimsóknar sinnar á Listahátíð
síðastliðið sumar, skyldu verða
það hrifnir af íslensku tónlistar-
lífi og finnast skortur á tónlistar-
húsi það brýnn, að þeir ákváðu að
halda sérstaka tónleika til styrkt-
ar góðu málefni.
Nú munum við hleypa af stokk-
unum landshappdrætti og höfða
þannig til íslensku þjóðarinnar
um að veita þessu málefni fram-
gang. Við munum einnig leita til
fyrirtækja, ríkis og borgar.
Við eigum eitthvað á þriðju
milijón í sjóði. Það hefur verið
lögð höfuðáhersla á að eyða ekki
því fé er okkur hefur safnast. Allt
starf í sambandi við þetta hefur
verið sjálfboðavinna. Og þeir sem
fóru til Lundúna vegna tónleik-
anna áðurnefndu fóru algjörlega á
eigin kostnað.
Við stefnum að því að koma upp
tónlistarhúsi sem allra fyrst og
það fé sem safnast verður látið
renna til þessa eina markmiðs,
þannig að hægt verði að syngja,
spila og dansa í húsinu. Ballett-
sýningar eiga einnig að geta farið
þar fram.
Nú hefst bráðum samkeppnin
um hönnun hússins og fjáröflun
fer af stað. Við vonum að þjóðin
bregðist vel við.“ Og með það rauk
Armann Örn Ármannsson af stað
á enn einn fundinn vegna þessa
óskabarns íslenskra tónlistar-
manna og vonandi líka þjóðarinn-
ar.
Viðtal:
Franzisca Gunnarsdóttir
ísafjörður:
Þinghóll — nýr veit-
inga- og skemmtistaður
ísafirði, 22. ágúsL
ÞINGHÓLL, nýr veitinga- og
skemmtistaður, var opnaður um síð-
astliðna helgi í vöruhúsi Ljónsins,
þar sem veitingastofan Dokkan var
áður til húsa.
Ymsar breytingar hafa verið
gerðar, þ. á m. að tvískipta saln-
um, þannig að tveir aðskildir hóp-
ar geta verið þar á sama tíma.
Aukið var við rými með því að
taka stórt anddyri i notkun og
komast nú um 150 manns í sæti,
án þess að dansgólfið hafi verið
minnkað.
í Þinghóli verða allar almennar
veitingar. Þar er gert ráð fyrir
skemmtiatriðum og dansi. Opið er
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Eigendur Þinghóls eru hjónin
Bæring Jónsson bakarameistari
og Guðrún Hásler, börn þeirra og
tengdabörn, ásamt Hans Hásler
hótelstjóra í Reykjavík.
— fllfar
Veitingastaðurinn Þinghóll á ísafirði.
Morjfunbladiö/Úlfar
HEIA/IA
VARMAR
LIÐIÐ
S/ippfé/agið í Reykjavík hf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Sími 84255
HEMPELS
- þakmálning, serhæfð á þakjárn
HEMPELS þakmálning er sérhaefð á bárujárn
og hefur frábæra viðloðun og veðurþol.
Forskriftin að HEMPELS þakmálningu hefur
þróast í tímans rás á söltum sæ, þ.e. á
íslenskum hafskipum þar sem álagið nær
hámarki.
DYINIASYLAN BSM 40 vatnsfæla og
VITRETEX plastmálning
- koma í veg fyrir steypuskemmdir eða
lagfæra þær með réttrl meðhöndlun
Tværyfirferðir með DYNASYLAN BSM 40 og
síðan tvær yfirferðir með VITRETEX
plastmálningu tryggir margra ára endingu.
CUPRINOL
- alvörufuavarnarefnið sem fegrar og
fyrirbygglr
CUPRINOL fúavarnarefnið greinist í 4
aðalflokka:
1. Grunnfúavamarefni án yfirborðsfilmu.
2. Hálfgagnsætt litað fúavarnarefni í fjölda
viðarlita.
3. Þekjandi lituð fúavörn í 7 litum.
4. Grænt fúavarnarefni í vermireiti og á
gróðurhús.