Morgunblaðið - 12.11.1985, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
„Konan sem gleymdist“
*
I tilefni kvennaáratugar
— eftir Guðmund
Hallvarðsson
í Morgunblaðinu 6. nóvember
skrifar Rósa Sveinbjarnardóttir
athyglisverða grein um baráttu
kvenna hér á landi fyrir jafnrétti.
Það sem fær mig til að stinga niður
penna í allri þeirri umfjöllun um
réttarstöðu kvenna sem að undan-
förnu hefur dunið yfir og þykir
víst mörgum nóg um, er sú um-
fjöllun sem hið einstaka hlutverk
sjómannskonunnar í þessu þjóð-
félagi hefur fengið hjá forystusveit
kvenna og annarra þátttakenda
kvenréttindabaráttunnar.
Sjómannskonan
gleymdist
Alltof fáir utan sjómannastétt-
arinnar gera sér grein fyrir þýð-
ingarmikiu hlutverki sjómanns-
konunnar sem um langan tíma í
senn stendur uppi sem húsmóðir
og húsbóndi á heimili sínu. Upp-
eldishiutverk hennar er hvað
Undirritaðir vilja koma á fram-
færi athugasemdum við ræðu
Kristjáns Ragnarssonar fram-
kvÁmdastjóra LÍÚ sem birtist í
Morgunblaðinu 7. nóvember 1985.
Framkvæmdastjórinn gerir þar
enn eina tilraun til þess að gera
tortryggilega álagningu á olíu með
því að slá ryki í augu almennings
og umbjóðenda sinna. Fram-
kvæmdastjórinn fullyrðir að
álagning olíufélaganna hafi hækk-
að óhóflega mikið á þessu ári eða
um 61%. Hækkun á álagningu
stafar ekki af niðurfellingu opin-
berra gjalda á olíu eins og fram-
kvæmdastjórinn fullyrðir heldur
vegna þess annars vegar að verið
var að leiðrétta að hluta skerðingu
á álagningu frá því í nóvember
1984, og hins vegar hafði álagning
veigamest í fjölskyldulífinu að
ógleymdu því hlutverki hennar
sem lýtur að verkefnum heimils-
ins. Þar ofan á bætast áhyggjur
þegar veður eru válynd á hafinu
vegna starfa eiginmannsins, sjó-
mannsins, sem vinnur við þá
starfsgrein þar sem dauðsföll og
slys eru hvað tíðust. í allri umræð-
unni um kvenréttindi er sjómanns-
konan söm við sig, hún vinnur sín
ábyrgðarmiklu störf í kyrrþey og
æðruleysi. Forystusveit kvenna
sem og mörgum öðrum finnst það
eðlilegt að námsfólk og einstæðir
foreldrar njóti forgangs með börn
sín á dagheimili; ekki hefur komið
fram krafa frá sjómannskonunum
um sama rétt varðandi vistun
barna sinna og kemur þar margt
til, en eflaust gætu slík forréttindi
komið sér vel.
Fyrir nokkrum árum vann hóp-
ur fræðimanna að könnun á fjöl-
sky'dulífi sjómanna. Margt at-
hyglisvert kom þar fram hvað
varðar stöðu sjómannskonunnar
sem vissulega hefði getað verið lóð
á vogarskál þess málaflokks kven-
réttindabaráttunnar sem fjallar
verið óbreytt í krónutölum í hálft
ár.
Til frekari glöggvunar fyrir
framkvæmdastjórann er með-
fylgjandi línurit sem sýnir þróun
verðlags, álagningar olíu og fisk-
verðs fyrir tæplega tveggja ára
tímabil. Framkvæmdastjórinn
hefur ef til vill ekki gert sér grein
fyrir því að á tímabilinu hefur
verð á botnfiski hækkað um 53%
á meðan álagning olíufélaganna
hefur hækkað um 27%. Á sama
tíma hefur byggingavísitala hækk-
að um 48%.
Fullyrðingar framkvæmdastjór-
ans koma enn frekar á óvart í ljósi
þess að hann hefur fulla vitneskju
um að tap olíufélaganna á sölu
bensíns, gasolíu og svartolíu það
sem af er árs nemur meira en 150
milljónum kr.
um stöðu konunnar í nútímaþjóð-
félagi.
Ein kona í 5 manna lúkar
Árið 1978 var unnið að endur-
skoðun reglugerðar um öryggi og
aðbúnað í skipum, leitað var víða
fanga til samanburðar á slíkum
reglum m.a. á Norðurlöndum. Frá
Noregi komu þær upplýsingar að
væri kona í áhöfn fiskiskips skyldi
hún hafa sér klefa.
Nú var úr vöndu að ráða og var
jafnréttisráði sent bréf og leitað
umsagnar, jafnframt sem bent var
á að giltu slíkar reglur á íslandi
gæti það orðið þess valdandi að
erfitt gæti það reynst konum að
fá skippláss. Beðið var svars jafn-
réttisráðs um langan tíma, en áður
en það barst kom á skrifstofu Sjó-
mannafélagsins ung kona sem var
háseti á vertíðarbát suður með
sjó. Erindið var að fræðast um
kaup og kjör en ég notaði tækifær-
ið og spurði hana álits á skipan
vistarvera fiskiskips þegar kona
væri um borð, jafnframt um henn-
ar hagi sem háseta á fiskiskipi.
Hún kvað það af og frá að settar
yrðu sérreglur varðandi vistarver-
ur ef kona væri í áhöfn, kvaðst
vera í 5 manna lúkar með 4 körlum
Samkvæmt upplýsingum sem
fram komu á þingi LlÚ nemur tap
botnfiskflotans 2—3% af tekjum.
