Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
7
Landsbókasafnið;
Sýning á verkum
Matthíasar
Jochumssonar
LANDSBÓKASAFN íslands minníst
150 ára afmælis Matthíasar Joc-
humssonar með sýningu í anddyri
Safnahússin, þar verða sýnd ýmis
verk hans, bæði prentaðar útgáfur
og handrit, ennfremur nokkur sýnis-
horn þess, er um hann hefur verið
ritað.
Sýningin mun standa næstu
vikur á venjulegum opnunartíma
safnsins, mánudaga til föstudaga
kl. 9—19 og laugardaga kl. 9—12.
Stærðfræði-
keppni fram-
haldsskóla-
nema hefst
í dag
í DAG, þriðjudaginn 12. nóvember,
kl. 8.00, munu hundruð framhalds-
skólanema um land allt keppast við
að leysa dæmi og þrautir í annarri
stærðfræðikeppninni, sem Félag
raungreinakennara í framhaldsskól-
um og íslenzka stærðfræðifélagið
gangast fyrir.
Að þessu sinni er keppt á tveim-
ur stigum, lægra stigi fyrir fyrstu
tvö námsárin, en hinu efra einkum
fyrir þá sem lengra eru komnir.
Keppnin er jafnframt fyrsti áfangi
í því að velja keppendur í keppnis-
lið íslendinga á ólympíukeppni í
stærðfræði. Undirbúningur keppn-
innar hefur staðið á annan mánuð
og er hún nú með svipuðu sniði
og keppnir sums staðar erlendis,
t.d. í Ástralíu, Kanada og Banda-
ríkjunum.
Að undirbúningi hafa unnið
kennarar við Háskóla íslands, sem
setja saman verkefnin, og kennar-
ar við framhaldsskólana, sem sjá
um framkvæmd keppninnar. Þeir
sem bezt standa sig verða þjálfaðir
sérstaklega fyrir úrslitakeppni,
sem haldin verður í vor, en sigur-
vegarar í henni fá vegleg verðlaun.
Keppnin er að fullu kostuð af IBM
á íslandi.
Nýjar hraða-
hindranir
í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
settar verði hraðahindranir með
upphækkunum á eftirtöldum stöð-
um í borginni:
Á Sogavegi, milli Tunguvegar
og Réttarholtsvegar. Á Langholts-
vegi, norðan Skeiðarvogs, og á
Haðaland, á Neshaga og á Bræðra-
borgarstíg.
Háskóla-
tónleikar
Háskólatónleikar veróa haldnir í
Norræna húsinu á morgun, mióviku-
dag, kl. 12.30 og eru þetta fjórðu
tónlcikarnir á haustmisseri 1985.
Gisli Magnússon píanóleikari
flytur Prelúdíur og fúgur úr „Das
wohltemperierte Klavier 1“ eftir
J.S. Bach.
Jólasendingin í ár til vina
og viðskiptamanna erlendis.
Nýlega kom út hjá Bókaútgáfunni Vöku viðamikil og sérlega
vönduð bók á ensku um það fjölbreytilega listalíf sem er í
deiglunni hér á íslandi.
Bókin ber heitið Iceland Crucible. A modem Artistic Renaiss-
ance. Hún er um 200 blaðsíður í stóru broti. í bókinni er leitast
við að veita innsýn í lifandi menningarlíf íslensku þjóðarinnar,
sem sýnt hefur að á þessu sviði stendur hún jafnfætis mörgum
mun fjölmennari þjóðum.
Sigurður A. Magnússon rithöfundur tók saman efnið og
skrifaði textann, en heimskunnur ljósmyndari, Vladimir Sichov,
tók þær rúmlega 170 ljósmyndir af íslenskum listamönnum sem
bókina prýða.
KYNNINGARVERÐ TIL ÁRAMÓTA
Iceland Crucible býðst nú á sérstöku kynningarverði sem
gildir til áramóta: kr. 2.840,-. 1. janúar hækkar verðið í kr.
3.680,-. Bókinni fylgja traustar umbúðir sem verja hana fyrir
hugsanlegu hnjaski á leiðinni yfir hafið.
GÓÐ LANDKYNNING
Viljir þú styrkja viðskiptasambönd þín erlendis eða gleðja
vini handan hafsins, er tilvalið að senda þeim eintak af þessari
stórglæsilegu bók.
§<c-----------------
Iceland Crucible er einhver athyglisverðasta kynning á íslandi
samtímans sem kostur er á. Með henni er sleginn nýr tónn: Þar
er vakin sérstök athygli á að í okkar fagra landi býr þjóð sem
unnið hefur mikil afrek á sviði lista og menningar. Við eigum
að vera stolt af því að gera umheiminum þetta ljóst.
HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR
STRAX í DAG!
Jólunum er ekki hægt að fresta og því er ekki eftir neinu að
bíða ef bækurnar eiga að berast tímanlega til útlanda.
Sláðu á þráðinn til okkar við fyrsta tækifæri.
Síminn er: 32800.
Við afgreiðum pantanirnar á svipstundu.
VAKA Ijrioafril
Bókin Iceland Crucible býðst nú á sérstöku kynningarverði sem gildir til áramóta: kr. 2.840,-
1. janúar næstkomandi hækkar verð bókarinnar í kr. 3.680,-
Ef þið kaupið fleiri en 10 eintök munum við semja um sérstakan viðbótarafslátt.
Við óskum eftir að kaupa | | eintök af bókinni Iceland Crucible og fá þau send sem allra fyrst.
Nafn kaupanda
Heimilisfang
Póstnr.
Staður
VAKA - HELGAFELL
Síðumúla 29
108 Reykjavík.
St'mi
Undirskrift ^ess sem pantar