Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985 MorgunblaAid/Bjanii NEMENDUR í MR óku 1860 hringi í kringum Hagtorgið í Reykjavík um síðustu helgi og settu þar með heimsmet í hringakstri. Heimsmet í hringakstri FIMM ungir menn, nemendur í 6. bekk Menntaskólans í Reykjavík, settu um helgina heimsmet í hring- akstri, en heimsmet í slíkum akstri er ekki til skráð. Óku piltarnir 1.860 _, hringi um Hagatorg í Reykjavík, sem samsvarar 530 kílómetrum og voru þeir 15 klukkustundir að aka þessa 1.860 hringi. „Nei, nei, við vorum ekkert þreyttir, en við hættum eftir 15 klukkustundir, því við vorum búnir að ákveða það áður en við byrjuðum," sagði Aðalsteinn Þórar- insson, einn fimmmenninganna, er blaðamaður Mbl. ræddi við hann í gær. Sagðist hann eiga von á að fá aksturinn skráðan sem heimsmet í heimsmetabók Guinness, „nema einhverjir setji nýtt heimsmet áður v en bókin verður næst gefín út“. Sagði Aðalsteinn að upphaflega hafí verið ráðgert að safna áheitum og láta peningana í dimmisjón- og útskriftar- sjóð, en ýmis vandkvæði hafí síðan komið í veg fyrir það. Þeir sem tóku þátt í akstrinum voru auk Aðalsteins, Ágúst ólafs- son, Sigurður Þorsteinsson, Sig- urður S. Björnsson og Steingrímur B. Björnsson og óku tveir í einu í eina klukkustund í senn á meðan þrír hvíldu sig í tjaldi sem komið hafði verið upp á miðju Hagatorgi. „Það héldu nú margir að við vær- um að mótmæla húsnæðisskorti," sagði Aðalsteinn, „en við leiðrétt- um það“. Að loknum hringakstri í 15 klukkustundir var skálað í kampa- víni á Hagatorginu og síðan hélt Við hvíldarbúðirnar á Hagatorgi. hver til síns heima með bros á vör. Hver brosir ekki eftir að hafa sett heimsmet? ■■■1 V Þessi mynd var tekin af leikhóp Verslunarskólans sem undanfarnar vikur hefur æft leikritið „Blúndur og blásýra", en leikritið verður sýnt í hátíðarsal skólans að kvöldi 15. nóvember næstkomandi. Listahátíð Verslun- arskóla íslands. LISTAHÁTÍÐ Verslunarskóla ís- lands hófst í gær, mánudag, og stend- ur til 15. þessa mánaðar. Sett hefur verið af stað Ijósmynda- og myndlist- arkeppni í tilefni hátíðarinnar og verða verðlaun í keppninni afhent að kvöldi 15. nóvember að lokinni frumsýningu leikritsins „Blúndur og blásýra“ eftir John Kesselving, en Hallur Helgason leikstýrir verkinu. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu sem Morgunblaðinu hefur borist frá listafélagi Versl- unarskólans, þar sem ennfremur segir að í kvöld, þriðjudagskvöld, verði tónleikar í hátíðarsal skólans með Costa Nostru og Valgeiri Guðjónssyni, og hefjast tónleik- arnir kl. 20.30. Söngva- og hæfi- leikakeppni nemenda fer fram annað kvöld kl. 21 og á morgun kemur út bók með ljóðum og smá- sögum eftir nemendur skólans. Á fimmtudagskvöld verður bók- menntakynning, þar sem skáld og rithöfundar lesa upp úr verkum sínum. Norðanmenn Hér funda þeir milli funda stjórnarliðar úr Norðurlandskjördæmi eystra, Stefán Valgeirsson (F) og Halldór Blöndal (S). í baksýn Gunnar G. Schram (S). Alþingi í gær: Vantar mál í efri deild — menn í neðri deild Þrjú mál vóru á dagskrá efri deildar þings í gær. Þau vóru öll tekin út af dagskrá og fundi slitið svo segja um leið og hann hafði verið settur. í neðri deild kvaddi Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) sér hljóðs vegna slæmrar mætingar þingmanna í þingdeildinni. Jó- hanna Siguðardóttir (A), sem flutti framsögu fyrir tekjuskattsfrum- varpi, óskaði frestunar málsins vegna fjarveru forsætisráðherra. Fyrsta dagskrármál efri deild- ar var frumvarp að lánsfjárlög- um. Það er ekki hægt að mæla fyrir þvi frumvarpi fyrr en mælt hefur verið fyrir