Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
31
HVAÐ SEGJA ÍSLENZKIR STQRMEISTARAR
UM ÚRSLIT HEIMSMEISTARAEINVÍGISINS í MOSKVU?
Friðrik Ólafsson stórmeistari:
Úrslitin sanngjörn
„ÞETTA var mjög spennandi ein-
vígi, þótt ekki hafi þetta veriö í
fyrsta sinn í sögunni sem úrslitin
réöust ekki fyrr en í síöustu skák-
inni. Árin 1951 og ’54, þegar Bo-
tvinnik tefldi viö Bronstein og
Smyrslov, var sama upp á teningn-
um. Staöan var þá IIV2-IIV2 fyrir
síðustu skákina. Báðum þeim skák-
um lauk meö jafntefli og Botvinnik
hélt titlinum. Þá var einvígi þeirra
Karpov og Kortsnoj spennandi
1981. Staðan var 5-5 og allt valt á
sjöttu skákinni,” sagði Friðrik Ól-
afsson stórmeistari.
„Einvígið var ekki aðeins mjög
spennandi, heldur einnig sérlega
vel teflt af beggja hálfu,“ sagði
Friðrik. „Skákirnar voru fjörug-
ar og lítið var um afleiki. Úrslitin
voru einnig sanngjörn. Kasparov
hafði undirtökin og var meira í
sókn á meðan Karpov virtist
verjast og hliðra sér hjá því að
Friörik Ólafsson.
taka áhættu. Mér fannst það líka
bera vott um nokkurn skort á
sjálfstrausti hjá Karpov að líta
ekki við peðsfórnum Kasparovs,
sem oft virtust nokkuð tvíeggjað-
ar. Það er eins og heimsmeistar-
inn fyrrverandi hafi með þessu
viljað forðast að flækja taflið of
mikið.
Stíll þeirra Karpovs og Ka-
sparovs er mjög ólíkur. Karpov
teflir rólega og yfirvegað, á
meðan Kasparov er kraftmeiri
og teflir meira upp á flækjur og
taktískar stöður. Það má því
segja að í þessu einvígi hafi
tekist á tveir ólíkir skólar, og sá
skemmtilegri, að flestra mati,
orðið ofan á,“ sagði Friðrik Ól-
afsson.
Helgi Qlafsson stórmeistari:
Skemmtilegasta og
best teflda einvígið
„AÐ MíNUM dómi var þetta best
teflda og skemmtilegasta einvígi
sem háö hefur veriö. Baráttan var
geysimikil í hverri skák og margar
frábærar skákir tefldar,“ sagði
Helgi Ólafsson stórmeistari.
„Einvígið hér í Reykjavík 1972
var auðvitað mjög skemmtilegt
líka, en Fischer var svo miklu
sterkari skákmaður á þeim tíma
en Spassky, að það dró úr spenn-
unni. Hins vegar er styrkleika-
munur Karpovs og Kasparovs
svo lítill að hann er vart mælan-
Helgi Ólafsson.
legur. Þó finnst mér Kasparov
mjög vel að titlinum kominn.
Hann fylltist nýjum krafti þegar
Karpov komst yfir, og eftir afleik
Karpovs í 11. skákinni hafi Kasp-
arof greinilega undirtökin. Enda
má segja að það hafi verið erfitt
fyrir Karpov að ná sér sálfræði-
lega á strik eftir þennan hroða-
lega afleik.
Hinn nýi heimsmeistari er
mjög glæsilegur, tilfinningaríkur
og skemmtilegur persónuleiki,
sem um blása ferskir vindar. Og
það er skemmtilegt að slíkur
maður hafi velt Karpov úr sessi,“
sagði Helgi Ólafsson.
Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari:
Stíll Kasparovs höfð
ar til fólks
„ÞETTA var gott einvígi, en í
mínum huga slær það ekki út ein-
vígið milli Fischers og Spasskys í
Reykjavík 1972,“ sagði Guðmund-
ur Sigurjónsson stórmeistari.
„En Kasparov er vel að sigrin-
um kominn og persónulega er ég
mjög ánægður með að hann
skyldi vinna. Hann hefur
skemmtilegan stíl, sem höfðar
meira til fólks almennt. Hann
teflir upp á leikfléttur og flækjur
sem flestir skilja. Karpov er hins
vegar mun þyngri og það þarf
mun meiri þekkingu til að geta
metið snilli hans. Því er það gott
fyrir skáklistina að Kasparov fór
með sigur af hólmi.
