Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 21

Morgunblaðið - 12.11.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985 21 Yatnslitir í Ásmundarsal Myndlist Bragi Ásgeirsson Sigurþór Jakobsson hefur víða komið við á tæknisviði myndlistar- innar á þeim fáu sýningum er hann hefur haldið um dagana. í eina tíð var það ströng og formföst flatar- málsfræði en síðan mýktist út- færsla myndheims gerandans og sú þróun virðist ennþá standa yfir. Sýning Sigurþórs á 64 vatnslita- myndum í Ásmundarsal undir- strikar þessa þróun jafnvel svo mjög að á köflum virðist formið vera á góðri leið með að leysast alveg upp. En sem betur fer er þá um undantekningar að ræða og á við fáar myndir, sem gjarnan hefðu mátt missa sín. Sigurþóri lætur áberandi betur að vinna í frjálsri huglægri ab- straksjón en í hlutgervri lýsingu í náttúrunni og því sem fyrir augu ber. Sigurþór Jakobsson Þetta síðasta á þá aðallega við myndir af trjám, skipum og lands- lagi en þó eru nokkrar undantekn- ingar í hinum smærri landslags- myndum af himni og hafi, sem þó eru á mörkum hins hlutlæga. Hrifmestu myndirnar á sýning- unni þykja mér lítil huglæg stef, sem auðsjáanlega eru gerð undir áhrifum frá náttúrunni. Vil ég hér nefna myndir eins og „Upphaf" (31), „Eðalsteinar" (32), „Rökkur- steinar" (38), „Níundi nóvember" (47) og „Leikur að völum" (62). Allar eru þessar myndir af svip- aðri stærð en samt í eðli sinu fyrirferðarmestu myndir sýning- arinnar fyrir lifandi lita- og formaspil ásamt greinilegri list- rænni lifun. Þessar myndir og nokkrar aðrar þeim svipaðar skáru sig úr á sýn- ingunni og hér held ég að Sigurþór Jakobsson hafi náð lengst i list sinni til þessa. Sj álfstæðismenn við þökkum móttökumar... Við stuðningsmenn Árna Sigfússonar í borgarstjórnarprófkjöri sjálfstæðismanna 24. og 25. nóvember n.k., dreifðum um helgina blaði til stuðnings framboði hans. Við þökkum góðar móttökur og hvetjum ykkur til þess að kynnast hugmyndum hans. Nú er máUð að koma Áma í öruggt sætif

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.