Morgunblaðið - 12.11.1985, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR12. NÓVEMBER1985
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vinna við
kælitækjaþjónustu
Við leitum að manni til að annast þjónustu á
kælitækjum og frystikerfum.
Starfið felst í því að sjá um þjónustu fyrirtækis-
ins á kæli- og frystitækjum, er þar um að ræöa
uppsetningar, viðhald og rekstur.
Staðgóð þekking á þessu sviði er nauðsynleg
og æskileg eru rafvirkjaréttindi.
Unnið er mjög sjálfstætt, góð laun eru í boði
fyrir hæfan mann, getum útvegaö leiguíbúð
og flutningskostnaður búslóðar veröur
greiddur.
Upplýsingar gefa Óskar Eggertsson fram-
kvæmdastjóri og Björn Hermannsson í síma
94-3092.
Póllinn hf., ísafiröi.
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Handavinnukennara (hannyrðir) vantar að
Grunnskóla Njarðvíkur frá áramótum.
Einnig vantar íþróttakennara frá sama tíma.
Uppl. veitir Gylfi Guömundsson skólastjóri
í síma 92-4399 og 92-4380.
Skólastjóri.
RÍKISSKIP
Tölvuritari
Ríkisskip óskar að ráða starfsmann við
gagnaskráningu. Hér er um fjölbreytta
skráningu á tölvuskerm að ræða.
Vélritunarkunnátta æskileg og viðkomandi
þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Tilboð sendist augl.deild Mbl. merkt: „Tölvu-
ritari — 3078“ fyrir 14. nóvember nk.
Rafeindavirki/
Rafvirki
Óskum eftir aö ráöa rafeindavirkja eða raf-
virkja hjá öflugu innflutnings- og framleiöslu-
fyrirtæki íausturhluta borgarinnar.
Viökomandi mun sjá um prófanir og viðgerðir
á rafeindavogum, pökkunarvélum, peninga-
kössum o.fl. Til greina kemur starfsmaður
sem nýlokið hefur námi.
í boði eru góð laun fyrir hæfan starfsmann
ásamt góðum framtíðarmöguleikum innan
fyrirtækisins. Vinnuaöstaða er mjög góð og
töluverð yfirvinna stendur til boða.
Nánari upplýsíngar á skrifstofunni frá kl.
9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavördustig la - 101 Reykjavík - Sími 621355
Snyrtisérfræðingur
Ný deild.
Óskum að ráða snyrtisérfræðing til framtíðar-
starfa í verslun okkar Skeifunni 15.
Nauðsynlegt er að viðkomandi:
• Hafi fylgst vel með nýjungum í greininni.
• Séáaldrinum 20-40 ára.
• Hafiaðlaöandiogöruggaframkomu.
• Geti hafið störf l.desembernk.
Nánari upplýsingar um starfið gefur starfs-
mannastjóri (ekki í síma) í dag þriöjudag frá
kl. 16.00-18.00 og á morgun miðvikudag frá
kl. 16.00-17.00.
HAGKAUP
Starfsmannahald, Skeifunni 15.
Ríkisbókhald
Óskum að ráða nú þegar stúlku til starfa í
skráningadeild (götun).
Laun samkvæmt kjarasamningi BSRB og fjár-
málaráðuneytis.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist ríkisbókara, Ríkisbókhaldi,
Laugavegi 13,101 Reykjavík fyrir 19. þ.m.
Atvinnurekendur
Rafvirkja á miðjum aldri óskar eftir starfi
hjá góðu fyrirtæki. Hef húsnæði miösvæðis
í Reykjavík og gæti tekið að mér viögerðir
og þjónustu fyrir innflytjendur og fyrirtæki.
Hef reynslu í skiltagerð. Óskir um nánari
uppl.' sendist augl.deild Mbl. merktar:
„Áreiöanlegur — 8352“.
Framreiðslumenn
óskum að ráða duglega lífsglaða og jákvæða
framreiðslumenn til starfa hjá okkur frá og
meö 1. janúar nk. Umsóknareyðublöð liggja
frammi ígestamóttöku.
Nánari uppl. veitir Sigurður Garðarsson.
Tæknifræðingur
Iðnlærður byggingatæknifræðingur með
reynslu við hönnun, mælingar, eftirlit, stjórn-
un og framkvæmdastjórn óskar eftir starfi
sem fyrst.
Tilboö merkt: „T — 3310“ leggist inn á
augld. Mbl. fyrir 15. nóvember.
Atvinnurekendur
Rafvirkji á miðjum aldri óskar eftir starfi hjá
góðu fyrirtæki. Hef húsnæði miðsvæðis í
Reykjavík og gæti tekiö að mér viögerðir og
þjónustu fyrir innflytjendur og fyrirtæki. Hef
reynslu í skiltagerð. Óskir um nánari uppl.
sendist augl.deild Mbl. merktar: „Áreiöanleg-
ur —8352“.
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur breytingar og viðgeröir,
trésmíðar, flísalagnir, pípu- og skolplagnir,
þakþéttingar, sprunguviðgerðir með RPM
þéttiefni.
Tilboö eöa tímavinna.
Símar 72273 eða 81068.
Sjúkraliðar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráöa sjúkraliöa
í föst störf og til afleysinga.
Húsnæði til staðar. Uppl. veitir hjúkrunarfor-
stjóri, Selma Guðjónsdóttir í síma 98-1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
fKrabbameinsfélag
ÍSLANDS
Samhjálp kvenna
Fundur í Skógarhlíð í dag þriðjudaginn 8.
nóvember kl. 20.30. Gestur kvöldsins er
Þórarinn Sveinsson, yfirlæknir krabbameins-
lækningadeildar Landspítalans. Fjallar hann
um þátt fjölskyldunnar í meðferö og endur-
hæfingu.
Samhjálp kvenna.
Samband verndaðra
vinnustaða
Undirbúningsnefnd að stofnun Sambands
verndaðra vinnustaða boðar til stofnfundar
í húsnæði Öryrkjabandalags íslands, Hátúni
10 (tengibygging), Reykjavík, þann 29. nóv-
emberkl. 14.00.
Til þessa stofnfundar er boðiö forsvars-
mönnum vinnustaða og stofnana, sem hafa
atvinnulega endurhæfingu eða rekstur vern-
daðs vinnustaðar að markmiði.
Þátttaka á fundinn tilkynnist Birni Ástmunds-
syni, Reykjalundi, sími 666200, fyrir 20.
nóvember nk. og veröur þátttakendum send
drög að lögum sambandsins eins og þau
verða lögð fram á fundinum.
Undirbúningsnefnd.
efélag
bókagerðar-
manna
Félagsfundur
Félag bókagerðarmanna heldur áríðandi fé-
lagsfund á Hótel Hofi við Rauðarárstíg, á
morgun, miðvikudag, kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Atvinnuöryggismál.
2. Kjaramálin — samningar.
3. Önnurmál.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
Stjórn FBM.
Áskriftcirsíininn er 83033