Morgunblaðið - 27.08.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985
3
„Heimilið ’85“ hefst á fimmtudag:
Kostnaður um 15
milljónir króna
SÝNINGIN „Heimilið ’85“ hefst
næstkomandi fimmtudag í Laug-
ardalshöllinni og stendur til
sunnudagsins 8. september. Kaup-
stefnan hf. hefur yfirumsjón með
sýningunni og að sögn Halldórs
Guðmundssonar blaðafulltrúa hef-
ur undirbúningur staðið frá síðast-
liðnu hausti að sýningin var boðin
út.
103 aðilar sýna afurðir sínar í
Laugardalshöllinni, jafnt ís-
lenskir framleiðendur, innflutn-
ingsfyrirtæki sem og fyrirtæki á
erlendri grund. Sýningarbásarn-
ir verða nokkuð færri þar sem
nokkur fyrirtæki hafa samvinnu
um sýningaraðstöðu, enda sagði
Halldór að þróunin væri sú að
básum fækkaði en yrðu þeim
mun stærri og betur til þeirra
vandað. „Það er ærið misjafnt
hversu mikið fyrirtækin leggja í
sýninguna og t raun kemur ekki í
ljós fyrr en á lokadegi undirbún-
ingsins hvernig fyrirtækin
skipuleggja sitt sýningarstarf.
En það hefur margsýnt sig að
árangur af sýningu þessarar teg-
undar byggist fremur á hugviti
og lifandi sölumennsku en því
fjármagni sem aðilar leggja í
sýningaraðstöðuna."
Halldór sagði heildarkostnað
við heimilissýninguna vera
nærri fimmtán milljónum króna
• m
og til að endar næðu saman
þyrftu 40.000—50.000 gestir að
skoða sýninguna. „Sá gríðarlegi
undirbúningur sem staðið hefur
í rúmt ár er fjárfrekur og að-
keypt skemmtiatriði eru mjög
kostnaðarsöm.
Ber bar helst að nefna kvik-
myndasýningar sem erlendis
nefnast „Cinema 2000“ en við
kjósum að kalla kúlubíó þar sem
sýningarnar fara fram í kúlu-
húsi. Áhorfendur eru standandi
farþegar í hvers kyns farartækj-
um og fylgjast með ökuferðum
þeirra sem oft á tíðum eru afar
skrautlegar.
Þetta árið verður frönsk heim-
ilisstemmning í Laugardalshöll-
inni. Frá París kemur tískusýn-
ingarflokkur sem kynnir landan-
um nýjasta haust- og vetrar-
fatnaðinn frá Frakklandi. Reist-
ur hefur verið sérleeur sýn-
Morgunbladíð/l>orkell
Kappsamlega var unnið að undir-
búningi heimilissýningarinnar þeg-
ar Ijósmyndara Morgunblaðsins
bar þar að í gær.
ingarpallur sem er líklega
stærsti sinnar tegundar hér á
landi og kostaði um 2 milljónir
króna. Einnig er hluti sýn-
ingarsvæðisins helgaður Frakk-
landi og þarlendri framleiðslu
sem fæst hér á landi."
Halldór var bjartsýnn á að-
sókn að heimilissýningunni enda
hefðu fyrri sýningar sýnt og
sannað að íslendingar kynnu vel
að meta þær. „Hér gefst gestum
kostur á að bera saman vörur og
verð mismunandi framleiðenda
og fyrirtækin standa augliti til
auglitis við neytendur og geta
haldið uppi mjög öflugu sölu-
starfi."
Memim.
T-kort fyrir táninga 14-18 ára
og tölvubankarnir standa þeim opnir allan sólarhringinn.
• alltaf hægt að leggja inn
• alltaf hægt að ná í peninga
T-kort er lykillinn og T-kort bjóðum við öllum 14-18 ára
sem eiga sparireikninga hjá okkur.