Morgunblaðið - 25.08.1985, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
BIKARÚRSLIT — BIKARÚRSLIT — BIKARÚRSLIT — BIKARÚRSLIT
• Friðrik rafvirki
I
Stríða
mér mikið
FRIÐRIK Friöriksson, mark-
vöröur Fram er einn þeirra
sem mun í dag leika sinn
fyrsta bikarúrslitaleik. Friörik
hefur staðið í marki Fram í allt
sumar og staöiö sig Ijómandi
vel, utan að hann fékk á sig
klaufalegt mark í leiknum
gegn Víöi á dögunum.
Þegar við hittum Friörik þar
sem hann var viö vinnu sína
sem rafvirki þá voru vinnufélag-
ar hans aö stríöa honum vegna
þessa marks og aö sögn Friö-
riks þá eru þeir mjög iönir viö
aö minna hann á þegar hann
stendur sig ekki nógu vel. Þeg-
ar viö ætluöum aö fara aö
mynda hann sagöi einn félaga
hans: „Þiö ættuö nú frekar aö
birta mynd af honum þar sem
hann klúöraöi í leiknum gegn
Víöi.“
„Svona láta þeir alltaf," sagöi
Friörik brosandi og þaö var
greinilegt aö þetta var aöeins
saklaus stríöni en ekki eitthvaö
sem tekið var of alvarlega.
„Þaö er alveg sama hvaö maö-
ur gerir, þeir finna alltaf ein-
hverja veika punkta til aö stríöa
mér á,“ sagöi Friörik og hélt
áfram aö tengja vira þvi húsiö á
að vera tilbúiö undir tréverk í
desember og því eins gott aö
halda sig aö verki.
Miðasaia
gengur vel
MIÐASALA fyrir leikinn á milli
Fram og Keflavík hófst í Kefla-
vík á mánudaginn en í Reykja-
vík á þriöjudaginn og hefur
gengiö mjög vel að selja miöa
þannig að þeir sem hug hafa á
aö tryggja sér miöa í tíma
ættu aö drífa sig niöur á
Laugardalsvöll eftir klukkan
11 í dag og kaupa sér miöa því
þá hefst miðasalan í dag.
Búist er viö miklum fjölda
áhorfenda og veður ætti aö
vera nokkuö gott þannig aö
þaö dregur ekki úr aö þessu
sinni. Miðaverö í stúku er 350
kr., i stæöi kostar 250 kr. og
börn þurfa aö greiöa 100 krón-
ur.
Mikið skorað
• Ómar Torfason
LIÐ Fram og ÍBK hafa skorað
mikiö af mörkum í sumar og má
þar sem dæmi nefna að í inn-
byrðis leikjum liöanna hafa veriö
skoruö sjö mörk. Fram vann í
Reykjavík 3:1 en í Keflavík sigr-
uöu heimamenn 3:0
Þeir leikmenn sem hafa veriö
iönastir viö aö skora mörk í þess-
um liðum eru þeir Ragnar Mar-
geirsson í Keflavíkurliöinu og
Ómar Torfason hjá Fram. Báöir
hafa þeir gert níu mörk i 1. deildar
keppninni og hafa eflaust hug á aö
bæta mörkum í safniö.
Hjá Fram eru einnig þeir nafnar
Guömundur Torfason og Steins-
son sem hafa verið duglegir viö aö
skora hjá andstæöingum sínum og
margir hafa taliö þetta einn hættu-
legasta framlínudúettinn i íslenskri
knattspyrnu. Hvort þaö er rétt eöa
ekki þá er vist aö þeir félagar eru
báöir mjög markheppnir, Torfason
er geysilega sterkur skallamaöur
en Steinsson er eidfljótur og út-
sjónarsamur þegar markiö er ann-
ars vegar.
Hjá Keflvíkingum hefur Sigurjón
Kristjánsson veriö duglegur viö aö
skora mörk, hann hefur nú skoraö
sex mörk fyrir liöiö i síöustu sex
leikjum og öll mörk hans hafa verið
gullfalleg. Siguröur Björgvinsson
hefur skoraö mark í öllum þremur
bikarleikjum Keflavikurliösins og
hann er ákveöinn í því aö halda
uppteknum hætti. Ekki má gleyma
Helga Bentssyni hjá ÍBK, hann hef-
ur leikiö vel í sumar, þó svo hanri
hafi ekki skoraö mikiö af mörkum
þá er alltaf hætta þar sem Helgi
fer.
• Ragnar Margeirason
Hökkum þá ...
• Ekki vitum viö hvort Siguröur Björgvinsson ætlar aö hakka
Framara í orðsins fyllstu merkingu en hann er staðráöinn í aö sigra
þá á knattspyrnuvellinum i dag. Þessi mynd var tekin af Sigurði við
vinnu sína í Keflavík.
