Morgunblaðið - 12.11.1985, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
13
Frá liðnum
Jón R. Hjálmarsson: LEIFTUR FRÁ
LANDI OG SÖGU. 247 bls. Suður-
landsútgáfan. Selfossi 1985.
»Bók þessi, Leiftur frá landi og
sögu, hefur að geyma 20 þætti, er
ég skráði eftir viðtölum við glöggt
og skilmerkilegt fólk á ýmsum
stöðum. Sumir þáttanna eru
byggðir á útvarpsviðtölum, en
aðrir hafa hvergi birst áður.«
Svo segir Jón R. Hjálmarsson í
formála. Útvarpsviðtöl hans hafa
lengi notið vinsælda. Flestir við-
mælendur hans hafa verið Sunn-
lendingar. Svo er og í þessari bók
nema hvað teknir eru tali fáeinir
Norðlendingar og Vestfirðingar.
Sá er að mínum dómi fremsti
kostur þessara þátta, eins og fyrri
þátta Jóns R. Hjálmarssonar af
sama tagi, að sérhver viðmælandi
er inntur eftir því sem markverð-
ast hefur á daga hans drifið en
varast er að drepa efni á dreif;
umfram það að hver og einn gerir
í upphafi stuttlega grein fyrir
helstu æviatriðum og kynnir sig
þannig fyrir lesendum.
Lífshlaup Brynjólfs Gíslasonar
á Selfossi er t.d. fyrst og fremst
tengt Tryggvaskála og frá því segir
hann gerst. Þar rak hann í 32 ár
gisti- og veitingahús, hóf rekstur
í þann tíð er Selfoss var að taka
á sig örlitla þorpsmynd og hvarf
ekki frá því starfi fyrr en þar var
risinn myndarlegur bær. Tryggva-
skáli var raunar annað og meira
en staður þar sem hægt var að
gista og matast. Þetta var sögu-
staður sem minnti einatt á
Tryggva Gunnarsson og brúar-
smíði hans. Ævisaga Brynjólfs
tengist því íslenskri samgöngu-
sögu.
Aldís Pálsdóttir fæddist og ólst
upp í Hlíð í Gnúpverjahreppi. Hún
man Einar Jónsson myndhöggvara
Jón R. Hjálmarsson
og Helga Pjeturss sem unga menn.
Helgi dvaldist á bernskuheimili
hennar, var þar við jarðfræðirann-
sóknir. Heimilishald í Hlíð stóð á
gömlum merg. f búskapartíð
ömmu hennar og afa »urðu allir
að vera komnir í rúmið klukkan
tíu á kvöldin og þurfti mikið til,
svo að út af væri brugðið.«
Lífsreynslusaga húsvarðar heitir
frásögn Kristjáns Guðnasonar á
Selfossi. Kristján er Dalamaður
að uppruna en leitaði suður á bóg-
inn eins og fleiri af hans kynslóð
— og staðnæmdist á Selfossi. Frá-
sögn Kristjáns er um margt merki-
leg, lífsreynsla hans óvenjuleg.
Eins og Brynjólfur í Tryggvaskála
sá hann Selfoss eflast og vaxa —
og átti auðvitað þátt í þeim vexti
að sínum hluta.
Þegar bflarnir komu í Rangárþing
nefnist þáttur þar sem Guðjón
Jónsson á Hvolsvelli segir frá. í
rauninni er þetta bíla- og bílstjóra-
tal Rangæinga fyrstu áratugi bif-
reiðaaldar þar í héraði. Rangár-
þing var þá svo til hreinræktað
árum
sveitahérað, þorpsmyndun á byrj-
unarstigi. Bændur og bændasynir
urðu því fyrstu bílstjórar og bif-
reiðaeigendur þar í sýslu. Fróðleg-
ur þáttur um merkilegt brautryðj-
endastarf.
Meðal Norðlendinga, sem segja
frá í þessari bók, er Björn Jónsson
í Bæ á Höfðaströnd. Björn er löngu
landskunnur, meðal annars sem
líflegur fréttaritari Morgunblaðs-
ins. Skammt frá bæ hans eru
kennileiti þau sem mörgum þykja
setja höfuðsvip á Skagafjörð:
Drangey, Málmey og Þórðarhöfði.
Björn í Bæ man tímana tvenna.
Hann man svo langt, sautján ára
strákur, að Jóhann Sigurjónsson
kom að Bæ þeirra erinda að undir-
búa hafnargerð við Þórðarhöfða.
Varð Björn eins konar leiðsögu-
maður skáldsins. En draumurinn
varð aldrei að veruleika. »Þetta
var bráðsnjöll hugdetta fyrir sinn
tíma, sem kom og fór.«
Frásögn Björns er fjörleg en
ekki alveg laus við endurtekningar.
