Morgunblaðið - 12.11.1985, Side 4
4
MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
BJÖRGUN SKIPBROTSMANNANNA AF RONA
Héldum alltaf í vonina
— sögðu færeysku skipbrotsmennirnir
KcilsHtödum, 11. nóvember.
Skipbrotsmennirnir af færeyska flutningaskipinu Rona sem sökk út af
Austfjörðum laust eftir klukkan 8 á laugardagsmorgun komu frá Seyðis-
fírði í gær og um hádegisbil í dag héldu þeir félagar heimleiðis með
Fokker-vél Flugleiða til Færeyja, þar sem þeir eiga að koma fyrir sjórétt.
„Þetta skeði allt með mjög
skjótum hætti, við rétt höfðum
ráðrúm til að koma björgunar-
bátnum frá borði, en hann var
ekki með sjálfvirkum sleppibún-
aði. Við sendum út neyðarkall
klukkan 8:15 og tuttugu mínútum
siðar vorum við komnir í björgun-
arbátinn og Rona maraði í kafi,“
sagði skipstjórinn, Martin Niel-
sen, ungur Klakksvíkurbúi, þegar
tíðindamaður Morgunblaðsins
náði sem snöggvast tali af þeim
félögum þar sem þeir sátu í góðu
yfirlæti í Hótel Valaskjálf. „Við
getum með engu móti gert okkur
grein fyrir því hvað gerst hefur,
lestin var full af loðnumjöli sem
við lestuðum í Bolungarvík og á
dekki voru 14 gámar sem við tók-
um á Reyðarfirði á föstudaginn
en þaðan héldum við klukkan
21:45 um kvöldið. Þegar ósköpin
dundu yfir okkur voru 7—8 vind-
stig, við vorum 2 í brúnni, háset-
inn niðri í matsal og stýrimaður-
inn í koju,“ sagði Nielsen skip-
stjóri ennfremur.
„Við vorum allir mjög rólegir
og það hjálpaði okkur að koma
björgunarbátnum út í tæka tið,“
sagði Páll Rubeksen stýrimaður,
sem einnig er frá Klakksvík. „Það
var aðdáunarvert hvað dönsku
strákarnir okkar voru æðrulausir,
þótt nýliðar séu til sjós,“ hélt
stýrimaður áfram. Og dönsku
strákarnir, Tonny Lauridsen frá
Herning á Jótlandi, og Jen Johan-
sen frá Nærum á Sjálandi, báðir
um tvítugt, kváðust ekki hafa
verið til einskis í danskri her-
þjálfun.
- En var vistin í björgunar-
bátnum ekki hráslagaleg?
„Jú, óneitanlega, við vorum
misjafnlega illa fataðir, fórum
frá borði eins og við stóðum. Við
vorum holdvotir og björgunar-
báturinn hálffylltist af sjó. Þegar
til átti að taka fundum við ekki
austursfat í björgunarbátnum svo
að við urðum að notast við stígvél
Johansens við austurinn. Við
endurnýjuðum björgunarbát
skipsins fyrir tveimur mánuðum
i Fredericia og töldum okkur vera
að kaupa nýjan björgunarbát frá
fyrirtæki í Esbjerg, en nú hefur
komið í ljós að t.d. lyfjakassinn
Morgunblaðið/Kjartan Aðalsteinsson
Færeysku skipbrotsmennirnir við björgunarbátinn á Seyðisfírði. Jan Joen-
sen, Páll Rubersen, Tonny Lauridsen og Martin Nielsen skipstjóri.
Björgunarbáturinn af Rona tekinn
um borð í Sveinbjörgu.
12 30'V 11 OO'v FœreyskaflutningaskipiðRONAbyrjar
að sökkva. Ahölnin yfirgefur akipið.
Gúmbjörgunar baturinn 1 innst og skipbrols-
mönnunum bjargað um borö f skuttogarann
Sveinborgu u.þ.b. 9sjómilum frá slysstað
FÆREYJAR yU'St?
Skipbrotsmönnum af Rona bjargað um borð í Sveinbjörgu frá Siglufírði.
Morgunblaöið/Jón Pálsson
Leit í kapp
við myrkur
ÞAÐ VAR um kl. 8:55 á laugardag
að boð bárust til stjórnstöðvar Land-
helgisgæslunnar um að færeyska
flutingaskipið Rona, 500 tonna skip
frá Klakksvík, væri að hvolfa um 40
sjómflur suðaustur af Dalatanga.
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
TF-Sýn, var komin yfír leitarsvæðið
rúmlega 12 á hádegi og var leitinni
stjórnað úr flugvélinni eftir það.
„Á þessum slóðum voru þá stödd
nokkur skip, Sveinborg, Bjartur
og þýskt olíuskip, Inka, sem höfðu
heyrt neyðarkallið, en misvel og
gátu þessi skip gefið okkur nánari
upplýsingar," sagði Sigurður
Steinar Ketilsson, skipherra á
TF-Sýn. „Þessar 40 sjómílur suð-
austur af Dalatanga, sem var
upphaflega staðarákvörðunin, er
utan venjulegrar siglingaleiðar
milli Reyðarfjarðar og Færeyja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sveinborginni sem var á þessum
slóðum gátum við fljótlega útilok-
að þetta svæði."
Leitarsvæðið var sett út eftir
því hversu vel skip á svæðinu
heyrðu neyðarkallið frá Rona og
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhöfn flugvélar Landhelgisgæzlunnar: Guðjón Jónsson, flugstjóri, Sigurjón
Sverrisson, flugmaður, Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra, Kristján Þ-
Jónsson, stýrimaður, Halidór B. Nellett, stýrimaður, og Einar valsson.
Stefnið á Rona stóð eitt upp úr sjó, þegar flugvél Landhelgisgæzlunnar flaug
yfir á laugardaginn.
var það milli 64° 00 mín. og 64°
40 mín. norður og 11° 00 mín. og
12° 30 mín. vestur. Sjö togarar
voru að koma að norðan á þessum
tíma og var þeim öllum beint inn
á leitarsvæðið og tóku þeir þátt í
leitinni ásamt öðrum skipum sem
þar voru fyrir. Um kl. 14:38 fannst
skipið á 64° 16 mín. norður og 11°
19 mín. vestur og maraði þá stefni
skipsins um fimm til sex metra í
sjónum og fór í kaf stuttu slðar.
Skipið var rauðmálað og skar sig
mjög vel úr. Leitað var vel á þeim
slóðum sem skipið fannst en síðan
var stefnan tekin undan vindi frá
þeim stað þar sem það sökk.
Skömmu áður en gúmmíbjörg- 1
unarbáturinn fannst kl. 14:45, á 1
64° 07 mín. norður og 11° 20 mín
vestur kveiktu skipbrotsmennirnir 1
á neyðarblysi og sást því vel til !
þeirra úr flugvél. Myrkrið var að
skella á þegar hér var komið sögu
og þótti ráðlegt að þrjú skip,