Morgunblaðið - 12.11.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ; ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
Meira fé fer í sovéska herinn en til menntunar ogh heilsugæslu fyrir 3,6 milljarða manna í öllum þróunarríkjum.
„World Priorities“ um útgjöldin til hermála:
Vígbúnaður vex
um veröld aUa
Wa»hington, 11. nóvember. AP.
SAMANLÖGÐ útgjöld allra ríkja
til hermála munu á þessu ári veröa
um 800 milljaröar dollara, 60 mill-
jöröum dollara meiri en á síöast-
liönu ári. Hafa þau vaxið árlega
allt frá lokum síöari heimsstyrjald-
ar.
Bandaríkjamenn og Sovét-
menn, sem eru 2% mannkyns,
standa undir helmingi heimsút-
gjaldanna og rúmlega þó. í
Bandaríkjunum og bandalags-
ríkjum þeirra í Evrópu eru árleg
útgjöld til hermála um 45 dollar-
ar á hvert mannsbarn en til
heilsugæslurannsókna fara 2
dollarar. Ef allur heimur er
hafður í huga er 450 dollurum
að jafnaði varið til að mennta
hvert barn en kostnaðurinn við
hvern hermann er aftur á móti
25.600 dollarar.
Þessar upplýsingar koma fram
í skýrslu „World Priorities",
hagrannsóknastofnunar, sem
ýmis samtök eiga aðild að, t.d.
Rockefeller-stofnunin, og eru
tölurnar sóttar í opinber gögn í
Bandaríkjunum og víðar. Til-
gangur stofnunarinnar er að
draga úr vígbúnaðarkapphlaup-
inu og vekja athygli á hve miklu
meira fé fer til hermála en til
heilbrigðismála, almannatrygg-
inga og menntunar. Þar kemur
fram m.a.:
Sovétmenn fara með meira fé
til hermála en ríkisstjórnir allra
þróunarríkjanna verja til mennt-
unar og heilsugæslu fyrir 3,6
milljarða manna.
Fjárlög bandaríska flughersins eni hærri en kostnaöur viö aö mennta
1,2 milljarða barna í Afríku, Suöur-Ameríku og Asíu.
— Fjárlög bandaríska flug-
hersins eru meiri en nemur
kostnaði við menntun 1,2 millj-
arða barna í Afríku, Suður-
Ameríku og Asíu, þar með talið
Japan.
— Iðnríkin fara að jafnaði með
5,4% af þjóðarframleiðslunni til
hermála en 0,3% í þróunarhjálp.
— Frá 1960 hefur herkostnað-
ur þriðjaheimsríkja fimmfaldast
og þjóðum, sem herforingjar
stjórna, hefur fjölgað úr 22 í 57.
— Sovétmenn hafa um 778.000
hermenn í 22 ríkjum utan Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjamenn
479.000 hermenn í 40 ríkjum utan
Bandaríkjanna.
í skýrslunni segir, að óttinn
og tortryggnin milli stórveld-
anna, Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna, sé undirrót vígbúnað-
arkapphlaupsins og ekki síst sú
öfgakennda leynd, sem Sovét-
menn reyni að hafa yfir öllum
sínum athöfnum í hermálum.
Nýr og mjög flókinn herbúnað-
ur veldur því, að kostnaðurinn
hefur margfaldast. Árið 1945
kostuðu 10 meðalfleygar
sprengjuflugvélar 10 milljónir
dollara en nú kosta þær 650
milljónir dollara. Er þá átt við
jafn gilda dollara. Fyrir 40 árum
kostaði bandarískur kafbátur 28
milljónir dollara en nú 692 millj.
Á þessum tíma hefur verð á
alengum neysluvarningi sex- til
sjöfaldast en á hergögnum allt
að fimmtíufaldast.
Vestur-Þýskaland:
7TK
II
71
£
7 \
^..k:
Honecker í opin-
bera heimsókn?
Ilamborg, Yestiir Pýskalandi, 11. nóvember. AP.
ERIK Honecker, leiötogi austur-
þýska alþýöulýöveldisins, mun heim-
sækja Vestur-Þýskaland í desember-
mánuði aö sögn vestur-þýska tíma-
ritsins Der Spiegel. Mun hann heim-
sækja Bonn og ræða við ráðamenn
í vestur-þýskum stjórnmálum, en
síöan mun hann heimsækja Saar-
land, fæðingarhérað sitt, þar sem
hann mun dveljast í þrjá daga.
Fréttinni í Der Spiegel ber
saman við frétt í Bild, sem birtist
fyrir um hálfum mánuði. Þar var
haft eftir ónafngreindum heimild-
um að Honecker myndi heimsækja
Vestur-Þýskland í desembermán-
uði, en dagsetning heimsóknarinn-
ar er ekki nánar tilgreind. Svo var
heldur ekki gert í fréttinni í Spig-
el. Þar segir ennfremur að Sovét-
menn hafi lagt blessun sína yfir
heimsóknina, að því tilskyldu að
Genfarfundur leiðtoga stórveid-
anna síðar í þessum mánuði yrði
árangursríkur. Honecker hætti við
heimsókn til Vestur-Þýskalands á
síðasta ári, að sögn vegna þrýst-
ings frá Sovétmönnum.
