Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
23
Kasparov yngsti heims-
meistari skáksögunnar
Moskvu, 11. nóvember. AP.
GARRI Kasparov er aðeins 22 ára gamall og því yngsti heimsmeistari
skáksögunnar. Það eru þó mörg ár síðan farið var að spá honum miklu
gengi. „í höndum þessa unga manns liggur framtíð skáklistarinnar,“
sagði Mikhail Botvinnik, fyrrum heimsmeistari, um Kasparov 11 ára
gamlan, en Kasparov var þá nemandi hans.
Kasparov fæddist 13. apríl
1963 í borginni Baku, höfuðborg
Sovétlýðveldisins Azerbaijan.
Hann lærði skák fimm ára
gamall með því að horfa á for-
eldra sína tefla. Hann var þó
aðeins 7 ára gamall, er faðir
hans lézt, en hann var verk-
fræðingur af gyðingaættum.
Er Kasparov var 10 ára gam-
all, gekk hann í skákskóla Bot-
vinniks, sem talinn er vera sá
bezti í öllum heiminum. Kasp-
arov varð alþjóðlegur meistari
16 ára gamall og ári síðar varð
hann stórmeistari og sigurvegari
á heimsmeistaramóti unglinga í
skák.
Arið 1983 vann Kasparov sér
rétt til þess að skora á Karpov
í einvígi með því að sigra þá
Alexander Beliavsky, Viktor
Korchnoi og Vassily Smyslov í
einvígjum. Einvígið við Karpov
hófst í september 1984. Kasparov
fór hins vegar illa af stað og
tapaði fljótlega fjórum skákum
fyrir Karpov. Er hann var síðar
spurður að því, hvað hefði gerzt,
svaraði Kasparov: „Ég er bráð-
látur. Hæfileiki minni til þess
að halda róseminni er ekki þrosk-
aður.“ Loks var staðan orðin
fimm vinningar gegn. engum
Karpov í hag, en Kasparov neit-
aði engu að síður að gefast upp.
Svo fór, að járnvilji Karpovs
gaf sig og Kasparov tókst að
bæta stöðu sína, svo að hún var
orðin 5:3. Florencio Campoman-
es, forseti Alþjóðaskáksam-
bandsins og gamall vinur
Karpovs, stöðvaði þá einvígið.
Kasparov brást reiður við:
„Fyrir Karpov er orðið íþrótt
innihaldslaust hugtak. Að mínu
mati þá erum við tefla fyrir allan
heiminn og getum ekki leikið
okkur eins og okkur hentar."
Gremja hans beindist fyrst og
fremst gegn Campomanes.
„Hann er maður, sem ekki skilur
skák né vandamál hennar. Hann
gerir allt fyrir peninga. Við
ættum að binda enda á völd
hans,“ sagði Kasparov síðar í
blaðaviðtali.
Enda þótt Kasparov hafi oft
verið opinskár í ummælum sín-
um, þá er hann enginn andófs-
maður í Sovétríkjunum. Hann
gekk snemma í æskulýðssamtök
kommúnistaflokksins i Azerbaij-
an og var orðinn fullgildur með-
limur flokksins 19 ára gamall.
Kasparov hefur mikil tengsl við
Geidar A. Aliev, sem var áður
leiðtogi kommúnistaflokksins í
Azerbaijan og yfirmaður KGB
þar. Nú er Aliev áhrifamikill
fulltrúi í stjórnmálaráði sovézka
kommúnistaflokksins.
Það er einmitt talið, að það
hafi verið Aliev, sem komið hafi
til skjalanna og haldið verndar-
hendi yfir Kasparov, er hann átti
yfir höfði sér ofanígjöf frá opin-
berum aðilum vegna gagnrýni
sinnar.
Nú þegar Kasparov er orðinn
heimsmeistari, fær hann vænt-
anlega ferðafrelsi hvert sem
hann vill. Hann er hins vegar
mjög hændur að móður sinni,
sem hefur mikil áhrif á son sinn
og ræður mörgu, sem snertir
hann. Bæði eru þau mjög fámál
um einkalíf hans. Sá orðrómur
er þó á kreiki, að Kasparov eigi
vingott við Marinu Neolovu, leik-
konu, sem er komin er yfir 35
ára aldur.