Inn með þig!
• Þorsteinn Bjarnason er ákveöinn í því aö hafa góöar gætur á Guö-
mundi Steinssyni. Helst vildi Þorsteinn loka Guömund inni í lögreglu-
bílnum yfir helgina þannig aö hann þyrfti ekki aö óttast aö hann geröi
usla í vítateignum hjá honum í dag. Eins og sjá má á þessari mynd þá
reyndist Þorsteini erfitt að koma Guömundi í örugga gæslu þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
Helgi Jóhannsson
• Gunnar M. Hansson
Við vinnum í dag
Meöal gesta á bikarúrslitaleik Fram og ÍBK veröa fulltrúar IBM og
Samvinnuferða-Landsýn en þaö eru þau fyrirtæki sem auglýsa á
keppninsbúningum þessara félaga. Okkur lék forvitni á aö vita hvernig
þessir menn teldu aö leiknum myndi lykta og höföum því samband viö
þá. Fyrir svörum uröu Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM á íslandi, og
Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða
„Eg spilaöi knattspyrnu þegar
ég var lítill eöa allt þar til ég hóf aó
leika körfuknattleik. Ég er fæddur
og uppalinn í KR-hverfi og er því
KR-ingur í húö og hár. Einu tengsl
mín viö Fram eru þau aö ég keppti
viö þá á fullu í gamla daga og svo
auövitaö auglýsingarnar sem viö
erum meö á búningum þeirra.
Ástæöan fyrir því aó viö ákváöum
að styrkja Fram er sú aö þeir eru í
sama hverfi og fyrirtækiö," sagöi
Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM.
— Hvernig endar leikurinn í dag?
„Ég spái því aö Fram vinni 3:1,
en því miður mun ég ekki sjá leik-
inn því þaó stendur þannig á hjá
mér aö ég verð út úr bænum.“
— Fylgist forstjóri IBM meö
íþróttum?
„Já, þaó gerir hann, ég les alltaf
íþróttasiðurnar í blööunum og
vona aö ég eigi alltaf eftir aö hafa
áhuga á íþróttum," var svariö.
„Blessaöur vertu, ég spilaði
bæöi handbolta og fótbolta upp
alla yngri flokkana meö Keflvíking-
um. Síöan fór ég alveg í bakinu og
hef orðið aó láta mér nægja aö
fylgjast meö síöan,“ sagöi Helgi
Jóhannsson, forstjóri Samvinnu-
ferða-Landsýnar þegar viö spurö-
um hann aö því hvort hann hefði
einhvern tímann leikiö knatt-
spyrnu.
„Þaö má segja aö ég sé tiltölu-
lega vel inn í þessum málum því ég
hef fariö á nokkra leiki í sumar, og
flestir leikirnir sem ég hef séö eru
meö Fram og Keflavík. Framarar
eru mjög traustir viöskiptavinir hjá
mér og því má segja aö ég sé í
dálítið erfiðri aðstööu meö að
segja til um hvernig leikurinn í dag
endar," sagöi Helgi hlæjandi.
— En hverju spáir þú?
„Þó svo ég eigi marga vini í
Fram og sonur minn leiki meö
yngri flokkunum þar þá veró ég að
spá Keflavíkingum sigri, ætli þeir
vinni ekki 1:0. Ég vildi helst spá
jafntefli en leikurinn yröi þá endur-
tekinn þannig aö ég spái 1:0 fyrir
Keflavík," sagöi Helgi aö lokum.
Fram vann ÍBK
í myrkraleik
FRAM OG ÍBK léku til úrslita í
Bikarkeppnínni árið 1973 og var
það fyrsti úrslitaleikurinn sem
leíkinn var á Laugardalsvelli, en
áður haföi alltaf veriö leikiö á
gamla Melavellinum. Leiknum
lauk meö sigri Fram sem skor-
aöi tvö mörk gegn einu marki
Keflvíkinga.
Þjálfari Kefivikinga á þessum
árum var Joe Hooley og haföi
Keflavíkurliöió ekki tapaö leik í
islandsmótinu um sumariö en í
úrslitaleiknum uröu þeir aö lúta í
lægra haldi fyrir Fram.
Hvorugu liðinu tókst aö skora
mark í venjulegum leiktíma og
því var framlengt. í framlenging-
unni skoraöi Jón Pétursson mark
fyrir Fram en Steinar Jóhannss-
on jafnaöi skömmu síöar. Þaö
var siöar Marteinn Geirsson sem
skoraöi sigurmark Fram á 102.
minútu leiksins og var þá oróiö
mjög skuggsýnt. Eysteinn
Guömundsson dæmdi leikinn og
hann var staöráöinn í aó Ijúka
leiknum þrátt fyrir myrkriö og
mótmæli einstakra leikmanna og
forráöamanna félaganna.