Morgunblaðið - 25.09.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER1985
45
Markmiðið að standa sig
— segir Pétur Pétursson um leikinn í kvöld
Frá Skapta Hallgrímssyni, blaðamanni Morgunblaðsins é Spáni.
Er íslend-
ingum mútað?
Frá Skapta Hallgrímssyni, blaöamanni
Morgunblaósins á Spáni.
ÞAÐ vakti mikla athygli þegar
Spánn sigraöi Möltu 12:1 í
Evrópukeppninni hér í Sevilla
fyrir tveimur árum. Þá var
mikið talað um það að Spán-
verjar heföu mútað Möltu-
búum — en nú hefur dæmið
snúist við. Nú óttast Spánverj-
ar að Skotar og Walesbúar
hafi mútaö íslendingum til aö
leggja allt sitt í að sigra
Spánverjana.
„Þetta hetur komið fram hér
í blööum en er náttúrulega eins
og hver önnur vitleysa. Strák-
arnir í liðinu (Hercules) meö
mér hafa veriö aö spurja mig
hvort þessar sögur eigi viö rök
aö styöjast," sgöi Pétur Pét-
ursson er ég spjallaöi viö hann.
„Þaö þarf sko enginn aö borga
okkur neitt til aö viö leggjum
okkur alla fram í landsleik —
þaö gerum viö alltaf,“ sagöi
Pétur.
Handbolti
í kvöld
FJÓRIR leikir fara fram (1. deild
karla á íslandsmótinu í hand-
knattleik í kvöld.
I Seljaskóla veröa þrír leikir, fyrst
leika Fram og Valur og hefst hann
kl. 19.15, strax að honum loknum
leika Þróttur og FH og loks leika
KR og Stjarnan kl. 21.45.
Einn leikur fer fram á Akureyri,
þar mæta nýliöarnir í deildinni, KA
og bikarmeistarar Víkings, og hefst
hannkl. 20.00.
Handknattlelkur
„MÉR líst mjög vel á leikinn.
Spánverjarnir veröa að vinna og
þeir leika því undir mun meiri
pressu en við,“ sagði Pótur Pót-
ursson leikmaður meö Hercules
hór á Spáni er óg rabbaöi við
hann um leikinn í kvöld.
„Þaö eina sem skiptir okkur máli
i sjálfu sér er aö standa okkur vel,
aö ná góöum leik. Úrslitin skipta
ekki máli aö því leyti aö viö eigum
enga möguleika á aö komast í úr-
slitakeppnina í Mexíkó næsta
sumar. Markmiðiö er því ekki aö
vinna heldur aö leika vel, en þaö
væri auövitaö mjög gaman aö
vinna Spánverjana. Ég held aö viö
ættum aö eiga möguleika á þvi.
Þeir viröast vera mjög hræddir viö
okkur. Þessi liö sem viö höfum
leikiö viö síöustu ár eru hætt aö
vanmeta okkur held ég. Úrslit leikj-
anna sýna aö engin ástæða er til
aö vanmeta okkur og sigrar Vals
og Fram í Evrópukeppnunum sýna
einnig aö íslensk knattspyrna er á
mikilli uppleiö."
Pétur sagöi það sína skoöun aö
ísland heföi ekki veriö svo langt frá
því aö komast til Mexikó: „Þú sérö
aö ekki hefði þurft nema smá-
heppni til þess. Viö vinnum Wales
heima. Leikurinn í Skotlandi var
reyndar alveg vonlaus. Þaö mun-
aöi þó ekki miklu aö viö næöum
jafntefli í Wales og síöan áttum viö
aö vinna Skotana heima. Þaö heföi
veriö sanngjarnt og ég er sann-
færöur um aö heföum viö unniö þá
hefðum viö líka unniö Spán. Báð-
um leikjunum töpuöum viö meö
einu marki.“
— Hvað skiptir mestu máli í
þessum leik hjá ykkur?
„Ég held aö þaö sem skiptir
mestu máli hjá okkur sé aö hugar-
fariö sé rétt, aö viö ætlum okkur
aö leggja okkur alla fram. Ekki aö
við segjum viö sjálfa okkur aö leik-
urinn skipti engu máli vegna þess
aö viö eigum enga möguleika í úr-
slitakeppnina. Hugarfariö er rétt
og einnig er góö samstaöa í hópn-
um eins og alltaf fyrir landsleiki."
— Hvað er hættulegast við
Spánverjana?
„Þeir eru meö geysilega tekn-
íska leikmenn og eru mjög fljótir.
