Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
... detta í sjó
Undirritaður hallast æ meir á
þá skoðun að argaþras leiði
■sjaldan til góðs vænlegri til árang-
jrs séu vinsamlegar athugasemdir
■studdar rökum og þá kannski
miklu frémur að gagnrýninni fylgi
huggun harmi gegn og á ég þá við
að athugasemdunum fylgi ábend-
ingar um það er betur má fara.
Fáum er hollt að starfa í andlegu
tómarúmi, en slíkt tómarúm getur
hæglega skapast þegar menn eru
umkringdir jábræðrum eða enginn
nennir að skipta sér af störfum
þeirra. Stundum kann að vera
bráðnauðsynlegt að sparka hressi-
lega í rassinn á mönnum, einkan-
lega þegar stofnanadoðinn leggst
yfir sviðið líkt og þokan hjá Einari
Ben: Hér er uggi ei hreyfður eða
fjöður / hér er ekkert lifsmark
utan borðsins. / Eins og dautt og
dofið hjaðnar löður,/detta í sjó
og þagna hljómar orðsins.
Hér er vissulega fast að kveðið
en sú hætta vakir sífellt yfir stór-
um stofnunum, að þar hreiðri um
sig værukært fólk er smám saman
veldur því að ... uggi (er) ei
hreyfður eða fjöður. Fjölmiðlar
eiga eðli sínu samkvæmt að vera
einskonar hugmyndabankar er
soga til sín hugmyndaríkt fólk.
Þeirra hlutverk er ekki að viðhalda
„ríkjandi ástandi". Ég er raunar
þeirrar skoðunar að fjölmiðlarnir
verði nánast frá degi til dags að
endurmeta stöðuna. Tökum eitt
lítið dæmi er lýsir prýðilega stofn-
anadoða sumra fjölmiðlanna. Frá
upphafi hefir Sjónvarpið skartað
svokölluðum dagskrárþulum. Hér
er gjarnan um að ræða ungar og
huggulegar stúlkur og hefir þjóðin
oft gamnað sér við að spá í klæða-
burð stúlkna þessara og hafa jafn-
vel spunnist líflegar umræður um
hárgreiðsluna, förðunina og fram-
göngu alla. Slíkt gaman er græsku-
laust en ekki frítt. Greiðendur
afnotagjalds borga stúlkunum
fyrir að mæta örskot á skjáinn að
lesa dagskrána. Stundum mæta
blessaðar stúlkurnar til þessa
starfa seint á síðkveldi eða sek-
úndubroti eftir að dagskráin hefir
ljómað skýrum stöfum á skermin-
um. Að mínu viti er feikinóg að
lesa dagskrána svo sem einu sinni
og nota svo stelpurnar í að lesa
fréttir og annað er til fellur. At-
vinnubótavinna á ekki að þekkjast
á fjölmiðlum. Þar verður hver
maður að sinna sínum starfa af
eldmóði líkt og hann ómar Ragn-
arsson.
Annað dæmi um þann doða er
getur stundum valdið því, að ...
detta í sjó og þagna hljómar orðs-
ins... í ríkisfjölmiðlunum var að
finna í föstudagsdagskrá sjón-
varpsins, en þar var á dagskrá
klukkan 20:55 Kastljós er fjallaði
að mestu um landsfund Alþýðu-
bandalagsins. Gott og blessað ef
þeir hjá sjónvarpinu hefðu ekki
klesst Þingsjánni sama kvöld
klukkan 20:45 en í Þingsjá var líka
rætt um Landsfund Alþýðubanda-
lagsins. Hér er vafalaust um
klaufaskap að ræða en þó finnst
mér afar einkennileg sú ákvörðun
að spyrða saman Þingsjá og Kast-
ljós, því oft er verið að fjalla um
svipaða hluti í þessum fréttaþátt-
um.
Þriðja dæmið er lýsir hinum
sínálæga stofnanadoða í ríkisfjöl-
miðlunum er hrifsað úr dagskrá
rásar 1. Bókaþing nefnist þáttur
Gunnars Stefánssonar á laugar-
dagsmorgnum á milli 11 og 12.
Þessi þáttur á rætur að rekja til
bókaþátta Andrésar Björnssonar
fyrrum útvarpsstjóra enda finnst
mér Gunnar nánast staddur hér á
miðilsfundi í stöðugri leit að for-
vera sínum. Væri ekki nær að
Andrés Björnsson mætti í eigin
persónu í þáttinn vilji menn á
annað borð hverfa aftur í fang
fortíðarinnar? Við slíku er nátt-
úrulega ekkert að segja svo fremi
menn freisti þess að ljá fortíðinni
nýtt yfirbragð.
