Morgunblaðið - 27.08.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1985
41
Tímarit
og fróðleiksbækur
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Facts about Ireland
Útg. írska utanríkisráðuneytið 1985
Staðreyndabækur af þessu tagi
er hafsjór af fróðleik og þótt þær
séu kannski ekki beinlínis æsandi
aflestrar eru þarna samankomnar
traustar upplýsingar af öllu tagi.
Umsjón með allri samantekt og
upplýsingasöfnun hefur Mergus
nokkur Mulligan haft á hendi.
Bókinni er skipt niður í kafla eins
og Land og þjóð, írska ríkið,
menning og vísindi, efnahagsmál,
félagsleg þjónusta, Norður-írland
og í lokin er sérstakur kafli um
samskipti írska lýðveldisins við
önnur lönd.
Bókin er myndskreytt og auk
þess eru kort, töflur með tölu-
legum upplýsingum og fleira.
Þetta mun vera í sjötta skipti sem
Facts about Ireland kemur út og
er hún endurskoðuð vel og ræki-
lega fyrir hverja útgáfu.
Business Traveller
Útg. Perry Publications
Business Traveller kemur út
mánaðarlega og er að verðleikum
virt tímarit um ferðamál. Starfs-
liðið kappkostar að gefa lesendum
hlutlægar og sannverðugar upp-
lýsingar, lausar við skrúðmælgi
ferðaskrifstofufólksins. í blaðinu
eru hverju sinni ýmsar vel læsi-
legar greinar, upplýsingar um
hæstu og lægstu flugfargjöld, út-
reiknaður dagsdvalarkostnaður í
ótal löndum og svo mætti lengi
telja. Meðal efnis í júlíhefti var til
dæmis skrifað um Singapore,
mjög svo fróðleg grein, og í ágúst-
heftinu höfðu ýmsir starfsmenn
Business Traveller ferðast á þeim
farrýmum flugfélaganna sem eru
á milli fyrsta farrýmis og venju-
legs farrýmis (economy). Vegna
aukinnar samkeppni hafa flugfé-
lög í auknum mæli boðið upp á
þennan „milliklassa" og var afar
góð og gagnleg lýsing á útkom-
unni.
Business Traveller er ekki bara
til skemmtunar lesið, ekki er síður
f, 'tJ---------
*
I
Guide to carryon
computers
Excess baggage:
nowtosohre
a weighty problem
Inside
Smgapore
Focus on
the worid’s most
sin
irvnmn.
Nordisk psykiatrisk tidskrift nr. 3
1985
Útg. Universitetsforlage
Aðalritstjóri: Dr. Truls-Krik
Mogstad
Eins og titillinn ber með sér er á
ferðinni rit sem geðlæknafélögin á
Norðurlöndum standa að. Lárus
Helgason er ritstjóri íslandsdeild-
arinnar.
í riti á borð við þetta eru sér-
fræðingar að bera saman bækur
sínar og leikmaður sem þekkir
takmarkað til hefur varla hæfni
til að meta þær. Enda er það ekki
ætlunin heldur að vekja athygli á
tímaritinu eins og gert hefur verið
með ýmis önnur sem berast
hingað og hafa gildi fyrir þá hópa
sem til málanna þekkja. En
ástæða er til að stikla á heiti kafl-
anna. Eftir Torkil Vanggard er
„Om amerikanisering i europæisk
psykiatri belyst ved et svensk eks-
empel". „Pleiebelastningen av
demente pasienter i somatisk
sykehjem og i psykiatrisk syke-
hjem,“ eftir Harald A. Nygaard,
Málfrid Ulseth Jakobsen og Tor
Jacob Moe. Trygve Nissen skrifar
kaflann „Effekten av at dele en
sykehuspost for psykiatriske lang-
tidspasienter", „Cannabisrygning
og psykoser" eftir Jette Beirr og
Sören Haastrup, „Schizofreni-
forekomst i et norsk fylke, Roga-
land“ eftir Jan Olav Johannessen
og er þá ekki allra greinanna get-
ið.
unblaðinu er mjög oft vitnað
þetta vikurit þegar skrifað er un
málefni Austurlanda fjær. óefa>
má fullyrða að Far Eastern Econ
omic Review sé eitt virtasta tíma
ritið í þeim heimshluta og stenz
vissulega samjöfnuð við vikurit
evrópsk og bandarísk á sem flest
um sviðum. Mikil áherzla er lögð á
vandaðar greinar og fréttaskýr-
ingar eru í sérflokki.