á
Skriðdreki brýst í gegnum dyr dómshallarinnar I Bógóta og hermenn búa
sig undir að ryðjast inn í bygginguna þar sem skæruliðamir héldu gíslunum.
Colombía:
Skæruliðarnir
voru óviðbúnir
Bógóta, Colombfu, 11. nóvember. AP.
Uppreisnarmennirnir sem tóku dómshöllina í Bógóta áttu að sögn ekki von
á að herinn myndi grípa til svo ákveðinna mótaðgerða og haft er eftir heimild-
um að þeir hafi ekki búist við beinum hernaðaraðgerðum fyrr en samningavið-
ræður hefðu verið reyndar.
Nú er ljóst að alls tóku 55 skæru-
liðar þátt í aðgerðinni, þar á meðal
8 konur. Allir uppreisnarmennirnir
létu lífið er herinn tók dómshöllina
en höfðu þá tekið af lífi 53 starfs-
menn hæstaréttar og borgara. Bréf
sem komið var laumulega til skrif-
stofu AP í Bógóda sagði að skæru-
liðar hefðu ætlað að neyða Belisario
Betancur forseta til að koma til
dómshallarinnar. Þar var ætlunin
að draga hann fyrir rétt fyrir að
„svíkjast" um að framfylgja loforð-
um sínum um samningaviðræður
til að koma á varanlegum friði við
skæruliða vinstrimanna í landinu.
Skæruliðasamtökinn, sem kalla
sig M—19 og telja um 3 þúsund
félaga, sömdu um vopnahlé við
öryggissveitir ríkisstjórnarinnar á
síðasta ári. Þau hófu aftur skæru-
hernað í júní sl. eftir að hafa lýst
því yfir að ríkisstjórnin gerði ekk-
ert til að rétta hlut hinna fátækustu
í landinu.
Sovétmenn láta und-
an kröfum le Carre
London, 11. nóvember. AP.
JOHN le Carre, einn þekktasti
njósnasagnahöfundur Bretlands, hef-
ur skýrt frá því að yfirvöld í Sovétríkj-
Hjónaskilnaóur:
Vildi skaöabætur
vegna afmeyjunar
Sainl Klicnnc, Frakklandi, 11. nóvcmbcr. AP.
DOMIIR hefur úrskurðað að kona
sem óskaði skaðabóta í hjónaskilnað-
armáli vegna meydómsmissis, skuli
ekki fá þær. Dómurinn löggilti skiln-
aðinn, en synjaði skaðabótakröfu
konunnar á þeirri forsendu, að „glöt-
un meydóms innan hjónabands geti
ekki talist tjón sem réttlæti skaðabæt-
ur“.
Hjónin fyrrverandi giftust í júlí
á síðastliðnu ári og eru barnlaus.
unum hafi greitt andvirði 700 dollara
til mannréttindasamtaka eftir sinni
tilvísun. Carre er höfundur margra
vinsælla spennubóka, s.s. „Njósnar-
inn sem kom inn úr kuldanum", hefur
árum saman ásakað Sovétmenn um
ritstuld á verkum sínum.
Carre segir að sovésk yfirvöld
hefðu sent upphæðina alþjóðsam-
tökum sem fjalla um mál fangels-
aðra og ofsóttra rithöfunda, og hefði
upphæðin verið afhent í hans nafni.
Hann segir í grein í Sunday Times
að hann hafi fyrst frétt af málinu
þegar fjölskylda hins nýlátna þýska
rithöfundar Heinrich Böll sendi
honum þakkarbréf fyrir framlag til
minningar um Böll.
Carre segir í grein sinni að
greiðsla þessi gæti staðið í sam-
bandi við Raisu Gorbachev, eigin-
konu leiðtoga Sovétríkjanna, sem
margir telja að sé vel lesin f vest-
rænum bókmenntum.
— 011 hjólbarðaþjónusta fyrir fólksbíla og sendibíla —
GOODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
VISA
[hIheklahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
GOTT CHP'■ CÓD QIDINC
Fastara grip — Oruggari hemlun
Hljóðlátari akstur — Meiri ending