Vörnin hjá þeim er mjög sterk og
miðvallarleikmennirnir eru geysi-
góöir. Þeir eru teknískari en við en
ég held aö þeir séu ekki meö eins
mikinn „karakter" og viö. Ef þeir
veröa óþolinmóöir er á móti blæs
fara þeir bara aö sparka í mótherj-
ana. Þaö viröist vera þaö eina sem
þeir kunna ef eitthvaö gengur ekki
upp hjá þeim. Ég er farinn aö
kannast viö þaö strax eftir fjóra
leiki i 1. deildinni hérna. Þetta á þó
eingöngu viö um heimaliöin í deild-
arleikjunum, þegar þau koma á
útivöll eru menn eins og lömb.“
Pétur sagöi það algegnt hér aö
spánskir leikmenn færu í messu
fyrir leik. „Þaö fer alltaf prestur
meö Hercules-liöinu í útileiki og
messar fyrir þá leikmenn sem þaö
vilja." Tveir útlendingar leika meö
Hercules, Pétur og Argentínumað-
urinn frægi Mario Kempes, „og viö
Mario höfum aldrei fariö í mess-
una. En eftir þetta fara menn inná
völlinn og telja aö þeir hafi meiri
rétt til aö sparka í mótherjana —
búnir aó fá syndaaflausnina fyrir-
fram.
— Hvernig finnst þór að leika
hórna á Spáni?
„Mér finnst þaö mjög gaman.
Þetta er gjörbreyting fyrir mig. Ég
var búinn aö fá alveg nóg í Hol-
landi og Belgíu, hreinlega orðinn
leiöur á fótboltanum. Æfingarnar
hér eru allt öðruvísi en þar, hér
spilum viö bara á æfingum. Þaö er
gífurlegur áhugi hér hjá fólki á
knattspyrnu — hér snýst allt um
íþróttina. Liöiö sem ég er í er ekki
sérstaklega sterkt en samt sem
áöur eru aldrei færri en 35.000
áhorfendur á heimaleikjum okkar.
Þaö er því mjög gaman aö prófa
þetta og ef maöur stendur sig vel
hér eru manni margar leiðir
opnar.“
Hercules er neöarlega í 1. deild-
inni nú — hefur aöeins eitt stig
eftir fjóra leiki. „Ef allt heföi veriö
meö felldu værum viö meö fjögur
stig. Viö áttum aö vinna báöa
heimaleikina — gegn Atletico
Madrid sem endaöi 2:2 og Atletico
Bilbao sem mór finnst reyndar
vera besta liöið hór á Spáni. Viö
höfum leikiö viö fjögur mjög sterk
liö, lið sem eru í Evrópukeppninni
nú í ár.
Annars finnst mér vanta meiri
tækni í Hercules-liöiö. Þetta er
meiri baráttukarlar en gengur og
gerist á Spáni.“
Pétur leikur í framlínunni með
Hercules og Mario Kempes,
stjarna Argentínu i heimsmeistara-
keppninni 1978, leikur á miöjunni
fyrir aftan hann. „Mario er mjög
góöur knattspyrnumaöur og þaö
fer allt í gegnum hann á vellinum.
Hann stjórnar leik liösins og ég
þarf ekki aö kvarta, fæ mjög góöar
sendingar frá honum, en þaö vant-
ar einhvern til aö taka viö af Mario
ef hann er illa upplagöur. Hinir
strákarnir hafa bara ekki hæfileika
til aö taka viö stjórninni."
— Þú hefur ekki skorað ennþá?
„Nei, ekki ennþá, en ég vonast
til aö skora hér í Sevilla í kvöld, ég
leik hér aftur á sunnudaginn meö
Hercules og þaö væri gaman aö
skora hér í tveimur leikjum í röö!“
sagði Pétur Pétursson.
Tungufoss
TÚLKURINN sem er með undir
21 árs liðinu hór í Huelva blaörar
mjög mikíð. Strákarnir segja að
hann samkjafti varla allan daginn.
Þeir voru ekki lengi að finna
gælunafn á hann, nú er hann
aldrei nefndur annað en „tungu-
foss“.'
• Viggó Sigurösson hefur
verið ráðinn þjálfari undir 21
árs liðsins í handknattleik.
Viggó
þjálfar
U-21 árs
liöiö
VIGGÓ Sigurðsson sem lók
um áraraðir með Víkingum (
handknattleik og landsliöinu,
hefur verið ráðinn þjálfari hjá
undir 21 árs landsliöinu ásamt
Bogdan Kowalzcyk.
21 árs liðiö tekur þátt i
A-keppni heimsmeistaramóts-
ins sem fram fer á italíu í byrjun
desember nk. Þar eru islend-
ingar í riöli með ítölum, Egypt-
um og Vestur-Þjóöverjum.
Fyrsti leikurinn veröur gegn ít-
ölum 6. desember.
HSÍ greip til þess ráós aö
ráöa Viggó sem þjálfara þar
sem Bogdan kemst ekki með
lióinu til italíu i heimsmeistara-
keppnina, en Viggó þekkir
mjög til vinnubragöa hjá Bog-
dan.
Þeir munu í sameiningu und-
irbúa liöiö fyrir keppnina og
síöan veröur Viggó meö liöinu á
italíu. ___________
prýðir húsin
Stallað þakstál á aðeins
kr. 440 pr. fermetri
í brúnu og svörtu
PARBUS
Smiðjuvegi 28, Kóp. S: 79011