Tap olíufélaganna á sölu gasolíu
nemur aftur á móti 3—4% af
tekjum.
Hér hefur einungis verið gerð
athugasemd við umfjöllun fram-
kvæmdastjórans um álagningu á
olíu. Full ástæða hefði þó verið til
Guðmundur Hallvarðsson
„Alltof fáir utan sjó-
mannastéttarinnar gera
sér grein fyrir þýðing-
armiklu hlutverki sjó-
mannskonunnar sem
um langan tíma í senn
stendur uppi sem hús-
móðir og húsbóndi á
heimili sínu.“
þess að gera athugasemdir við
fleiri atriði í máli hans.
Bjarni Bjarnason,
Olíufélagið Hf.
Kristján B. Ólafsson,
Skeljungur Hf.
Höfundar sjá uw verðlagsmál olíu-
félaganna og útreikninga á álagn-
ingu.
og því fylgdu engin vandkvæði
fyrir sig. Neitaði því ekki að hún
tæki eftir því þá karlar allir væru
komnir í koju að annað auga eins
skipsfélaga lokaðist ekki fyrr en
hún væri komin í koju. Um síðir
kom langt svar jafnréttisráðs þar
sem engin afstaða var tekin í mál-
inu og býr kona við algjör jafn-
réttindi hvað varðar aðbúnað og
laun um borð í íslenskum fiskiskip-
um og farskipum.
Höfundur er formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur.
Einn sá
athygiis-
verðasti
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Prince
Pop Life
Warner Brothers/Steinar
Ég man alltaf hvað mér
fannst Prince „pempíulegur"
og tónlist hans þrautleiðinleg í
ofanálag þegar ég heyrði fyrst
í honum. Ásgeir Bragason, þá-
verandi trymbill Purrks Pilln-
ikks, dró plötu með honum með
sér eitt sinn er ég átti spjall við
sveitina og smellti henni á fón-
inn. Ég held öllum hafi fundist
lítið til hennar koma nema
Ásgeiri sjálfum.
Þessi skoðun mín á Prince
var óbreytt allt fram á mitt
síðasta ár er hann sendi frá sér
plötuna Purple Rain. Með
henni urðu vissulega ákveðin
tímamót á ferli þessa sérstæða
poppsnillings og með þessum
tímamótum opnuðust einnig
augu almennings hér á landi
fyrir hæfileikum hans. Lög á
borð við When Doves Cry, Let’s
Go Crazy og Purple Rain, titil-
lag samnefndrar kvikmyndar,
nutu feikilegra vinsælda á rás
2 en frá því tónar þeirra laga
dóu út hefur að mestu verið
hljótt um hann, a.m.k. á öldum
ljósvakans.
En Prince er ekkert að gefa
eftir ef marka má nýjustu plöt-
una hans, Pop Life, jafn undar-
legur blendingur af tónlist og
hún er nú sannast sagna. A
Pop Life ægir saman öllum
mögulegum og ómögulegum
stefnum í poppinu; hreinrækt-
uðu poppi, diskói, rokki,
rythm’n’blues og jafnvel klass-
ík. Öllu þessu blandar meistari
Prince saman af eigin hug-
vitssemi og tekst giska vel upp
í flestum tilvikum.
í raun er Pop Life dæmigerð
plata fyrir Prince, mann sem
fer sínar eigin leiðir. Á að
hlusta kann platan að virka
stefnulaus, lögin koma hvert
úr sinni áttinni, en stefnufest-
an ræður hins vegar ríkjum
þegar um er að ræða vinnu-
brögð og úrvinnslu hugmynda
hjá Prince. Hann er allt í öllu
sjálfur; semur, syngur, leikur á
flest hljóðfæri, stjórnar upp-
tökunum o.s.frv.
Mörg laganna á Pop Life eru
hreinustu gullkorn og nægir
þar að nefna Temptation, titil-
lagið Pop Life, Raspberry Ber-
et, Tambourine og The Ladder,
sem er alls ekki ósvipað Purple
Rain að uppbyggingu.
Víst er það svo með Prince
eins og marga aðra, að menn
skiptast í tvo hópa þegar gera
á upp hvort tónlist hans sé
skemmtileg eða ekki. Hinu
held ég að enginn neiti að
Prince er einhver allra athygl-
isverðasti popparinn á rjátli
þessa dagana. Pop Life er góð-
ur vitnisburður um það.
Húsbyggjendur og verktakar—Sparið peninga!
Þaö er dýrt að byggja, um það eru allir sammála. Því
er mikilsvert að spara peninga þar sem því veröur við
komið.
Fyrirtækið Jonis Trolast er þekkt á öllum Norðurlöndum
vegna flutninga þess á byggingavörum frá verksmiðjum
beint til kaupanda. Fyrirtœkið útvegar og flytur timbur,
glugga, hurðir, plötur, innréttingar og einangrun.
• Þið sendið okkur teikninguna og við
sendum öll gögn um hæl — ykkur að
kostnaðarlausu.
• Við sjáum um ftutningsskjöl og toll-
pappira.
• Margir flutningsmöguleikar.
• Við ffytjum vðruna hvert sem er á ís-
landi.
• Framkvæmdastjórinn okkar er
tslenskur, spyrjið um:
Níels Jón Þóröarson.
• Biðjið um tilboö — Beriðsaman —
Sjáið hvað unnt er að sparal
Álagning á olíu