Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 17

Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985 17 Sterama skal á ad ósi.Ég tel því að til þess að ná einhverjum árangri í fækkun umferðarslysa þurfi að höggva að rótum þeirra í stað þess að leggja meginorkuna í afleiðingarnar. En á hvern hátt verður það gert? Ekki eru líkur til að hér verði beitt neinum „hókus pókus“- aðferðum, nei, hér ber nauðsyn til að hugarfarsbreyting verði hjá ökumönnum, svo og öðr- um vegfarendum. Það er með þetta eins og svo margt annað að undir- stöðuna þarf að vanda svo yfir- byggingin standist tímans tönn, og hvar skal þá byrja? Mín skoðun er sú að i fyrsta lagi þurfi að leggja mun meiri áherslu á umferðar- fræðslu í skólum, jafnvel þó það væri á kostnað einhverra annarra námsgreina. í öðru lagi þarf að auka kröfur við ökukennslu svo og útgáfu nýrra ökuskírteina, því það mun svo vera að þeir sem tíðast lenda í umferðarslysum eru þeir ökumenn sem yngstir eru. Þá mun vera þörf á að taka hart á um- ferðarlagabrotum ekki hvað síst vegna hraðabrota, því þar munu orsakir slysanna tiðast liggja og akstri ekki hagað eftir aðstæðum. í fjórða lagi er að sjálfsgöðu nauð- synlegt að halda uppi áróðri og leiðbeinigum varðandi umferðina, en þar finnst mér að hafi verið brotalöm allt til skamms tíma af hálfu opinberra aðila, en því meiri fjármunum varið í áróður fyrir notkun bilbelta, sem virðist næst- um trúaratriði áróðursmeistar- anna og spurning er hvort hann sé ekki farinn að virka öfugt við tilganginn. í þvi sambandi bendi ég á, að í felstum fréttum af umferðarslysum er niðurlag þeirra eitthvað á þessa leið: „hann (þ.e. Nýjustu fréttir Gosh Augnsnyrtivörur Varalitir Varalitagloss Naglalökk Kinnalitir Allt í nýju tískulitunum H.iqstætt verö Útsölustaðir: Stella, Bankastræti 3, Apótek Garöabæjar, Vestmannaeyjaapótek, Egilsstaöaapótek, Amaro, Akureyri, Kaupfélag Skagfiröinga, Skagfiröingabúö. Orsök og afleiðingeru systur tvær, sem sjaldan skilja, og er sú fyrrnefnda jafnan í fararbroddi. En því orða ég þetta svo að oftar hef ég undrast þá aðila sem hafa það að atvinnu sinni að vera leið- beinendur og ráðgefendur í um- ferðarmálum. Engu er líkara en þeir hafi blindast í ofurkappi sínu í áróðri fyrir notkun bílbelta, sjái ekki skóginn fyrir trjánum og sneiði framhjá kjarna málsins, því beltin sem slík, hvort sem þau eru notuð eða ekki, geta aldrei orðið orsakavaldurinn að umferðarslysi. En eins og áður segir geta þau í sumum tilvikum dregið úr afleið- ingum en í öðrum aukið þær. Þannig verða beltin aldrei nein allsherjar lausn til að koma i veg fyrir umferðarslysin. Bílbelti, orsakir og afleiðingar slysa Guðmundur Jóhannsson urbr. mín) að aka á barn með þeim afleiðingum að það deyr eða verður öryrki allt sitt líf vildi gefa aleigu sína til að sá atburður hefði ekki orðið, hversu ríkur sem hann er.“ „Miklir menn erum við, Hrólfur minn.“ Mér datt þetta oflátungs- lega orðatiltæki i hug við lestur á grein eftir framkvæmdastjóra Umferðarráðs, þar sem hann telur sig þess umkominn að setja ofan í við þá alþingismenn, sem voru andvigir því á síðasta þingi að viðurlögum skyldi beitt við því að nota ekki bílbelti. Þó við reiknum með að þingmenn séu mannlegir og þeim geti skjátlast sem öðrum þá skulum við eigi að síður treysta því að þeir greiði atkvæði eftir sannfæringu sinni svo sem stjórn- arskráin ætlast til af þeim. Nú hefur verið lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp, sem er endur- flutt frá síðasta þingi, um Um- ferðarlög, og þess er óskandi að í kjölfar hinna væntanlegu, nýju laga komi eðlilegri skikkan á umferðina og dragi úr þeim slysa- faraldri, sem ríkt hefur hjá okkur í alltof mörg ár. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Litla-Hrauns. — eftir Guðmund Jóhannsson Miklar umræður hafa farið fram i töluðu og rituðu máli um bílbelti til góðs og ills, svo og viðurlög við að nota þau ekki. Ég held að flestir séu sammála um það að beltin, séu þau notuð, bæði geti og hafi dregið verulega úr tjóni á fólki í um- ferðarslysum. En þar með er ekki sagt að það sé réttlætanlegt að skylda menn til að vera tjóðraðir við bílinn gegn vilja sínum hvenær og hvar sem er. Svo einfalt er málið ekki því fleiri en einn flötur er á því. Því þótt það sé staðreynd að bílbeltin, séu þau notuð, geti dregið verulega úr tjóni i umferð- arslysum, þá er það og staðreynd að þau geta líka aukið tjónið eða verið bein dauðagildra séu menn tjóðraðir við bílinn undir vissum kringumstæðum og hver vill stuðla að slíku. Enda er þessi hætta við- urkennd af ábyrgum aðilum sem kemur fram í reglugerð frá 25. september ’81, þar sem undanþága er veitt frá skyldunotkun beltanna við erfið og hættuleg skilyrði. Hér er staðfest hættan af notkun belt- anna við ýmsar aðstæður, en eng- inn veit fyrirfram hvernig eða hvenær slys ber að höndum. „Engu er líkara en þeir hafi blindast í ofurkappi sínu í áróðri fyrir notkun bflbelta, sjái ekki skóg- inn fyrir trjánum og sneiði framhjá kjarna málsins...“ ökumaðurinn) var ekki I bílbelti”, en þess ekki getið hvað olli slysinu. í flestum tilfellum er einhver umferðarreglan brotin. Að benda á afleiðinguna en ekki orsökina tel ég ekki hina réttu áróðursaðferð. Það er meira en lítið bogið við þá umferð þar sem tíu umferðar- ohöpp verða á einum klukkutíma, eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu 30. október sl. Einhverjir hafa þar brotið umferðarreglur. Þetta segir okkur að alltof margir virða ekki settar reglur og þjösnast áfram án nokkurrar fyrirhyggju. í framhaldi af þessu leyfi ég mér að vitna í grein sem „gamall" góðkunningi minn, Valgarð Briem, reit að aflokinni umferðarviku í Reykjavík nú i haust, en þar segir hann: „Maður sem orðið hefur fyrir þeirri ógæfu af óaðgæslu (let-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.