fjárlagafrum- varpi, sem verður væntanlega gert í dag (þriðjudag). Tvö þing- mannafrumvörp Stefáns Bened- iktssonar (BJ) vóru tekin af dagskrá vegna fjarveru hans. Fjallaði annað um rétt Hitaveitu Reykjavíkur til framleiðslu og sölu rafmagns en hitt um greiðsluskilmála húsnæðislána. Onnur þingmál vóru ekki tiltæk þingdeildinni. Góð mæting var í þingdeildinni en málaþurrð. Þegar neðri deild þings hafði verið að störfum rúman klukku- tíma kvaddi Guðrún Agnars- dóttir (Kvl.) sér hljóðs. Bar hún fram fyrirspurn til forseta þing- deildarinnar (Birgis ísleifs Gunnarssonar), hvern veg stæði á því að svo fáir þingmenn væru •til staðar í þingdeildinni eða samtals fjórir (af fjörutíu) og þar af aðeins einn stjórnarþing- maður, sá er gegndi forseta- starfi. Þetta væri undarlegt í ljósi þess hve hart menn berðust um fyrir því að komast á þennan vinnustað. i Birgir ísleifur Gunnarsson, starfandi þingdeildarforseti, sagði óvenju marga þingmenn hafa fjarvistarleyfi, m.a. vegna .funda utan landsteina á vegum Norðurlandaráðs. Aðra skýringu hefði hann ekki á mætingu í þingdeildinni. Jóhanna Sigurðardóttir (A) óskaði eftir því, er hún mælti fyrir frumvarpi til breytinga á tekjuskattslögum, að forsætis- ráðherra væri viðstaddur um- ræðuna. Hann var þá genginn úr þinghúsi. Fór hún þá fram á festun málsins. Við atkvæðagreiðslur í lok fundarins tóku tuttugu og fimm þingmenn þátt í atkvæðagreiðslu þar af tveir ráðherrar, Sverrir Hermannsson, menntamálaráð- herra, og Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra. Fundi í þingdeildinni lauk eftir eins klukkutíma og þriggja stundarfjórðunga fund. Stuttar þingfréttir: Frumvörp ganga til þingnefnda Nokkur frumvörp voru afgreidd til þingnefnda eftir fyrstu umræöu í neöri deild Alþingis í gær. Þeirra á meöal vóru: * Frumvarp um skattfrádrátt fískverkunarfólks, 10% af fisk- vinnslutekjum, flutt af Sighvati Björgvinssyni (A) og Guðmundi J. Guðmundssyni (Abl). Frum- varp þetta var flutt á síðasta þingi en varð ekki útrætt þá. * Frumvarp um endurmenntun vegna tæknivæöingar í atvinnulíf- inu, flutt af Jóhönnu Sigurðar- dóttur o.fl. Fram kom í umræðu að þetta mál hefur verið í vand- legri könnun hjá nefnd á vegum AIÞIHGI ríkisstjórnar og aðila vinnu- markaðar. Bæði menntamála- ráðherra og félagsmálaráðherra tóku þátt í umræðu og töldu mikilvægt að móta markvissa stefnu í þessu máli. * Frumvarp sem kveöur á um ríkiseign á orku fallvatna flutt af Hjörleifi Guttormssyni (Abl) og fleirum, flutt nú í þriðja sinni. Frumvarpið gerir ráð fyrir und- anþágum, þ.e. eignarrétti jarð- eigenda að allt að 200 kw. sem og þeirra sem þegar hafa virkjað vatnsföll. * Frumvarp til breytinga á orkulögum. Kjartan Jóhannsson mælti fyrir frumvarpi sem hann og fleiri þingmenn flytja um ríkiseign á háhita. Eitt frumvarp var afgreitt til þriðju umræðu. Friörik Sóphusson (S) mælti fyrir nefndaráliti um stjórnarfrumvarpi, þess efnis, að greitt skuli 1.16% (í stað 1% áður) af vergum tekjum Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga til lands- hlutasamtaka þeirra. Einar K. Guöfinnsson Nýir þingmenn TVEIR varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær. Einar K. Guðfínns- son, stjórnmálafræöingur, fyrsti varaþingmaöur Sjálfstæðisflokks- ins í Vestfjarðakjördæmi, tók sæti Matthíasar Bjarnasonar, viöskipta- og samgönguráðherra, í veikinda- forföllum hans. Þá tók Guðmundur Búason, kaupfélagsstjóri í Vest- mannaeyjum, varaþingmaöur Framsóknarflokks í Suðurlands- kjördæmi, sæti Jóns Helgasonar, landbúnaðarráðherra, í fjarveru hans utanlands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.