Saarland, fæðingarhérað
Honeckers, er eitthvert fátækasta
héraðið í sambandslýðveldi Vest-
ur-Þýskalands. Að sögn Spiegel
hefur Honecker áhuga á að bjóða
ríkinu efnahagsaðstoð, en Oscar
Lafontaine, ríkisstjóri Saarlands,
fer í opinbera heimsókn til Aust-
ur-Þýskalands í næstu viku og
verður þetta eitt af umræðuefnun-
um á fundum ráðamannanna.
Alnæmissjúklingur deyr:
Ekki nýja lyfinu að kenna
— segir frumkvöðull meðferðarinnar
París, 11. nóvember. AP.
Alnæmissjúklingur sem fengið
hefur læknismeðferö með lyfínu
cyclosporine, lést aðfaranótt sunnu-
dags. Dr. Philippe Evan, einn frum-
kvööla þessarar læknismeöferöar,
sagöi aö dánarorsökina væri ekki aö
rekja til cyclosporine lyfsins, heldur
heföi hann látist vegna heila- og
lungnasmitunar og vegna þess aö
ekki var um beinmergsframleiðslu
hjá honum að ræöa.
Sjúklingurinn, 38 ára gamall
karlmaður, var mjög langt leiddur,
áður en hann gekkst undir um-
rædda meðferð. Evan sagði að
aðrir sjúklingar hefðu sýnt miklar
framfarir og þeir myndu halda
áfram meðferðinni. Engin ástæða
væri til þess að efast um gildi
hennar, þær niðurstöður sem þeir
hefðu í höndunum staðfestu alger-
lega vonir þær sem þeir hefðu haft.
Evan sagði ennfremur að með-
ferð með cyclosporine-lyfinu væri
nú að breiðast út í Frakklandi og
sífellt fleiri sjúklingar fengju
hana.
United kaupir 116
þotur hjá Boeing
San Kranci.sco, 11. nóvember. Frá Magnúsi Þrándi
UNITED AIRLINES, stærsta flug-
félag Bandaríkjanna, hefur pantað
116 nýjar þotur hjá Boeing-flugvéla-
verksmiöjunum. Er þetta stærsta
flugvélapöntun, sem gerö hefur veriö
fyrr og síðar. Félagið þarf að snara
út rúmlega þremur milljörðum doll-
ara, eöa 150 milljörðum íslenzkra
króna, vegna kaupanna. Þoturnar
verða afhentar á næstu 10 árum,
f sumar keypti United flugleiðir
Pan Am yfir Kyrrahafið fyrir 750
milljónir dollara, eða 40 milljarða
króna, til þess að geta haslað sér
völl í millilandaflugi. Samningur-
inn var sá stærsti sinnar tegundar
í sögu flugsins. Elisabet Dole,
samgönguráðherra, staðfesti
Þóróarsyni, frétUritara Morgunbladsins.
samninginn fyrir sitt leyti í gær
og í tilefni þess gekk United frá
kaupunum við Boeing.
Hlutabréf í United og Boeing
hækkuðu er tilkynnt var um flug-
vélakaupin. Samningurinn er mik-
ill sigur fyrir Boeing, sem hefur
tapað viðskiptum til evrópska fyr-
irtækisins Airbus upp á síðkastið.
FULNINGA ÚTIHURÐIR
A ADílNS KR. 19.800
Glæsilegar og vandaöar útihuröir, 6 eöa 8
fulninga, framleiddar úr 1. flokks Honduras
mahogany.
Hurðin kostar aöeins kr. 19.800,- m/sölusk.
Þetta lága verð, sem er 30% undir verölista-
veröi, getum viö boðið vegna aukinnar vél-
væðingar og hagræöinga í framleiöslu.
Þú velur síöan karm, húna, skrá, lamir og
bréfalúgu, allt eftir bínum smekk.
Afgreiöslufrestur er 1 vika.
Áratuga reynsla í hurða- og
gluggasmíði.
TRESMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
DALSHRAUNI13
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 54A44
Filippseyjar:
Felldu 25
skæruliða
kommúnista
General Santoo-borg, Filippseyjum,
11. nóvember. AP.
STJÓRNARHERINN hratt á laugar-
dag árás um 100 skæruliða kommún-
ista á Suöur-Filippseyjum og felldi
25 skæruliöanna, aö því er heryfir-
völd sögöu í gær.
Orlando Soriano ofursti sagði,
að skæruliðarnir hefðu ráðist á
bækistöð hersins í bænum Alabel
í nágrenni General Santos-borgar
í Suður-Cotabato-héraði, um 996
km fyrir sunnan Manila. Tveir af
hermönnum stjórnarhersins féllu,
en auk skæruliðanna 25, sem létu
lífið í árásinni, urðu margir úr liði
þeirra sárir. Nokkrir voru gripnir
og færðir til bækistöðva hersins
til yfirheyrslu.
Skæruliðahreyfingin, Nýi þjóð-
arherinn, NPA, lýsti yfir fyrir
helgina, að 34 stjórnarhermenn
hefðu fallið f 21 árás skæruliða á
bækistöðvar hersins á Panay-eyju
í októbermánuði.
NPA er angi af kommúnista-
flokki landsins, en starfsemi hans
er bönnuð.