Ég nefni líka Á fornum slóðum í
Ódádahrauni, frásögn Jóns Sigur-
geirssonar frá Helluvaði. Jón var
löngum ferðafélagi ólafs Jónsson-
ar, þess er síðar tók saman hið
mikla rit, Ódáðahraun. Var það
árangur af ferðum þeirra, félag-
anna, og athugunum Olafs.
f þann mund er þeir tóku að
ferðast um óbyggðirnar var ísland
ekki ókannað, að vísu, en tiltölu-
lega fáir höfðu þó lagt leið sína
um hálendið. í vitund margra var
það töfraveröld hetjusagna og
dulúðar. f kyrrstæðu samfélagi
höfðu menn svo lengi þráð að sjá
hvað væri hinum megin við fjallið.
Jón Sigurgeirsson segir að áhugi
sinn á fjallaferðum hafi vaknað
þegar hann var ungur í heimahús-
um. Og tólf ára fór hann fyrst í
göngur. Ferðir eins og þær, sem
þeir fóru síðar, ólafur og hann,
kostuðu ærinn tíma og fyrirhöfn
en veittu í staðinn ánægju og
endurminningu sem því svaraði.
Það er alltaf einhver hugljómun í
frásögnum þessara gömlu ferða-
garpa sem sjaldan merkist í tali
þeirra sem segja frá ferðum sínum
nú. Óþarft er að nefna fleiri þætti
í þessari ágætu bók. Því þrátt fyrir
mismunandi frásagnarefni verður
naumast gert upp á milli frásagna
og sögumanna.
Sögumenn Jóns R. Hjálmarsson-
ar eru þægilegur félagsskapur í
skammdegi. Vona ég að Jón haldi
áfram og safni til fleiri bóka með
svipuðu efni.
Lífleg lyfta
Kvíkmyndir
Árni Þórarinsson
Austurbæjarbíó: Lyftan — The Lift
☆☆
Hollensk. Árgerð 1984. Handrit og
leikstjórn: Dick Maas. Aðalhlut-
verk: Huub Stapel.
Allar þær vélar sem okkur
hefur tekist að búa til gegnum
tíðina eiga að auðvelda okkur
verkin, gera lífið léttara. Raunin
er stundum önnur, eins og kunn-
ugt er. Þetta notfæra rithöfund-
ar og kvikmyndagerðarmenn sér
í ríkum mæli. Þeir eru sífellt að
koma þeirri ónotatilfinningu að
hjá okkur að tækin séu alls engir
vinir okkar. Það sé langt frá því
að við kunnum tökin á tækninni.
Nær lagi sé að tæknin kunni
tökin á okkur. Þetta sannaðist
meðal annars á þeim góða baróni
Frankenstein og manninum sem
hann bjó sér til. Og á þessari öld
hafa tölvur og önnur tækniundur
legið undir grun um að snúast
gegn meistara sínum 1 fjölda
hryllingsmynda, þrillera og vís-
indaskáldskap af ýmsu tagi. Nú
er röðin komin að lyftunum, —
tækinu sem gerir okkur kleift að
ferðast hratt og örugglega upp
eftir háu húsunum sem við höf-
um byggt.
Hollenski leikstjórinn Dick
Maas byggir þennan þriller sinn
á þeirri hugmynd að æ fullkomn-
ari lyftutækni sé ekki öll þar sem
hún er séð. Kvikmyndin Lyftan
er á hinn bóginn gerð af drjúgri
spennutækni og gaman að sjá
Hollending spreyta sig á aðferð-
um sem mjög minna á æfingar
Bandaríkjamannsins Johns
Carpenter. Maas semur meira að
segja snöfurmannlega hljóðgerv-
ilsmúsík að hætti Carpenters.
Það háir myndinni að vísu að hún
er dubbuð upp á amerísku og
leikur í aukahlutverkum er æði
misjafn. En aðalhlutverkið er
Lyftan sjálf sem herjar á þá sem
erindi eiga í háhýsi eitt og vél-
virkjann sem kvaddur er til að
gera við hana. Þetta stríð verður
í meðförum Maas býsna harðsnú-
ið og óhugnanlegt á köflum með
jöfnu framlagi frá vísindaskáld-
skap, þriller og eldingum gotn-
eskrar hryllingsmyndar. Svo
dettur myndin niður þess á milli,
þar sem einkalíf vélvirkjans
verður of fyrirferðarmikið.
í heild er Lyftan skemmtilega
tekin og unnin lítil spennumynd,
þar sem því er haldið stíft fram
að ekki sé öruggt að tækin okkar
séu öll dauðir hlutir. Standi
menn í þeirri trú eiga þeir á
hættu að verða sjálfir dauðir
fyrr en ella.
UMBOÐSMENN EUROCARD
eftirtaldir aðilar hafa með höndum umboð
fyrir Eurocard Kreditkort sf.