Karpov er greinilega í ein-
hverri lægð, en það er of snemmt
að segja til um það hvort hann
sé að dala. Hann gæti þess vegna
Guðmundur Sigurjónsson.
náð sér á strik á ný og endur-
heimt titilinn. En sjálfur hef ég
þó þá að trú að Kasparov vinni
næsta einvígi. Hann er mjög
þroskaður og fullmótaður sem
skákmaður, þótt ungur sé, og ef
honum tekst að aga sig betur,
öðlast meiri yfirvegun og rósemi
við taflborðið, getur orðið erfitt
að vinna hann.
Ég held að flestir séu ánægðir
með að hann skildi velta Karpov
úr sessi. Jafnvel Sovétmenn, því
hann er geysilega vinsæll skák-
maður þar í landi sem annars
staðar. En eitt er víst, hann
verður aldrei eins þægilegur
fyrir kerfið þar í landi og
Karpov," sagði Guðmundur Sig-
urjónsson.
Skipstjóri
Alseyjar - 115
þúsund kr. í
sekt fyrir
landhelgisbrot
Vestmannaoyjum. 11. nóvember.
Varöskipsmenn af Ægi fóru um
borð í Álsey VE 502 síðdegis á föstu-
daginn þar sem báturinn var aö
togveiðum út af Hrolllaugseyjum,
utan leyfilegra marka. Geröu varð-
skipsmenn könnun á búnaði bátsins
og veiðarfænim og töldu ýmsu ábóta-
vant. Var skipstjóra bátsins gert að
sigla til hafnar í Vestmannaeyjum. y .
Við mælingar á möskvastærð í
poka fiskitrolls Álseyjar reyndust
möskvar vera smærri en leyfilegt
er, flestir 145 mm og nokkrir 150
mm en þeir eiga að vera 155 mm
samkvæmt reglum. Þá var i
skýrslu varðskipsmanna fundið að
ýmsum búnaði bátsins og í ljós
kom að enginn stýrimaður var um
borð. Mál skipstjórans var tekið
fyrir í Sakadómi Vestmannaeyja
og lauk því með dómsátt í dag.
Var skipstjóranum gert að greiða
115 þúsund kr. i heildarsekt, þar
af 85 þúsund krónur í landhelgis-
sjóð og 30 þúsund kr. í ríkissjóð.
Dómsforseti var Július Georgs-
son, aðalfulltrúi bæjarfógetans í _
Vestmannaeyjum, og meðdómend-
ur Angantýr Elíasson og Kristinn
Pálsson. —hkj.
Fjölbreyttir tón-
leikar í Húsa-
víkurkirkju
Húsavík, 11. nóvember.
FJÖLBREYTTIR tónleikar voru í
Húsavíkurkirkju í gær; vel sóttir og
vel tekið. Þar kom fram blandaður
kór kirkjunnar og tónlistarskólans,
undir stjórn Ulriks Ólasonar með
undirleik Antonía Ogonovsky tónlist-
arkennara frá Akureyri. Hún lék
jafnframt einleik á píanó.
Þá skemmtu nemendur tónlist-
arskólans, þær Jónasína Arn-
björnsdóttir og Matthildur Rós
Haraldsdóttir, sem sungu einsöng
við undirleik Ulriks. Tveir ungir
nemendur skólans, þær Ingibjörg
Gunnarsdóttir og Herdís Hreið-
arsdóttir, léku einleik á píanó. Það
er nýmæli kórsins að efna til
hausttónleika og boðar það mikið
starf 1 vetur. — Fréttaritari.
Gagnsókn Kasparovs
tryggði honum titilinn
Skák
Margeir Pétursson
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Sikileyjarvörn
l.e4,
Það kemur nokkuð á óvart að
Karpov skuli hefja leikinn með
kóngspeðinu í þessari mikilvægu
skák. Hann hefur samtals unnið
sex skákir af Kasparov, en aðeins
í þeirri fyrstu þeirra, þ.e. þriðju
skák fyrra einvígisins, lék hann
l.e4.
c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4.
Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Be2
— e6,
Líklega hefur Kasparov verið
mjög sáttur við að tefla Scheven-
ingen-afbrigði Sikileyjarvarnar-
innar. Hann hefur beitt því gegn
Karpov í fjölmörgum skákum og
aldrei tapað.
7. (H) - Be7, 8. f4 - 04), 9. Khl
— Dc7, 10. a4 — Rc6, 11. Be3 —
He8, 12. BÍ3 — Hb8, 13. Dd2 —
Bd7,14. Rb3 — b6,15. g4
í átjándu einvígisskákinni lék
Karpov hér 15. Bf2 og þeirri skák
lauk með jafntefli eftir 23 leiki.
Nú duga engin vettlingatök og
strax blásið til sóknar.