Mér skilzt að blaðinu hafi á
seinni árum, einkum undir rit-
stjórn Derek Daview, vaxið mjög
fiskur um hrygg og er það ekki að
undra: Evrópa og Norður-Amer-
íka eru ekki lengur sá hinn eini
heimsnafli. Asíulönd láta æ meira
að sér kveða og er það vel, enda
fjölmennasta álfa veraldar og
væntanlega ætla menn sér hlut í
samræmi við það.
Að gefnu tilefni má svo benda
áhugafólki á að upplýsingar og
áskrift má fá með því að skrifa til
GPO box 160, Hong Kong. Út-
breiðslustjóri heitir Billy Woo.
Minnzt hefur verið á Davies rit-
stjóra, en Far Eastern Economic
Review státar einnig af mjög
vönduðum auglýsingafrágangi og
þeirri deild stjórnar ung stúlka að
nafni Elaine Goodwin.
Ný húsgögn
Sjónvarps- og vídeóskápar úr
beyki, hnotu, eik, dökkbæs-
uðu koto.
Beyki veggsamstæður
Beyki heimilisskrifborð
Beyki borðstofuskenkur
Bókaskápar 3 viðarteg.
Fatastandar með og án rafmagns-
pressu
F orstofukomm-
óður með speglum
Armúla 8,
Sími 68-60-80.
ávinningur að öllum þeim nyt-
sama fróðleik sem þar er safnað
saman og vel komið til skila.
The Icelandic ('anadian, summer
1985
Útg. ársfjórðungslega í Winnipeg
Aðalritstjóri: Axel Vopnfjord
Oft hefur verið skrifað um
tryggð Vestur-fslendinga við
gamla landið. Ótrúlegur dugnaður
V-fslendinga að halda við málinu,
sækjast eftir sambandi við ætt-
ingja og á seinni árum heimsóknir
hingað. Allt er þetta vottur um
þjóðrækni sem vert er að meta og
virða. Þegar þetta er skrifað er
einmitt staddur hér hópur Vest-
ur-íslendinga og hafa hópar kom-
ið á hverju sumri í a.m.k. nokkur
ár. Margt af því fólki á ekki rætur
á íslandi — í þeirri merkingu að
þar eru einatt á ferð 4., 5. og jafn-
vel sjötti ættliður þess sem héðan
flutti. Samt er haldið tryggð við
upprunann og á þar vel við að
segja að römm sé sú taug sem
rekka dregur föðurtúna til.
í þessu riti eru ýmsar ágætar
greinar, svo og fréttir um atburði
á íslandi. Prýðilegt rit sem menn
ættu að gefa gaum að og með því
stuðla að því að útgáfu sé haldið
áfram.
Far Eastern Economic Review, viku-
rit
Útg. South China Morning Post,
Hong Kong
Eins og þeir hafa ugglaust séð
sem lesa erlendar greinar í Morg-
NYTT FRA
MITSUBISHI!
Í986 árgerðirnar verða
kynntar í byrjun september:
Þá sýnum viö:
—LANCER—
— LANCER STATION —
— TREDIA 4WD - ALDRIF —
— COLT —
— GALANT—
— PAJERO • BENSÍNflURBO DIESEL —
— PAjERO SUPERWAGON - BENSÍN/TURBO DIESEL -
— L 300 4WD - SENDIBÍLL/MINI BUS -
— L 300 - SENDIBÍLL/MINI BUS -
— L 200 - PALLBÍLL • BENSÍN/DIESEL -
BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,*
ERU FRÁ MITSUBISHI.
— 50 ára reynsla í faginu —
* Samkv. skýrslu Hagstofu íslands
[h]HEKLA
Laugavegi 170 -172 Sir
HF
Sími 21240