ólafur M.
Jóhannesson
Kastljós
— leiðtogafundur Reagans og Gorbachevs
■■■■ Kastljós er á
OO 15 dagskrá sjón-
LíLí — varps kl. 22.15 í
kvöld í umsjá Guðna
Bragasonar fréttamanns.
Guðni sagði í samtali
við blaðamann að fjallað
yrði um fyrirhugaðan leið-
togafund Reagans og Gor-
bachevs í þættinum en
þeir munu hittast í Genf
19. og 20. nóvember nk.
Sagt verður frá aðdrag-
anda fundarins og helstu
málum sem upp hafa
komið viðvíkjandi fundin-
um. Gorbachev hefur lagt
til helmingsfækkun kjarn-
orkuvopna í Evrópu. Jafn-
framt verður fjallað um
tillögur Reagans en hann
leggur ríka áherslu á ýmis
mannréttindamál og út-
þenslustefnu Sovétmanna
í þriðja heiminum, t.d. í
Afganistan, auk afvopn-
unar.
Inn í þáttinn koma við-
ræður utanríkisráðherra
landanna, Shultz og Shev-
ardnadze, en þeir hafa hist
nokkrum sinnum að und-
anförnu vegna fyrirhug-
aðs fundar leiðtoganna.
Utanríkisráðherrarnir
komu báðir nýlega til ís-
lands þar sem þeir héldu
m.a. blaðamannafundi.
Einnig mun Guðni ræða
við ýmsa kunna banda-
ríska blaðamenn frá New
York Times og AP-frétta-
stofunni sem voru í fylgd
Schultz. Þá ræðir Guðni
við Jack Metlock, einn af
öryggisráðgjöfum Banda-
ríkjastjórnar, og Gunnar
Gunnarsson, stjórnmála-
fræðing, sem starfar hjá
Öryggismálanefnd hér á
landi.
Lifa flugeðlur enn?
■■■■ „Lifa flugeðlur
<\a 4Q enn?“ nefnist
Li\) “ bresk náttúru-
lífsmynd, sem er í sjón-
varpi kl. 20.40 í kvöld.
David Attenborough er
hér á ferðinni með sögu
flugeðia og leiðir okkur í
sannleikann um þessi
sjaldgæfu dýr.
Fyrir um 70 milljónum
ára lifðu fleyg skriðdýr á
jörðinni samtíma risaeðl-
unum. Fjallað verður um
lifnaðarhætti flugeðlanna
og núlifandi frændur
þeirra.
Þýðandi er óskar Ingi-
marsson.
Roy Marsden í aðalhlutverkinu sem Adam Dalgliesh og
aðstoðarmaður hans.
„Til hinstu hvíldar“
— eftir P.D. James
■■■■ Nýr breskur
01 20 sakamála-
Li 1 —— myndaflokkur,
„Til hinstu hvíldar", hefst
í sjónvarpi í kvöld en alls
eru þættirnir sex talsins.
Þættirnir eru gerðir eftir
sögu P.D. James, sama
höfundar og gerði hina
vinsælu þætti „Vargur í
véum“ sem verið hafa á
skjánum undanfarnar sex
vikur.
f aðalhlutverkinu er
Roy Marsden — hinn sami
og lék aðalhlutverkið í
„Vargi í véum“. Það er
hann Adam Dalgliesh sem
enn veltir vöngum yfir
dularfullri morðgátu.
Hann rannsakar dauða
manns sem grunaður er
um fíkniefnasölu. Hann
rekur slóðina heim á
sveitasetur þar sem ekki
reynist allt með felldu.
Þýðandi er Kristrún
Þórðardóttir.
Minningar
ríkisstjóraritara
\
■■■ „Minningar rík-
Ort 20 isstjóraritara"
Lt\J — nefnist dag-
skrárliður sem er í út-
varpi, rás 1, kl. 20.20 í
kvöld. Pétur Eggerz les
annan lestur af þremur úr
minningabók sinni. Þriðji
og síðasti lestur Péturs er
að viku liðinni.