- Bc8, 16. g5 — Rd7, 17. Df2 —
Bf8,18. Bg2
Hér hafði Karpov aðeins eytt
tíu mínútum. Þessi staða hefur
áreiðanlega verið á borðinu
heima hjá honum kvöldið áður.
- Bb7,19. Hadl — g6,20. Bcl
Það er ekki hlaupið að því fyrir
hvít að halda sókninni á kóngs-
væng áfram. f4—f5? lætur svarti
eftir mikilvægan reit á e5 og
framrásin h4—h5 færir hvítum
einnig lítið í aðra hönd. Sóknar-
áætlun Karpovs byggist á því að
flytja drottningarhrókinn yfir til
h3 og leika síðan Dh4 við tæki-
færi.
- Hbc8, 21. Hd3 - Rb4, 22. Hh3
-Bg7
Svartur verður að vera reiðu-
búinn til að svara 23. Dh4 með
Rfg
23. Be3 — He7!!
Klunnalegur leikur við fyrstu
sýn, en ákaflega djúpur. Nú er
afskaplega freistandi fyrir hvít
að ráðast á svart með offorsi, en
þegar grannt er skoðað lumar
Kasparov á vörn í báðum hættu-
legustu afbrigðunum: a) 24. f5 —
exf5, 25. exf5 — Bxg2+, 26. Kxg2
— Bxc3!, 27. bxc3 — Dxc3, 28.
Dh4 — h5!, og hvítur hefur engan
veginn fullnægjandi bætur fyrir
peðið og losaralega stöðu sína.
b) 24. Dh4 - Rf8, 25. f5 - exf5,
26. exf5 — Bxg2+, 27. Kxg2 —
Rxc2!, 28. f6 — Rxe3+ með vinn-
ingsstöðu.
Kostir hróksleiksins eru þeir
að nú er f7-reiturinn mjög vel
valdaður og tvöföldun hrókanna
á e-línunni er möguleg. Þar sem
bein árás er dæmd til að mis-
heppnast, bíður Karpov átekta.
24. Kgl!? — Hce8,25. Hdl — f5!
Þar með tekur Kasparov af
skarið.
26. exf6 (framhjáhlaup) Rxf6!
Kasparov fórnar peði, en af-
leiðingar fórnarinnar er þó vart
hægt að reikna til enda. Dæma-
laus kuldi, miðað við stöðuna í
einvíginu.
27. Hg3
Það breytir ekki öllu þó hvítur
leiki 27. Bxb6 strax. Eftir
27... Db8 (En ekki 27... Rg4?!
28. Bxc7 - Rxf2, 29. Bxd6!) 28.
Bf3 er 28... g5! mjög sterkt.
— Hf7,28. Bxb6 — Db8,29. Be3
Ef 29. Bf3 þá nær svartur
frumkvæðinu með 29... d5!
— Rh5,30. Hg4 — Rf6,31. Hh4?
Þarna stendur hrókurinn mjög
afkáralega og tekur ekki frekari
þátt í átökunum. Vegna stöðunn-
ar í einvíginu var Karpov þó
þvingaður til að leika honum, þar
eð þráleikur með 31. Hg3 — Rh5
leiðir til jafnteflis, og þar með
taps í einvíginu.
31...g5!
Eftir þetta sleppir Kasparov
ekki frumkvæðinu. Staða hvíts
er losaraleg og vantefld, þó hann
sé peði yfir, og ekki bætti úr
skák fyrir Karpov að hann er
orðinn tímanaumur.
32. fxg5 — Rg4, 33. Dd2 — Rxe3,
34. Dxe3 — Rxc2, 35. Db6 — Ba8,
36. Hxd6?!
Tapar manni. Bezti jafnteflis-
möguleikinn var 36. Dxb8 —
Hxb8, 37. Hd2, þó svartur standi
mun betur í endataflinu.
— Hb7, 37. Dxa6 — Hxb3, 38.
Hxe6 — Hxb2, 39. Dc4 — Kh8,
40. e5?
Afleikur í tapaðri stöðu.
— Da7+, 41. Khl — Bxg2+, 42.
Kxg2 —Rd4+
í þessari stöðu gafst Karpov
upp, því hann tapar hróknum á
e6, og þar með var Gary Kasp-
arov orðinn heimsmeistari í
skák.
Frábær skák af hálfu Kaspar-
ovs, sem lýsir ofurmannlegum
skilningi á undiröldunni í því
erfiða afbrigði Sikileyjarvarnar
sem kom upp.
Karpov var vel undirbúinn og
reiðubúinn til að leggja allt í
sölurnar. Hann vildi ekki þrá-
leika í 31. leik þegar staðan var
orðin mjög viðsjárverð og því
tapaði hann skákinni.
<r
v.