\
Pétur Eggerz
UTVARP
ÞRIÐJUDKGUR
12. nóvember
7.00 Veðurlregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
O.OOFréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli tréhesturinn" ettir Urs-
ulu Moray Williams. Sigrlöur
Thorlacius þýddi. Baldvin
Halldórsson les (12).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
945 Þlngfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá kvöldinu áður (
umsjá Margrétar Jónsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Ég man þá tlð“. Her-
mann Flagnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Or atvinnullfinu — Iðnað-
arrásin. Umsjón: Gunnar B.
Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll
Kr. Pálsson.
11.30 Ur söguskjóðunni — Um
Dómkirkjuhneyksliö 1850.
Umsjón: Jón Hjaltason. Les-
ari: Lovlsa Björk Kristjáns-
dóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd. Úmsjón: Jónlna Ben-
ediktsdóttir.
14.00 Miödegissagan: „Skref
fyrir skref' eftir Gerdu Antti.
Guðrún Þórarinsdóttir þýddi.
Margrét Helga Jóhannsdóttir
les (16).
14.30 Miödegistónleikar.
a. Sónata I G-dúr fyrir fiðlu
og planó eftir Joseph Haydn.
Stefan Staryk og Lise Bouc-
her leika.
b. Strengjakvartett I C-dúr
op. 29 eftir Ludwig van
Beethoven. Félagar úr Vlnar-
oktettinum leika.
15.15 Barið að dyrum. Einar
Georg Einarsson sér um þátt
frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaöu með mér —
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttlr.
17.50 Slðdegisútvarp — Sverri
Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Minningar rlkisstjórnarit-
ara. Pétur Eggerz les annan
lestur af þremur úr minninga-
bók sinni.
20.50 Frumort Ijóð. Bragi Sigur-
jónsson skáld les úr Ijóðum
sinum.
21.05 Tónlist eftir Jórunni Viö-
ar.
a. Hugleiðing um fimm
gamlarstemmur.
b. Fjórtán tilbrigði um (s-
lenskt þjóðlag.
c. Dans. Höfundur leikur á
planó.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Borgarættarinnart" eftir
Gunnar Gunnarsson. Helga
Þ. Stephensen les (15).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
22.25 Tónleikar Sinfónluhljóm-
sveitar Islands I Háskólablói
SJÓNVARP
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 4.
nóvember.
19.25 Ævintýri Olivers bangsa.
Ellefti þáttur. Franskur
brúöu- og teiknimyndaflokk-
ur I þrettán þáttum um vlö-
förlan bangsa og vini hans.
Þýðandi Guöni Kolbeinsson,
lesari með honum Bergdls
Bjðrt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Lifa flugeðlur enn?
(Wildlife: Pretodactyls-
ÞRIÐJUDtkGUR
12. rtóvember
Alive?) Bresk náttúrullfs-
mynd. Fyrir einum sjötlu
milljónum ára liföu fleyg
skriödýr á jðröinni samtlma
risaeölunum. i myndinni er
fjallaö um þessar flugeðlur,
lifnaöarhætti þeirra og núlif-
andi frændur. Þýðandi
Oskar Ingimarsson.
21.20 Til hinstu hvlldar.
(Cpver Her Face.) Nýr flokk-
ur — Fyrsti þáttur. Breskur
sakamálamyndaflokkur f sex
þáttum eftir sögu P.D. Jam-
es, höfundar „Vargs I vé-
um“. Aðalhlutverk: Roy
Marsden. Adam Dalgliesh
rannsakar dauöa manns
sem grunaöur er um flkni-
efnasölu. Hann rekur slóöina
heim á sveitasetur þar sem
ekki reynist allt með felldu.
Þýöandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.15 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður Guöni
Bragason.
22.50 Fréttir I dagskrárlok.
9. þ.m. Stjórnandi: Jean-
Pierre Jacquillat. Einsöngv-
ari: Kristinn Sigmundsson.
a. „Draumur á Jónsmessu-
nótt", forleikur eftir Felix
Mendelssohn.
b. Óperutónlist eftir Verdi,
Donizetti og Giordano.
c. Fjórar sjávarmyndir úr
óperunni „Peter Grimes"
eftir Benjamin Britten. Kynn-
ir: Jón Múli Arnason.
24.00 Fréttir.Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDÞGUR
12. nóvember
10:00—10:30 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna frá barna- og ungl-
ingadeild útvarpsins. Stjórn-
andi: Ragnar Sær Ragnars-
son.
10:30—12.-00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14Æ0—16Æ0 Blöndun á staðn-
um.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16:00—17:00 Frlstund.
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarö Ingólfs-
son.
17H)0—18:00 Sögur af sviöinu.
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.